Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018
Það er alveg ljóst að vasa- og höfuðljósin frá Fenix
standast ströngustu kröfur útivistarfólks um gæði,
endingu og styrkleika. Þau gera þér kleift að sjá
lengra og létta þér leit við krefjandi aðstæður.
Ljósstyrkur: 3200 lumens
Drægni: 408 m
Lengd: 266,2 mm
Þvermál: 28,6 mm
Þyngd: 365 g (fyrir utan rafhlöður)
Vatnshelt: IP68
Fenix UC35 V2
Létt og sterklegt vasaljós með 1000 lúmena
hámarksljósstyrkleika og allt að 266 m drægni.
Sannkallað ofurvasaljós hannað með öryggis-
og löggæslu í huga. 3200 lúmena ljósgeisli,
yfir 400 metra drægni og góð rafhlöðuending.
Vasaljósið er einnig útbúið fjölnota afturljósi
með fjórum stillingum, m.a. rauðu ljósi til
merkjasendinga.
FENIX HL60R
Lipurt og létt höfuðljós með góða rafhlöðu-
endingu. Ljósgeislinn getur náð allt að 950
lúmenum og allt að 116 m drægni.
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
Fenix TK47UE
Hægt að hlaða
um USB snúru.
Hægt að hlaða
um USB snúru.
Hong Kong. AFP. | Xi Jinping, forseti
Kína, opnaði í gær lengstu sjávarbrú
heimsins og neðansjávargöng sem
eiga að tengja sjálfstjórnarsvæðin
Hong Kong og Macau og iðnaðar-
svæði á meginlandi Kína í grennd við
borgina Zhuhai.
Brúin og göngin eru alls um 55 km
löng, þar af eru göngin 6,7 km. Kín-
verskir ríkisfjölmiðlar segja að notuð
hafi verið 420.000 tonn af stáli í
mannvirkin, nóg til að reisa 60 Eiffel-
turna, og 1,08 milljónir rúmmetra af
steypu. Brúin er nógu há til að stór
flutningaskip geti siglt undir hana og
komist til hafna við mynni Perluár
um eina af fjölförnustu siglinga-
leiðum heims. Brúin á að endast í
a.m.k. 120 ár og geta þolað fimmta
stigs fellibyl og vindhraðann 94 m/s.
Stuðningsmenn mannvirkjanna
líta á þau sem verkfræðilegt stórvirki
en andstæðingar þeirra hafa lýst
þeim sem gagnslitlu og fokdýru
gæluverkefni. Kínversk stjórnvöld
hafa ekki viljað greina frá heildar-
kostnaðinum við framkvæmdirnar.
Akstur takmarkaður
Íbúar Zhuhai, Macau og Hong
Kong hafa notað ferjur til að komast
á milli borganna. Verkfræðingar sem
skipulögðu framkvæmdirnar segja
að brúin og göngin stytti ferðatím-
ann milli Hong Kong og Zhuhai úr
fjórum klukkustundum í 45 mínútur.
Akstur einkabíla verður takmark-
aður. 10.000 bílar fá leyfi til að aka
milli Hong Kong og kínverska
meginlandsins og í Macau er kvótinn
aðeins 300 bílar. Þeir sem sækja um
leyfin þurfa að uppfylla ýmis skilyrði,
þurfa annaðhvort að starfa fyrir
ákveðnar ríkisstofnanir í Kína, að
hafa greitt skatta nýlega á megin-
landinu eða gefið fimm milljónir
júana, jafnvirði rúmra 85 milljóna
króna, til góðgerðarstarfsemi í
suðurhluta Kína. Þeir sem ekki fá
leyfi til að aka á brúnni þurfa að fara
með lestum eða strætisvögnum að
henni og fara síðan í sérstakar rútur.
Við það lengist ferðatíminn.
Fjölmiðlar í Hong Kong segja að
sérstakar eftirlitsmyndavélar verði
notaðar til að fylgjast með rútubíl-
stjórum og eigi að gera yfirvöldum
viðvart ef þeir geispa of oft á brúnni
eða í göngunum.
Ökumenn eiga að aka hægra meg-
in á þeim hluta brúarinnar sem til-
heyrir Kína en vinstra megin á hlut-
anum sem heyrir undir Hong Kong.
Framkvæmdir hófust: 2009
Heildarlengd: 55 km
Hong
KongMacau
Guangzhou
GUANGDONG
Zhuhai
Brúin milli Zhuhai, Hong Kong og Macau
Heimild: Þjóðvegastofnun Hong Kong
Zhuhai og Macau
Eftirlits- og
móttökustöð
Hong Kong
Eftirlits- og
móttökustöð
Mörk Hong Kong
Mörk Macau
Hong Kong--
eyja
Kowloon
Neðan-
sjávargöngAðalbrú
Akbraut með
þremur akreinum
10km
Gervi-
eyjur
Mynni Perluár
MACAU
HONG KONG
KÍNA
KÍNA
ZHUHAI
Shekou
Lantau-
eyja
Lengsta sjávarbrú
heimsins tekin í notkun
Ramallah. AFP. | Öryggissveitir pal-
estínsku heimastjórnarinnar á
Vesturbakkanum og Hamas-sam-
takanna á Gazasvæðinu hafa brotið
skipulega gegn mannréttindum og
pyntað fanga, að því er fram kemur
í nýrri skýrslu frá mannréttinda-
samtökunum Human Rights
Watch, HRW. Þau segja brotin
geta talist glæpur gegn mannkyn-
inu.
