Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 37

Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 Lansoprazol Krka 15 mg - Magasýruþo y Nýtt lyf án lyfseðils við brjóstsviða og súru bakflæði. Lansoprazol Krka 15 mg er komið í sölu í flestum apótekum en hingað til hefur eingöngu verið hægt að fá þetta lyf gegn ávísun frá lækni. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Ertu med bakflaedi Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú átt í vandræðum með að komast yfir öll þau boð, sem til þín streyma. Vertu ekki að streða þetta, fáðu einhverja í lið með þér svo þú getir deilt verkefnum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hittir óvænt gamlan vin sem getur komið þér til hjálpar í erfiðu persónulegu máli. Einhver vefur þér um fingur sér, er það gott ef horft er til framtíðar? 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ráðfærðu þig við þá sem næst þér standa. Gefðu þér tíma til þess að fara í gegnum allt þitt dót, gefðu eða hentu. Þér á eftir að líða svo miklu betur á eftir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er erfitt að velja sér viðmæl- endur þegar um flókin og viðkvæm mál er að ræða. Einhver kemur við auman blett á þér, sumir myndu segja mikið var. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú munt koma vinum og vandamönn- um á óvart með uppátæki þínu. Kannski verður óvenjuleg eða sérvitur manneskja á vegi þínum sem fær þig til að sjá hluti í nýju ljósi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að fá að vera í einrúmi til að meta nýjar upplýsingar sem þú færð. Þú kall- ar ekki allt ömmu þína sem betur fer. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert á góðri leið með að taka til í þín- um eigin garði. Ekki eyða orku í að reyna sannfæra einhvern sem ekki er þér sammála. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nýjar upplýsingar valda því að þú átt erfitt með að taka ákvörðun. Stundum gengur allt upp af sjálfu sér - eins og í dag. Vinur þinn fær góðar fréttir og þú samgleðst. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ekki setja þig á háan hest nema þú vitir nákvæmlega hver staðan er. Innan skamms mun gæfan snúast þér í hag og þá muntu uppskera árangur erfiðis þíns. 22. des. - 19. janúar Steingeit Tími anna er runninn upp. Ein- beittu þér að því að taka til hendinni. Þú rennir hýru auga til jólafrísins. Þú ert sleginn blindu í ástamálunum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú stendur frammi fyrir kröfum um aukna ábyrgð en ert eitthvað tvístígandi. Láttu slag standa. Hver hefur sinn djöful að draga. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú átt gott með að umgangast aðra svo þú skalt nýta þér þann hæfileika sem best þú getur. Hik er sama og tap. Stundum stingur þú höfðinu í sandinn, vandinn hverfur ekki við það. Þessi þýðing Guðmundar Arn-finnssonar á ljóðinu „Mar- gýgur“ eftir Heine er undrafögur: Auðan skóg og engi sveipar undarlega húmsins friður og um miðnótt máninn stafar mildum geisla á hafið niður. Kveður blærinn stillt við ströndu stefin mörg og hreyfir öldu. Einfarinn þar úti nemur andardrátt hjá sefi köldu. Og úr hafi döggvum drifin djúpsins vættur stigið hefur. Undarlega í húmi hvíta hennar arma tunglskin vefur. Hörður Þorleifsson augnlæknir sendi mér skemmtilegt bréf. Hann varð 70 ára stúdent frá MR í vor og rifjast upp fyrir honum af því tilefni að stundum var dálítil óregla í skemmtunum skólans. Þá orti hann, 17 ára: Maður