Morgunblaðið - 26.10.2018, Qupperneq 39
2018
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
AF BÓKMENNTUM
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Þrettán bækur eru tilnefndar til
Bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs 2018. Í gær var hér sagt
frá sjö þeirra og nú verður fjallað
um þrjár skáldævisögur og tvær
skáldsögur til. Ekki er fjallað um ís-
lensku bækurnar sem tilnefndar eru
enda var fjallað um þær hér í blaðinu
á sínum t́ima.
Vita Andersen - Indigo
Vita Andersen
sló í gegn í
heimalandi sínu
með ljóðasafninu
Trygheds-
narkomaner sem
kom út 1977.
Bókin seldist
metsölu í Dan-
mörku þó danskir
bókafrömuðir
hafi tekið henni fálega.
Í fyrstu bókum sínum, og reyndar
í lunganum af sínu höfundarverki, er
Andersen að skrifa út frá sjálfri sér,
en í Indigo gengur hún nær sér en
nokkru sinni.
Móðir Vitu Andersen var geðveik,
misþyrmdi henni og kúgaði, barði og
niðurlægði, en gætti sín á því að vera
alltaf vel búin og glæsileg þegar
konan frá Barnavernd kom í heim-
sókn. Svo sendi hún dótturina á
barnaheimili til þess að hún hefði
frið til að skrifa bækur (sem enginn
vildi gefa út). Snemma í bókinni vek-
ur móðir Andersen hana og segir
henni að klæða sig, þær séu að fara
út að ganga. Þær ganga langa leið
niður að Löngulínu standa þar um
stund og síðan tekur móðir hennar í
höndina á henni og býr sig undir að
kasta sér útí með barnið. Mér er
kalt, ég vil fara heim, segir stúlkan,
sem er þá fjögurra eða fimm ára, og
verður til þess að bjarga lífi hennar.
Það segir sitt að þegar Andersen
segir frá láti móður sinnar undir lok
bókarinnar man hún ekki lengur
hvernig hún leit út. Hún man andlit
móðursystur sinnar, frænku sinnar,
kennara sinna, en hún getur ekki
munað andlit móður sinnar: „Eina
myndin sem ég sé fyrir mér af móð-
ur minni er þegar hún var flutt á
brott með sjúkrabílnum. Hún lá á
börum og var dauð.“
Agneta Pleijel -
Doften av en man
Agneta Pleijel
er einnig að vinna
úr æsku sinni og
uppvexti. Hún
tók æskuna fyrir í
bókinni Spådom-
en – en flickas
memoarer og tek-
ur upp þráðinn í
Doften av en
man, þar sem hún
er flutt til Gautaborgar að nema
bókmenntafræði. Foreldrar hennar
búa ekki lengur saman en eru þó enn
gift og í bókinni birtist vel tog-
streitan sem skilnaðarbörn lenda oft
í, því hún upplifir örvæntingu móður
sinnar yfir skilnaðinum, en vill að
sama skapi geðjast föður sínum og
halda vináttu við hann.
Pleijel lýsir opinskátt samskiptum
sínum við karlmenn í bókinni og því
hvernig hefðbundnar skilgreiningar
á stöðu karla og kvenna voru ekki
síður í gildi í Svíþjóð sjöunda áratug-
arins en þau höfðu verið alla tíð.
„Félagsfræðiprófessorinn birtist
óvænt og fer með henni á krána.
Hún vill fá að vita hversvegna kon-
urnar eru alltaf undirsettar. Kon-
urnar verða frelsaðar þegar verka-
lýðurinn hefur sigrað, svarar hann.“
Samskipti „hennar“, eins og Pleij-
el nefnir sjálfa sig i bókinni við karl-
menn móta lífið, oft óþægileg, stund-
um ánægjuleg, yfirleitt ástlaus og
duga aldrei til að veita henni lífsfyll-
ingu. Þangað til hún kynnist L. og
þangað til hún eignast dóttur.
Einkar vel skrifuð og opinská
þroskasaga.
Carl Frode Tiller - Begynnelser
Carl Frode Til-
ler er einn þekkt-
asti rithöfundur
Norðmanna.
Begynnelser,
upphafið, hefst
með endalokum,
ef svo má segja,
því Terje liggur
banaleguna, hef-
ur fallið fyrir eig-
in hendi — „Nú dey ég raunveru-
lega, hugsa ég, svona er að deyja.“
Áður en hann skilur við rifjast upp
fyrir honum brot út ævinni, við för-
um fyrst tvo daga aftur í tímann, síð-
an mánuð til, þá þrjá daga í viðbót og
svo koll af kolli afturábak, aftur til
barnæsku Terje og þess augnabliks
þegar allt fór úr skorðum. Á leiðinni
fáum við að kynnast drykkfelldri
móður hans, föður hans, sem yfirgef-
ur fjölskylduna, og vonsvikinni og
beiskri systur.
