Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 6. O K T Ó B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  252. tölublað  106. árgangur  SIF ATLADÓTTIR EIN SÚ VERÐ- MÆTASTA ÞRYMSKVIÐA VOGARSKÁLAR RÉTTLÆTIS- GYÐJUNNAR ÍSLENSK ÓPERA 40 KRISTÍN LEIKSTÝRIR SAMÞYKKI 41ÍÞRÓTTIR  Geng- isáhrifin af veikingu krónunnar á efnahag sam- stæðu Orku- veitu Reykja- víkur eru jákvæð um fimm milljarða króna það sem af er árinu. Eiginfjárhlutfallið er nú í kringum 46 prósentin. Ingvar Stefánsson, fjármálastjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir veik- ingu krónunnar hafa jákvæð áhrif á efnahag félagsins. „Við eigum enda meiri eignir en skuldir í erlendri mynt. Gengisveiking hefur því já- kvæð áhrif á eignastöðuna. Eigna- staða samstæðunnar í erlendri mynt er jákvæð um rúma 30 millj- arða,“ segir Ingvar um þróunina. Orkuveita Reykjavíkur skuldaði um síðustu áramót um 81 milljarð króna í erlendri mynt. Félaginu bjóðast nú betri lánakjör. »14 Eignir OR aukast um fimm milljarða Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nokkuð hefur dregið úr líkum á frekari hækkunum olíuverðs á næstu vikum og mánuðum. Skýringin er m.a. bætt birgðastaða og áhyggjur af hægari hagvexti. Þó ríkir enn tölu- verð óvissa á olíumörkuðum og ekki þurfi mikið til að þeir hækki aftur, ekki síst vegna heimseftirspurnar. Þetta segir Brynjólfur Stefánsson, sérfræðingur í hrávörum hjá Ís- landssjóðum, sem telur lægra olíu- verð jákvætt fyrir ferðaþjónustuna. Verð á Brent-Norðursjávarolíu hefur undanfarinn mánuð lækkað úr 86 dölum í 76. Þegar verðið náði 86 dölum birtust fréttir af því að fjár- festar veðjuðu á að olíuverð færi í 100 dali í náinni framtíð. Síðan hefur markaðurinn tekið aðra stefnu. Brynjólfur rifjar upp að í kjölfar nýlegra yfirlýsinga Sádi-Araba um aukna framleiðslu hafi olíumarkaðir lækkað. Ásamt því hugsanlega aukna framboði hafi safnast saman meiri birgðir af olíu vestanhafs. Birgðirnar þrýstu á hækkun Þótt birgðastaðan á olíu í ríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinn- ar, OECD, sé ekki jafn góð og t.d. 2016 hafi hún styrkst nokkuð að undanförnu. Vegna batnandi birgða- stöðu hafi skapast þrýstingur á olíu- verð. Jafnframt hafi spenna í sam- skiptum Kína og Bandaríkjanna átt þátt í lækkandi hrávöruverði. Fyrir ári kostaði tunnan af Norðursjávarolíu um 60 dali. Stöð- ugar hækkanir á árinu bitnuðu á rekstri Icelandair og WOW air og fjölda ferðaþjónustufyrirtækja. Olíuverðið farið að lækka  Sérfræðingur telur líkur á frekari hækkunum hafa farið minnkandi undanfarið  Meiri olíuvinnsla og birgðasöfnun meðal skýringa  Styrkir ferðaþjónustuna  „Margir skólar hafa beðið, eða hyggjast biðja, foreldra um að und- irrita trúnaðaryfirlýsingu um að allt það sem þeir verði vitni að innan veggja skólans og í skólastarfinu sé trúnaðarmál.“ Þetta kemur fram í ábendingum sem Persónuvernd hef- ur sent frá sér vegna nýju persónu- verndarlaganna. Þetta á sér enga stoð í lögunum að mati Persónu- verndar sem telur það vart standast landslög að skólar geti krafist þess að einstaklingar sem eru gestkom- andi í skólum afsali sér rétti til að ræða þau mál sem tengjast skóla- starfinu sín í milli eða við aðra. Komið hefur í ljós að dæmi eru um að sumir grunnskólar og leikskólar hafi brugðist við nýjum lögum um persónuvernd með því að setja sér strangari reglur um persónuvernd en krafist er í lögunum. Að mati Per- sónuverndar virðist sem misskiln- ings gæti víða í skólasamfélaginu um til hvaða aðgerða þurfi að grípa til að skólastarf samrýmist lög- unum.