Morgunblaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Norræna húsið
Sæmundargötu 11
Aðgangur ókeypis
Sýnd til 30. apríl 2019
Ferðalag um furðuheim
barnabókmenntanna
Ævintýraleiðangur fyrir allskonar krakka
Barnabókaflóðið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samdráttur varð í sölu á öllum mjólk-
urafurðum nema viðbiti á innan-
landsmarkaði í september. Ef litið er
til lengri tíma hefur einnig orðið sam-
dráttur síðustu þrjá og tólf mánuði.
Innvigtun mjólkur til samlaganna
hefur farið hratt minnkandi í haust
en fram til þess hafði hún aukist í
hverjum mánuði miðað við sömu
mánuði á síðasta ári.
Sala á mjólkurafurðum var 6,9%
minni í september en í sama mánuði í
fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum
Samtaka afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði. Sala á viðbiti jókst en sam-
dráttur varð í öllum öðrum vöru-
flokkum, eins og mjólk og sýrðum
afurðum, skyri og ostum.
Ef litið er til nýliðins ársfjórðungs
kemur fram 1,3% samdráttur frá
fyrra ári og samdrátturinn er 1,8% á
tólf mánaða tímabili. Sala mjólkur og
sýrðra vara og skyrs minnkar.
Sami taktur
Elín M. Stefánsdóttir, bóndi í
Fellshlíð og formaður stjórnar
Mjólkursamsölunnar, segir að þótt
breytingarnar séu ekki stórkostlegar
sé takturinn sá sami og verið hefur.
Heldur dragi sundur með sölu á fitu-
ríkum og prótínríkum afurðum. Mis-
munur á fitu og prótíni því fyrr-
nefnda í hag hefur í mörg ár verið
vandamál hjá afurðastöðvunum því
lágt verð fæst fyrir undanrennuduft
sem flutt er út.
Elín segir að MS sé alltaf að vinna
að því að auka sölu á prótínríkum af-
urðum og spara fitu eins og hægt er,
þó án þess að það bitni á gæðum var-
anna. Hún segir að samkeppni við
innflutning hafi áhrif því mikið sé
flutt inn af ódýru prótíni en innfutt
fita sé tiltölulega dýr.
Innvigtun byrjuð að minnka
Fyrstu níu mánuði ársins seldu
bændur tæplega 118 milljónir lítra
mjólkur til samlaga landsins sem er
rúmum þremur milljónum lítra meira
en á sama tímabili í fyrra. Aukning
var alla mánuði ársins fram í júlí frá
sömu mánuðum á síðasta ári. Um-
skipti urðu í ágúst og þó sérstaklega í
september þegar framleiðslan
minnkaði um 770 þúsund lítra eða
6,6%.
Elín segir að innvigtun minnki allt-
af á þessum tíma árs en nú dragi
heldur hraðar úr. Hún telur að hækk-
un innvigtunargjalds á mjólk umfram
greiðslumark sem ákveðin var í sum-
ar hafi mest að segja um það. Elín á
von á að þessi þróun haldi áfram út
árið. Þeir bændur sem séu að ljúka
við að framleiða upp í greiðslumark
sitt hljóti að stíga aðeins á bremsuna
þegar þeir fái aðeins 30 krónur fyrir
lítrann.
Elín játar því þegar hún er spurð
hvort enn sé of mikið framleitt. Bend-
ir hún á að heildargreiðslumarkið sé
145 milljónir lítra en nú stefni í að
framleiðslan verði tæpar 155 milljón-
ir lítra á árinu í heild. Útflutningur
gefi ekki nóg af sér til þess að standa
undir umframframleiðslu.
Sala minnkar á flest-
um mjólkurafurðum
Enn framleitt umfram markað Umskipti í haust
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mjólkurvörur Sala á mjólk, osti og skyri hefur verið að minnka.
Landsbankinn hagnaðist um 15,4
milljarða eftir skatta á fyrstu níu
mánuðum ársins samanborið við
16,8 milljarða hagnað á sama tíma
í fyrra. Hreinar vaxtatekjur voru
29,8 milljarðar og hækkuðu um
10,3% milli ára, en þjónustutekjur
voru 5,8 milljarðar og lækkuðu um
12% frá því á fyrstu níu mánuðum
síðasta árs.
Þegar aðeins er horft á þriðja
ársfjórðung nemur hagnaður
bankans 3,78 milljörðum, sam-
anborið við 4,2 milljarða á sama
tíma í fyrra. Rekstrartekjur á
tímabilinu voru samtals 12,1 millj-
arður, samanborið við 12,4 millj-
arða í fyrra, og rekstrargjöld voru
5,57 milljarðar samanborið við 5,64
milljarða í fyrra. Rekstrartekjur
bankans á fyrstu níu mánuðum
ársins voru 41,1 milljarður, en
voru á sama tíma í fyrra 41,6 millj-
arðar. Aðrar rekstrartekjur námu
3,8 milljörðum króna samanborið
við 5,9 milljarða króna á sama
tímabili árið áður, sem er 36%
lækkun.
Óhagstæðar aðstæður á verð-
bréfamörkuðum eru helsta skýring
lækkunarinnar, að því er fram
kemur í tilkynningu frá bankanum.
