Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 36
TÍMINN VINNUR
MEÐ FLUGKORTINU
Hjá blómlegum fyrirtækjum eru
starfsmenn gjarnan á ferð og
flugi. Með sérstökum afsláttar-
kjörum á flugi eykur Flugkortið
hagkvæmni í rekstri og tryggir
lægri ferðakostnað starfsmanna.
Skerðu niður
ferðakostnaðinn
innanlands
Tryggðu fyrirtækinu þínu Flugkortið á airicelandconnect.is
Skuggakvartett saxófónleikarans
Sigurðar Flosasonar kemur fram á
tónleikum djassklúbbsins Múlans á
Björtuloftum í Hörpu í kvöld kl. 21
og flytur tónlist á mörkum djass og
blús af fyrri plötum Sigurðar í þeim
stíl, þ.e. Bláum skuggum, Bláu ljósi
og Bláu lífi. Einnig verða flutt ný lög
í sama stíl. Með Sigurði koma fram
gítarleikarinn Andrés Þór Gunn-
laugsson, Þórir Baldursson á
hammondorgel og Jóhann Hjör-
leifsson sem leikur á trommur.
Skuggakvartett
á Björtuloftum
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 297. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
„Vegna þess hversu lítið við þekkj-
um til Grikkjanna getur leikurinn
verið okkur hættulegur. Rætt er um
skyldusigur af okkar hálfu og þess
háttar en sú er aldeilis ekki raunin
að mínu mati,“ segir Arnór Þór
Gunnarsson, landsliðsmaður í
handknattleik, um leikinn við Grikki
í Laugardalshöll í kvöld í undan-
keppni EM 2020. »1
Hættulegur leikur við
Grikki í kvöld
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Þýska knattspyrnuliðið Augsburg
virðist geta stólað á að Alfreð
Finnbogason skori í öðrum hverj-
um leik að jafnaði og biðin á milli
marka því með stysta móti. Alfreð
hefur nú skorað 26 mörk í 52
leikjum fyrir Augsburg
og á ferlinum í
heild sinni er hann
með ennþá betra
hlutfall á milli
marka og leikja.
Farið er ítar-
lega yfir
markaskor
Alfreðs
og feril í
íþrótta-
blaðinu
í dag.
»4
Stóla á að Alfreð skori
í öðrum hverjum leik
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Íslenska quidditch-liðið Reykjavík
Ragnarök keppti um helgina á
Norðurlandamótinu í quidditch.
Íþróttin á rætur að rekja til hinnar
geysivinsælu bókaraðar um Harry
Potter en íþróttin sjálf er þó ögn
frábrugðin því sem finnst í bók-
unum.
„Þetta gekk framar öllum von-
um. Ísland hafði aldrei unnið
quidditch-leik fyrir þetta mót þann-
ig að okkur var spáð neðstu sæt-
unum og sagt fyrir Kaupmanna-
hafnarleikinn að þetta yrði fínn
leikur fyrir okkur, liðin væru svip-
uð. Þannig fórum við langt fram úr
væntingum strax í fyrsta leik,“
sagði Sigurður Skúli Sigurgeirsson,
þjálfari liðsins, eftir mótið en lið
Reykjavíkur sigraði Copenhagen
Harpies í fyrsta leiknum 170-40.
Sigurður segir að lýsa megi
quidditch-íþróttinni sem blöndu af
handbolta, rugby og skotbolta.
„Þú hefur fjórar stöður á vell-
inum. „Chaserar“ eða sóknarmenn
reyna að skora, svo ertu með
markmenn sem kallast „keepers“
og tvo „beatera“, sem eru helstu
varnarmennirnir, og þeir spila
skotbolta. Það virkar þannig að ef
þú skýtur í einhvern þá er hann úr
leik í 10 mínútur. Svo ertu með
„seekerana“, það sem Harry Potter
var, en þeir reyna að ná gullnu eld-
ingunni,“ segir Sigurður en gullna
eldingin í íþróttaútgáfunni af
quidditch er dómari sem klæðist
gulu með sokk hangandi aftan úr
sér.
Fjöldi sigurleikja í fyrsta sinn
Hver leikur stendur í 18 mínútur
og reynir hvort lið að skora meira
en hitt en eftir 18 mínútur kemur
gullna eldingin inn á og leikurinn
endar þegar annað hvort liðið nær
sokknum af henni og fær 30 stig
fyrir. Sigurður segir að leikirnir
séu á bilinu 20 til 30 mínútur í
heild. „Það var glæsilegt að sjá
hvað liðið bætti sig rosalega. Við
fórum á HM í sumar og okkur var
slátrað þar. Núna var gaman að sjá
framfarirnar, sérstaklega í tækling-
unum; þau negldu fólk bara í jörð-
ina og það var frábært að sjá.“
Lið Reykjavíkur tapaði seinni
leik sínum á móti reyndu liði Norð-
manna úr Þrándheimi en vann
sænska liðið frá Uppsölum örugg-
lega, 120-60. Á öðrum keppnisdegi
tapaði liðið fyrir quidditch-liði Ár-
ósa og þurfti því að keppa um 5. til
8. sæti. Með sannfærandi sigri á
finnska liðinu frá Helsinki og
gestaliðinu frá Hamborg í Þýska-
landi tryggði íslenska liðið sér 5.
sætið á mótinu af 11 liðum.
Ljósmynd/Reykjavík Ragnarök
Reykjavík Ragnarök Níu manns fóru út með liðinu að keppa um helgina en um 15 æfa að staðaldri.
Mikil bæting hjá quidd-
itch-liði Reykjavíkur
Liðið endaði í 5. sæti á Norðurlandamótinu um helgina