drekkur voða veig, viskan hnekki bíður. Glaður, stekkur, tekur teig, tærður ekki líður. Hörður hefur alltaf haft mikinn áhuga á íslenskum fræðum og tungumálinu. Nú finnst honum held- ur farið að hníga í ranga átt og hef- ur heyrt að íslenskan sé ekki kennd eins vel og áður í barnaskólunum. Í Menntaskólanum orti hann: Tunga, þú ert tignarverð, táknar vora æðstu hefð, þú ert vopn með vaskri þjóð, vegur munni okkar ljóð. Met ég hæst þinn mærðarleik, mælsku, þrótt og orðafjöld, hreinleik þinn, vor hugargjöld, hrynja orðin sterk og veik. Í lokin rifjaði hann upp vísuna hans Páls J. Árdal sem ort var í til- efni af því að flutt var frumvarp á Alþingi um að taka upp þegnskyldu- vinnu: Ó hve margur yrði sæll og elska myndi landið heitt, mætti hann vera í mánuð þræll og moka skít fyrir ekki neitt. Pétur Stefánsson yrkir á Boðnar- miði: Svona er lífsins mottó mitt; matast, sofa, streða, glingra við stút og gera hitt, og góðar vísur kveða. Séra Ólafur Guðmundsson á Sauðanesi (1537-1609) orti: Ap., jún., sept., nó. þrjátigir einn til hinir kjósa sér. Febrú tvenna fjórtán ber frekar einn þá hlaupár er. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Snjöll þýðing og árin í MR Í klípu VINALEIÐIN GERÐI ÞEIM KLEIFT AÐ HÆTTA AÐ NOTA MINTUR. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „Ég sagði þér að þetta væri stóllinn hans!” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga vini sem hægt er að reiða sig á. ÞETTA ER „JÓN BRENNDI KVÖLDMATINN SVO VIÐ PÖNTUM PÍTSU” DANS! VIÐ ERUM Á LEIÐ TIL MÖMMU Í MAT! VIÐ ÆTTUM EKKI AÐ FARA TÓMHENT! ÉG VEIT ÉG TEK MEÐ SKJÖLDINN MINN! Víkverji er að sjálfsögðu jafnrétt-issinnaður og fagnaði kvennafrí- deginum 24. október. Það skiptir engu máli hvort Víkverji er karl eða kona. það tekur hann jafn sárt að sjá hróplegan launamun kynjanna 43 árum eftir að fyrsti Kvennafrí- dagurinn var haldinn 1975. x x x Það ætti ekki að vera staðreynd2018 að konur séu launalausar eftir kl. 14.55 alla daga ef miðað er við laun karla. Að konur á Íslandi þurfi að lýsa því yfir að þær séu ekki útsöluvara og almennt öryggi kvenna á vinnustöðum sé ekki tryggt. x x x Víkverji er þakklátur þeim konumsem stigu fram fyrir skjöldu fyrir 1973.Víkverji er líka þakklátur að búa í landi þar sem konur geta komið saman svo þúsundum skipti, sagt frá óréttlæti sem þær verða fyrir og hvernig þær vilja stöðva það. En Víkverji er líka ósáttur. Víkverji trúði því þegar fyrsti Kvennafrídagurinn var haldinn að launajafnrétti yrði náð á meðan hann væri á vinnumarkaði en miðað við þróun síðustu áratuga er ekki víst að af því verði. x x x Víkverji ætlar að enda pistil dags-ins á brotum úr texta Dagnýjar Kristjánsdóttur og Kristjáns Jóns- sonar, Áfram stelpur, við lag Gunn- ars Edander, til þess að hamra járn- ið á meðan það er heitt. Áfram stelpur, hér er höndin hnýtum saman vinaböndin verum ekki deigar dansinn í. Börnin eignast alla okkar reynslu, sýnum með eigin einingu, aflið í fjöldasamstöðu. Stelpur horfum ögn til baka á allt sem hefur konur þjakað stelpur horfum bálreiðar um öxl. Ef baráttu að baki áttu berðu höfuð hátt og láttu efann hverfa ’unnist hefur margt. Þó er mörgu ekki svarað enn: Því ekki er jafnréttið mikið í raun, Hvenær verða allir menn taldir menn með sömu störf og líka sömu laun? vikverji@mbl.is Víkverji Jesús sagði: „Hver sem ber ekki sinn kross og fylgir mér getur ekki verið lærisveinn minn“ (Lúkasarguðspjall 14.27)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.