Morgunblaðið - 03.11.2018, Side 27

Morgunblaðið - 03.11.2018, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018 Föl í Flóa Þessar vinalegu og vel merktu kýr heilsuðu forvitnar upp á ljósmyndara Morgunblaðsins við Gaulverjabæjarveg í Flóahreppi. Snjóföl var á jörð sunnanlands í nóvemberbyrjun. Eggert Alveg er það nú makalaust hvað við sem þjóð eigum að- gang að síauknum lífsgæðum til að efla og bæta hvern einasta dag. Lengi vel voru það sundlaugarnar og íþróttahúsin sem veittu okkur sérstöðu. Hins vegar hefur orð- ið bylting með til- komu líkams- og heilsuræktar- stöðvanna sem svo eru nefndar með tækjum og tólum, brettum og íþróttakennurum sem þjálfa og kenna fólki að halda utan um sinn skrokk og sína sál og mataræði, gerist þess þörf. Ég fullyrði að í þessum stöðvum eru ungir og miðaldra að efla sitt vinnuþrek og lífsgæði. Hinir sem eldri eru vinna gegn hrörnun og ellinni, ungir eflast, eldri yngjast upp. Þessar stöðvar eru jafn mikilvægar og heilbrigðiskerfið, stór- spara ríkinu fé, forða fólki frá sjúkdómum og hrörnun og það væri hægt að spara enn meiri peninga með því að vísa stórum hópum sjúkra inn á þessar stöðvar í hendur fagfólks sem kann til verka í stað þess að segja sjúklingunum að sitja heima og bryðja töflur. Þessar stöðvar vinna að endurhæfingu og hafa bjargað mörgum frá einum erfiðasta sjúk- dómi samtímans, offitunni. Það væri verðugt verkefni ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs að ná saman um virka lýðheilsustefnu sem væri byggð á almennri iðkun líkamsræktar. Í líkamsræktar- stöðvunum eru allar kynslóðir, þar er gleði í fyrirrúmi, þar finna allir eitthvað við sitt hæfi. Þar kemur fagfólk við sögu og fetar fyrstu sporin með einstaklingum og hópum. Og mér er sagt að það sé aldrei of seint að byrja og það sést best á háöldruðu fólki, þar eru áttræðir og níræðir sem mæta reglulega, fólk í góðu formi og beint í baki. Eftir sextugt rýrna vöðvarnir nema unnið sé gegn hrörnuninni með svita og „lóðum“ og teygj- urnar vinna gegn þeirri bónda- beygju sem maður sá aldraða í forðum daga. Hér á hið fornkveðna við sem Gunnlaugur ormstunga mælti við Eirík jarl. „Eigi skal haltur ganga meðan báðir fætur eru jafnlangir.“ Líkamsræktarstöðvarnar og íþróttakennararnir og fagfólk sem er til þjónustu reiðubúið vinnur kraftaverk með öllum kynslóðum, en mest er ánægjan hjá þeim eldri sem bæta lífi við árin og árum við lífið. Lífið er nefnilega dauðans al- vara og það er skylda okkar allra að rækta sál og líkama jafnvel enn frekar þegar árin færast yfir. Allir vilja eldast en enginn vill verða gamall og við því eru mörg ráð í dag. Besta ráðið er að skora sjálf- an sig á hólm og byrja í líkams- rækt strax. Eftir Guðna Ágústsson »Hér á hið fornkveðna við sem Gunnlaugur ormstunga mælti við Ei- rík jarl. „Eigi skal halt- ur ganga meðan báðir fætur eru jafnlangir.“ Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Líkamsræktarstöðvarnar – lífsorku- og yngingarstöðvar Ég hef verið Reyk- víkingur í hartnær 70 ár. Leið mín í skóla lá að jafnaði meðfram kirkjugarðinum forna við Aðalstræti. Hann var þá fallegur reitur, nokkur gömul tré uxu í vel hirtum blómabeð- um sem hraunsteinum var raðað umhverfis og gangstígar á milli. Menn lögðu samt ekki leið sína þar yfir kirkjugarðinn sem þá var oftast kallaður Bæjarfógetagarður, heldur um gangstéttirnar. Garðurinn var nokkurt augnayndi, þá var mið- borgin víða illa útlits og niðurnídd á pörtum. Svo