Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 12

Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ——— Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is K eyrslan er stíf, púlsinn verður hraður og fólk brennir miklu svo svit- inn bogar af því. Öll göngum við þreytt út af æfingum en erum fyrir vikið miklu betur í stakk búin til að takast á við daginn með öllu sem honum fylgir,“ segir Daði Daníelsson hjá CrossFit Sport í Smár- anum í Kópavogi. Þann 10. nóv- ember næstkom- andi verður haldið upp á 10 ára af- mæli stöðvarinnar og þar með í leið- inni að áratugur er liðinn síðan Ís- lendingum var kynnt crossfit íþróttin. Vinsældir hennar aukast jafnt og þétt og iðkendur í dag skipa þúsundum. Frumkvöðullinn Glassmann Cross-fit íþróttin á upphaf sitt í Bandaríkjunum og frumkvöðullinn er Greg Glassmann. Allmörg ár eru síð- an hann kynnti þetta æfingakerfi fyrst, þá á vefsíðum sem Leifur Geir Hafsteinsson fylgdist með. Hann hélt utan, kynnti sér málið og aflaði sér þjálfararéttinda vestra. Í september árið 2008 stofnaði hann svo stöðina CrossFit Sport sem hefur frá upphafi verið undir þaki Sporthússins í Kópa- vogi og er nú í þess eigu. Skráðir æfingafélagar í CrossFit sport í Kópavogi er nú nærri 700 – og á hátíðinni í nóvember mun þetta fólk sýna saman æfingar, kynna öðrum sportið og um kvöldið á svo að gera sér glaðan dag. - „Segja má að cross- fit sé íþrótt sem sameinar allskonar æfingar og setur saman í eitt kerfi. Við byrjum tímana á tuttugu mín- útum í upphitun og teygjum svo fólk sé tilbúið í frekari átök,“ segir Daði. Hópurinn er ein sál „Svo er þetta blanda af lyfting- um í ýmsum útgáfum, hlaupum, fim- leikum og æfingum með líkamsþyngd og ketilbjöllum og svo eru teknir sprettir á hjóli og róðrarvélum, svo eitthvað sé nefnt . Æfingarnar eru oft settar þannig upp að þú náir ákveðn- um fjölda endurtekninga á tilteknum tíma og byggir þannig upp styrk, þol og tækni. Hver tími er klukkustund og allt er skipulagt fyrirfram af kenn- aranum sem leiðir hópinn áfram. Og það sem mér fannst nú galdurinn við þetta allt var félagsskapurinn; í tím- um fær hópurinn, sem gjarnan er um tuttugu manns, eina sál. Upplifunin sem það gefur er alveg ævintýraleg.“ Sterk fyrirmynd Fremst á Íslandi í cross-fit er efalaust Annie Mist; tvöfaldur heims- meistari kvenna í greininni. „Annie Mist er afar sterk fyrir- mynd og opnaði leiðina fyrir aðrar stelpur í greininni. Þar má nefna heimsmeistarann Katrínu Tönju Davíðsdóttur og svo Söru Sigmunds- dóttur og Þuríði Erlu Helgadóttur. Þessar stelpur æfar kannski tíu sinn- um í viku og eru að gera ótrúlega flotta hluti. Þær vekja athygli svo iðk- endum í sportinu fjölgar jafnt og þétt. Stundum heldur maður að hámarki í þessu sporti sé náð en svo er aldeilis ekki. Samfélag cross-fit iðkenda á Ís- landi er ótrúlega sterkt og æfinga- stöðvarnar orðnar í kringum tuttugu. Ævintýrið er rétt að byrja,“ segir Daði Daníelsson að síðustu. Allir koma þreyttir af æfingum Crossfit er íþrótt sem nýt- ur vaxandi vinsælda. Lyftingar, hlaup, fim- leikar og fleira er í pakk- anum. Tíu ár eru síðan sportið var kynnt Íslend- ingum fyrst og nú verður tímamótanna minnst. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugfólk Starfsfólk Icelandair á CrossFit æfingu. Góður hópur fólks sem þarf að vera í formi því flug og tímaflakk reynir á líkamann. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Lyftingar Kristján Hrafn Kristjánsson tók hraustlega á því með þung lóðin. Daði Daníelsson „Æfingarnar eru fjölbreyttar og halda mér í formi. Í flugfreyjustarfinu flakkar maður milli tímabelta hér og þar í heiminum og álagið er oft mikið. Því er nauðsynlegt að vera í þjálfun og crossfitið hentar mér vel,“ segir Auður Hallgrímsdóttir flugfreyja. Starfsmenn frá Icelandair mæta á hverjum virkum morgni í æfingar hjá CrossFit Sport og eru þar í lokuðum hópi sem kallast FitToFly. Gjarnan eru 15-20 manns í tímunum en mæt- ingin er annars frjáls. „Ég var sem barn í fótbolta og þessari hefðbundnu rækt. Seinna kynntist ég víkingaþreki hjá Mjölni sem er æfingakerfi svipað og cross- fit. Heyrði svo af hópnum FitToFly haustið 2016 og þá varð ekki aftur snúið,“ segir Auður. „Fyrri helming- urinn í tímunum er gjarnan lyftingar og eins og í dag bættum við þar við hlaupum, kassahoppum og ketil- bjölluæfingum. Þegar cross-fitinu lýkur tökum við svo almennt spjall og reynum að vera dugleg að teygja svo æfingin verður oft um tvær klukku- stundir. Svo fylgir þessu líka félags- skapur og ég hef stundum sagt að vinnufélagarnir sem ég æfi með séu nánast mín önnur fjölskylda.“ Auður segir misjafnt hve oft hún nái æfingum. Stundum séu þær 3-4 í viku en inn á milli komi eyður svo sem þegar hún er í ferðalögum ytra. „Það hentar til dæmis ekki að koma hingað klukkan tíu þegar ég kem úr Bandaríkjaflugi fyrr um morguninn. En þá fer ég frekar á æfingu síðdegis þann sama dag og kem þaðan til baka eins og ný manneskja,“ segir Auður að síðustu. FitToFly fyrir fólk sem flakkar milli tímabelta Kassahopp og ketilbjöllur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þrek Auður Hallgrímsdóttir sveiflar ketilbjöllu á æfingu í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.