Morgunblaðið - 26.10.2018, Page 20

Morgunblaðið - 26.10.2018, Page 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Donald Trump Bandaríkjaforseti hef- ur fordæmt pólitískt ofbeldi og hvatt til „siðaðrar“ umræðu um stjórnmálin en kennt fjölmiðlum um það að reynt hefur verið að senda sprengjur til demókrata og annarra sem hafa gagnrýnt forsetann. „Engri þjóð getur farnast vel ef hún líður ofbeldi eða hótun um ofbeldi sem pólitíska þvingunaraðferð,“ sagði Trump á fundi með stuðningsmönn- um sínum í Wisconsin í fyrrakvöld. Hann gagnrýndi síðan fjölmiðlana og sagði að þeir þyrftu að láta af „látlaus- um fjandskap“ við hann og hætta að birta „neikvæðar“ fréttir um hann, eða „falsfréttir“ eins og hann kallar þær. Nokkrir stuðningsmanna hans hrópuðu ókvæðisorð um CNN-sjón- varpið eins og venja er á fjöldafund- um forsetans þegar hann gagnrýnir fjölmiðlana. Leit ekki í eigin barm Hægriblaðið The Wall Street Journal segir að Trump hafi ekkert minnst á þátt sjálfs sín í því að kynda undir pólitíska hatrinu. Forsetinn hafi t.a.m. hvað eftir annað hvatt til þess að andstæðingar hans verði handteknir, einkum Hillary Clinton, fyrrverandi forsetaefni demókrata, sem er á meðal þeirra sem reynt hef- ur verið að senda sprengjur í pósti síðustu daga. Hann hafi lýst demó- krötum sem lýð og bófaflokki á fundi með stuðningsmönnum sínum í Texas á mánudag. Forsetinn hafi einnig hrósað repúblikananum og fulltrúa- deildarþingmanninum Greg Gian- forte fyrir að ráðast á blaðamann á síðasta ári. „Sá sem getur sveiflað mönnum í gólfið er minn maður,“ sagði forsetinn m.a. um árásina á fjöldafundi með stuðningsmönnum sínum í vikunni sem leið. Trump hefur einnig lýst fjölmiðlum sem „óvinum þjóðarinnar“ og yfirlýsingar hans um „falsfréttir“ og meint samsæri þeirra gegn honum eru orðnar svo algengar að engu er líkara en fólk sé farið að líta á þær sem eðlilegan þátt í starfi forseta Bandaríkjanna. Skýrt var frá því í gær að Joe Bid- en, fyrrverandi varaforseti Banda- ríkjanna, hefði bæst í hóp demókrata sem reynt hefur verið að senda sprengjur í pósti. Bandarískir fjöl- miðlar segja að sprengja hafi einnig fundist í pakka sem sendur var á veit- ingahús í New York-borg í eigu leik- arans Roberts De Niro sem hefur gagnrýnt forsetann. Áður hafði verið greint frá sprengjum í pökkum sem reynt var að senda Barack Obama, fyrrverandi forseta, John Brennan, fyrrverandi forstjóra CIA, Eric Hold- er, fyrrverandi dómsmálaráðherra, fulltrúadeildarþingmanninum Max- ine Waters og fjármálamanninum George Soros, auk Hillary Clinton. Fordæmir ofbeldi en kennir fjölmiðlum um  Trump gagnrýnir fjölmiðla eftir sprengjusendingar Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi fjölmiðla fyrir „látlausan fjandskap“ eftir að nokkrir þekktir menn og skrifstofa CNN fengu rörsprengjur eða grunsamlega pakka í pósti Fyrsti pakkinn var sendur á heimili fjár- málamannsins George Soros í New York 22. október Þrír grunsamlegir pakkar voru sendir til demókratans Maxine Waters, sem á sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings Nokkrir þeirra sem sprengjusendingarnar beindust að: Pakki með póstfangi Hillary Clinton, fyrrverandi forseta- efnis demókrata, í New York þar sem hún býr með Bill Clinton, fyrrverandi forseta Pakki með póstfangi Baracks Obama fannst við reglubundna leit tæknimanna stofnunar sem verndar m.a. fyrrverandi forseta og fjölskyldur þeirra Skrifstofa CNN í New York var rýmd eftir að pakki var sendur þangað og stílaður á John Brennan, fyrrverandi forstjóra CIA FBI sagði að grunsamlegur pakki hefði verið sendur á póstfang Erics Holder, sem var dómsmálaráðherra í forsetatíð Obama Sprengjur sendar í pósti Ljósmyndir: AFP Kaupsýslumaður, sem sakaður hefur verið um kynferðislega áreitni, var nafngreindur í lávarðadeild breska þingsins í gær þrátt fyrir lögbann sem dómari hafði sett til að hindra að nafn hans yrði birt. Lávarðurinn Peter Hain sagði á fundi í þingdeild- inni að kaupsýslumaðurinn væri auð- maðurinn sir Philip Green. Breska dagblaðið The Telegraph birti grein um ásakanir á hendur kaupsýslumanninum en gat ekki nafngreint hann vegna lögbannsins. Hain nýtur friðhelgi frá lögsókn sem þingmaður og kvaðst telja það vera skyldu sína að nafngreina kaup- sýslumanninn vegna þess að ásak- anirnar á hendur honum væru mjög alvarlegs eðlis. Margir breskir fjöl- miðlar hafa nú birt nafn hans. Green er stjórnarformaður tísku- vörukeðjunnar Arcadia sem rekur Topshop og fleiri verslanir. Hann keypti Arcadia af Baugi árið 2002 og lýsti einnig yfir áhuga á að kaupa skuldir Baugs við Kaupþing með 95% afslætti skömmu eftir banka- hrunið 2008. AFP Green var það Bresk dagblöð hafa birt frásagnir kvenna sem saka kaup- sýslumanninn um kynferðislega áreitni, einelti og kynþáttafordóma. Green sakaður um kynferðislega áreitni  Nafngreindur þrátt fyrir lögbann Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira, en bara ódýrt Fötur/Balar/tunnur/ stampar, mikið úrval Vinnuvettlingar Pu-Flex frá 295 R Strákústar frá 695 frá 395 uslatínur Laufhrífur frá 1.495 Lauf/ruslastampur Laufsuga/blásari 8.985 skóflur frá 1.995 Ruslapokar 10/25/50 stk. Nokkrar stærðir Verð frá 102.508 Vitamix blandararnir eiga sér engan jafningja. Mylja nánast hvað sem er. Búa til heita súpu og ís. Hraðastillir, prógrömm og pulse rofi sjá til þess að blandan verður ávallt fullkomin og fersk! Nýjir meistarar eru mættir Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Ascent serían frá Vitamix

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.