Morgunblaðið - 03.11.2018, Page 10
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilbrigðisþing Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kveðst vera bjartsýn á samstarf við nýjan forstjóra SÍ.
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Endurmeta þarf umhverfi þjónustu
sérgreinalækna og velferðarráðu-
neytið þarf að vera markvissara í
kaupum á heilbrigðisþjónustu.
Þetta er mat Svandísar Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra.
Rammasamningur Sjúkratrygg-
inga Íslands (SÍ) við sérgreina-
lækna rennur út um áramótin og
hefur ráðherra fundað tvívegis með
sérgreinalæknum frá því í sumar
þar sem skerpt hefur verið á grund-
velli sameiginlegs skilnings á því
hvað þurfi að felast í nýjum samn-
ingum.
„Þeir fundir hafa verið verulega
gagnlegir, við erum að mörgu leyti
að koma inn í nýtt umhverfi í ljósi
þess að við erum með skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um kaup á heil-
brigðisþjónustu og McKinsey-
skýrsluna,“ segir Svandís og á þá
við skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins
McKinsey & Company á rekstrar-
hagkvæmni og stöðu Landspítalans
sem gerð var fyrir tveimur árum.
Tíminn of knappur
Svandís segir að við gerð nýja
samningsins skipti máli að einhvers
konar aðgangsstýring eða trygging
verði fyrir því að ráðuneytið verði
meðvitað um hvaða heilbrigðisþjón-
usta verði veitt á grundvelli samn-
inganna.
„Okkur hefur orðið töluvert
ágengt í að stilla saman strengi,“
segir Svandís og er hún bjartsýn á
að samstarf við nýjan forstjóra SÍ,
Maríu Heimisdóttur, sem tók form-
lega við embættinu í fyrradag, muni
ganga vel.
Að öllu óbreyttu verða samningar
hins vegar lausir um áramótin og
Svandís segi að ómögulegt sé að
segja til um hversu lengi sérgreina-
læknar verði án samnings. Hún hef-
ur áður lýst vilja sínum til að fram-
lengja gildandi rammasamning um
eitt ár meðan unnið yrði að breyttu
fyrirkomulagi og segir hún að sér-
greinalæknar hafi sjálfir kallað eftir
því þar sem tíminn til að ganga frá
nýjum samningum er of knappur.
„Ég er sammála því, þetta eru
mismunandi sérgreinar og mismun-
andi umgjörð sem hver grein kem-
ur úr og þarf á að halda. Ég vænti
þess að sérgreinalæknar ígrundi
það vel hvort það geti ekki verið
okkar sameiginlegi skilningur að
við getum haft þetta ráðrúm til að
setja saman nýtt samningsum-
hverfi. En það eru tveir við borðið
og við sjáum bara hvernig þessu
samtali vindur fram. Ég er vongóð.“
Umhverfi sérgreina-
lækna endurmetið
Ráðherra segist vongóð um að nýir samningar takist
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Inga Sif Ólafsdóttir, kennslustjóri
kandídata hjá Landspítalanum og
formaður í nefnd velferðarráðuneyt-
isins sem skipuleggur námsblokkir
læknakandídata í
starfsnámi, segir
Íslendinga sem
útskrifast sem
læknar erlendis
velkomna á
kandídatsár á
spítalanum. Þeir
séu hópur sem
spítalinn vilji
gjarnan fá heim
að loknu námi.
„Ég hef ekki áhyggjur af þeim Ís-
lendingum sem eru að læra læknis-
fræði erlendis. Þeir komast að hjá
okkur svo fremi sem þeir uppfylla
okkar skilyrði og standast okkar
kröfur. Við höfum til fjölda ára ekki
verið að fullmanna kandídatsstöður
á Landspítalanum eða Sjúkrahúsi
Akureyrar. Það er því pláss fyrir
fleiri en hefur verið.
Þarna er á ferð íslenskumælandi
fólk með læknismenntun. Við verð-
um að gera allt sem við getum til að
kynna fyrir þeim íslenskt heilbrigð-
iskerfi og stuðla að því að meiri líkur
séu á að þeir komi til okkar í fram-
tíðinni. Síðustu ár höfum við snúið
vörn í sókn. Það hafa fleiri úr þess-
um árgöngum verið að koma hingað
á kandídatsárið,“ segir Inga.
Skiptist í nokkra hluta
Kandídatsárið er 12 mánuðir.
Þriðjungurinn, eða fjórir mánuðir,
er á heilsugæslunni. Tveir mánuðir
geta verið á heilsugæslu eða spítala.
Svo skiptast sex mánuðir í fjóra
mánuði á lyflækningasviði og svo tvo
mánuði á annaðhvort skurðlækn-
ingasviði eða bráðamóttöku.
Fram kom í Morgunblaðinu sl.
miðvikudag að hundruð Íslendinga
leggja nú stund á læknisfræði í
Evrópu. Þar af eru um 60 í Ung-
verjalandi og um 160 í Slóvakíu, að
sögn ræðismanns Íslands í Slóvakíu.
