Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 22
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Persónuvernd hefur boristmikill fjöldi ábendinga,bæði frá foreldrum ogstarfsmönnum skóla og
leikskóla, um breytta starfshætti
vegna nýju persónuverndarlaganna,
sem tóku gildi í sumar. Í sumum til-
vikum hafa skólar sett sér mun
strangari reglur en krafist er í nýju
lögunum. Að sögn forsvarsmanna
Persónuverndar virðist sem mis-
skilnings gæti víða í skólasamfélag-
inu um til hvaða aðgerða þurfi að
grípa til að skólastarf samrýmist lög-
unum.
Þau tilvik sem upp hafa komið
varða m.a. herta aðgangsstýringu að
skólum, trúnaðaryfirlýsingar,
myndatökur og afhendingu nafna-
lista í skólum o.fl. Hefur Persónu-
vernd sent frá sér samantekt með ít-
arlegum ábendingum um hvort
aðgerðir sem skólarnir hafa gripið til
eiga sér stoð í lögunum eða ekki.
Helga Þórisdóttir, forstjóri
Persónuverndar, segir að mjög
margar ábendingar hafi borist bæði í
pósti og síma. „Það fylltist allt hjá
okkur af ábendingum úr mörgum
áttum um að það væri verið að grípa
til óþarfa aðgerða að því er virtist á
grundvelli persónuverndarlaganna,“
segir hún.
Meina aðgang í skólastofur
Komið hefur á daginn að ein-
staka skólar hafa m.a. tekið upp að-
gangsstýringu að skólum, þar sem
foreldrum er meinaður aðgangur inn
í skólastofur. Þetta á sér ekki stoð í
persónuverndarlögum. Bendir Per-
sónuvernd á að það geti hins vegar
talist eðlilegt að skólar, líkt og aðrar
stofnanir, setji sér ákveðnar verk-
lagsreglur og viðhafi aðgangsstýr-
ingu þar sem það á við, með öryggis-
sjónarmið að leiðarljósi.
Má afhenda foreldrum nem-
endalista? Á þetta hefur reynt og í
einhverjum tilvikum hefur foreldrum
verið neitað um að fá afhenta lista
með nöfnum bekkjarfélaga barna
sinna. Hér virðist vera of langt geng-
ið að mati Persónuverndar sem bend-
ir á að tilgangurinn með afhendingu
bekkjarlista sé m.a. að efla tengsl og
samstarf foreldra og aðstoða börn sín
við félagslega tengslamyndun og
tryggja öryggi. Afhending bekkjar-
lista geti talist eðlilegur hluti af starf-
semi skóla ef meðalhófs er gætt.
„Mikilvægt er að gæta að því við gerð
slíkra lista að einstaklingar geti nýtt
andmælarétt sinn skv. 21. gr. per-
sónuverndarlaga og óskað eftir að
láta fjarlægja upplýsingar um sig af
listanum, hvort sem er í heild eða að
hluta, segir í ábendingunum.
Persónuvernd hefur fengið vitn-
eskju um að fjöldi skóla sé að undir-
búa eða hafi þegar lokið við að afla
samþykkis foreldra fyrir mynda-
tökum af börnum. „Persónuvernd
fagnar því að sú framkvæmd sé hafin
enda er það í samræmi við persónu-
verndarlög og tilmæli stofnunar-
innar,“ segir í ábendingunum en þar
er þó bent á ýmis álitamál sem hafa
verði í huga. M.a. þurfa skólar að
veita fullnægjandi fræðslu um vinnsl-
una og gæta þarf að réttindum barna
til friðhelgi einkalífs.
Hafa bannað myndatökur
„Í einhverjum tilvikum hefur
foreldrum og forráðamönnum verið
bönnuð myndataka á viðburðum á
vegum skólans. Það er mat Persónu-
verndar að skólar, sem opinberar
stofnanir, geti ekki lagt bann við því
að einstaklingar taki ljósmyndir af
börnum sínum enda skal það áréttað
að persónuverndarlög gilda ekki um
meðferð einstaklings á persónu-
upplýsingum sem eingöngu varða
einkahagi hans eða fjölskyldu hans
eða eru einvörðungu ætlaðar til per-
sónulegra nota,“ segir í ábendingum
Persónuverndar.
Herða reglur í skólum
oft fyrir misskilning
Morgunblaðið/Hari
Í skóla Það á sér ekki stoð í persónuverndarlögum að taka upp aðgangsstýr-
ingu að skólum, þar sem foreldrum er meinaður aðgangur inn í skólastofur.
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Embættis-menn íBrussel
höfnuðu fjárlögum
ítalskrar ríkis-
stjórnar og „gáfu
henni fyrirmæli“
um að skila öðrum til Brussel
innan 15 daga en þola fjár-
sektir ella. Varla er því hægt að
tala um ESB sem samband full-
valda þjóða. Leiðtogar ESB
sendu ekki snuprur og lítt falda
kúgun af því tagi, heldur skrif-
stofumenn þeirra!
