Morgunblaðið - 26.10.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.10.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 Veður víða um heim 25.10., kl. 18.00 Reykjavík 1 léttskýjað Akureyri -1 skýjað Nuuk -2 skýjað Þórshöfn 4 heiðskírt Ósló 5 heiðskírt Kaupmannahöfn 10 skýjað Stokkhólmur 3 heiðskírt Helsinki 2 skýjað Lúxemborg 12 léttskýjað Brussel 11 skýjað Dublin 10 skúrir Glasgow 11 skúrir London 11 skýjað París 14 heiðskírt Amsterdam 12 súld Hamborg 11 skýjað Berlín 12 skýjað Vín 15 skýjað Moskva 2 skýjað Algarve 21 heiðskírt Madríd 22 heiðskírt Barcelona 20 heiðskírt Mallorca 22 léttskýjað Róm 20 léttskýjað Aþena 14 heiðskírt Winnipeg 8 skúrir Montreal 0 alskýjað New York 9 heiðskírt Chicago 6 alskýjað Orlando 25 skýjað  26. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:53 17:32 ÍSAFJÖRÐUR 9:08 17:27 SIGLUFJÖRÐUR 8:51 17:09 DJÚPIVOGUR 8:25 16:59 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á laugardag Hægir vindar, yfirleitt bjartviðri og frost 0 til 8 stig. Vaxandi sunnanátt seinni partinn. Á sunnudag Sunnan 13-20 m/s með rigningu eða slyddu en snjókomu til fjalla. Þurrt að kalla NA-til. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur úr vindi V-lands síðdegis en gengur í 13-20 m/s fyrir austan undir kvöld. Áfram él á N- og A-landi en annars léttskýjað að mestu. Hiti kringum frostmark.Kókosjógúrt Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Mikil óvissa og spenna er á yfir- standandi þingi Alþýðusambands Íslands fyrir kosningar næsta for- seta, tveggja varaforseta og 12 full- trúa auk varamanna í miðstjórn ASÍ til næstu tveggja ára, sem fram fara fyrir hádegi í dag. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa fylkingar myndast á þinginu sem safna liði og takast á um að koma sínum mönnum að í æðstu forystu og tryggja hlut stærstu félaga og landssambanda í miðstjórn en ekki höfðu þó í gær komið fram fleiri frambjóðendur en þau sem tilkynnt höfðu framboð til forseta og varaforseta fyrir þingið. Það er þó ekki með öllu útilokað að fleiri bætist við því framboðsfrestur rennur ekki út fyrr en kosningarnar hefjast í dag en frambjóðendur þurfa að afla sér stuðnings 15 þing- fulltrúa til að gefa kost á sér. Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands (SGS), og Sverrir Már Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs starfs- greinafélags, bjóða sig fram í emb- ætti forseta. Þrír verkalýðsforingjar sækjast eftir embættum varaforseta ASÍ. Ragnar Þór Ingólfsson, for- maður VR, býður sig fram í emb- ætti 1. varaforseta og Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðs- félags Akraness, og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnað- arsambands Íslands, bjóða sig fram í embætti 2. varaforseta sambands- ins. Rólegt var á yfirborðinu á þingi ASÍ í gær sem var helgað málefna- vinnu. Í gærkvöldi var svo haldin þingveisla á Grand hóteli en við- mælendur sögðu fyrir veisluna að hún myndi án vafa litast mjög af flokkadráttum og að þingfulltrúar styngju saman nefjum vegna kosn- inganna, sem talið er að geti orðið sögulegar. Nýtt forystufólk í stærstu aðild- arfélögunum, VR og Eflingu, auk formanna VLFA og Framsýnar, sem hafa boðað harðari verkalýðs- baráttu og endurnýjun í hreyfing- unni, standa saman á þinginu en ekki er þó sagt víst að allir forystu- menn innan Starfsgreinasambands- ins muni fylgja þeim að málum í kosningunum. Þá eru fulltrúar iðn- aðarmannafélaganna sagðir hafa þétt mjög raðirnar að undanförnu og sækist eftir að halda áhrifum sínum í forystu og miðstjórn Al- þýðusambandsins. Á umliðnum árum hafa varafor- setar ASÍ komið úr röðum versl- unarmanna og SGS. Úrslitin í for- seta- og varaforsetakjörinu geta haft veruleg áhrif á hvaða tillögur verða bornar fram fyrir miðstjórn- arkosningarnar og hver hlutur landssambanda og stærstu aðildar- félaga verður á næsta kjörtímabili. