Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
vílan getur minnkað þreytu
m, hvarmabólgu og haft
ð áhrif á augnþurrk, vogris,
a í hvörmum/augnlokum og
rfsemi í fitukirtlum.
Dekraðu við augun
Fæst í helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum
Augnh
í augu
jákvæ
rósroð
vansta
Augnheilbrigði
Augnhvíla
Dekraðu við augun
Margnota augnhitapoki
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
o
o
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Lögmaður ábúenda í Norðurhjá-
leigu í Álftaveri, sem urðu fyrir tjóni
í ágúst þegar skýstrókar gengu yfir
bæinn, hefur óskað eftir því að
Bjargráðasjóður, Vátryggingafélag
Íslands og Náttúruhamfaratrygging
Íslands tilnefni á sinn kostnað en án
viðurkenningar á bótaskyldu tvo til
þrjá matsmenn til að fara á vettvang
og meta umfang skemmda og fjár-
tjón af þeirra völdum. Svör hafa ekki
borist. Þá hefur Skaftárhreppur falið
byggingarfulltrúa að aðstoða ábú-
endur við mat á tjóninu. Niðurstaða
liggur ekki fyrir.
Náttúruhamfaratrygging Íslands
telur sér ekki heimilt að bæta tjón
vegna skýstróka og Bjargráðasjóður
og tryggingafélag ábúenda, Vá-
tryggingafélag Íslands, neita einnig
að bæta tjónið.
Unnið er að því á nokkrum víg-
stöðvum að hjálpa ungu bændunum
sem urðu fyrir tjóninu. Fyrst er til
að taka að Karl Gauti Hjaltason og
fleiri þingmenn Suðurkjördæmis
hafa lagt fram frumvarp til breyt-
inga á lögum um Náttúruhamfara-
tryggingu Íslands þar sem skýstrók
er bætt við upptalningu á þeim at-
burðum sem félagið á að bæta þegar
tjón verður. Jafnframt er lagt til í
bráðabirgðaákvæði að tjónið sem
varð af völdum skýstrókanna í ágúst
verði bætt.
Skaftárhreppur hefur óskað eftir
því við stjórnvöld að Náttúruham-
faratrygging Íslands taki erindi ábú-
enda Norðurhjáleigu til endurskoð-
unar. Félagið hafnaði því. Forsætis-
ráðuneytið fékk afrit af erindinu en
framsendi það til fjármálaráðuneyt-
isins. Það ráðuneyti fer með málefni
Náttúruhamfaratrygginga Íslands
og hefur ekki svarað því hvort það
telji ástæðu til að endurskoða þessa
ákvörðun.
Vinni saman að mati
Gísli Tryggvason, lögmaður ábú-
enda Norðurhjáleigu, skrifaði ný-
lega þessum þremur aðilum bréf.
Gísli segir aðspurður að hann hafi
meðal annars rökstutt bótaskyldu.
Jafnframt sendi hann öllum þremur
sameiginlegt erindi með ósk um að
tjónið verði metið. Hann segir mik-
ilvægt að gera það fyrr en síðar því
erfitt geti verið að meta það þegar
langt er liðið frá atburðinum og vet-
ur sestur að. Best sé að þessir þrír
aðilar sendi menn á sínum vegum til
að meta tjónið og síðan verði vet-
urinn notaður til að leysa málið eða
takast á um bótaskyldu hvers og
eins.
Gísli bætir því við að hann telji sig
hafa sterk lögfræðileg rök fyrir bóta-
skyldu en einnig séu það sanngirnis-
rök að þessir ungu bændur þurfi
ekki einir að bera tjónið. Hann bend-
ir á í því sambandi að á árinu 2008
hafi verið sett afturvirk bráðabirgða-
lög vegna tjóna sem urðu í jarð-
skjálftunum á Suðurlandi.
Ljósmynd/Kristbjörg Hilmarsdóttir
Sjaldgæf sjón Skýstrókur gengur yfir Norðurhjáleigu. Talsvert tjón varð á
bænum sem ekki hefur fengist bætt úr tryggingum eða tryggingasjóðum.
Vilja láta meta
tjónið í Álftaveri
Reynt að fá bótaskyldu viðurkennda
Morgunblaðið/Hanna
Landsréttur Dómari fær milljónir í
bætur vegna skipunar í réttinn.
Íslenska ríkið var í gær dæmt í Héraðsdómi
Reykjavíkur til að greiða Jóni Höskuldssyni
héraðsdómara fjórar milljónir króna í skaða-
bætur og 1,1 milljón í miskabætur vegna
ákvörðunar dómsmálaráðherra um að líta fram
hjá honum þegar skipað var í embætti dómara
við Landsrétt. Þá var í öðru máli viðurkennd
bótaskylda ríkisins í sambærilegu máli Eiríks
Jónssonar lagaprófessors sem einnig hafði ver-
ið meðal umsækjenda um starf dómara við
Landsrétt. Jón hafði krafið ríkið um 30,7 millj-
ónir í skaðabætur og 2,5 milljónir í miskabæt-
ur.
Meðal þeirra hæfustu í starfið
Jón og Eiríkur voru báðir á lista mats-
nefndar um 15 hæfustu umsækjendurna. Sig-
ríður Á. Andersen dómsmálaráðherra ákvað
hins vegar að víkja frá niðurstöðu matsnefnd-
arinnar um hæfi dómara og gekk fram hjá
fjórum af þeim 15 sem nefndin mat hæfasta.
Hafði Hæstiréttur áður komist að þeirri nið-
urstöðu að Sigríður hefði gengið fram hjá
tveimur öðrum umsækjendum án þess að gera
sjálfstætt mat á hæfi þeirra.
Skaðabætur ekki viðurkenndar
Hæstiréttur viðurkenndi ekki skaðabóta-
kröfu umsækjendanna Ástráðs Haraldssonar og
Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar en dæmdi
ríkið til að greiða þeim 700 þúsund í miskabæt-
ur hvorum. Ástráður og Jóhannes voru á meðal
33 umsækjenda um embætti dómara við Lands-
rétt og meðal þeirra 15 sem dómnefnd sam-
kvæmt lögum um dómstóla hafði talið meðal
þeirra hæfustu til að gegna því embætti.
Dómari fær fjórar milljónir í skaðabætur
Íslenska ríkið dæmt
skaðabótaskylt vegna skip-
unar dómara í Landsrétt