Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 27
Laxamýri hefur lengi verið ein stærsta jörð landsins. Þar er bland- aður búskapur, mikil hlunnindi af laxveiði, æðarvarpi og reka, ætíð gestkvæmt og mörg börn til sumar- dvalar þar á árum áður. Auk annasamra bústarfa hús- freyju á stóru býli starfaði Krist- jóna utan heimilis eftir að börnin fóru að stálpast, var ritari slátur- hússtjórans á Húsavík í 15 haust og starfaði á skrifstofu Manwille sem sá um sölu á kísilgúr og sinnti al- mennum störfum við Hótel Húsavík í nokkur ár. Kristjóna gekk í Rauða krossinn í Reykjavík er hún var 18 ára, hef- ur verið í Rauðakrossdeildinni á Húsavík frá 1974 og var formaður hennar í rúm fjögur ár. Hún hefur alla tíð verið mikil kvenréttinda- kona, gekk í Kvenfélag Reykja- hrepps, sat í stjórn þess og var for- maður þess, sat í stjórn Kven- félagasambands Suður-Þingeyinga og Kvenfélagasambands Íslands í nokkur ár og sat í barnaverndar- nefnd hreppsins. Fjölskylda Eiginmaður Kristjónu var Björn Gunnar Jónsson, f. á Laxamýri 4.2. 1933, d. 1.1. 1997, bóndi á Laxa- mýri. Hann var sonur Jóns Helga Þorbergssonar, f. 31.7. 1882, d. 5.1. 1979, stórbónda á Bessastöðum á Álftanesi og síðar á Laxamýri, og k.h., Elínar Vigfúsdóttur, f. 29.9. 1891, d. 22.8. 1986, húsfreyju, frá Gullberastöðum í Lundarreykjadal. Börn Kristjónu og Björns Gunn- ars eru: 1) Sveinbjörg, f. 15.3. 1963, leikskólakennari í Kópavogi, búsett í Mosfellsbæ en maður hennar er Helgi Hróðmarsson viðskiptafræð- ingur og eru dætur þeirra Svava Guðrún, f. 1992, og Birna Kristín, f. 1996; 2) Jón Helgi, f. 26.7. 1966, for- stjóri Heilbrigðisstofnunar Norður- lands og bóndi á Laxamýri en kona hans er Ingibjörg Sigurjónsdóttir sálfræðingur og eru börn þeirra Björn Gunnar, f. 2002, og Sjöfn Hulda, f. 2005; 3) Halla Bergþóra, f. 16.7. 1969, lögreglustjóri Norður- lands eystra, búsett á Akureyri, en maður hennar er Kjartan Jónsson rafmagnsiðnfræðingur og eru börn þeirra Jón, f. 2003, og Jóna Birna, f. 2006. Tvö önnur barnabörn Krist- jónu og Björns Gunnars eru Jón Helgi, f. 12.4. 1990, og Freydís Björk, f. 4.10. 1994, börn Elínar Margrétar Hallgrímsdóttur og Kjartans Helgasonar, en Elín Mar- grét ólst upp hjá afa sínum og ömmu á Laxamýri. Bræður Kristjónu: Reynir, f. 31.10. 1929, d. 18.8. 2016, húsasmið- ur í Reykjavík; Halldór, f. 6.12. 1931, d. 26.1. 1998, leigubifreiða- stjóri í Reykjavík; Þórir, f. 26.8. 1933, d. 11.6. 2017, leigubifreiða- stjóri í Reykjavík, og Magnús, f. 7.7. 1940, húsasmiður og fv. mats- maður í Reykjavík. Foreldrar Kristjónu voru Þórður Jóhannesson, f. 6.7. 1904, d. 7.3. 1959, járnsmiður í Reykjavík, og k.h., Sveinbjörg Halldórsdóttir, f. 10.11. 1901, d. 25.2. 