Morgunblaðið - 26.10.2018, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
26. október 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.29 119.85 119.57
Sterlingspund 154.06 154.8 154.43
Kanadadalur 91.04 91.58 91.31
Dönsk króna 18.231 18.337 18.284
Norsk króna 14.332 14.416 14.374
Sænsk króna 13.133 13.209 13.171
Svissn. franki 119.63 120.29 119.96
Japanskt jen 1.0589 1.0651 1.062
SDR 165.34 166.32 165.83
Evra 136.02 136.78 136.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.1928
Hrávöruverð
Gull 1231.65 ($/únsa)
Ál 1987.0 ($/tonn) LME
Hráolía 76.35 ($/fatið) Brent
● Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
hefur aukið við hlut sinn í Símanum en í
viðskiptum gærdagsins keyptu þrjár
deildir sjóðsins samanlagt 73 milljónir
hluta í félaginu. Miðað við dags-
lokagengi bréfa félagsins, sem hækkað
hafði um 1,6% frá opnun markaða,
nemur virði hins nýja eignarhlutar ríf-
lega 270 milljónum króna.Eftir við-
skiptin á LSR 10,38% í Símanum eða
980 milljón hluti. Virði hlutarins er tæp-
ir 3,7 milljarðar króna.
LSR eykur við hlut sinn í
Símanum og á yfir 10%
STUTT
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ástæða þess að tilboð Sporthallar-
innar, sem rekur heilsuræktarmið-
stöðina Sporthúsið í Smáranum í
Kópavogi, í rekstur heilsuræktar við
íþróttamiðstöðina Ásgarð í Garðabæ
var dæmt ógilt af dómnefnd var sú
að tilboðið fól í sér breytingu frá
fyrra stigi í til-
boðsferli.
Breytingin er í
fundargerð bæj-
arstjórnar Garða-
bæjar frá 18.
október sl. sögð
veruleg og raska
stöðu bjóðenda
„sem geti ekki
annað en leitt til
þess að tilboðið
teljist í raun ógilt“, eins og það er
orðað í fundargerðinni.
ViðskiptaMogginn greindi frá því í
gær að Þröstur Jón Sigurðsson, eig-
andi Sporthallarinnar, skoðaði nú
vandlega að kæra þá ákvörðun bæj-
aryfirvalda í Garðabæ að ganga til
samninga við Laugar, sem reka
World Class-heilsuræktarstöðvarn-
ar, um opnun heilsuræktar í Ásgarði.
Hefur Þröstur óskað rökstuðnings
fyrir ákvörðuninni, og samkvæmt
upplýsingum frá bænum verður sá
rökstuðningur birtur mjög fljótlega.
Horfa til allra þriggja
Almar Guðmundsson bæjar-
fulltrúi og formaður dómnefndar
sem mat tilboðin segir í samtali við
Morgunblaðið að ferlið sé þrepaskipt
og bærinn þurfi að horfa á hagsmuni
allra þriggja bjóðenda þannig að
jafnræðis sé gætt. „Bæjarstjórn hef-
ur nú samþykkt tillögu dómnefnd-
arinnar. Ef aðili hyggst kæra þá
mun bærinn veita rökstuðning, og
málið hefur svo sinn gang,“ segir Al-
mar.
Hann ítrekar, eins og fram kemur
í fundargerð bæjarstjórnar Garða-
bæjar, að ákveðnar forsendur hafi
breyst verulega frá fyrra stigi, sem
hafi valdið því að tilboð Sporthall-
arinnar hafi verið dæmt ógilt. „Það
er mikilvægt að jafnræði bjóðenda
sé virt í svona málum, við fengum
lögfræðiálit þar sem niðurstaðan er
að um sé að ræða verulegar breyt-
ingar frá fyrra stigi sem raska stöðu
bjóðenda.“
Þrjú fyrirtæki um hituna
Í fyrsta fasa útboðsins um upp-
byggingu heilsuræktarinnar skiluðu
þrjú fyrirtæki inn tilboði, en auk
World Class og Sporthússins lagði
Reebok Fitness inn tilboð. Einungis
World Class og Sporthúsið komust
áfram í aðra umferð.
Á fundi bæjarstjórnarinnar gerði
Almar grein fyrir niðurstöðu dóm-
nefndar um að meta tilboð Sporthall-
arinnar ógilt, og vísaði til minnis-
blaðs Andra Árnasonar lögmanns.
Hugmyndir Sporthússins gengu
út á að reisa líkamsræktarstöð með
crossfit- og bootcampaðstöðu. Þá
átti að rísa sjúkraþjálfunar- og kíró-
praktíkstofa í sérstökum bygging-
um.
Samkvæmt samtali Viðskipta-
Moggans við Björn Leifsson, aðal-
eiganda World Class, verður í fyrsta
lagi hægt að opna World Class-stöð í
Ásgarði um þarnæstu áramót.
Kostnaður við uppbygginguna verð-
ur nálægt 600 milljónum króna.