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dregur til tíðinda Lokadagur þings ASÍ er í dag og þá fara fram kosningar til forseta, varaforseta og miðstjórnar. Spenna og titringur fyrir ASÍ-kosningar  Kosningar forseta og fulltrúa í miðstjórn á ASÍ-þingi í dag Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Ríkisútvarpið braut ekki lög um um þjóðsöng Íslands með dagskrár- kynningu sinni í aðdraganda heims- meistaramótsins í knattspyrnu síð- astliðið sumar. Þetta er niðurstaða fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem kynnt var í gær. Í kynningu RÚV las hópur ein- staklinga hver um sig upp eina setn- ingu í fyrsta erindi ljóðs Matthíasar Jochumssonar „Ó Guð vors lands“. Eftir að dagskrárkynningin var birt fékk forsætisráðuneyti fyrirspurnir um hvort með henni hefði Ríkis- útvarpið brotið lög um þjóðsönginn. Samkvæmt lögunum er óheimilt að flytja eða birta þjóðsönginn í ann- arri mynd en hinni upprunalegu gerð auk þess sem óheimilt er að nýta þjóðsönginn á nokkurn hátt í viðskipta- eða auglýsingaskyni. Vegna tengsla forsætisráðherra við málið var fjármála- og efnahagsráð- herra falið að fara með málið og taka ákvörðun í því en Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra kom fram í kynningu RÚV. Í svörum RÚV við fyrirspurn ráðuneytisins var því hafnað að um flutning á þjóðsöng Íslendinga væri að ræða þar sem dagskrárkynningin hefði verið takmörkuð við ljóð Matt- híasar Jochumssonar og lagið ekki verið haft þar með. Óskaði ráðu- neytið eftir því að fá sent afrit af umræddri dagskrárkynningu og bárust þau gögn 10. og 11. október sl. Í niðurstöðu fjármála- og efna- hagsráðuneytisins er RÚV ekki tal- ið hafa brotið lög um þjóðsönginn. Samkvæmt 1. gr. laga um þjóðsöng Íslendinga er hann ljóð Matthíasar Jochumssonar og lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar. Í því tilviki sem hér um ræðir var notkun Ríkis- útvarpsins takmörkuð við upplestur á fyrsta erindi ljóðs Matthíasar Jochumssonar. Með vísan til þess var ekki um flutning á þjóðsöngnum að ræða í skilningi laganna heldur flutning og birtingu á fyrsta erindi ljóðsins í upprunalegri gerð. Lög um þjóð- söng ekki brotin  Notkun RÚV á ljóði Matthíasar í kynningarefni fyrir HM 2018 lögmæt Kosningarnar á þingi ASÍ eru á dagskrá klukkan 10.15 í dag. Kjör- nefnd mun kynna frambjóðendur til embættis forseta og frambjóð- endur flytja stuttar ræður. Því næst verður gefið ráðrúm í um hálftíma áður en gengið verður til leynilegra kosninga um næsta forseta ASÍ. Þegar úrslit í forsetakjörinu liggja fyrir og hafa verið lesin upp mun kjörnefnd kynna frambjóð- endur til varaforseta. Fyrst verð- ur 1. varaforseti kosinn og þegar niðurstöður liggja fyrir verður kosið í embætti 2. varaforseta. Að fengnum niðurstöðum í vara- forsetakjörinu mun kjörnefnd væntanlega leggja fram tillögu um fulltrúa í miðstjórn og fara síðan fram kosningar 12 aðalfull- trúa í miðstjórn og 15 varamanna. Í lögum ASÍ segir að við kjör mið- stjórnar skuli leitast við að kjósa fulltrúa ólíkra atvinnugreina og að hlutdeild karla og kvenna verði sem jöfnust. Byrja á kjöri næsta forseta KOSNINGAR FYRIR HÁDEGI Íslandspóstur mun í næstu viku ræða breytingar á starfsemi sinni og þær áskoranir sem þeim fylgja á opnu málþingi en Íslandspóstur hefur ver- ið í rekstrarvanda síðustu ár. „Þetta eru miklir breytingatímar þannig að það eru allir að reyna að laga sig að því,“ segir Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Íslandspósts, í samtali við Morgunblaðið. „Það verð- ur farið yfir þessar breytingar sem eru að eiga sér stað, ekki bara hér heldur í löndunum í kringum okkur. Við fáum kynningu á því hvernig ná- grannaþjóðirnar hafa m.a. verið að vinna úr þeim breytingum.“ Stóran hluta af tapi Íslandspósts má rekja til niðurgreiðslna fyrirtæk- isins á erlendum póstsendingum en kostnaðurinn hleypur á hundruðum milljóna. Í Morgunblaðinu í síðustu viku kom fram að samkvæmt skýrslu frá Copenhagen Economics er tap Ís- landspósts vegna erlendra sendinga um 475 milljónir á ári. Netverslun fer vaxandi og því má búast við að sá kostnaður haldi áfram að aukast. Sofia Nyström frá Copenhagen Economics er meðal þeirra sem munu halda erindi á málþinginu. Spurður um þessi áhrif og þá sér- staklega niðurgreiðslu póstsins á kín- verskum sendingum segir Bjarni þörf á að laga starfsumhverfið. „Það er ýmislegt í laga- og regluumhverf- inu sem er hamlandi eins og þessir al- þjóðasamningar sem er ekkert auð- velt að eiga við. Það munar um að vera í þeirri stöðu að vera á Íslandi og vera að greiða með þessum Kína- sendingum,“ segir Bjarni. Hann segir um rekstrarvanda póstsins að nauð- synlegt sé að líta til nágrannaþjóða en áskoranir póstsins á tækniöld ein- skorðist ekki við Ísland. „Það hafa m.a. verið gríðarleg inngrip í Dan- mörku og feikimikil ríkisinnspýting til að bjarga danska póstinum.“ Mun Henrik Ballebye, einnig frá Copenhagen Economics, halda erindi um þróun póstþjónustu og möguleg viðbrögð við stöðunni. mhj@mbl.is Staða póstsins rædd á málþingi  Líta til nágrannaþjóða á tímamótum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.