1992, húsfreyja í Reykjavík. Kristjóna Þórðardóttir Katrín Sigurðardóttir húsfreyja á Ásmundarstöðum Jósef Ísleifsson b. á Ásmundarstöðum í Holtum Þórdís Jósefsdóttir húsfreyja í Sauðholti Halldór Halldórsson b. í Sauðholti í Holtum Sesselja Katrín Ásgrímsdóttir húsfreyja í Sauðholti Halldór Tómasson b. í Sauðholti, bróðursonur Þórðar, langafa Helgu, móður Benedikts hrl., Einars fv. forstjóra og Ingimundar arkitekts Sveinssona Einar Gunnarsson fiskmatsm. á Ísafirði Jónína Einarsdóttir húsfreyja í Flatey Sveinbjörg Guðríður M. Haraldsdóttir húsfreyja í Vancouver í Kanada Bjarni V. Tryggvason verkfr. og geimfari Gunnar Tómasson b. í Sauðholti Þórir Þórðarson leigubílstjóri í Rvík Þórir Þórisson markaðsstjóri hjá Innnes Þórunn Reynisdóttir framkvæmdastjóri í ferðaþjónustu Reynir Þórðarson smiður í Rvík Kristín Halldórsdóttir fatahönnuður Halldór Þórðarson leigubílstjóri í Rvík Þórður Magnússon verkfræðingur í Rvík Magnús Þórðarson smiður og matsmaður í Rvík Úr frændgarði Kristjónu Þórðardóttur Kristján Jónsson landpóstur á Eskifirði Guðríður Filippusdóttir húsfreyja í Vétleifsholti Jón Pétursson b. í Vétleifsholti í Holtum Kristgerður Jónsdóttir húsfreyja á Egilsstöðum í Flóa og í Rvík Jóhannes Þórðarson b. á Egilsstöðum í Flóa og trésmiður í Rvík Sesselja Magnúsdóttir húsfreyja á Egilsstöðum Þórður Guðnason b. á Egilsstöðum Þórður Jóhannesson járnsmiður í Rvík Sveinbjörg Halldórsdóttir húsfreyja í Rvík Aðalsteinn Aðalsteinsson knattspyrnu- kempa og þjálfari Þorbergur Aðalsteinsson handbolta- kempa og þjálfari Aðalsteinn Jón Þorbergs- son pípu- lagningam. í Rvík Ingibjörg Halldórs- dóttir húsfreyja í Rvík Úlfar Jónsson kylfingur Halldór Halldórsson starfsm. á Keflavíkur­ flugvelli Jón Halldórsson starfsm. á Keflavíkur­ flugvelli ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 EFNAVARA FRÁ VWR Fastus hefur nú hafið innflutning og sölu á efnavöru frá VWR. Efnavörurnar frá VWR samanstanda af þeirra eigin framleiðslu sem býðst nú á einstaklega góðu verði, ásamt efnavöru frá J.T.Baker, Honeywell, Alfa Aesar og Acros Organics. Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Jakobína Johnson fæddist áHólmavaði i Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu 24.10. 1883. Hún var dóttir Sigurbjarnar Jó- hannssonar, bónda og skálds á Fóta- skinni og Hólmavaði sem þótti með betri skáldum Þingeyinga á sinni tíð, og Kristbjargar Kristjánsdóttur hús- freyju. Jakobína flutti fimm ára vestur um haf með fjölskyldu sinni og var síðan búsett í Kanada og Bandaríkjunum. Hún ólst upp í Argyle í Manitoba, lauk kennaraprófi árið 1904 og var síðan kennari í nokkur ár. Jakobína giftist íslenskum manni af austfirskum ættum, Ísak Jónssyni. Hún var húsfreyja í Winnipeg í Mani- toba og Victoria á Vancouvereyju i British Columbia í Kanada en lengst af voru þau hjónin búsett í Seattle í Washingtonríki í Bandaríkjunum eða frá 1909. Eftir Jakobínu birtist töluvert af frumsömdu efni og þýðingum í vest- uríslenskum blöðum og tímaritum. Hún sendi frá sér ljóðabókina Kerta- ljós 1939 og barnaljóðabókina Sá ég svani 1942, en heildarútgáfa ljóða hennar, Kertaljós, kom út 1955. Þá gaf hún út þýðingasafnið Northern Lights 1959. Jakobina þýddi töluvert íslenskra bókmennta á ensku, s.s. leikritin Lénharð fógeta eftir Einar H. Kvar- an; Nýársnóttina eftir Indriða Ein- arsson og Galdra-Loft eftir Jóhann Sigurjónsson. Þá þýddi hún fjölda ís- lenskra ljóða sem m.a. birtust í safn- ritinu Icelandic Lyrics, Icelandic Poems and Stories, og í 20th Century Scandinavian Poetry og Northen Lights. Jakobínu var boðið til Íslands sum- arið 1935 í viðurkenningarskyni fyrir kynningu hennar á Íslandi og ís- lenskum bókmenntum vestanhafs. Hún ferðaðist víða um landið, m.a. á bernskuslóðir sínar í Þingeyjarsýslu, dvaldi í Reykjavík og á Akureyri og las upp úr ljóðum sínum á þessum tveimur stöðum. Áður en hún hélt aftur utan var henni haldið veglegt og fjölmennt kveðjuhóf í Reykjavík. Jakobína lést hinn 7.7. 