Morgunblaðið - 03.11.2018, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
reyna að hjálpa til. Þau eru ófá
samtölin sem við vorum búnir að
ræða saman sveitamálin og áhugi
þinn jókst bara með aldrinum og
það var alltaf beðið með mikilli
eftirvæntingu eftir næsta verkefni
og því að fá upplýsingar um hver
útkoman væri en Það var þetta já-
kvæða hugafar og hamingja sem
fylgdi þessum samtölum okkar
sem gerði þau enn þá skemmti-
legri og eftirminnilegri.
Sagan með skyrið og sykurinn
er eitthvað sem fékk þig og ömmu
alltaf til að hlæja. Þú laumaðist til
að setja sykurinn undir skyrið á
meðan amma sá ekki til og það var
alveg sama hversu oft við sögðum
hana, alltaf mátti sjá bros. Gleði og
gaman var eitthvað sem við reynd-
um alltaf að hafa að leiðarljósi þeg-
ar við sátum og spjölluðum við
ykkur ömmu og munu hlátur-
sköstin okkar saman lifa lengi með
okkur. Þú munt alltaf vera fyrir-
mynd í okkar lífi og öll ævintýrin
og allar stundirnar sem við áttum
saman munu lifa um ókomna tíð.
Takk fyrir allt, elsku Óli afi
okkar.
Þín
Elvar Örn, Elín Petra,
Birgitta Katrín og
Þorvaldur Heiðar.
Elsku afi minn.
Nú sit ég hér og skrifa um þig
og rifja upp allar þær góðu stundir
sem við áttum saman. Þú varst
kletturinn minn og verður það allt-
af. Ég gat alltaf leitað til þín og
rætt við þig um hvað sem er. Ég
mun aldrei gleyma þeim stundum
þegar við vorum saman. Mikið of-
boðslega fannst mér alltaf gott að
kúra hjá þér og ömmu og njóta
nærveru ykkar. Margar minning-
ar streyma um hug minn núna um
þessar góðu stundir með þér og
ömmu.
Alltaf var jafn gaman að fá að
vera hjá þér og sjá hvað þú hafðir
gaman af því að koma til okkar í
sveitinni og vera með okkur. Mikið
ofboðslega sem ég á eftir að sakna
þín og þeirra stundum. Takk fyrir
allt sem þú gerðir fyrir mig, ég veit
að þú verður alltaf með mér og
passar upp á mig eins og þú gerðir
alltaf. Ég skal lofa að passa vel upp
á ömmu fyrir þig.
Nú farinn ertu mér frá,
hvað geri ég þá ?
Þig hafa ég vil
og segja mér til.
Nú verð ég að kveðja,
fæ ekkert um það að velja.
Þú kvaddir með hlátri,
það er ekki skrítið að ég gráti.
Í hjarta mér þú verður,
þaðan aldrei hverfur
Ég minningu þína geymi,
en aldrei gleymi.
Elsku hjartans afi minn,
nú friðinn ég finn.
Þá kveð ég þig um sinn,
og kyssi þína kinn.
Hvíl í friði, elsku afi.
Þín
Ólöf Bára.
Elsku afi og langafi.
Nú hugsar maður til þeirra
góðu stunda sem við áttum saman
og erfitt er að hugsa til þess að þú
munir ekki koma reglulega yfir í
sveit og fylgjast með því sem um
er að vera eða heyra rödd þína sem
bauð mann alltaf hjartanlega vel-
komin á Fornós. Frá því að ég var
lítill polli tókstu alltaf vel á móti
manni og stutt var í grín og glens
nálægt þér. Þú varst mér mikil
fyrirmynd og hafðir mikil áhrif á
líf mitt og munt gera það áfram
um ókomna tíð. Það var alltaf jafn
gaman að koma við hjá ykkur
ömmu og spjalla um lífið og til-
veruna, sitja við eldhúsborðið og
horfa út á sjóinn þar sem þinn
áhugi var mikill. Alltaf hafðir þú
jafn mikinn áhuga á því sem mað-
ur var að takast á við og vildir að
manni tækist vel til í öllu því sem
maður tók sér fyrir hendur. Eftir
að Lína og krakkarnir komu í líf
okkar var alltaf gaman að koma í
ömmu og afa hús og beðið með eft-
irvæntingu að komast til ömmu
Báru og Óla afa. Börnin litu mikið
upp til afa sem alltaf var reiðu-
búinn að spjalla og leika með í
dótinu og eyða tíma með þeim
hvernig sem heilsan var.