Varaforsætisráðherra Ítalíu
hefur þegar svarað með stytt-
ingi. Pistlahöfundurinn Am-
brose Evans Pritchard útlistar
í Telegraph hvernig þessi
óvenjulega gjörð er hugsuð og
færir um leið rök fyrir því að
hún gæti misheppnast: Ekki sé
sjálfgefið að þótt skuldatrygg-
ingaálag Ítalíu hækki um hina
skelfilegu „400 basis points“
(4%) muni hin uppreisnar-
gjarna stjórn gefast upp fyrir
þvingunum ESB. Pritchard
segir áætlunina byggjast á að
stigvaxandi pressa á banka
vegna fjárhagslegra skilyrða
þeirra muni fljótt leiða til fjár-
magnsflótta með kunnum af-
leiðingum. Treyst sé á að af-
leiðingar þess efnahagslega
skemmdarverks smitist ekki í
Spán, Portúgal og Grikkland.
Þetta sé þó mikill háskaleikur
hafi menn ekki örugga vissu
fyrir því að stjórnin í Róm
lyppist niður og grípi ekki til
enn róttækari aðgerða í nauð-
vörn sinni.
Hin augljósa áhætta sé sú, að
slagur Brussel við Ítalíu valdi
efnahagskreppu um Evrópu
þvera áður en annar hvor
bliknar. Vitnar hann í Matteo
Salvini, helsta valdamann Ítal-
íu, um að „Brussel geti dritað á
okkur fáránlegum bréfum til
jóla … án þess að beygja okk-
ur“. Og bætir við: „Ætli ESB
að lemja okkur enn og aftur
með blautum tuskum í andlitið
gæti það orðið til þess að ég
færði enn meira laust fé til
ítölsku þjóðarinnar.“
Hver sá sem vill fá nasasjón
af um hvað þessi dapurlega
styrjöld Brussel við ríkisstjórn
Ítalíu snýst ætti að lesa grein
Pritchards. Hann efast ekki um
að bókstafurinn sem farið er
eftir í Brussel skuldbindi þá
þar til aðgerða gagnvart Ítalíu.
En það sé ekki heil brú í reglu-
setningunni.
En hefðist Brussel ekki að
græfi það undan grundvallar-
reglum sem réttlæta aðild Hol-
lands og Þýskalands að evrunni
og þá yrði önnur kreppa.
Pritchard bendir á að rauða lín-
an um 1,4% mörk fráviks frá
hlutfalli af þjóðarframleiðslu
hafi litla raunverulega þýð-
ingu. Ábendingar Ítalíu séu
réttar um að Sáttmáli um stöð-
ugleika og jafnvægi ríkisfjár-
mála byggist ekki á
hagfræðivísindum
sem haldi. Regl-
urnar séu
ósamræmanlegar
tilraunir lögfræð-
inga til að bæta
fyrir upphafssyndina. Þá að
hnýta saman í einn gjaldmiðil
ósamrýmanlegan efnahag
ólíkra þjóða, 50 árum áður en
nokkur von var til þess að það
gengi upp. Og horfa svo af-
skiptalaust næstu 15 ár á sívax-
andi klofning, sem endaði í ris-
agjá á mörkum Suður- og
Norður-Evrópu í raungengi
sameiginlegu myntarinnar.
A.E. Pritchard segir það rétt
hjá forystumönnum (Norður)
Bandalagsins að óhjákvæmi-
legt sé að hverfa frá þessum
hugmyndafræðilega þykjustu-
leik og brjóta í mél þýskmeng-
aða reglu um hvernig mynt-
bandalag skuli rekið. Hinn
leiðtogi ríkisstjórnarinnar,
Maio, forystumaður Fimm-
stjörnu-bandalagsins, segir:
„Við stöndum í seinustu varn-
arlínu félagslegra réttinda
ítölsku þjóðarinnar. Gefumst
við upp fær þjóðin fljótlega yfir
sig velferðarmenn bankanna og
„sérfræðinga“ í að herða ólar
almennings. Því gefumst við
aldrei upp.“
Pritchard dregur svo upp
hvernig „refsiaðgerðir“ ESB
muni leika Ítali. Ekki smám
saman heldur undrafljótt. Það
er ljót en nauðsynleg lesning.
Ítalir vita hvernig farið var
með Grikki. Þeir horfðu á
eymdina þegar ESB og AGS
tæmdu hraðbankana og á nið-
urlægjandi biðraðir almenn-
ings. Áður hækkaði gríska
skuldatryggingaálagið eins og
eldgos væri. En hann segir að
þvingunaráhrif þess séu ekki
hin sömu og áður. Ítalir muna
hvernig ESB notaði skulda-
tryggingarnar til að flæma
Berlusconi burt 2011.
Ítalska þjóðin ákvað þá að
láta valdarán ESB yfir sig
ganga. Hún vonaði að sending
Brussel á kommissar frá sér í
forsætisráðherrastól í Róm
myndi koma Ítalíu út úr krepp-
unni. En Pritchard segir að að-
gerðir hans hafi dýpkað krepp-
una. Claudio Borghi, formaður
fjárlaganefndar Ítalíu, minnir
á að ESB hafi náð að gera
óverulegt vandamál Grikkja að
hreinum ósköpum sem enginn
hafði séð með eigin klaufa-
spörkum.
