Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018
Með Firmavörn+ geta stjórnendur fylgst með og
stýrt öryggiskerfi, myndeftirliti og snjallbúnaði
fyrirtækisinsmeð appi í símanum hvar og hvenær
sem er. Stjórnstöð Securitas er á vaktinni allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
www.firmavorn.is
HVAR SEM ÞÚ ERT
EErla Sylvía Guðjónsdóttir ólst upp í Hafnarfirði, var í Öldu-túnsskóla, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykja-vík og viðskiptafræðiprófi frá HÍ árið 2001. Hún bjó í Dan-
mörku um skeið og stundaði þar nám í mannauðsstjórnun en lauk
MSc-prófi í þeirri grein frá Háskóla Íslands síðastliðið sumar.
Erla Sylvía hefur sinnt ýmsum störfum og var mannauðsstjóri hjá
Öskju – bílaumboði síðastliðin fjögur ár. Nú stundar hún nám í stjórn-
endamarkþjálfun við Háskólann í Reykjavík, lauk námi í jógakennslu
nú í sumar og kennir jóga hjá Sólum – jógastúdíói vestur á Granda:
„Ég kynntist jóga fyrir tíu árum, hef sjálf nýtt mér jóga mikið og mæli
eindregið með jógaiðkun fyrir fólk á öllum aldri. Sífellt fleiri og fjöl-
mennari rannsóknir ýmissa virtustu læknaháskóla og heilsustofnana í
veröldinni gefa eindregið til kynna hve jógaiðkun er heilsusamleg
fyrir líkama og sál.“
Erla Sylvía á þrjú börn, Guðjón Inga, 14 ára, Rakel Líf, sjö ára, og
Hildi Líf, fimm ára.
En hvað ætlar Erla Sylvía að gera á afmælisdaginn?
„Ég ætla nú bara í skólann í fyrramálið, en annað kvöld mun ég
halda upp á afmælið með systrum mínum og vinkonum. Við höfum
ákveðið að fara svolítið út á lífið, ætlum á veitingastaðinn Sæta svínið
sem er í miðbænum og skemmta okkur við karaoke.“
Heima í sófa Erla Sylvía með Hildi Líf, Guðjóni Inga og Rakel Líf.
Karaoke í kvöld –
á Sæta svíninu
Erla Sylvía Guðjónsdóttir er fertug í dag
K
ristjóna Þórðardóttir
(Jóna á Laxamýri)
fæddist í Reykjavík
24.10. 1938 og ólst þar
upp: „Ég fæddist á
Grundarstíg 11 en við áttum heima
í Mjóstrætinu þar sem faðir minn
rak járnsmíðaverkstæði. Er ég var
12 ára fluttum við í Hólmgarðinn en
þá var Bústaðahverfið að rísa. Ég
er því eitt af frumbýlisbörnum
hverfisins. Þar átti ég heima fram á
fullorðinsár. Þarna var miklu minni
byggð en í dag og nokkur kúabú og
hænsnabú.
Þótt ég hafi verið húsfreyja á
Laxamýri er ég sjálf Sunnlendingur
í húð og hár. Ég var mikið í sveit á
sumrin, t.d. á Urriðafossi við Þjórsá
í þrjú sumur, og síðan í Grímsnes-
inu, í Björk í eitt sumar, tvö sumur
í Miðengi og auk þess oft á Snæ-
foksstöðum í fríum. Á öllum þessum
bæjum var gott að vera hjá góðu
fólki.“
Kristjóna var í Miðbæjarskólan-
um, útskrifaðist úr Kvennaskólan-
um, stundaði nám við Bankaskól-
ann og var í Húsmæðraskóla í
Þelamörk í Noregi í hálft ár.
Kristjóna vann á skrifstofu Tím-
ans í þrjú ár og starfaði síðan við
Útvegsbankann í nokkur ár.
Þegar hér var komið sögu kynnt-
ist Kristjóna eiginmanni sínum,
bóndasyni að norðan, og árið 1962
flutti hún norður að Laxamýri í
Suður-Þingeyjarsýslu og var þar
síðan húsfreyja: „Ég get varla sagt
að ég hafi komið norður yfir heiðar
áður en ég flutti að Laxamýri og
átti engin skyldmenni á Norður-
landi. En ég var vön sveitastörfum
og fljót að aðlagast nýju umhverfi.“
Jóna Þórðardóttir, fv. húsfreyja á Laxamýri – 80 ára
Stór hópur Jóna á Laxamýri með börnum sínum og öðrum nánustu ættingjum í afmælisveislunni um daginn.
Félagslynd húsfreyja
á víðfrægu stórbýli
Með börnunum Sveinbjörg, Halla
Bergþóra, Jón Helgi og Jóna.
Óttar Möller, fyrrverandi forstjóri
Eimskipafélags Íslands, er hundrað
ára í dag.
Árnað heilla
100 áraReykjavík Jóna Maren fæddist 21.
júní 2018. Hún vó 2.930 g og var 47
cm að lengd. Foreldrar hennar eru
Erna Jóna Guðmundsdóttir og Sindri
Þór Kárason.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is