Breytingin veruleg og
raskaði stöðu bjóðenda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsa Bæjarstjórn Garðabæjar hefur ákveðið að ganga til samninga við
World Class um rekstur líkamsræktarstöðvar í íþróttamiðstöðinni Ásgarði.
Val á heilsurækt í Ásgarði rökstudd fljótlega
Almar
Guðmundsson
Sala stoðtækjafyrirtækisins Össurar
nam 145 milljónum bandaríkjadala á
þriðja ársfjórðungi, um 16 milljörð-
um króna. Hagnaður fyrirtækisins á
þriðja ársfjórðungi nam 16 milljón-
um bandaríkjadala, um 1,7 milljörð-
um króna og jókst um 43% frá sama
tímabili í fyrra.
Rekstrarhagnaður fyrirtækisins
fyrir einskiptisliði nam 30 milljónum
bandaríkjadala, um 3,2 milljörðum
íslenskra króna, á þriðja ársfjórð-
ungi, eða 21% af sölu samanborið við
18% af sölu á sama tímabili í fyrra.
Aukninguna í EBITDA-framlegð
fyrirtækisins má rekja til aukinnar
sölu á hátæknivörum og stærðarhag-
kvæmni í rekstri.
Sé litið til fyrstu níu mánaða árs-
ins nemur hagnaður fyrirtækisins 46
milljónum bandaríkjadala, um 5,5
milljörðum króna, og jókst um 33%
miðað við sama tímabil í fyrra, og
nam 10% af sölu. Innri vöxtur í stoð-
tækjum var 11% og sala í spelkum og
stuðningsvörum jókst um 2%. Sölu-
vöxt fyrirtækisins má einna helst
rekja til sölu á hátæknivörum félags-
ins. Fjárhagsáætlun þess fyrir árið
2018 gerir ráð fyrir 4-5% innri vexti,
um 19% EBITDA-framlegð að teknu
tillliti til einskiptisliða, 5% fjárfest-
ingarhlutfalli og virku skattahlutfalli
á bilinu 23-24%.
Í tilkynningu lýsir Jón Sigurðs-
son, forstjóri Össurar, yfir ánægju
með söluvöxtinn í fjórðungnum.
„Söluvöxtinn má aðallega rekja til
sölu á stoðtækjum, sem jókst um
11%, og sölu á hátæknivörum í okkar
helstu vöruflokkum,“ segir Jón og
nefnir einnig að góður vöxtur hafi
verið í löndum sem teljast til ný-
markaðsríkja. peturhreins@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Össur Hagnaður Össurar á fyrstu
níu mánuðum nam 10% af sölu.
Hagnaður Össur-
ar jókst um 43%
Hagnaður fyrstu
níu mánaða 5,5
milljarðar króna
Rekstrarhagnaður leigufélagsins
Heimavalla nam 598 milljónum króna
fyrir matsbreytingu á þriðja ársfjórð-
ungi og jókst um 34% miðað við sama
tímabil í fyrra. Hreinar leigutekjur á
ársfjórðungnum námu 705 milljónum
króna samanborið við 571 milljón á
sama tímabili í fyrra. Rekstrarkostn-
aður fjárfestingareigna nam 224
milljónum króna á þriðja ársfjórð-
ungi. Eignir félagsins voru 58,5 millj-
arðar króna í lok september og skuld-
irnar 39,7 milljörðum. Eigið fé nam
því tæpum 19 milljörðum.
Sé litið til fyrstu níu mánaða ársins
jukust tekjur um 531 milljón króna
miðað við sama tímabil í fyrra og er
það 24% aukning á milli ára. Rekstr-
arkostnaður fjárfestingareigna var
784 milljónir króna á fyrstu níu mán-
uðum þessa árs sem eru um 28,3% af
rekstrartekjum í samanburði við
33,4% hlutfall á sama tímabili í fyrra.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Heimavalla, segir að
rekstrarniðurstaða þriðja ársfjórð-
ungs sé sú besta frá upphafi og fram-
undan sé endurfjármögnun félagsins.
Afar takmörkuð viðskipti voru með
bréf Heimavalla í gær en félagið
hækkaði um ríflega 0,9% í viðskiptum
dagsins. peturhreins@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Uppgjör Hagnaður Heimavalla nam
598 milljónum á 3. ársfjórðungi.
Leigutekjur
jukust um
531 milljón
598 milljóna króna
hagnaður Heimavalla
W W W. S I G N . I S
Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is
● Arion banki hefur
ráðið Rúnar Magna
Jónsson í starf
framkvæmdastjóra
fyrirtækjasviðs
bankans. Hann hef-
ur langa reynslu af
starfi innan bank-
ans eða um 15 ár
og lengst af á fyrir-
tækjasviði. Frá
árinu 2014 hefur
hann verið forstöðumaður þess sviðs.
Rúnar Magni er með meistarapróf í al-
þjóðamarkaðsmálum og stjórnun frá
CBS í Kaupmannahöfn og þá hefur hann
lokið viðskiptafræðiprófi frá Háskóla Ís-
lands. Hann er með próf í verðbréfa-
viðskiptum.
Tekur við fyrirtækja-
sviði Arion banka
Rúnar Magni
Jónsson