1977. Merkir Íslendingar Jakobína Johnson 90 ára Óðinn Rögnvaldsson 85 ára Guðbrandur Þórðarson Helga Karlsdóttir Jón Baldvinsson Sigrún Halldórsdóttir Unnur Einarsdóttir 80 ára Kristjóna Þórðardóttir Sigríður Sigurðardóttir Þórður Þorsteinsson 75 ára Birna Halldórsdóttir Jóna Berg Garðarsdóttir Kristjana Sigurðardóttir Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir 70 ára Erlingur Þorsteinsson Guðný Hallgrímsdóttir Halldór Þórður Ólafsson 60 ára Heba Gunnrún Haraldsdóttir Jakob Geir Kolbeinsson Jens Valur Ólason Magnús G. Gunnarsson Oktavía Jóhannesdóttir Þorsteinn G. Hjartarson 50 ára Einar Þór Skarphéðinsson Elísabet Iðunn Einarsdóttir Fjóla Karlsdóttir Jóhann Örn Ingvason Jónas Magnússon Jónína Kristín Magnúsdóttir Kristinn Þór Skjaldarson Mihai-Marian Clont Sigríður Guðbrandsdóttir Sigrún Gunnarsdóttir Sigrún Karlsdóttir Soffía Jónsdóttir Soffía S. Sigurgeirsdóttir Viðar Karlsson 40 ára Bragi Höskuldsson Erla Sylvía Guðjónsdóttir Ewelina Nowacka Ingunn Ragna Sævarsdóttir Ísabella Theodórsdóttir Katarzyna Niznik Leszek Jan Kopacki Lilja Dögg Gunnarsdóttir Sigríður Dagný Guðjónsdóttir Sigrún Svanhvít Óskarsdóttir Sindri Örn Garðarsson Telma Kjaran Warsha Singh Þórarinn Möller Ögmundur Jónsson 30 ára Anna Gréta Oddsdóttir Arvydas Zakarauskas Ása Dís Kristjánsdóttir Bjarni Tryggvason Jóhannes Jóhannesson Linda María Karlsdóttir Marcin Kabala Olav Sommerset Risdal Ólafur Vignir Þórarinsson Sigvaldi Örn Gústavsson Sveinn Óli Friðriksson Til hamingju með daginn 30 ára Linda ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk stúdentsprófi frá Borgar- holtsskóla og vinnur hjá Esju gæðafæði. Maki: Úlfur Orri Péturs- son, f. 1987, rafvirki. Dóttir: Alma Þóra Úlfs- dóttir, f. 2017. Foreldrar: Kristín Karls- dóttir, f. 1953, starfs- maður hjá Prentsmiðjunni Odda, og Karol Karlsson, f. 1947, fv. sjómaður. Þau búa í Reykjavík. Linda María Karlsdóttir 30 ára Jóhannes ólst upp í Vestmannaeyjum, býr í Reykjavík, lauk prófi sem þyrluflugmaður frá Euro- pean Helicopter Center í Noregi og flýgur hjá Gæslunni. Maki: Abigail Jean Ró- bertsdóttir, f. 1993, hjúkr- unarfræðingur. Foreldrar: Jóhannes Ósk- arsson, f. 1940, rafvirki, og Ásgerður Margrét Þor- steinsdóttir, f. 1945, mat- ráðskona. Jóhannes Jóhannesson 30 ára Anna Gréta ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BSc-prófi í sálfræði frá HÍ og er flugfreyja hjá Wow air og jógakennari. Maki: Fannar Guðmunds- son, f. 1986, verkfræð- ingur. Foreldrar: Oddur Haf- steinsson, f. 1965, ráð- gjafi í upplýsingaöryggi í Tjarnabyggð og Jóna Guðný Jónsdóttir, f. 1966, afgreiðslustjóri Póstsins á Siglufirði. Anna Gréta Oddsdóttir Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.