Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018 Fallegt 360 fm. einbýlishús með mikilli lofthæð við Hnoðravelli í Hafnarfirði. Fjögur svefnherbergi og auðvelt að bæta við því fimmta sem yrði rúmgott og bjart. MÖGULEIKI Á AUKAÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANGI Í KJALLARA. Verð mkr. 98,7. OPIÐ HÚS mánudaginn 5. nóvember milli kl. 17:15 og 18:00. Glæsilegt 312 fm. einbýlishús á þremur pöllum við Dalprýði í Garðabæ. Fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi. Húsið er heilklætt með læstri Zink klæðningu frá Blikksmiðjunni Vík. Vandaðar hurðir og Rayners álgluggar með solstop speglagleri. Arkitekt hússins er Pálmar Kristmundsson sem hannaði það með tilliti til náttúru og umhverfis. Verð mkr. 167. Sími 566 0000 • www.helgafellfasteignasala.is Gunnar Sv. Friðriksson Lögmaður / Löggiltur fasteignasali S: 566 0000 / 842 2217 HNOÐRAVELLIR 42, 221 HAFNARFJÖRÐUR DALPRÝÐI 13, 210 GARÐABÆR Hilmir Freyr Heimissonvarð einn efstur á al-þjóðlegu ungmennamótií Svíþjóð, „Uppsala young champions“ sem lauk á mið- vikudaginn. Hilmir tók strax forystu í mótinu og lét hana aldrei af hendi, hlaut 6½ vinning af níu mögulegum. Í 2. sæti varð Finninn Jare Lind- holm sem fékk sex vinninga og síðan komu fjórir skákmenn með 5½ vinn- ing. Símon Þórhallsson hlaut 5 vinn- inga og varð í 8.-11. sæti af 18 þátt- takendum. Hilmir Freyr hefur verið á mikilli siglingu og er nú stigahæstur ungra íslenskra skákmanna en hann varð 17 ára gamall í ágúst. Þetta er fjórða mótið sem hann vinnur á þessu ári, hann varð efstur á NM ungmenna í Finnlandi, sigraði á Meistaramóti Skákskóla Íslands í vor, vann danska unglingameistaramótið í september og síðan þetta mót. Í millitíðinni náði hann áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli á skákmóti í Esbjerg í Danmörku. Mótið í Uppsölum kemur ekki til útreikninga fyrr en á desember- listanum og á hann þ.a.l. inni mikla hækkun ofan á það sem birtist í nóvemberlista FIDE en þar er hann með 2.364 Elo-stig og hækkaði um tæplega 100 Elo-stig. Hilmir Freyr er hugmyndaríkur skákmaður og lít- ið um dauf augnablik í skákum hans, hann er og mikill keppnismaður. Í Uppsölum minntu tilþrifin í eftirfar- andi viðureign á skákir 19. aldar meistaranna: Uppsalir 2018; 3. umferð: Hilmir Freyr Heimisson – Em- anuel Sundin (Svíþjóð) Hollensk vörn 1. Rf3 f5 2. d3 Rf6 3. e4!? Peðsfórnin opnar línur og ekki er víst að best sé að taka henni. 3. … fxe4 4. dxe4 Rxe4 5. Bd3 Rf6 6. Rg5 d5 6. … g6 má t.d. svara með 7. h4 o.s.frv. 7. Rxh7! 7. … Dd6 Glapræði væri 7. … Rxh7?? vegna 8. Dh5+ Kd7 9. Dxd5+ Ke8 10. Bg6 mát! 8. Bg6+ Kd8 9. Rg5 Be6 10. Bf4 Db6 11. 0-0 Rbd7 12. Rd2 Bg8 13. Rdf3 e6 14. He1 Bc5 15. Dd2 Skipar liði sínu fram á sem hag- kvæmastan hátt og eykur þannig þrýstinginn á stöðu svarts. 15. … Kc8 16. c3 Rg4 17. Bg3 Hh6 18. Bd3 Bd6 19. Bf5! Bxg3 20. Bxg4! En ekki 20. hxg3 Rxf2 með hug- myndinni 21. Dxf2 Hh1+ o.s.frv. 20. … Bd6 21. Dxd5! Með hugmyndinni 21. … exd5 22. He8 mát. 21. … Bc5 22. Had1 Bxf2+ 23. Kf1 – og svartur gafst upp. Wojtaszek og Naiditsch efstir á Mön Pólverjinn Radoslaw Wojtaszek og Aserinn Arkadij Naiditsch urðu nokkuð óvænt efstir á opna mótinu sem lauk á Mön sl. sunnudag. Þetta var án efa sterkasta opna mót ársins og í því tóku þátt níu Íslendingar í tveim flokkum. Á lokasprettinum unnu efstu menn lykilskákir og gerðu síðan jafntefli innbyrðis í lokaumferðinni. Lokastaðan varð þessi: 1.-2. Wojtaszek og Naiditsch 7 v. (af 9) 3.-7. Kramnik, Grischuk, Nakamura, Wang Hao, Gawain Jones, Adhiban og Xiong 6½ v. Dagur Ragnarsson fékk 4 vinn- inga af níu og hækkaði um 14 Elo- stig, en Vignir Vatnar Stefánsson náði sér vel á strik eftir slæma byrjun. Greinarhöfundur, sem var jafnframt fararstjóri, fékk flesta vinninga íslensku keppendanna. Aðrir þátttakendur í efsta flokki voru Gauti Páll Jónsson og Aron Thor Mai. Í Major-flokknum var hinn ungi Stephan Briem einn efstur fyrir lokaumferðina en tapaði síðustu skákinni og lenti í 4. sæti. Í þessum flokki tefldu einnig Alexander Oliver Mai og Arnar Milutin, sem hækkaði mest allra á stigum í ferðinni, eða um 68 Elo-stig. Hilmir Freyr sigraði í Uppsölum og rýkur upp Elo-listann Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Hilmir Freyr að tafli á síðasta Reykjavíkurskákmóti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.