“ »22 Skólar herða reglurnar um of Framkvæmdir standa nú yfir við breikkun Grindavíkurvegar. Mikil þörf hefur verið talin á þessum endurbótum enda vegurinn fjölfarinn og á honum hafa orðið allmörg umferðarslys síð- ustu ár. Hefur aukin umferð í Bláa lónið þar mik- ið að segja. Grindavíkurvegur er nú breikkaður á tveimur köflum og eru vegaxlir færðar svo aðskilja megi akbrautir með vegriði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Framkvæmdir við breikkun Grindavíkurvegar Beinn og breiður vegur í Bláa lónið Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Lögmennirnir Helga Hlín Há- konardóttir, starfandi stjórnarfor- maður VÍS, og Jón Sigurðsson meðstjórnandi sögðu sig í gær- kvöldi frá stjórnarstörfum á vett- vangi félagsins. Tilkynning þar um barst í gegnum Kauphöll Íslands laust fyrir klukkan 23:00 í gær- kvöld. Tilkynningin barst í kjölfar stjórnarfundar sem haldinn var í félaginu í gær. Þar var lögð fram tillaga að breyttri verkaskiptingu stjórnar sem fól í sér að Helga Hlín, sem tók við formennsku í sumar sem leið í kjölfar þess að Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir sagði sig frá starfinu, yrði að nýju varaformaður en í hennar stað yrði Valdimar Svavarsson kjörinn formaður. Heimildir Morgunblaðsins herma að þegar sú tillaga var bor- in upp hafi Helga Hlín þá þegar sagt sig úr stjórninni. Að loknum stjórnarfundi, þegar Valdimar hafði tekið við formennsku og Gestur Breiðfjörð Gestsson vara- formennsku, ákvað Jón einnig að segja sig úr stjórninni. Í tilkynningu sem Helga Hlín og Jón sendu sameiginlega frá sér í kjölfarið sögðu þau að trúnaður hefði til þessa ríkt innan stjórnar en: „Nú er hins vegar svo komið að stjórnarhættir innan stjórnar hafa leitt af sér trúnaðarbrest og um leið efa okkar um að umboðs- skyldu stjórnarmanna sé gætt í ákvarðanatöku.“ Segja þau að forsendur séu brostnar fyrir því að þau telji sig geta sinnt skyldum sínum og axlað ábyrgð sem stjórnarmenn. Svan- hildur Nanna, sem tók við stjórn- arformennsku í félaginu í mars 2017, lét af embættinu í kjölfar þess að hún fékk stöðu sakborn- ings í umfangsmikilli rannsókn héraðssaksóknara á viðskiptum hennar og eiginmanns hennar með eignarhluti í olíufélaginu Skelj- ungi. Rannsóknin byggist m.a. á kæru sem Íslandsbanki hefur lagt fram vegna fyrrnefndra viðskipta. Þegar Morgunblaðið náði tali af Valdimar Svavarssyni sagði hann ákvörðun tvímenninganna koma sér á óvart. „Í byrjun sumars steig Svan- hildur Nanna, formaður stjórnar, tímabundið til hliðar vegna per- sónulegra mála og tók Helga Hlín varaformaður tímabundið við sem formaður. Eftir umræður í stjórn varð ljóst að formaður hugðist ekki stíga aftur inn sem formaður og því þótti rétt að stjórn skipti með sér verkum að nýju.“ Segja sig fyrirvaralaust úr stjórn VÍS  Stjórnarformaður VÍS og meðstjórnandi segja sig úr stjórninni  Bera við alvarlegum trúnaðarbresti Helga Hlín Hákonardóttir Jón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.