Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018 Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 Mikið úrval af eigin hönnun og framleiðslu Frábær verð Gerið verðsamanburð Takið þátt í leiknum á Facebook Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Kosið verður um þriðjung þingsæta í öldungadeild Bandaríkjaþings á þriðjudaginn og virðast litlar líkur á að Repúblikanaflokkurinn tapi meirihluta í þingdeildinni. Alls eru 100 þingmenn í öldungadeildinni, tveir fyrir hvert ríki Bandaríkjanna, óháð íbúafjölda. Atkvæðafjöldi á bak við við hvern þingmann er því afar ójafn en hugmyndin með þessu kerfi er að tryggja að fámennari ríki hafi rödd í þinginu. Kjörtímabil öldungadeildarþing- manna er sex ár og eru þeir flokkaðir í þrjá hópa (Class 1, 2 og 3) sem kosið er um á tveggja ára fresti. Í hverjum hópi eru 33 til 34 þingmenn en kosið verður um alls 35 þingsæti í ár vegna sérstakra kosningar um auð þing- sæti í Minnesota og Mississippi. Í fyrrnefnda ríkinu mun sérstök kosning eiga sér stað vegna þess að demókratinn Al Franken sagði af sér í desember 2017 í kjölfar ásak- ana um kynferðislega áreitni. Ríkis- stjóri Minnesota tilnefndi þá Tinu Smith í þingsætið. Hún hefur verið þingmaður til bráðabirgða síðan þá en sækist nú eftir kjöri á þriðjudag- inn. Í Mississippi er kosið um þingsæti repúblikanans Thads Cochrans, sem tilkynnti afsögn sína í apríl síðast- liðnum af heilsufarsástæðum. Á þriðjudaginn fer því fram þar svo- kallað frumskógarprófkjör (e. Jungle Primary) þar sem tveir demókratar og tveir repúblikanar eru á kjörseðlinum. Sá þeirra sem fær meirihluta atkvæða mun ljúka kjörtímabili Cochrans sem lýkur ár- ið 2021. Ef enginn hlýtur hreinan meirihluta fer fram önnur kosning 27. nóvember. Verður það að teljast afar líklegt þar sem engin skoðana- könnun hefur sýnt neinn frambjóð- anda með yfir eða um 50% stuðning. Höfuðverkur demókrata Kosningarnar í ár verða erfiðar fyrir Demókrataflokkinn þar sem kosið er um 26 þingsæti sem demó- kratar sitja nú í. Sú tala felur í sér tvo þingmenn utanflokka, sem starfa með demókrötum í þinginu, eins og Bernie Sanders frá Vermont. Þá er einungis kosið um níu þingsæti sem þingmenn repúblikana sitja í. Demókratar þurfa að ná tveimur þingsætum ef flokkurinn ætlar sér að ná meirihluta í öldungadeildinni og telst það heldur ólíklegt. Alls ríkir óvissa um 13 þingsæti og sitja demókratar í níu þeirra. Einu tvö þingsætin af þeim 13, þar sem skoðanakannanir eru demókrötum í vil, eru sæti sem þeir halda nú þegar; Tina Smith í Minnesota og Joe Manchin III í Vestur-Virginíu. Demókrataþingmenn eins og Heidi Heitkamp í Norður-Dakóta, Claire McCaskill í Missouri og Joe Donnelly í Indiana sækjast öll eftir endurkjöri í ríkjum sem Trump vann með tveggja tölustafa mun í forseta- kosningunum 2016. McCaskill í hættu í Missouri Claire McCaskill, öldungadeildar- þingmaður Missouri síðan 2006, á á brattann að sækja gegn Josh Haw- ley, frambjóðanda repúblikana. McCaskill leiddi í skoðanakönnunum framan af en um svipað leyti og öld- ungadeildin kaus um að staðfesta Brett Kavanaugh sem hæstaréttar- dómara fór staðan að breytast. Hafa kjósendur Missouri verið reglulega minntir á andstöðu hennar við Kav- anaugh auk þess sem hún hafi verið fyrsti þingmaðurinn til að styðja Hillary Clinton opinberlega í nei- kvæðum auglýsingum. Þrýstihópur- inn Americans for Prosperity, pólit- ískur armur kaupsýslumannanna Davids og Charles Kochs, hefur einnig framleitt mikið af neikvæðum auglýsingum um McCaskill. Það hef- ur verið sagt ótrúlegt að demókrata hafi tekist að halda þingsæti í Miss- ouri svona lengi en Trump vann ríkið með næstum 20% árið 2016. McCaskill hlaut kjör í stórum kosn- ingasigri demókrata á landsvísu árið 2006. Hún var svo endurkjörin árið 2012 eftir að mótframbjóðandi henn- ar Todd Akin varð afar óvinsæll þeg- ar hann talaði um að líkami kvenna kæmi í veg fyrir þungun þegar um „lögmæta