Morgunblaðið - 26.10.2018, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
2097/30
Króm / Brass
verð 199.000,-
Svart takmörkuð útgáfa
verð 265.000,-
Hönnuður Gino Sarfatti
Dala- og Strandamaðurinn Karl Ingi Karlsson á 50 ára afmæli ídag. Hann er frá Kollsá í Hrútafirði en hefur lengi búið í Búðar-dal og á og rekur KM-þjónustuna þar ásamt konu sinni, Stein-
unni Matthíasdóttur.
KM-þjónustan er bæði bílaverkstæði, en nóg var að gera í umfelgun-
inni þegar blaðamaður ræddi við Karl, og landbúnaðarverslun sem
sinnir bændum í nágrenninu, þ.e. í Dalasýslu og Reykhólasveit. „Það er
svona mitt svæði, eins og maður segir. Í versluninni seljum við allt frá
skrúfum og upp í fóður og rúlluplast. Svo erum við með tvo dráttarbíla
og höfum verið að bjarga ferðamönnum úti um allt. Við erum semsagt
eitt af þeim fyrirtækjum sem hafa haft hag af erlendum ferðamönnum.“
KM-þjónustan er líka leigufyrirtæki og er með hús í leigu fyrir Vöru-
miðlun og ÁTVR, en alls vinna átta manns hjá fyrirtækinu.
Ferðalög eru aðaláhugamál Karls og ferðast hann bæði innanlands
og utan. „Við hjónin eigum mjög skemmtilegan húsbíl til að ferðast á
um og fórum síðast um Norðurlandið í kringum Akureyri í ágústmán-
uði. Svo ætluðum við í tilefni afmælisins í ferðalag með allri fjölskyld-
unni en elsta dóttirin sagði mér frá því þegar líða fór á vorið að ég yrði
afi í lok október og þá var afmælisferðinni auðvitað frestað,“ en það
verður fyrsta barnabarn Karls og Steinunnar. Börn þeirra eru Sunna
Björk 22 ára, Matthías Karl 19 ára og Dagbjört María 10 ára.
Karl verður í vinnunni í dag en eftir hádegi ætlar hann að bjóða gest-
um og gangandi upp á kökur og kræsingar í verslun KM-þjónustunnar.
Feðginin Karl ásamt Dagbjörtu Maríu og Vaðalfjöll í baksýn.
Kökur og kræsing-
ar í versluninni
Karl Ingi Karlsson er fimmtugur í dag
B
ergljót Benónýsdóttir
fæddist í Bæ II við
Hrútafjörð í Stranda-
sýslu 26.10. 1958 og
ólst þar upp, næst
yngst átta systkina: „Í Bæ var tví-
býli og amma í móðurætt bjó í Bæ
I, en hún lést árið sem ég fermd-
ist.
Ég var í heimavist í Barnaskól-
anum á Borðeyri frá sjö ára aldri.
Eftir fermingu fór ég í Héraðsskól-
ann að Reykjum í Hrútafirði sem
einnig var heimavistarskóli. Ég var
alltaf mikið í íþróttum á þessum
árum, var m.a. í skólaliðinu í körfu-
bolta og við fórum oft í keppnis-
ferðir við aðra heimavistarskóla.
Þá tók ég einnig nokkrum sinnum
þátt í hóp-fimleikasýningum hjá
Fimleikasambandi Íslands í
Laugardalshöllinni fyrir hönd skól-
ans.“
Bergljót vann m.a. í Kaupfélginu
á Borðeyri og í Sláturhúsinu. Hún
ætlaði að vera íþróttakennari en
ákvað svo að fara í Verzlunarskóla
Íslands og útskrifaðist þaðan 1979.
Hún var rekstrarstjóri í veitinga-
skálanum á Brú í Hrútafirði sum-
arið eftir útskrift, en þar hafði hún
starfað á sumrin meðfram námi.
Bergljót hóf störf hjá Gunnari
Ásgeirssyni og Velti hf,. haustið
1979, og starfaði þar í nokkur ár.
Hún starfaði hjá Radíóbúðinni og
hjá Apple-umboðinu hf á árunum
1990-97, hóf störf hjá Lýsingu hf
1998, var forstöðumaður upplýs-
ingatækni þar, 2005-2009, og fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs Lýs-
ingar, 2009-2015, en er nú
forstöðumaður upplýsingatækni
hjá Lykli fjármögnun hf.
Bergljót hefur haldið við áhuga
sínum á íþróttum. Hún æfði karate
í nokkur ár hjá Breiðablik og æfði
og keppti í blaki með öldungadeild
Bergljót Benónýsdóttir, forstöðum. hjá Lykli fjármögnun – 60 ára
Börn og barnabörn Fr.v.: Hlín, Ágúst Elí sem heldur á Heiðrúnu Hlín, Bergljót, Þórður Alexander og Ágúst.
Íþrótta- og keppnis-
kona úr Hrútafirði
Hvolsvöllur Birna Fold Hall-
dórsdóttir fæddist á Land-
spítalanum í Reykjavík
sunnudaginn 1. júlí 2018 kl.
2:40. Hún ví 3324 g og var
49 cm að lengd. Foreldrar
Birnu Foldar eru Nanna
Fanney Björnsdóttir og Hall-
dór Hrannar Hafsteinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is