Rekstrarkostnaður bankans nam
á tímabilinu 17,7 milljörðum og
stóð í stað frá fyrra ári. Þar af var
launakostnaður 10,8 milljarðar og
hækkaði hann um 500 milljónir frá
því á sama tíma í fyrra.
3,8 milljarða hagnaður á þriðja
ársfjórðungi hjá Landsbankanum
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Kostnaður Strætó bs. við að heil-
merkja einn strætisvagn er 500.000
krónur auk virðisaukaskatts. Þá
kostar 33.500 krónur auk virðis-
aukaskatts að slagorðamerkja hvern
vagn fyrirtækisins. Kemur þetta
fram í skriflegu svari Strætó bs. við
fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur,
oddvita Miðflokksins í Reykjavík.
Guðmundur Heiðar Helgason,
markaðs- og upplýsingafulltrúi
Strætó, segir heilmerkingar á
strætisvögnum yfirleitt endast í
nokkra mánuði. „Við gerum þetta
öðru hvoru. Þessar merkingar duga
oft í svona þrjá til sex mánuði, en þá
er farið að sjá á þeim og við tökum
þær niður,“ segir Guðmundur Heið-
ar í samtali við Morgunblaðið og
bætir við að hann telji engan stræt-
isvagn vera heilmerktan á götum
borgarinnar í dag.
Aðspurður segist Guðmundur
Heiðar muna eftir sex heilmerktum
strætisvögnum og tveimur hálf-
merktum. Heilmerktu vagnarnir
voru t.a.m. hinir svokölluðu gull-
vagn og femínistavagn en einnig
voru vagnar heilmerktir vegna Gay
Pride og evrópsku samgönguvik-
unnar svo eitthvað sé nefnt. Hálf-
merktu vagnarnir voru til að kynna
næturferðir.
Spurður hvort hann telji kostnað
vegna merkinga háan kveður Guð-
mundur Heiðar nei við. „Þetta hefur
verið okkar helsta auglýsingapláss
þegar kemur að því að vekja athygli
á okkur og okkar þjónustu.“
Ljósmynd/Strætó
Útgjöld Gullvagninn svokallaði vakti talsverða athygli í umferðinni. Enginn sérmerktur vagn er í umferð í dag.
Kostar hálfa milljón að
heilmerkja einn vagn
Duga í 3-6 mánuði „Okkar helsta auglýsingapláss“
Eggvopn og barnaníðsefni fundust
á heimili hjóna sem grunuð eru um
gróf kynferðisbrot gegn dóttur sinni
og stjúpdóttur. Fyrirtaka í máli
hjónanna fer fram 5. nóvember en
ákæra á hendur þeim var þingfest í
Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Brotið á dóttur og stjúpdóttur
Í ákærunni, sem RÚV hefur
fengið afhenta, er maðurinn sagður
hafa nauðgað stjúpdóttur sinni í fé-
lagi við móður hennar auk þess að
taka hreyfi- og ljósmyndir af brot-
unum og þannig framleitt myndefni
sem sýnir barnið á kynferðislegan
hátt.
Hjónin eru einnig ákærð fyrir
brot gegn dóttur sinni og í ákær-
unni eru þau sögð hafa framið brot-
in að henni viðstaddri. Á dóttirin að
hafa horft á brotin gegn systur sinni
og með því eru hjónin sögð hafa
ógnað velferð stúlkunnar á alvar-
legan hátt. Þá er maðurinn ákærður
fyrir kynferðisbrot með því að hafa
í vörslu sinni á heimilinu 807 ljós-
myndir og 29 myndskeið sem sýna
börnin á kynferðislegan hátt.
Einnig er hann ákærður fyrir
brot á vopnalögum þar sem á heim-
ili hjónanna fannst mikið af egg-
vopnum, meðal annars 50 senti-
metra langt sverð, butterfly-hnífur,
tveir stunguhnífar, kasthnífur og
slöngubyssa.
Hjón með eggvopn
og barnaníðsefni
Grunuð um gróf kynferðisbrot
Samanlagður kostnaður vegna
móttaka á vegum Reykjavíkur-
borgar á síðasta ári var tæpar 20
milljónir króna. Það sem af er
þessu ári nemur kostnaðurinn rúm-
um 10 milljónum króna.
Þetta kemur fram í svari Reykja-
víkurborgar við fyrirspurn Kol-
brúnar Baldursdóttur, borgarfull-
trúa Flokks fólksins, um kostnað
borgarinnar af ýmsum móttökum
og öðrum hátíðarviðburðum tengd-
um borginni. Kostnaðurinn við veit-
ingar nam tæpum níu milljónum
króna á síðasta ári og kostnaðurinn
við vínföng tæpum 2,5 milljónum
króna. Önnur aðkeypt þjónusta
nam rúmum fjórum milljónum
króna.
Í fréttatilkynn-
ingu frá Reykja-
víkurborg vegna
fyrirspurnar-
innar kemur
fram að kostn-
aður við mót-
tökur hefur hins
vegar hríðfallið
síðan 2007. Árið
2017 var hann 20
milljónir króna,
rúmlega tólf milljónum lægri en ár-
ið 2007 en þá var kostnaður við
móttökur tæpar 32 milljónir króna.
Ef sú tala er reiknuð til núvirðis er
hún tæpar 52 milljónir. Árið 2016
var kostnaðurinn tæpar 12 millj-
ónir króna.
30 milljónir króna í móttökur borgarinnar
Kolbrún
Baldursdóttir