Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018
Páll Vilhjálmsson leggur út afnýrri skoðanakönnun:
Þjóðkirkjan eins og RÚV mámuna fífil sinn fegurri.
Einu sinni voruþessar ríkis-
stofnanir óskor-
aðar í veldi sínu,
trúmálum annars
vegar og hins veg-
ar rafrænni fjöl-
miðlun.
Þegar RÚV sá fram á dauða ogtortímingu vegna breyttrar
fjölmiðlunar ákvað stofnunin að
gera sig ómissandi fyrir hóp fólks
sem fer bæði með bein og óbein
völd í samfélaginu; vinstrimenn.
Með stuðningi vinstrimanna erRÚV enn á fjárlögum og fær
ríkisframlag til að þjóna sínum um-
bjóðendum – vinstrimönnum.
Þjóðkirkjan fór þveröfuga leið.Hún leitaði friðar og sátta við
fjandmenn sína, útþynnti boðskap-
inn og gerði gælur við tísku-
strauma í dægurumræðunni.
Kirkjan missti stuðning þeirrasem telja hana mikilvæga
fyrir kristna menningu en fékk að-
eins fyrirlitningu frá fjandmönnum
fyrir linkuna og aumingjaháttinn.
RÚV lifir á bandalaginu viðvaldablokk í samfélaginu en
þjóðkirkjan fellur milli skips og
bryggju.“
Margt mælir Páll spaklega.Staksteinar ætla þó að
þjóðkirkjan endist betur en hitt,
sem nefnt var, með eilíft líf í önd-
vegi.
Fallið á fífil
STAKSTEINAR
„Götubitamenning hefur eflst mik-
ið víða um hinn vestræna heim en
svo virðist sem hún verði hvergi
hraðari en á Íslandi á næstu miss-
erum,“ segir m.a. í greiningu Sjáv-
arklasans á þróun þessarar teg-
undar veitingastaða. Í umræðu á
Grandabryggju á morgun, 25.
október, klukkan 17 verður m.a.
fjallað um götubitann og íslenska
matarmenningu.
Í greiningu Sjávarklasans segir
m.a.: „Um þessar mundir eru ýms-
ir aðilar að koma fram með hug-
myndir um opnun staða á borð við
mathallirnar á Hlemmi og á
Granda. Það er kraftur í íslensku
athafnafólki og þegar ágætlega
hefur gengið með mathallirnar þá
er ekki að sökum að spyrja; nú
ætla margir frumkvöðlar að opna
götubitastaði.“
Þar segir ennfremur: „Sjávar-
klasinn vill hvetja til þess að opn-
aðir verði fleiri götubitastaðir á Ís-
landi. Hér er þó mikilvægt að
staðir sem þessir reyni sem mest
að vera trúir grundvallarhug-
myndum götubitamenningarinnar.
Í því felst að bróðurpartur stað-
anna sé í eigu einstaklinga sem
sjálfir vinna við staðina, staðbund-
in hráefni séu nýtt, vörur komi
beint frá býli eða vinnslu og gætt
sé að umhverfisþáttum. Þá er mik-
ilvægt að götubitastaðir leggi
áherslu á fjölbreytni og ekki síður
að efla íslenska götubitamenn-
ingu.“
Á fundinum á Grandabryggju á
morgun flytja fimm einstaklingar
örfyrirlestra um þróun götubita-
menningar hérlendis og erlendis
og hvernig Íslendingar og íslenska
eldhúsið geti meðtekið þann áhuga
sem er á götubitanum um allan
heim. Frummælendur verða: Lotte
Kjær Andersen framkvæmdastjóri
Torvehallerne, Róbert Aron Magn-
ússon, stofnandi Reykjavík Street
Food, Steingrímur Sigurgeirsson,
vinotek.is, Laufey Haraldsdóttir,
lektor við Háskólann á Hólum, og
Edda Ívarsdóttir borgarhönnuður.
Morgunblaðið/Ásdís
Grandi Kræsingar á borðum.
Margir stefna á
staði með götubita
Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn
stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
Með þér í liði
Alfreð Finnbogason
Landsliðsmaðu attspyrnu
„Tækifærið er núna.“
r í kn
Registered trademark
licensed by Bioiberica
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ánægja Íslendinga með störf
Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups
Íslands, minnkar talsvert frá því í
fyrra. Tæplega 14% segjast nú
ánægð með störf biskups samkvæmt
þjóðarpúlsi Gallups. Ánægjan hefur
ekki mælst jafnlítil þá rúmu tvo ára-
tugi sem hún hefur verið mæld.
Rúmlega 42% eru hvorki ánægð
né óánægð með störf biskups og 44%
eru óánægð með störf hans. Konur
eru ánægðari með störf Agnesar en
karlar og íbúar landsbyggðarinnar
ánægðari en íbúar höfuðborgar-
svæðisins.
Kirkjan tapar trausti
Traust til þjóðkirkjunnar hefur
einnig minnkað samhliða þessu en
um þriðjungur Íslendinga ber mikið
traust til þjóðkirkjunnar, um 10 pró-
sentustigum lægra hlutfall en í
fyrra. Rúmlega 28% bera hvorki
mikið né lítið traust til þjóðkirkj-
unnar en nær 39% bera lítið traust
til hennar. Eldra fólk ber meira
traust til kirkjunnar en yngra, og
íbúar landsbyggðarinnar meira en
íbúar höfuðborgarsvæðisins. Ef
horft er til fjölskyldutekna er minnst
traust til kirkjunnar í tekjuhæsta
hópnum. Meirihluti Íslendinga er
hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju.
Viðhorf fólks til aðskilnaðar er þó
nær óbreytt frá mælingum undan-
farinna ára. mhj@mbl.is
Ánægja með störf biskups hríðfellur
Meirihluti Íslendinga hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju, samkvæmt Gallup
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gallup 44% óánægð með biskup.