Morgunblaðið - 03.11.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Veður víða um heim 2.11., kl. 18.00
Reykjavík 1 léttskýjað
Akureyri -3 heiðskírt
Nuuk -6 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló 7 skýjað
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Stokkhólmur 9 þoka
Helsinki 9 þoka
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 8 léttskýjað
Dublin 9 skýjað
Glasgow 8 léttskýjað
London 9 léttskýjað
París 9 heiðskírt
Amsterdam 8 skúrir
Hamborg 10 léttskýjað
Berlín 10 léttskýjað
Vín 15 heiðskírt
Moskva 6 heiðskírt
Algarve 21 skýjað
Madríd 16 léttskýjað
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 15 rigning
Róm 17 rigning
Aþena 19 heiðskírt
Winnipeg -1 snjóél
Montreal 3 súld
New York 20 rigning
Chicago 7 skýjað
Orlando 25 heiðskírt
3. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:18 17:06
ÍSAFJÖRÐUR 9:36 16:57
SIGLUFJÖRÐUR 9:20 16:39
DJÚPIVOGUR 8:51 16:32
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á sunnudag Norðlæg átt, 8-13 m/s og él N-til á
landinu en skýjað með köflum og úrkomulítið syðra.
Hiti víða 0 til 5 stig við sjávarsíðuna en vægt frost
inn til landsins.
Dregur úr vindi og úrkomu, N 8-18 og stöku él um kvöldið, hvassast S og V-til, en þurrt að kalla
sunnan heiða. Frost víða 0 til 5 stig til landsins, en kringum frostmark við ströndina.
Fosshótel
verður lokað
yfir veturinn
Fosshótel Austfirðir á Fáskrúðsfirði
verður lokað næstu þrjá mánuðina,
frá síðustu mánaðamótum til 1. febr-
úar, vegna lítillar aðsóknar yfir
vetrarmánuðina. Síðan hótelið var
opnað árið 2014 hefur því aldrei ver-
ið lokað yfir vetrarmánuðina fyrr en
nú.
„Það var ekki grundvöllur fyrir
því að hafa opið á hótelinu á þessum
tíma, en það hefur verið mínus-
rekstur yfir þessa tilteknu vetrar-
mánuði,“ segir Davíð Torfi Ólafsson,
framkvæmdastjóri Íslandshótela.
Fosshótel Austfirðir er starfrækt
í fjórum byggingum við Hafnargöt-
una en byggingarnar hafa verið
endurgerðar í samvinnu við Minja-
vernd og eru þekktar sem frönsku
húsin. Þekktasta húsið er bygging
Franska spítalans sem var reist árið
1903 og var í notkun til ársins 1939.
Á Fosshótel Hellnum er ávallt
lokað á veturna en Fosshótel Vest-
firðir verður lokað í vetur annað árið
í röð. Davíð segir að reksturinn sé
strembnari yfir vetrarmánuðina á
landsbyggðinni. „Nýtingin á þessu
svæði er sú sama og í fyrra yfir
sömu mánuðina. Almennt séð hefur
aðsóknin ekki dregist mikið saman,
okkur hefur tekist að halda sömu
nýtingu milli ára á þessum slóðum,
en á landsbyggðinni, s.s. á Aust-
fjörðum, Vestfjörðum og á Norður-
landi, hefur aðsóknin minnkað á vet-
urna,“ segir Davíð. veronika@mbl.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verði farið að launakröfum verka-
lýðshreyfingarinnar og vinnuvikan
stytt gæti það hækkað byggingar-
kostnað um jafnvel fimmtung.
Þetta segir umsvifamikill verktaki
sem óskaði nafnleyndar.
Máli sínu til stuðnings setti hann
fram rauntölur um kostnað á verk-
efni sem er í gangi í Reykjavík.
Væru laun hækkuð um 42 þúsund á
mánuði eftir áramót og vinnuvikan
óbreytt, eða 40 stundir, muni heildar-
kostnaðurinn aukast um 5%. Með
sömu launahækkun og styttingu
vinnuvikunnar í 35 stundir aukist
heildarkostnaðurinn um 10% og um
15% sé vinnuvikan stytt í 30 stundir.
Hækkar með hærri launum
Tölurnar eru námundaðar. Tekið
er tillit til alls launakostnaðar, þ.m.t.
hjá undirverktökum og birgjum.
Séu launin aftur hækkuð um 42
þúsund í ársbyrjun 2020 og um 41
þúsund í byrjun árs 2021, alls um 125
þúsund, aukist heildarkostnaðurinn
enn meira. Þannig muni 125 þús. kr.
launahækkun og stytting vinnuvik-
unnar í 35 stundir þýða 21% hækkun
heildarkostnaðar og 26% hækkun, sé
vinnuvikan stytt í 30 tíma.
