Morgunblaðið - 26.10.2018, Qupperneq 44
*Verð miðast við MyWOW aðild og WOW Basic aðra leið með sköttum
ef greitt er með Netgíró. Gildir þegar bókað er flug báðar leiðir.
FLOTT
FÆRI
SALZBURG FRÁ
12.999kr.*
Tímabil: okt.–mars
Tímabil: des.–mars
MÍLANÓ FRÁ
9.499kr.*
Skelltu þér á skíði. Á skíðasvæðunum við
Salzburg ogMílanó eru skíðaaðstæður eins
og best verður á kosið. Farangursheimild
fyrir skíði/snjóbretti er innifalin í verði ef
bókað er fyrir kl. 23:59 þann 29. október.
Bókaðu skíðaferðina strax í dag og hafðu
það notalegt í vetur meðWOWair.
SKÍÐIN FLJÚGAMEÐ
Múlakvintettinn leikur fjölbreytt
verk á tónleikum Múlans kl. 21 á
Björtuloftum í Hörpu. Tónlistin er
útsett fyrir tvo saxófóna og rytma-
sveit þar sem dillandi flæði sveifl-
unnar ræður. Í kvintettinum eru
Haukur Gröndal og Ólafur Jónsson
saxófónleikarar, Ásgeir Ásgeirsson
á gítar, Þorgrímur Jónsson á bassa
og Erik Qvick á trommur.
Dillandi flæði sveifl-
unnar á Björtuloftum
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 299. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
„Það verður ekki einfalt að eiga við
Tyrkina, allra síst á þeirra heima-
velli. Þeir eru líkamlega sterkir, af-
ar vel skipulagðir og leika afar
góða vörn,“ sagði Guðmundur Þ.
Guðmundsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, í gærkvöldi en hann
fer með sveit sína til Tyrklands í
dag þar sem hún mætir heima-
mönnum á sunnudag. »1
Alls ekki einfalt
að eiga við Tyrki
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Opinn samlestur á Ríkharði III eftir
William Shakespeare verður í Borg-
arleikhúsinu kl. 12.30 í dag. Kristján
Þórður Hrafnsson þýddi leikritið og
verður þetta því opinber frumflutn-
ingur á splunkunýrri Shakespeare-
þýðingu. Leikritið verður frumsýnt á
Stóra sviði Borgarleikhússins 29.
desember. Brynhildur
Guðjónsdóttir, leik-
stjóri sýningar-
innar, segir mikla
gleði hjá leik-
hópnum að bjóða
fólki að hlýða á
fyrsta samlest-
urinn. Hjörtur
Jóhann Jóns-
son fer með
hlutverk Rík-
harðs III.
Ríkharður III lesinn í
splunkunýrri þýðingu
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Óformlegur hittingur skúffuskálda
var haldinn í Borgarbókasafninu síð-
degis í gær og var tilefnið átakið
NaNoWriMo þar sem litið er á nóv-
ember sem alþjóðlegan mánuð
skáldsöguskrifa. Átakið miðar að því
að skáld skrái sig til þátttöku og er
stefnt að því að hvert þeirra skrifi 50
þúsund orða skáldsögu á einum
mánuði, segir Simone Schreiber,
umsjónarmaður NaNoWriMo á Ís-
landi.
Hugmyndin kviknaði árið 1999
sem áskorun milli vina í Bandaríkj-
unum og hefur þróast í að verða al-
þjóðlegt fyrirbæri sem haldið er ár
hvert.
Íslendingar hafa áður tekið þátt í
átakinu en þetta er í fyrsta sinn sem
Ísland gerir það með formlegum
hætti með umsjónarmann hérlendis,
segir Schreiber.
Töfratalan
Spurð hvers vegna miðað sé við
þennan ákveðna orðafjölda segir
hún: „50 þúsund er töfratalan því
það er ágætis viðmið þegar kemur
að fyrstu drögum að skáldsögu og
þetta er magn orða sem hægt er að
ná án þess að valda manni of miklu
stressi. Þetta veldur auðvitað smá
stressi, en ekki of miklu.“
Ekki er ólíklegt að sumum kunni
að þykja nokkuð djarft að taka slíkri
áskorun og játar Schreiber að kraf-
an um 50 þúsund orð sé nokkuð
ströng en bendir jafnframt á að hún
hafi gert þetta nokkrum sinnum áð-
ur og sín reynsla sé að þetta sé mjög
skemmtilegt. „Sérstaklega í byrjun
þegar maður veit hvað maður er að
gera, en líka síðustu dagana þegar
maður þarf virkilega að þrýsta á
sjálfan sig að klára. Á endanum er
þetta samt ávallt þess virði og mikill
léttir þegar verkinu er lokið.“
Hún segir helsta kostinn við að
sett séu tímamörk þann að það
hvetji fólk áfram.
„Þegar það er orðið freistandi að
taka hlé og setjast fyrir framan sjón-
varpið, þá rennur upp fyrir manni að
það eru tímamörk og maður tekur
frá tíma fyrir verkið. Þá finnur mað-
ur að mann langar virkilega til að
klára og það ýtir undir sköpunar-
gleðina,“ fullyrðir Schreiber.
Hægt er að skrá sig allt fram í
nóvember að sögn Schreiber og mun
Borgarbókasafnið hýsa ritsmíða-
verkstæði í nóvember í tilefni af
NaNoWriMo. Samkvæmt vef átaks-
ins eru 22 skráðir til leiks á Íslandi
að svo stöddu og voru þátttakendur
402.142 á alþjóðavísu í fyrra.
Morgunblaðið/Eggert
Skúffuskáld sameinast Simone Schreiber hitti höfunda á Borgarbókasafninu í gær en annir eru fram undan.
Nóvember alþjóðlegur
skáldsögumánuður
400 þúsund á heimsvísu rita skáldsögu á einum mánuði