kom skipulagið 1963, víst samið af dönskum manni sem hafði ekki sögulegar tilfinningar til Reykjavíkur. Þá átti að leggja um- ferðaræð niður Túngötu og með- fram kirkjugarðinum og Alþingishúsinu, yfir Lækjargötu og síðan upp Amtmannsstíg og inn Grettisgötu. Einn- ig skyldi framlengja Suðurgötu um Grjóta- þorpið þvert. Í kjölfar- ið hófst niðurrif húsa svo að breikka mætti götur. Húsið Uppsalir, á horni Aðalstrætis og Túngötu, var rifið og einnig næsta hús, Tún- gata 2, einhver myndarlegustu timburhús miðbæjarins en niður- nídd. Gamla Apótekið á horni Kirkjustrætis og Thorvaldsens- strætis var brotið niður, lítið hús nærri Hótel Borg var flutt í Árbæjarsafn og Amtmannshúsið við Ingólfsstræti brotið niður. Fleiri áttu að víkja, svo sem stóra húsið Lækjargata 6. Heyrt hef ég að þá hafi Alþingi stöðvað þessa þróun, mönnum þar hafi ekki litizt á að fá umferðaræð meðfram þinghúsinu og verið hætt við hugmyndina. – Hvernig skyldi þingið bregðast við ef ferðamanna- rútur taka að steypa úr sér hópum fólks að nýja hótelinu rétt við dyr þess, ýmist um kirkjugarðinn sjálf- an eða af Austurvelli? Lengi fyrirlitu margir gömlu byggðina, má minna á „dönsku fúa- spýturnar“ ofan við Lækjargötu. Þakka má fyrir að ekki varð af niðurrifi húsanna við Tjarnargötu. Í eina tíð var búið að teikna samfellda blokkhúsabyggð meðfram allri göt- unni. Það er í rauninni hrikalegt að vita hvernig hverju stórhýsinu á fætur öðru, og engu þeirra fögru, skal troðið niður í miðbæ Reykjavíkur. Það er rétt eins og flestir Reykvík- ingar séu óvitandi um þær tröll- auknu stórbyggingar sem rísa eða rísa eiga í miðbænum, því að fáir leggja leið sína í miðbæinn lengur. Hann er orðinn nánast fyrir útlend- inga eina. Íslendingar eiga þangað fæstir erindi enda búið að stjaka velflestum þjónustustofnunum þaðan. Og enn er sótt að gamla kirkju- garðinum. Grafnar eru upp jarð- neskar leifar fólks vegna hótelbygg- ingar. Kirkjugarðurinn hefur um árabil verið steinlögð stétt, þar trampa hundruð manna eða þús- undir daglega. Nú hefur verið stafl- að upp vinnugámum í miðjum kirkjugarðinum og þar voru pylsu- skúrar í fyrrasumar. Líklegast munu aðfarir sem þessar óvíða ger- ast meðal siðaðra menningarþjóða. Aðgangur að nýja hótelinu stóra (fróðlegt verður að heyra hvaða út- lendu nafni það mun heita) á að vera um kirkjugarðinn, og annar inngangur frá Austurvelli. Vallar- stræti var nýlega breikkað og mal- bikað inn á Austurvöll. – Eru þess- ar aðfarir heiðursgjöf borgarinnar til þjóðarinnar á 100 ára fullveldis- afmælinu? Er von að mönnum gremjist hið mikla skeytingarleysi borgaryfir- valda um sögulegar minjar og ásýnd borgarinnar. Við sem ömlum gegn ofurgræðgi stórgróðahyggjunnar höfum fengið þakkir margra fyrir andóf okkar, en fáir mæla yfirganginum bót. Svo er komið að við búum ekki lengur í þessu landi fyrir okkur sjálf, heldur fyrir útlendinga. Það er okkur samt ofviða. Mannafli okk- ar sjálfra nægir hvergi og verðum því að flytja inn útlendinga til að þjóna útlendingum. Margt af þjón- ustuliðinu kann ekki íslenzkt mál. Bjarni frá Vogi sendi skeyti frá Danmörku er illa horfði í málunum við Dani: „Upp með fánann! Ótíðindi!“ Eftir Þór Magnússon » Og enn er sótt að gamla kirkjugarð- inum. Grafnar eru upp jarðneskar leifar fólks vegna hótelbyggingar. Þór Magnússon Höfundur er fyrrverandi þjóðminjavörður. thor@thjodminjasafn.is Enn um gamla kirkjugarðinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.