Þá kom fram að kandídatsárið er
nauðsynlegt við umsókn um almennt
lækningaleyfi. Það gildir líka fyrir
þá sem ljúka læknisfræði frá Há-
skóla Íslands.
Inga Sif segir vert að hafa í huga
að Norðmenn sem ljúka læknisfræði
í Slóvakíu geti ekki gengið að því
sem vísu að komast á kandídatsár í
Noregi. Dæmi séu um að erlendir
læknar sýni kandídatsárinu hér
áhuga.
Ekki víst að allir komi heim
Inga Sif bendir á að ekki sé full-
víst að allir íslensku nemendurnir
útskrifist, eða snúi heim, að loknu
læknanámi ytra. „Sumir eignast
maka úti og er því ekki fullvíst að
allir komi til Íslands að loknu námi.
Fulltrúar úr nefndinni sem skipu-
leggur kandídatablokkirnar hafa
farið í tvígang í ferðir til Debrecen í
Ungverjalandi og einu sinni til Mart-
in í Slóvakíu til að kynna kandídats-
árið á Íslandi. Einnig eru reglulegar
kynningar haldnar á Íslandi þegar
margir erlendir íslenskir læknanem-
ar eru í starfsnámi við LSH. Á
næsta ári erum við að fá töluvert
fleiri umsóknir en við höfum nokk-
urn tímann fengið áður. Þetta eru
alls 95 umsóknir. Það eru ekki að-
eins íslenskumælandi læknar. Þetta
eru líka læknar af erlendu bergi
brotnir sem eru að sækja um. Það
spyrst út að við erum með flott
kandídatsár á Íslandi. Við erum oft-
ast með 60-70 umsóknir. Umsókn-
irnar eru því um 20-30 fleiri en vana-
lega. Stærstur hluti þessara er
íslenskumælandi læknar.“
Inga Sif kveðst aðspurð ekki hafa
sundurgreint þennan hóp erlendra
umsækjenda. Þó sé algengt að þeir
séu makar Íslendinga. Sumir hafi
sest hér að. Gerðar séu mjög miklar
kröfur um íslenskukunnáttu til að
komast inn á kandídatsárið.
Velkomnir á
kandídatsárið
Inga Sif Ólafsdóttir
Landspítalinn segir nóg pláss fyrir þá sem
ljúka læknanáminu frá erlendum háskólum
Opinn kynningarfundur
Uppbygging Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni er í
fullum gangi en markmið garðanna er að efla vísindarannsóknir
og nýsköpun í samstarfi við atvinnulíf.
6. nóvember kl. 16 á Litla torgi, Háskóla Íslands
Dagskrá:
Hvers vegna á Háskólinn Vísindagarða?
Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ
Að efla samfélagið
Hilmar Bragi Janusson, stjórnarformaður VHÍ
Þetta eru Vísindagarðar Háskóla Íslands - stutt erindi:
Hrólfur Jónsson frá Vísindagörðum
Sesselja Ómarsdóttir frá Alvotech
Vera Dögg Antonsdóttir frá Grósku
Kristinn Jón Ólafsson frá Reykjavíkurborg
Allir áhugasamir velkomnir. Léttar veitingar og spjall í lokin.
Vísindagarðar
Háskóla Íslands
Gert er ráð fyrir því að allt að 500
íbúðir sem sérstaklega eru hugs-
aðar fyrir ungt fólk og fyrstu kaup-
endur verði byggðar á sjö mismun-
andi reitum í Reykjavíkurborg á
næstu árum, en borgin mun út-
hluta lóðum til framkvæmdaaðila á
föstu verði, sem er 45.000 krónur á
hvern fermetra ofanjarðar, auk
gatnagerðargjalda, nema annars sé
getið.
Reykjavíkurborg auglýsti fyrr á
þessu ári eftir hugmyndum að sam-
starfsaðilum til að þróa og hanna
hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk.
Reitirnir sem um ræðir eru í
Úlfarsárdal, á Kjalarnesi, í Gufu-
nesi, í Bryggjuhverfinu, við Sjó-
mannaskólann, á Veðurstofureit og
í Skerjafirði, en deiliskipulag þess-
ara svæða er mislangt á veg komið.
500 íbúðir á
sjö reitum
Mynd ranglega merkt
Tölvuteikning á forsíðu Morgun-
blaðsins í gær af fyrirhugaðri
borgarlínustöð var ranglega merkt.
Var hún merkt söluvef ÞG verk en
þaðan var hún sótt, líkt og getið var.
Hið rétta er að arkitektastofan
Arkís er höfundur myndarinnar.
Sýnir hún drög að biðstöð fyrir
borgarlínu á Krossmýrartorgi í
fyrirhugaðri íbúðarbyggð á Ártúns-
höfða í Reykjavík. Beðist er velvirð-
ingar á þessari ónákvæmni.
LEIÐRÉTT