Verktakinn taldi útreikningana
raunhæfa. Meðal annars bendir hann
á að ekki sé einfalt mál að fjölga
starfsfólki til að vega á móti styttri
vinnuviku. Víða sé takmarkað rými á
framkvæmdastað, m.a. þar sem
byggðin er þétt og eins er takmarkað
hvað hægt er að hafa marga starfs-
menn, t.d. undir byggingarkrana. Til
að halda sömu framleiðslu þurfi því
að vinna fleiri næturvinnutíma. Skila-
dagsetningar séu jafnan stífar. Mark-
aðurinn sé ekki reiðubúinn að gefa
eftir tíma, sem kosti enda peninga.
Þá sé ekki tekið tillit til áhrifa breyt-
inga gengis á efniskostnað.
Samtökin Fyrirtæki í hótel- og
gistiþjónustu (FHG) funduðu á
fimmtudag. Þau gæta hagsmuna hót-
ela vítt og breitt um landið.
Mörg hótel rekin með tapi
Kristófer Oliversson, eigandi og
framkvæmdastjóri CenterHotels, er
formaður samtakanna. Hann segir
það hafa komið skýrt fram á fund-
inum að mörg hótel muni ekki bera
stóraukinn launakostnað. Þá ekki síst
hótel úti á landi. Mörg hafi enda verið
rekin með tapi í ár. T.d. hafi athugun
KPMG bent til að EBITDA hótela á
Norðurlandi (hagnaður fyrir fjár-
magnsliði, afskriftir og skatta) hafi
verið neikvæð um 20% í fyrra.
„Staðan úti á landi gengur ekki
upp til lengdar. Tekjurnar hafa dreg-
ist saman með styrkingu krónunnar
og kostnaðurinn aukist með launa-
hækkunum. Það dugir ekki að krón-
an veikist lítillega. Það þarf meira til.
Þessi þróun hefur leitt af sér ósjálf-
bæran rekstur á sumum stöðum og
landsvæðum. Það virðist vera að
Vesturland, Vestfirðir, Norðurland
og Austurland eigi mjög undir högg
að sækja og mikilvægt að við náum
góðu samtali við stjórnvöld um
stöðuna,“ segir Kristófer.
Launahækkanir auka
kostnað við húsbyggingar
Verktaki áætlar hækkunina allt að 26% Hótel úti á landi bera ekki hærri laun
Áhrif launahækkana á byggingarkostnað
Reiknað út frá mismunandi launakröfum verkalýðsfélaga
*Miðað við 42.000 kr. hækkun 1.1.2019 og aftur 1.1.2020 og 41.000 kr. hækkun 1.1.2021
42.000 kr.
hækkun
og óbreytt
vinnuvika
42.000 kr.
hækkun og
35 tíma
vinnuvika
42.000 kr.
hækkun og
30 tíma
vinnuvika
125.000*
kr. hækkun
og 35 tíma
vinnuvika
125.000*
kr. hækkun
og 30 tíma
vinnuvika
105% 110
% 115%
121% 126
%
H
ei
m
ild
: Á
æ
tlu
n
ve
rk
ta
ka
í R
vk
.
1. janúar 2019 1. janúar 2021
Núverandi kostnaður (100%)
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Síðdegis í gær byrjuðu starfsmenn
Mjólkursamsölunnar að dreifa mjólk
í svonefndum fullveldisfernum. Á
fernunum, sem eru með jólasvip, eru
sex útgáfur texta og mynda um
markverða atburði á fullveldisárinu
1918, svo sem Kötlugosið og frosta-
veturinn mikla. „Fróðleiksmolarnir
verða á mjólkurfernunum fram að
áramótum og við vonum að fólk
verði fróðara um þetta merkisár í Ís-
landssögunni,“ sagði Guðný Steins-
dóttir, sölustjóri MS, þegar þau Her-
mann Erlingsson, vöruhússtjóri
fyrirtækisins, og Ragnheiður Jóna
Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri
fullveldisnefndar, sem er lengst til
hægri á myndinni, skoðuðu fyrstu
fernurnar.
„Fernurnar eru skemmtilegur
miðill til að miðla fróðleik,“ sagði
Ragnheiður Jóna, sem minnir á að 1.
desember nái dagskrá fullveldisárs-
ins hámarki. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fullveldis-
fernur í
verslanir
Arion banki hef-
ur hætt við að
fjarlægja hrað-
banka sinn á
Hofsósi en hann
er eini hraðbank-
inn á staðnum.
Var það tilkynnt
þegar byggðaráð
Skagafjarðar og
sveitarstjóri fóru
á fund banka-
stjórans og fleiri yfirmanna. Fyllt
var aftur á hraðbankann í gær.
Íbúar á Hofsósi og nágrenni lýstu
megnri óánægju með ákvörðun
bankans um að loka. „Við hlust-
uðum á þá gagnrýni sem kom
fram,“ segir Haraldur Guðni Eiðs-
son, upplýsingafulltrúi Arion
banka. Hann segir að jafnframt
verði skoðað hvort mögulegt sé að
auka aðgengi að hraðbankanum til
að auka notkun hans og þar með
tekjur af honum.
„Allir eru ánægðir með þetta,“
segir Sigfús Ingi Sigfússon sveitar-
stjóri. helgi@mbl.is
Hættu við að loka
hraðbankanum
Arion Stjórnendur
skiptu um skoðun.