Morgunblaðið - 03.11.2018, Side 11
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
27.980
29.980
25.980
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Borgarráð hefur samþykkt að út-
hluta Íbúðafélaginu Bjargi lóð og
byggingarrétti á reit sem liggur við
Hraunbæ-Bæjarháls. Byggingar-
rétturinn heimilar byggingu fjög-
urra fjölbýlishúsa með samtals 99
íbúðum. Byggingarnar, með bíla-
geymslum, verða alls 11.674 fer-
metrar að flatarmáli.
Á þessum nýja byggingarreit í
Árbæjarhverfi er gert ráð fyrir að
byggt verði rúmlega 28 þúsund fer-
metra húsnæði með um 200 íbúðum
alls. Um að ræða tveggja til fimm
hæða byggingar.
Bjarg greiðir 428 milljónir fyrir
byggingarrétt og gatnagerðargjald.
Greiðsla fyrir byggingarréttinn
gengur til uppgjörs á 12% stofn-
framlagi Reykjavíkurborgar til
byggingar íbúða á grundvelli laga
frá 2016. Bjarg skuldbindur sig til
þess að framselja 20% íbúða auk
sameignar á kostnaðarverði til Fé-
lagsbústaða hf., sem sér um rekst-
ur og umsýslu almennra félags-
legra leiguíbúða Reykjavíkur-
borgar.
Bjarg íbúðafélag er sjálfseignar-
stofnun rekin án hagnaðarmark-
miða. Félaginu er ætlað að tryggja
tekjulágum einstaklingum og fjöl-
skyldum á vinnumarkaði, sem eru
fullgildir félagsmenn aðildarfélaga
ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu
íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.
sisi@mbl.is
Tölvuteikning/A2F arkitektar
Nýtt hverfi Við Hraunbæ-Bæjarháls er áformað að reisa allt að 200 íbúðir.
Bjarg byggir 99
íbúðir við Hraunbæ
Nýr byggingarreitur í Árbænum
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Umhverfisstofnun, ásamt Reykja-
víkurborg, hefur kynnt áform um
friðlýsingu Akureyjar í Kollafirði.
Akurey er lág og vel gróin eyja, um
6,6 hektarar að stærð, norðaustan við
Seltjarnarnes. Í Akurey verpa ýmsir
sjófuglar eins og lundi, sílamáfur,
æðarfugl og teista, og er lundi lang-
algengastur, um 15.000 pör. Akurey
flokkast sem alþjóðlega mikilvæg sjó-
fuglabyggð þar sem viðmiðið er yfir
10.000 pör. Vinsælt er að sigla með
ferðamenn að eyjunni á sumrin til að
kynna þeim lundabyggðina.
Á vef Umhverfisstofnunar kemur
fram að markmiðið með friðlýsingu
Akureyjar sé að vernda þetta al-
þjóðlega mikilvæga fuglasvæði í
Reykjavík og sér í lagi varpstöð lunda
sem er á válista um fugla, skil-
greindur sem tegund í bráðri hættu.
Einnig er markmiðið að vernda lífríki
í fjöru og á grunnsævi.
Áform um friðlýsingu eru kynnt í
samræmi við 2. mgr. 38. gr. nátt-
úruverndarlaga en gert er ráð fyrir
að svæði sem ekki eru á fram-
kvæmdaáætlun náttúruminjaskrár
skuli kynnt sérstaklega. Að kynn-
ingartíma loknum tekur Umhverfis-
stofnun saman umsögn um fram-
komnar athugasemdir við áformin og
skilar til umhverfis- og auðlinda-
ráðherra.
Í auglýsingu um friðlýsingu er
heimilt að kveða á um aðgerðir sem
nauðsynlegar eru til að hlúa að og
mæta þörfum tegunda sem verndin
beinist að eða til að viðhalda búsvæð-
um eða vistgerðum. Takmarka má
umferð um friðlönd á vissum tíma árs
eða á tilteknum stöðum ef það er
nauðsynlegt.
Frestur til að skila athugasemdum
við áformin er til 2. janúar 2019. Þeim
skal skilað til Umhverfisstofnunar.
Mikilvæg
lundabyggð
friðlýst
Akurey er talin
alþjóðlega mikilvæg
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akurey Er í Kollafirði, skammt und-
an Örfirsey. Þar er mikið fuglavarp.
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
GLÆSILEGT
ÚRVAL AF
SAMKVÆMIS
FATNAÐI
Kr. 7.990.-
Str. S-XXL
Litur: svart og vínrautt
Opið í dag frá 11-15
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Síðar peysur