Annan eins ljúfling og glað-
lyndis mann er erfitt að finna, já-
kvæðnin og góðmennskan ávallt í
fyrirrúmi. Eigum við endalaust af
dýrmætum gæðastundum sem við
áttum öll saman og öll sú um-
hyggja og ást sem þú hefur gefið
okkur er ómetanleg.
Takk afi, fyrir þann tíma sem
þú gafst okkur.
Í bænum okkar, besti afi
biðjum fyrir þér
að Guð sem yfir öllu ræður,
allt sem veit og sér,
leiði þig að ljóssins vegi
lát’ þig finna að,
engin sorg og enginn kvilli
á þar samastað.
Við biðjum þess í bænum okkar
bakvið lítil tár,
að Guð sem lífið gaf og slökkti
græði sorgarsár.
Við þökkum Guði gjafir allar
gleði og vinarfund
og hve mörg var ávallt með þér
ánægjunnar stund.
(Sigurður Hansen)
Hvíl í friði, elsku afi, við vitum
að þú munt ávallt fylgja okkur.
Sigurður Heiðar,
Sigurlína Erla, Þórður Bragi
og Fanndís Vala.
Elsku yndislegi Óli afi minn.
Mér finnst svo erfitt að hugsa
til þess að ég eigi aldrei eftir að
upplifa þitt hlýja faðmlag aftur,
sjá hversu glaður þú varðst þegar
að þú sást mann í hurðargættinni
eða finna þig lesandi í sófanum inn
í herbergi og stela einu knúsi frá
þér. Það var líka alltaf svo dásam-
legt að fylgjast með þér og ömmu.
Sjá og finna hversu ánægð þið
voruð hvort með annað eftir öll
þessi ár.
Þú varst ótrúlegur maður og ég
veit ekki hvort þú vissir það en þú
varst og ert enn þá ein af mínum
helstu fyrirmyndum. Hvernig þú
tókst á við lífið af jákvæðni, æðru-
leysi og óbilandi kjarki. Þú efaðist
aldrei þótt að áföllin dyndu á.
Aldrei fann maður fyrir því að þú
værir eitthvað heilsuveill. Þú fórst
áfram á bjartsýninni og viljanum
og alltaf komstu út sem sigurveg-
ari.
Þú skilur eftir þig svo stórt
skarð í hjarta mínu sem er samt
fullt af fallegum minningum um
hversu frábær þú varst. Hjarta-
hlýr, innilegur og dásamlegur afi
sem var alltaf tilbúinn að leyfa
manni að hvíla höfuðið á bumb-
unni sinni. Orð fá ekki lýst hversu
mikið ég á eftir að sakna þín. Þú
varst einstakur. Ég reyni að finna
huggun í því að nú eigi ég einn
verndarengil í viðbót til að passa
upp á mig og mína. Ég er svo glöð
að þú og Arney hafi fengið að
kynnast og náð svona vel saman.
Hún var svo hrifin af Óla afa sín-
um, enda varla annað hægt.
Takk fyrir allt, elsku besti afi
minn. Ég er svo innilega þakklát
fyrir hvað við fengum að hafa þig
lengi hjá okkur og að mín síðustu
orð til þín voru hversu vænt mér
þætti um þig. Ég mun geyma þig
og varðveita í hjarta mínu að ei-
lífu.
