Morgunblaðið - 03.11.2018, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Hlíðasmára · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess
að þau þekkja tal betur en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
19
Jón Eðvald Frið-
riksson, fram-
kvæmdastjóri
sjávarútvegs-
fyrirtækisins
FISK Seafood á
Sauðárkróki, hef-
ur látið af störf-
um, samkvæmt
tilkynningu frá
fyrirtækinu.
Við stöðu fram-
kvæmdastjóra í hans stað tekur Frið-
björn Ásbjörnsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri.
Í tilkynningunni segir að Jón Eð-
vald hafi starfað hjá félaginu í 22 ár,
eða frá 1. ágúst 1996, og stýrt þar
kröftugri uppbyggingu þess og dag-
legum rekstri af mikilli elju, eins og
það er orðað í tilkynningunni.
Fyrrverandi bæjarstjóri
Jón Eðvald, sem er 64 ára gamall,
starfaði áður meðal annars sem
rekstrarstjóri hjá Kaupfélagi Skag-
firðinga en þar áður að eigin atvinnu-
rekstri á Sauðárkróki. Enn fremur
var Jón Eðvald bæjarstjóri á Ólafs-
firði í nokkur ár og einnig sveitar-
stjóri Skútustaðahrepps. tbj@mbl.is
Jón hættur
hjá FISK
Friðbjörn Ásbjörns-
son tekur við starfinu
Jón Eðvald
Friðriksson
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Það er full ástæða fyrir fjárlaga-
nefnd Alþingis að fara yfir þetta mál
og fá allar upplýsingar upp á borðið.
Það þarf að upplýsa með skýrum
hætti á hverju Ís-
landspóstur hefur
verið að tapa og
hverju ekki. Þá
þarf einnig að
upplýsa hvort það
standist skoðun
að ekkert hafi ver-
ið flutt milli einka-
og samkeppnis-
rekstrarins.“
Þetta segir
Ólafur Stephen-
sen, framkvæmdastjóri Félags at-
vinnurekenda, inntur eftir viðbrögð-
um við fréttum Morgunblaðsins af
síversnandi rekstrarhorfum hjá Ís-
landspósti. Í blaðinu í gær sagði Ingi-
mundur Sigurpálsson, forstjóri fyrir-
tækisins, að ef fram héldi sem horfði
myndu stjórnvöld þurfa að veita Ís-
landspósti frekari fyrirgreiðslu, um-
fram það 500 milljóna króna skamm-
tímalán sem fjármála- og efnahags-
ráðherra ákvað að veita fyrirtækinu í
september síðastliðnum. Síðan þá
hefur enn meiri samdráttur orðið í
bréfsendingum innan svokallaðs
einkaréttar, að sögn Ingimundar.
„Við hnjótum um þessar skýringar
Póstsins, þ.e. að fækkun bréfsendinga
innan einkaréttar sé ástæða rekstrar-
stöðu fyrirtækisins. Ástæðan er sú að
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hef-
ur lýst því yfir að þessi hluti rekstrar-
ins skili ásættanlegri rekstrarniður-
stöðu. Stofnunin hefur aðgang að
bókhaldsupplýsingum fyrirtækisins
og er því í góðri stöðu til að meta
þetta,“ segir Ólafur.
Urðu ekki við beiðni
um hækkun
Íslandspóstur hefur fyrr á þessu
ári óskað eftir frekari gjaldskrár-
hækkunum, en þær getur fyrirtækið
ekki ráðist í án atbeina PFS. Stofn-
unin hefur ekki talið ástæðu til að
taka þá beiðni til greina.
„Fyrst sú er reyndin þá er það ann-
aðhvort til marks um að PFS sé
ósammála Íslandspósti um ástæð-
urnar að baki því tapi sem nú hefur
orðið á rekstrinum, eða þá að stofn-
unin er að taka á sig ábyrgðina á þess-
um taprekstri.“
Meðal þess sem Íslandspóstur hef-
ur nefnt sem ástæðu versnandi
rekstrarstöðu innan einkaréttarins er
sú staðreynd að fyrirtækið hefur
þurft að niðurgreiða sívaxandi póst-
sendingar frá Kína. Vegna samnings
innan vébanda Alþjóðapóstssam-
bandsins, sem Ísland er aðili að, ber
íslenskum stjórnvöldum að niður-
greiða póstsendingar sem berast frá
þróunarlöndum. Greint hefur verið
frá því að tap Íslandspósts vegna
þessa nemi um 475 milljónum króna á
ári.
Ekki þörf á gjaldskrárhækkun
Morgunblaðið/Eggert
Íslandspóstur FA vill að farið verði ofan í saumana á rekstrinum.
FA segir ólíklegt að samdráttur í bréfsendingum skýri taprekstur Íslandspósts
Félagið kallar eftir því að Alþingi fari nú ofan í saumana á rekstri fyrirtækisins
Ólafur
Stephensen
Morgun-
blaðið leitaði
upplýsinga
hjá Sigurði
Inga Jó-
hannssyni
um hvort ís-
lenska ríkið
kannaði
möguleika
þess að segja
sig úr Al-
þjóðapóstsambandinu líkt og
Donald Trump, forseti Banda-
ríkjanna hefur sagt bandarísk
stjórnvöld stefna nú að. Sú ráð-
stöfun myndi binda enda á
gríðarlegar niðurgreiðslur við
kostnað póstsendinga frá Kína
hingað til lands og annarra þró-
aðra ríkja en þær hafa stórauk-
ist með aukinni netverslun um
allan heim.
„Við fylgjumst náið með og
vonum að úrsögnin hraði því að
jafnvægi náist varðandi póst-
sendingar frá t.d. Kína. Ég
hyggst taka þetta til umræðu á
vettvangi samstarfsráðherra
Norðurlanda,“ segir Sigurður
Ingi.
Vonast eftir
breytingum
ÚRSÖGN BANDARÍKJANNA
Sigurður Ingi
Jóhannsson