Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Enn liggur ekki fyrir hvar fyrir-
huguð smáhýsi fyrir utangarðsfólk í
Reykjavík verða staðsett, en það
verður þó í fimm húsa þyrpingum
vestan Elliðaáa. Þetta segir Elfa
Björk Ellertsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi hjá Reykjavíkurborg, í svari
við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Um síðustu helgi auglýsti inn-
kaupadeild borgarinnar fyrir hönd
velferðarsviðs eftir tilboðum í hönn-
un, smíði, flutning á verkstað, niður-
setningu, tengingar og frágang á
nærumhverfi 20 smáhýsa í Reykja-
vík. Borgarrráð hefur samþykkt að
verja allt að 450 milljónum króna í
verkefnið. Kaup á slíkum smáhýsum
falla að skaðaminnkunarverkefninu
„Húsnæði fyrst“ og eru liður í að-
gerðaáætlun í málefnum utan-
garðsfólks.
Í auglýsingunni segir að stærð
húsanna skuli vera sem næst 25 fer-
metrar og ytra og innra byrði þeirra
þarf að vera sterkbyggt. Húsin
verða í þyrpingum og skulu bjóð-
endur miða við fjarlægðir milli
byggingahluta við hönnun og stað-
setningu húsanna. Gerð er rík krafa
um að húsin verði hlýleg að utan sem
innan. Tilboðum á að skila fyrir 3.
desember næstkomandi.
Elfa Björk segir að gert sé ráð
fyrir því að fyrstu nýju smáhýsunum
verði úthlutað í febrúar á næsta ári.
Við það er miðað að í hverju smáhýsi
búi einstaklingur eða par. Þau eru
ætluð fyrir fólk sem erfiðlega hefur
gengið að útvega búsetuúrræði
vegna áfengis- og/eða vímuefna-
neyslu, annarra veikinda eða sér-
þarfa. Fyrir nokkrum árum var
smáhýsum fyrir utangarðsfólk kom-
ið fyrir á svæði á Granda. Reynslan
af þeim hefur verið metin góð, fólkið
fékk stuðning og gistinóttum í
fangaklefum lögreglu fækkaði.
Staðsetning ekki ákveðin
Í bígerð að reisa 20 ný smáhýsi fyrir utangarðsfólk
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Skjól Smáhýsin eru ætluð heimilis-
lausu utangarðsfólki.
ol pium 350Nú jóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
ym
maxipodium 500
b
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Félagsbústöðum leiðbeint
Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar kom með ýmsar ábendingar í skýrslu
Sækja þarf heimild til stjórnar vegna útgjalda sem eru ekki á fjárhagsáætlun
Stjórn Félagsbústaða hf. þarf nú þegar að setja fé-
laginu innkaupastefnu og marka þannig skýrar
línur varðandi innkaup. Þá þarf framkvæmda-
stjóri að setja félaginu innkaupareglur á grund-
velli innkaupastefnunnar. Þetta kemur m.a. fram í
skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar
til stjórnar Félagsbústaða hf. um viðhaldsfram-
kvæmdir við Írabakka 2-16 á árunum 2012-2016.
Eins og fram hefur komið fór kostnaður við
framkvæmdirnar langt fram úr áætlunum. Raun-
kostnaður við framkvæmdina varð um 728 millj-
ónir, á verðlagi hvers árs, en stjórn Félagsbústaða
hafði samþykkt framkvæmdir upp á 398 milljónir.
Framúrkeyrslan varð því 330 milljónir eða 83%.
Innri endurskoðun kemur með ýmsar ábend-
ingar í skýrslu sinni um það sem betur má fara hjá
Félagsbústöðum. Ábendingunum er skipt í fjóra
flokka eftir alvarleika þeirra. Bregðast þarf strax
við alvarlegustu veikleikunum. Þar á meðal er
ábending um að sækja þurfi um heimild til stjórn-
ar áður en stofnað er til útgjalda sem ekki eru á
fjárhagsáætlun. Séu fjárhagsskuldbindingar ekki
bornar undir stjórn sé það annars vegar brot á
starfsreglum stjórnar og hins vegar skerði það
möguleika stjórnar til að rækja eftirlitshlutverk
sitt.
Önnur alvarleg ábending er um að Félags-
bústöðum beri að hlíta lögum um opinber innkaup.
Koma verði á innkaupaferli sem tryggi fylgni við
ytra regluverk, jafnræði í innkaupum og gæði og
tímanleika þjónustu. Í því felst m.a. að fram fari
útboð þegar kostnaðaráætlun fer yfir viðmiðunar-
fjárhæðir. Þegar óskað sé eftir verðtilboði sé
nauðsynlegt að óska eftir því frá stórum hópi til að
auka líkur á að fá hagstætt tilboð. Þá verði undir-
ritaðir verksamningar við verktaka að vera fyrir
hendi þar sem komi skýrt fram til hvers kaupandi
ætlist af seljanda vöru eða þjónustu.