Þín,
Arnrún Bára.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Davíð
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
útfararstjóri
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
ÁSA MALMQUIST STIGAARD,
Atlanta,
Bandaríkjunum,
fædd á Akureyri 14. febrúar 1934, lést á
heimili sínu í Bandaríkjunum mánudaginn 22. október.
Einar Gunnarsson
Gunnar Malmquist Gunnarsson
Margaret Stigaard Mckenzie
John Stigaard
Maya Stigaard Woodall
tengdabörn, ömmubörn, langömmubörn
og systkini
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BIRNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir, Hlíðarhúsum,
föstudaginn 26. október.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 8. nóvember klukkan 13.
Elsa Lára Blöndal
Kristján Jón Sveinbjörnsson
Númi Orri Blöndal Arnbjörg Högnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma
og langamma,
GUÐRÚN JENSDÓTTIR
frá Ísafirði,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu, Hafnarfirði,
miðvikudaginn 3. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hermann D. Stefánsson
Arndís Bernharðsdóttir
Jens Karl Bernharðsson Svanhildur Jensdóttir
Sturlaugur Bernharðsson Anita Dalset Bernhardsson
Guðrún Brynja Bernharðsd.
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku fallegi drengurinn okkar, bróðir, vinur,
afa- og ömmustrákur,
EGILL DAÐI ÓLAFSSON,
lést á heimili sínu í Brussel föstudaginn
26. október.
Útför Egils verður auglýst síðar.
Ólafur Vigfússon María Anna Clausen
Andri Ólafsson Sigurlaug Jónsdóttir
Vigfús Ólafsson
Sif Sigþórsdóttir
Marsibil Tómasdóttir
Vigfús Ólafsson
Ástkær
BERGÞÓRA HARPA
ÞÓRARINSDÓTTIR,
Bessý,
Lindartúni 23, Garði,
lést 26. október á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Útför fer fram frá Útskálakirkju í Garðinum
fimmtudaginn 8. nóvember klukkan 14.
Viktor Agnar Falk Guðmundsson og börn
Höskuldur Einarsson og fjölskylda
Jónborg Júlíana Ragnarsdóttir
Þórarinn Sveinn Guðbergsson og Ingunn Pálsdóttir
Ída, Kristján og synir
Sveinn Ingi, Dórý og börn
Einar Már, Elín og börn
Steinunn, Alli og börn
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
TRAUSTI RUNÓLFSSON
frá Berustöðum,
Borgarsandi 3, Hellu,
lést miðvikudaginn 31. október.
Útför fer fram frá Kálfholtskirkju föstudaginn 9. nóvember
klukkan 14.
Dýrfinna Guðmundsdóttir
Anna Rósa Traustadóttir Gylfi Sigurðssson
Erla Traustadóttir Egill Sigurðsson
Hjálmar Kristjánsson Eygló Huld Jóhannesdóttir
og fjölskyldur
Eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
HULDA PÁLMADÓTTIR,
fyrrverandi læknaritari,
Engjavegi 14, Ísafirði,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eyri
þriðjudaginn 30. október.
Útför hennar verður frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 17. nóvember klukkan 14.
Jón Páll Halldórsson
Halldór Jónsson jr. María Guðnadóttir
Guðfinna Jónsdóttir Halldór Jakob Árnason
Pálmi Kristinn Jónsson Jóhanna Jóhannesdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA S. SVEINSDÓTTIR,
lést mánudaginn 29. október á Hrafnistu,
Reykjavík, (Mánateigi). Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 9. nóvember
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast
bent á Alzheimersamtökin.
Sveinn Heiðar Gunnarsson Sigríður Jakobsdóttir
Pálmar Smári Gunnarsson Norisa Suana Gunnarsson
Kristján Ragnar Gunnarsson Gréta Ebba Bjargmundsdóttir
Heimir Örn Gunnarsson Helena Vignisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Systir mín,
SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
fyrrv. stjórnarráðsfulltrúi,
fædd 1927,
lést 12. október 2018.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Tómas Kristjánsson