nauðgun“ væri að ræða (e. legitimate rape). Staða McCaskill hefur hins vegar veikst á síðustu mánuðum og ekki hjálpaði til að Trump mætti á kosn- ingaviðburð fyrir Hawley í Missouri á fimmtudaginn. Hefur þetta leitt til þess að hún hefur reynt að færa skoðanir sínar meira til hægri á síð- ustu metrunum til að reyna að ná betur til íhaldssamra kjósenda í Missouri. Hefur hún gagnrýnt vinstrisinnaðri demókrata eins og Elizabeth Warren og einnig Bernie Sanders. Það er með öllu óvíst hvort það muni bera árangur svona seint í kosningaslagnum. Djúpt í hjarta Texas er demókrati með stóra drauma Áhugaverðasta kosningabaráttan í ár er um þingsæti Teds Cruz í Tex- as. Demókratinn Beto O’ Rourke hefur vakið athygli á heimvísu fyrir að vera heillandi og vel máli farinn. Í könnun Emerson-háskólans, sem gerð var 28. til 30. október, er Ted Cruz með 50% fylgi og O’Rourke 47%. Tók skoðakönnunin til líklegra kjósenda en munur milli þeirra tveggja var 5% Cruz í vil í byrjun október. Það myndi teljast þrekvirki ef demókrati næði þingsæti í Texas á þessu ári. Eina ástæðan fyrir því að einhver samkeppni er í ríkinu er að Cruz er frekar óvinsæll meðal repú- blikana. Það þýðir samt ekki að kjós- endur í Texas séu tilbúnir að kjósa demókrata en skoðanakönnun repú- blikanaflokksins sýnir 8% forskot Cruz. O’Rourke hefur reynt að virkja kjósendur af suðuramerískum upp- runa í Texas og forðast eins og heit- an eldinn að nefna Donald Trump í kosningaræðum. Hann tjáði sig þó nýlega um aðgerðir Trumps í landa- mæramálum og kallaði þær hræðsluáróður. Hann gæti því þurft að treysta á að kjósendur af suður- amerískum uppruna skili sér á kjör- stað í meira mæli en áður. Það sem gerist í Vegas Þegar Nevada fékk stöðu ríkis í Bandaríkjunum var þar fátt annað en litlir námubæir hér og hvar. Í dag eru 86% þeirra atkvæða sem greidd eru í ríkinu frá stórborgum eins og Las Vegas og Reno/Sparks. Þar af eru 75% allra úr Clarksýslu, en þar er Las Vegas. Demókrötum hefur gengið vel í Nevada og má segja að ríkið hallist örlítið til vinstri þrátt fyrir að tangarhald flokksins virðist vera að minnka. Harry Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeildinni, var þingmaður Nevada í 30 ár (1987 til 2017). Repúblikaninn Dean Heller leiðir í skoðanakönnunum gegn full- trúadeildarþingmanninum og demó- kratanum Jacky Rosen. Rosen hefur fengið þungavigtarmenn í Demó- krataflokknum eins og Barack Obama, fyrrverandi forseta, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta, til að mæta á kosningaviðburði sína. Þá mætti Bernie Sanders á tvo kosningaviðburði Rosens í von um að brúa bilið. Enn gæti allt gerst í Vegas. Tangarhald á öldungadeildinni  Litlar líkur eru á því að repúblikanar tapi meirihluta í öldungadeildinni  Demókratar í vandræðum í ríkjum sem Trump vann árið 2016  Líklegra að demókratar tapi þingsætum en að þeir nái meirihluta Öruggur sigur demókrata Líkur á sigri / Jafnar líkur / Öruggur sigur repúblikana Líkur á sigri / Ekki kosið nú Washington Montana Nevada Kalifornía Nýja-Mexíkó Texas Arisóna Flórída Maryland Hawaii Missisippi Missouri Norður-Dakóta Delaware Indíana Tennessee Nebraska Ohio Minnesota Wisconsin Wyoming Michigan Maine New Jersey New York Pennsylvanía Virginía V-Virginía Heimild: The Cook Political Report og The New York Times Spá um úrslit í kosningum um sæti í öldungadeildinni Skipting sæta í öldungadeildinni Demókratar þurfa yfir 50 sæti til að ná meirihluta Demókratar eru nú með 49 sæti í öldungadeildinni Þar af er ekki kosið um 23 sæti nú Repúblikanar eru nú með 51 sæti í öldungadeildinni Þar af er ekki kosið um 42 sæti nú Öruggt sæti demókrata Líkur á sigri Öruggt sæti repúblikana Líkur á sigri Jafnar líkur Ekki kosið um sæti nú AFP Missouri Demókratinn Claire McCaskill ræðir við fjölmiðla í Missouri. Hún er í harðri kosningabaráttu um að halda sæti sínu í öldungadeildinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.