Í skýrslunni kemur fram að ör-
yggissveitirnar hafa handtekið fólk
án dóms og laga fyrir að gagnrýna
yfirvöldin, þeirra á meðal pólitíska
andstæðinga, mótmælendur, blaða-
menn og bloggara. Fangarnir séu
pyntaðir skipulega, meðal annars
með því að berja þá eða gefa þeim
raflost.
Omar Shakir, sem stjórnar starf-
semi HRW í Ísrael og á svæðum
Palestínumanna, sagði að brotin
flokkuðust sem stríðsglæpur og
Alþjóðaglæpadómstóllinn gæti sak-
sótt þá sem bæru ábyrgð á þeim.
„Kerfisbundnar pyntingar sem
þáttur í stefnu stjórnvalda eru
glæpur gegn mannkyninu,“ sagði
Shakir. Hann bætti við að mann-
réttindabrot palestínskra yfirvalda
græfu undan gagnrýni þeirra á
mannréttindabrot Ísraela. „Palest-
ínskir leiðtogar fara um heiminn og
tala um réttindi Palestínumanna á
sama tíma og þeir beita kúgunar-
vélum til að bæla niður andstöðu.“
Palestínska heimastjórnin neit-
aði ásökunum mannréttindasam-
takanna og sakaði þau um að ganga
erinda Bandaríkjastjórnar. Áður
höfðu samtökin verið gagnrýnd fyr-
ir að hafa einblínt á mannréttinda-
brot Ísraela og litið framhjá brot-
um palestínskra yfirvalda.
Sökuð um skipu-
legar pyntingar
AFP
Ný skýrsla Omar Shakir sakar pal-
estínsk yfirvöld um stríðsglæpi.
Palestínsk yfir-
völd gagnrýnd í
skýrslu HRW
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrk-
lands, sagði í ræðu í gær að morðið á
sádiarabíska blaðamanninum Jamal
Khashoggi hefði verið skipulagt út í
ystu æsar og krafðist þess að allir
sem tengdust því yrðu sóttir til saka.
Erdogan sagði að Tyrkir hefðu
„sterkar sannanir“ fyrir því að Khas-
hoggi hefði verið myrtur að yfirlögðu
ráði í ræðisskrifstofu Sádi-Arabíu í
Istanbúl 2. október. Hann krafðist
þess að átján Sádar, sem eru í haldi í
Sádi-Arabíu vegna málsins, yrðu
framseldir til Tyrklands. Hann krafð-
ist einnig upplýsinga um hverjir fyrir-
skipuðu morðið og hvar lík blaða-
mannsins væri.
Erdogan hvatti til þess að komið
yrði á fót óháðri nefnd til að rannsaka
morðið og kvaðst vera viss um að mál-
ið yrði leyst í fullri samvinnu við kon-
ung Sádi-Arabíu. Hann minntist hins
vegar ekki á krónprinsinn Mohamm-
ed bin Salman, sem er álitinn valda-
mesti maður landsins um þessar
mundir.
Óvenju varfærinn
Erdogan hefur verið þekktur fyrir
stórkarlalegar yfirlýsingar en frétta-
skýrendur sögðu að hann hefði verið
óvenju varfærinn í ræðunni. Jana
Jabbour, prófessor við háskólann
Sciences Po í París, sagði að Erdogan
hefði getað gagnrýnt stjórnvöld í
Sádi-Arabíu með miklu hvassari
hætti en ræða hans hefði verið hóf-
stillt og það benti til þess að hann
hefði náð samkomulagi á bak við
tjöldin um samstarf við Sáda. Frétta-
skýrandi breska ríkisútvarpsins sagði
að stjórnvöld í Bandaríkjunum kynnu
einnig að hafa þrýst á Erdogan að
vera ekki harðorður í garð Sáda.
Ríkisstjórn Sádi-Arabíu kom sam-
an í gær til að ræða málið og sagði að
allir sem væru viðriðnir morðið yrðu
dregnir til ábyrgðar „hverjir sem þeir
kynnu að vera“. Konungurinn og
krónprinsinn áttu fund með syni og
bróður Khashoggis í konungshöllinni
í Ríad.
Tyrkneskir embættismenn hafa
sagt að þeir trúi því ekki að Khas-
hoggi hafi verið myrtur án fyrirmæla
frá krónprinsinum. Málið hefur valdið
honum miklum álitshnekki og tor-
veldað tilraunir hans til að tryggja
auknar erlendar fjárfestingar í land-
inu. Málið varð til þess að tugir for-
stjóra og vestrænna embættismanna
hættu við að taka þátt í þriggja daga
fjárfestingaráðstefnu sem hófst í
Ríad í gær.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu fullyrtu í
fyrstu að Khashoggi hefði farið út úr
ræðisskrifstofunni skömmu eftir að
hann kom í hana en sögðu síðar að
hann hefði beðið bana í „slagsmál-
um“. Þau hafa nú viðurkennt að hann
hafi verið myrtur en segja að morðið
hafi verið framið fyrir mistök án fyrir-
mæla frá ráðamönnum landsins.
Segir morðið
hafa verið
þaulskipulagt
Erdogan krefst þess að Sádar upplýsi
hverjir fyrirskipuðu morð á Khashoggi
AFP
Krónprinsinn Mohammed bin Salm-
an á ráðstefnu í Ríad í gær.