Morgunblaðið - 24.10.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is
lyftu þér upp..
kíktu til okkar
í mælingu
Að vera í brjóstahaldara
í réttri stærð skiptir miklu
máli, gefðu þér tíma,
við erum á Laugavegi 178
Misty
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
• Bolir
• Túnikur
• Blússur
• Peysur
• Vesti
• Jakkar
• Buxur
1988 - 2018
Nýjar glæsilegar
haustvörur
Eigum alltaf vinsælu bómullar-
og velúrgallana í stærðum S-4XL
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sjö þingmenn Miðflokksins hafa lagt
fram frumvarp á Alþingi þess efnis að
óheimilt verði að hljóðrita eða taka
myndir í þinghaldi eða í dómhúsum.
Einnig verði óheimilar myndatökur
og hljóðupptökur af sakborningum,
brotaþolum eða
vitnum á leið í
dómhús eða frá
því án samþykkis
þeirra. Fyrsti
flutningsmaður er
Þorsteinn Sæ-
mundsson.
„Það er grund-
vallaratriði í opn-
um lýðræðisssam-
félögum að þinghöld
séu háð í heyranda hljóði og vönduð
umfjöllun fjölmiðla um það sem fram
fer í dómsölum landsins er einn meg-
inþáttur þess réttaröryggis sem við
viljum búa við og þess gagnsæis sem
þarf að ríkja um starfsemi dómstóla,“
sagði Hjálmar Jónsson, formaður
Blaðamannafélags Íslands, þegar
Morgunblaðið leitaði álits hans á
frumvarpinu.
„Hugmyndir sem leggja stein í
götu þess að fjölmiðlar geti sinnt
hlutverki sínu að þessu leyti eru því í
besta falli fráleitar, svo ekki sé dýpra
í árinni tekið, ekki síst í ljósi aðdrag-
anda hrunsins og eftirmála þess og
þeirra skelfilegu brota af margvísleg-
um toga, sem uppvíst hefur orðið um
á síðustu árum og gátu þrifist vegna
leyndar og þöggunar. Við eigum að
vinna að því að gera samfélagið gagn-
særra og gegn því að torvelda eðli-
lega umræðu í samfélaginu,“ segir
Hjálmar.
Í greinargerð með frumvarpinu
segir að takmörkun á hljóð- og
myndatökum sé að norskri og
danskri fyrirmynd. Þá segir að mjög
hafi færst í vöxt að reynt sé að ná
myndum af aðilum og vitnum í dóms-
máli þegar þeir sinna erindum sínum
í dómhúsum. Einkum eigi þetta við í
opinberum málum. Undanfarin ár
hafi jafnvel verið tíðkað að beina
myndavélum inn í dómsali þegar dyr
eru opnaðar meðan á þinghaldi
stendur, svo sem þegar nýtt vitni
gengur í salinn.
Aðstæður trufla málsaðila
„Leiðir það til þess að hinn ákærði
og vitni þurfa jafnan að hafa vara á
sér að þessu leyti meðan á þinghald-
inu stendur í stað þess að einbeita sér
að málsvörn sinni eða vitnaleiðslu.
Þykja þessar aðstæður vera til þess
fallnar að trufla málsaðila, enda hafa
þær slæm áhrif á bæði sakborninga
og vitni. Dæmi eru um að vitni hafi
viljað koma sér undan því að bera
vitni vegna þessa,“ segir í greinar-
gerðinni.
„Sú takmörkun sem gert er ráð
fyrir í frumvarpinu gengur ekki of
nærri meginreglunni um opin þing-
höld að mati flutningsmanna,“ segir
ennfremur í greinargerðinni.
Vilja banna
myndatökur í
og við dómhús
Fráleitt frumvarp, segir formaður BÍ
Morgunblaðið/Hari
Héraðsdómur Mál tengd hruni bankanna hafa verið áberandi í dómssölum.
Hjálmar
Jónsson
Snædís Gunnlaugs-
dóttir, lögfræðingur á
Kaldbak við Húsavík,
lést í fyrradag, 66 ára
að aldri. Snædís vann
mikið að umhverfis-
málum, sérstaklega
skógrækt og land-
græðslu.
Snædís var fædd í
Reykjavík 14. maí
1952. Foreldrar henn-
ar voru Gunnlaugur
Einar Þórðarson
hæstaréttarlögmaður
og Herdís Þorvalds-
dóttir leikkona.
Hún varð stúdent frá MR og lauk
lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands ár-
ið 1977. Hún stundaði einnig söng- og
leiklistarnám.
Snædís hóf störf hjá bæjarfóget-
anum á Húsavík og sýslumanninum í
Þingeyjarsýslu strax að loknu lög-
fræðinámi. Þar vann hún í um þrjá
áratugi en þá stofnaði hún ferðaþjón-
ustufyrirtækið Kaldbakskot ásamt
Sigurjóni Benediktssyni, eiginmanni
sínum, og rak það til dánardags.
Snædís var í ýmsum
nefndum og félaga-
samtökum, sérstak-
lega á sviði umhverfis-
mála, lista og lögfræði,
svo sem Leikfélagi
Húsavíkur og um-
hverfissamtökunum
Húsgull. Hún var lengi
í stjórn og formaður
Skógræktarfélags
Húsavíkur. Hún var í
framboði fyrir Alþýðu-
bandalagið og óháða
við bæjarstjórnar-
kosningarnar á Húsa-
vík árið 1978 og fyrir
Bandalag jafnaðarmanna og Þjóðar-
flokkinn við alþingiskosningar 1983
og 1987.
Maður Snædísar var Sigurjón
Benediktsson tannlæknir. Þau
skildu. Þau eignuðust þrjú börn,
Sylgju Dögg, Hörpu Fönn og Bene-
dikt Þorra, og fjögur barnabörn,
Loka, Dalíu, Ylfing og Dunu.
Bálför fer fram í kyrrþey. Kveðju-
hóf verður að Kaldbak í maí næst-
komandi.
Andlát
Snædís Gunnlaugsdóttir
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis
ákvað á fundi sínum í gær að óska eftir því að
fá Sigurð Inga Jóhannsson, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, á fund nefndarinn-
ar til að svara spurningum nefndarmanna
um Samgöngustofu og áfangaskýrslu starfs-
hóps um starfshætti hennar. Þetta staðfestir
Bergþór Ólason, formaður nefndarinnar.
Aflýsa varð fundi nefndarinnar í síðustu
viku vegna þess að embættismenn ráðuneyt-
isins tilkynntu að þeir myndu ekki mæta á
fund nefndarinnar til að ræða þessa skýrslu
sérstaklega. Fundur með samgönguráð-
herra hefur ekki verið tímasettur.
helgi@mbl.is
Kalla ráðherra til fundar
Stofnun Samgöngunefnd hyggst fjalla um skýrsluna.
Morgunblaðið/Hari