Terje hefur líka sinn djöful að
draga, það býr í honum ofbeldis-
hrotti og togstreitan innra með hon-
um kemur í veg fyrir eðlileg sam-
skipti við dótturina, barnsmóður
sína og reyndar alla í kringum hann.
Carina Karlsson - Algot
1741 komst
Hattaflokkurinn,
Hattarna, til
valda í Svíþjóð og
í kjölfarið efndu
Svíar til ófriðar
við Rússa. Þessi
átök eru bak-
grunnur sög-
unnar af Algot
Johansson frá
Karlskrona sem ráðinn er sem báts-
maður í kjölfar mannfalls vegna
stríðsins og drepsóttar. Algot fær
nafnið Holm við ráðninguna og einn-
ig eiginkonu og barn sem hann tekur
að sér.
Lífið er basl og stríðið og óvissa í
kjölfar þess bæta ekki úr skák. Alg-
ot glatar smám saman mennskunni
og gengur æ lengra fram í hrotta-
skap og grimmd með lagsbræðrum
sínum sem nær hámarki með morð-
um í Föglö-skerjagarðinum 1748.
Þeir félagarnir komast undir manna
manna hendur að lokum en áður en
böðullinn tekur til sinna starfa fær
Algot tíma til að velta því fyrir sér
hvað gerðist eiginlega, hann hafði
ætlað sér svo margt annað en varð,
en hið illa náði yfirhöndinni og hið
góða, sem enn var þó eftir, varð að
farast með illskunni.
Áhrifamikil bók, en óneitanlega
nokkuð myrk.
Magnus Larsen – Illinersiorluni
ingerlavik inussiviuvoq
Því miður
barst ekki eintak
af þessari bók
Larsens á öðru
máli en græn-
lensku og því náði
ég ekki að lesa
hana. Í kynningu
á bókinni á vef-
setri verðlaun-
anna kemur fram að hún heiti „Á
sleðaferðum hef ég hitt margan
manninn um ævina“ upp á íslensku
og sé annað bindið í sjálfsævisögu
Larsens, spanni árin 1963 til 1975,
en í fyrsta bindinu, Illinersiorluni
ingerlavik, rekur hann söguna frá
1931 til 1963.
Uppgjör við illsku og
erfiðleika æskunnar
Vita Andersen Agneta Pleijel
Carina Karlsson Carl Frode Tiller
Þrjár skáldævisögur meðal tilnefndra bóka
Magnus Larsen
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn
Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn
Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn
Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn
Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn
Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn
Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn
Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn
Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn
Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn
Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn
Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn
Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Fös 23/11 kl. 19:30 20.sýn
Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s
Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Fös 26/10 kl. 17:00 Auka Lau 27/10 kl. 20:00 12.s Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn
Lau 27/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 14:00 Auka
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 3/11 kl. 16:00 Aukas. Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Mið 14/11 kl. 19:30 Frums Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn
Fim 15/11 kl. 19:30 2.sýn Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 3/11 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 11:00
Lau 27/10 kl. 13:00 Lau 3/11 kl. 13:00 Lau 10/11 kl. 13:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s
Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 11:00 330.s
Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 13:00 331.s
Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 14:30 332.s
Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 11:00 333.s
Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 13:00 334.s
Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 14:30 335.s
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Fjallkonan fríð (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 3/11 kl. 20:00 Frum Lau 10/11 kl. 20:00 3.sýn
Sun 4/11 kl. 20:00 2.sýn Sun 11/11 kl. 17:00 4.sýn
Fjallkonan skoðuð á fullveldisafmæli
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Elly (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas. Fim 15/11 kl. 20:00 aukas.
Sun 28/10 kl. 20:00 162. Fim 8/11 kl. 20:00 aukas. Lau 17/11 kl. 20:00 165. s
Fim 1/11 kl. 20:00 aukas. Fös 9/11 kl. 20:00 164. s
Lau 3/11 kl. 20:00 163. s Sun 11/11 kl. 20:00 aukas.
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 15. s Fös 2/11 kl. 20:00 17. s Lau 17/11 kl. 20:00 20. s
Lau 27/10 kl. 20:00 16. s Lau 10/11 kl. 20:00 19. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 17. s Lau 27/10 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tvískinnungur (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s
Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s
Litrík jólasýning fyrir þau yngstu.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 27/10 kl. 20:00
Sing-a-long
Lau 10/11 kl. 20:00 66. s
Fös 2/11 kl. 20:00 65. s Fös 16/11 kl. 20:00 67. s
Sýningum lýkur í nóvember.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is