Auk þess er m.a. bent á að gera þurfi reglu-
bundna könnun á viðskiptum við tengda aðila, að
nýta ætti aðferðafræði verkefnastjórnunar við
stjórnun stærri framkvæmda og að ástandsskoð-
un eigi að vera forsenda allra framkvæmda. Þá
þurfi að bæta eftirlit með verktökum og hafa eftir-
lit með framkvæmdum á verkstað. Einnig þarf að
innleiða reglubundna skýrslugjöf til stjórnar fé-
lagsins um framgang framkvæmda.
gudni@mbl.is
Vel á annað hundrað manns undir-
rituðu áskorun í gær á heimasíðunni
Ísland.is og kröfðust þess að stjórn
Sjómannafélags Íslands boðaði til
félagsfundar innan sólarhrings, og
er sérstaklega óskað eftir því að
Heiðveig María Einarsdóttir verði
boðuð á fundinn vegna óljóss lög-
mætis brottvikningar hennar úr fé-
laginu. Jónas Garðarsson, formaður
Sjómannafélags Íslands, sagðist í
samtali við 200 mílur á mbl.is í gær
ekki kannast við þá kröfu. Þá blés
hann á gagnrýni formanna VR, Efl-
ingar, Framsýnar og VLFA á brott-
vikningu Heiðveigar. „Við höfum
aldrei skipt okkur af neinu í öðrum
félögum og mér finnst það vera
einkamál hvers félags fyrir sig
hvernig menn hátta sínum málum,“
sagði Jónas í gær.
Krefjast
fundar
Heiðveig María
Einarsdóttir
Jónas
Garðarsson
„Við settum fram afar myndarlegt
tilboð sem var veruleg hækkun frá
því sem við greiðum fyrir enska
boltann í dag. Niðurstaðan var hins
vegar að ofurtilboð barst úr ann-
arri átt sem engin glóra væri í að
jafna,“ segir Björn Víglundsson,
framkvæmdastjóri hjá Sýn.
Fjölmiðlafyrirtækið Sýn hefur
misst sýningarréttinn á ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu frá og
með næsta tímabili.
Magnús Ragnarsson sjónvarps-
stjóri staðfestir að Síminn hafi gert
tilboð í réttinn.
Stöð 2 Sport missir
enska boltann
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra veitti Basalt arki-
tektum Hönnunarverðlaun Íslands 2018 við hátíðlega at-
höfn á Kjarvalsstöðum í gærkvöldi. Hlaut stofan verð-
launin fyrir arkitektúr í baðmenningu á Íslandi, meðal
annars við Bláa lónið og GeoSea-sjóböðin á Húsavík.
Segir meðal annars í rökstuðningi dómnefndar að
Basalt arkitektar hafi „einstakt lag á að tvinna mann-
virki saman við náttúruna“. Þá sé byggingarlistin í
hæsta gæðaflokki þar sem hvert smáatriði sé úthugsað
og rými hönnuð af virðingu og látleysi.
Basalt arkitektar hrepptu hnossið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hönnunarverðlaun Íslands árið 2018 afhent á Kjarvalsstöðum í gær
Framhaldshluthafafundur HB
Granda fór fram í gær en þar
kynntu starfsmenn Kviku banka hf.
samantekt minnisblaðs vegna fyrir-
hugaðra kaupa HB Granda á öllu
hlutafé Ögurvíkur. Á hluthafafundi
16. október var óskað eftir nýju
mati Kviku á kaupunum. Í kjölfarið
var tillaga stjórnar til hluthafa-
fundarins um að staðfesta ákvörð-
un um kaupin tekin fyrir og var til-
lagan samþykkt með 95,8%
atkvæða þeirra hluthafa sem fund-
inn sátu.
Kaupin samþykkt
Rannveig Ernudóttir, varaborgar-
fulltrúi Pírata, gagnrýnir vinnubrögð
samflokksmanna sinna hart á face-
booksíðu sinni í
gær. Segist hún
hafa sent skrif-
stofu borgar-
stjórnar erindi
þar sem hún óski
eftir að fá að vita
hverjar afleið-
ingar þess væru
ef hún sem kjör-
inn fulltrúi segði
sig úr Pírötum,
þar sem hún hafi
mikinn áhuga á að starfa fyrir borg-
ina en ekki sem Pírati.
Rannveig lýsir í facebookfærslunni
óánægju með þá niðurstöðu úr-
skurðarnefndar Pírata að víkja beri
starfsmanni skrifstofu flokksins úr
starfi og segir þann úrskurð ljótan og
illa ígrundaðan.
Þá sé hann hluti af stærri mynd
sem einkennist af „ofbeldi, valdníðslu,
einelti, mikilli vanhæfni og ofmati ein-
eltistudda á eigin ágæti“. Segir hún
það ekki einsdæmi að starfsmenn
flokksins séu hraktir á braut heldur
virðist það fremur vera venjan.
„Hreyfing sem kemur svona fram við
starfsfólkið sitt er ekki fær um að
leiða baráttuna fyrir bættu sam-
félagi,“ segir Rannveig meðal annars.
Kannar
stöðu sína
hjá borginni
Á útleið og gagnrýnir
vinnubrögð Pírata
Rannveig
Ernudóttir