Endurtaki þeir þau mistök á
Ítalíu muni tjónið verða þúsund
sinnum verra. En Pritchard
spyr leiðtoga Evrópu: Hvað
verður um evrópsku hugsjóna-
verkin nái þeir að þvinga fram
hörkulegt allsherjargreiðslu-
fall Ítalíu og á sama tíma verði
hörð lending „Brexit“? Mun
eitthvað standa af sér tvíbura-
hrun af þeirri ofurstærð?
Slagurinn við Ítalíu
mun enda illa.
Spurningin er að-
eins hversu illa}
Blásið til leiks
M
eðal þingmála á þingmálaskrá
minni fyrir 149. löggjafar-
þing, þingveturinn 20182019,
er frumvarp til laga um
breytingu á lyfjalögum og
lögum um landlækni og lýðheilsu. Í frumvarp-
inu eru lagðar til lagabreytingar sem heimila
hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum að ávísa
hormónatengdum getnaðarvörnum.
Markmið lagafrumvarpsins er annars vegar
að stuðla að bættu aðgengi kvenna að kynheil-
brigðisþjónustu, ásamt því að efla og styrkja
slíka þjónustu, og hins vegar að nýta betur
fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og ljós-
mæðra innan heilbrigðisþjónustunnar. Í
frumvarpinu er gert ráð fyrir að heimild
hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til að ávísa
hormónatengdum getnaðarvörnum verði
bundin því skilyrði að viðkomandi starfi á heilbrigðis-
stofnun þar sem heilsugæsla, kvenlækninga- eða fæðing-
arþjónusta er veitt. Landlæknir mun veita hjúkrunar-
fræðingum og ljósmæðrum leyfi til lyfjaávísunar að
uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum og meðal þess-
ara skilyrða verður að viðkomandi leyfisumsækjandi hafi
sótt og staðist fræðilegt og klínískt námskeið um lyfja-
ávísanir.
Þessar lagabreytingar eru í samræmi við ábendingar
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og Heimsmark-
mið Sameinuðu þjóðanna um mikilvægi þess að almenn-
ingur hafi greiðan aðgang að þjónustu og ráðgjöf um
kynheilbrigði og getnaðarvörnum hjá heilsu-
gæslu. Auk þess er samhljómur með þessum
lagabreytingum og aukinni áherslu á for-
varnir í heilbrigðismálum og ráðgjöf til al-
mennings um eigin heilsu.
Sjálfsforræði kvenna þarf að efla, og þar
með talinn rétt kvenna til að taka ákvörðun
um barneign. Með þessari heimild til ljós-
mæðra og hjúkrunarfræðinga er tekið mikil-
vægt skref í þá átt með bættu aðgengi
kvenna að kynheilbrigðisþjónustu.
Frumvarpið er einnig til þess fallið að efla
heilsugæsluna og teymisvinnu innan hennar.
Ég hef lagt áherslu á styrkingu heilsugæsl-
unnar sem fyrsta viðkomustaðar í heilbrigðis-
kerfinu, með það að markmiði að tryggja
jafnan aðgang allra að góðri heilbrigðisþjón-
ustu. Með aukinni eftirspurn eftir heilsu-
gæsluþjónustu aukast áskoranir heilbrigðisyfirvalda enn
frekar. Í því skyni er mikilvægt að nýta þekkingu fag-
stétta sem þar starfa enn betur, svo mannauður nýtist
sem best. Fyrirkomulagið sem hér um ræðir felur í sér
samstarf við lækna sem gefur hjúkrunarfræðingum og
ljósmæðrum færi á að sinna fjölbreyttari verkefnum en
nú.
Það er von mín að frumvarpið verði að lögum. Ég er
sannfærð um það að samþykkt þess muni stuðla að enn
betri heilbrigðisþjónustu í landinu, öllum til heilla.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Eflum kynheilbrigðisþjónustu
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Ýmis álitamál hafa líka komið
upp um myndatökur og notkun
samfélagsmiðla í skólum. Ítrek-
ar Persónuvernd í ábendingum
sínum að nauðsynlegt sé að fá
samþykki foreldris/forráða-
manns fyrir myndatöku og/eða
miðlun ljósmynda af börnum.
„Börn geta þurft að sam-
þykkja að rætt sé um þau á
samfélagsmiðlum eða birtar af
þeim myndir opinberlega, að
teknu tilliti til aldurs þeirra og
þroska. Þau eiga rétt á að hafa
skoðun á umfjöllun um þau
eða birtingu mynda af þeim á
netinu og taka þarf tillit til
skoðana þeirra, jafnvel þó að
þau séu ung. Almennt verður
hins vegar ekki gerð athuga-
semd við að birtar séu myndir
af opnum viðburðum á vegum
skóla og félaga sem ekki sýna
neinar aðstæður viðkvæms
eðlis. Það sama getur átt við
um bekkjarmyndir árganga,“
segir í ábendingum Persónu-
verndar.
Virða ber
friðhelgi
barna
MYNDATÖKUR OG DREIFING