Morgunblaðið - 03.11.2018, Qupperneq 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Eftir að hafa verið rúm fjögur ár í Nuuk á Grænlandi eru tölu-verð viðbrigði að koma til Ottawa, þar sem býr ein milljónmanna. Kanada er áhugavert land og viðfangsefnin í starfinu
sömuleiðis,“ segir Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Kanada, en
hann er 56 ára í dag. Pétur er Borgnesingur, sonur Ásgeirs Péturs-
sonar sýslumanns og Sigrúnar Hannesdóttur konu hans. Á unglings-
árum flutti Pétur suður með fjölskyldu sinni og fór seinna til hag-
fræðináms í Skotlandi. Á þrítugsaldri hóf hann störf í menntamála-
ráðuneytinu og seinna í utanríkisþjónustunni, þar sem hann hefur
starfað í nítján ár.
„Í Kanada þekkja allir Ísland; flestir sem ég hitti hafa annaðhvort
komið þangað eða eiga ættingja og vini sem verið hafa þar og fundist
landið afar áhugavert. Að koma til Manitoba og kynnast mannlífi
Vestur-Íslendinganna er merkilegt, en talið er að um 200 þúsund
manns þar um slóðir séu afkomendur vesturfaranna. Verkefnum
sendiráðsins má skipta í þrjá meginþætti. Í fyrsta lagi að annast
tengsl við kanadísk stjórnvöld, í öðru lagi að efla viðskipti á milli land-
anna og í þriðja lagi að efla samskipti milli Kanada og Íslands. Við
þetta bætist svo þjónusta sendiráðsins við íslenska ríkisborgara í Kan-
ada. Varðandi viðskiptin leggjum við áherslu á viðskipti á sviði
sjávarútvegs. Þar horfum við meðal annars til þess að sjávarútvegur á
Atlantshafsströnd Kanada er í sókn og í því geta falist tækifæri fyrir
íslenska aðila,“ segir Pétur sem er kvæntur Jóhönnu Gunnarsdóttur
og eiga þau tvo syni, Ásgeir og Magnús.
„Síðustu árin hafa siglingar verið helsta áhugamálið. Við áttum bát
á Grænlandi og þar sigldum við Ásgeir sonur minn víða við austur-
ströndina og gerðum um það bók, sem við kölluðum Á norðurslóð,
ferðasaga frá Grænlandi sem kom út í fyrra. Hér í Kanada höfum við
hins vegar mikið siglt á Rideau Canal; skipaskurðinum fræga sem er
frá 19. öldinni og er á heimsminjaskrá UNESCO.“ sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kanada Viðbrigði að koma til Ottawa, segir Pétur Ásgeirsson.
Allir þekkja Ísland
Pétur Ásgeirsson sendiherra er 56 ára í dag
R
agnheiður Tryggva-
dóttir fæddist í
Reykjavík 3.11. 1958
og ólst upp í Skraut-
hólum á Kjalarnesi.
Hún gekk í barnaskólann á Klébergi
og lauk síðan landsprófi frá Gagn-
fræðaskólanum í Mosfellssveit, stúd-
entspróf tók hún frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og
útskrifaðist sem leikari frá Leik-
listarskóla Íslands 1982. Auk þess
stundaði hún nám í almennri bók-
menntafræði og lögfræði við HÍ.
Ragnheiður var fastráðinn leikari
hjá Leikfélagi Akureyrar veturinn
1982-83 og starfaði þar einnig vet-
urna ’83-’84 og ’88-’89. Hún lék síðan
hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Alþýðu-
leikhúsinu og ýmsum frjálsum leik-
hópum auk leiks í útvarpi og sjón-
varpi til ársins 1996. Meðfram
leikarastarfinu kenndi Ragnheiður
leiklist í grunn- og framhaldsskólum
og leikstýrði sýningum hjá áhuga-
mannaleikfélögum og í framhalds-
skólum. Hún starfaði einnig á skrif-
stofu Félags íslenskra leikara og hjá
Bandalagi íslenskra leikfélaga. Árin
1992-1994 gegndi Ragnheiður hluta-
starfi sem sérfræðingur í Lista- og
safnadeild menntamála-ráðuneyt-
isins. 1994-1996 vann hún með
Gunnari Steini Pálssyni við
almannatengsl hjá GSP-almanna-
tengslum. Ragnheiður tók við fram-
kvæmdastjórn Rithöfundasambands
Íslands í ársbyrjun 1996.
Ragnheiður sat þrjú tímabil í
Leiklistarráði og í fimm ár var hún í
sérfræðinganefnd á vegum Nor-
rænu menningargáttarinnar. Hún
sat í valnefnd Evrópska rithöf-
undaráðsins í 12 ár þar af formaður í
6 ár. Auk þessa hefur Ragnheiður
setið í ýmsum starfshópum og ráð-
um innan lands sem utan á vegum
Rithöfundasambandsins.
„Ég er mikill lestrarhestur, var
orðin fluglæs fyrir fjögurra ára af-
mælið og er eiginlega alæta á lesefni.
Ég get t.d. nánast fullyrt að ég hafi
lesið eitthvað eftir alla félagsmenn
Rithöfundasambandsins en þeir eru
nú tæplega 550. Og nú er ég í les-
hring með frábærum og litríkum
hópi kvenna og þar detta stundum
inn bækur sem ekki hafa áður orðið
á vegi mínum en opna nýja og
óvænta sýn.
Leiklistin skipar auðvitað stóran
sess í lífi mínu þó að ég hafi lagt
hana á hilluna sem starfsvettvang
fyrir rúmum tuttugu árum. Við
Ragnheiður Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri RSÍ – 60 ára
Fjölskyldan Hjörtur Jóhann Jónsson að útskrifast frá Listaháskóla Íslands árið 2012. Frá vinstri: Ragnheiður,
Sigríður Láretta, Helga Braga, Hjörtur, Brynja, Ingveldur Ýr, Jódís og Jón Hjartarson.
Lestur, leiklist og
fegurð íslenskra fjalla
Með ömmustráknum Ragnheiður
og Jón Egill Hjartarson.
Keflavík Agnes Eir
Björnsdóttir fæddist
hinn 1. janúar 2018 á
Sjúkrahúsinu í Keflavík
kl. 15.16 og var nýárs-
barnið þar í bæ. Hún vó
4.080 grömm og var 49
cm á lengd. Foreldrar
eru Sara Dögg Gylfa-
dóttir og Björn Sím-
onarson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
HYUNDAI I30WAGON CLASSIC Árg.
2018, ek. 23 Þ.KM, bensín, 6 gíra.
Verð 2.990.000 kr. Raðnúmer 380126
HYUNDAI TUCSON COMFORT
4WD Árg. 2018, ekinn 43 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 4.590.000 kr. Raðnúmer
380209
HYUNDAI I30 CLASSIC nýskr. 05/2017,
ekinn 57 Þ.km, bensín, 6 gíra. Verð 2.290.000 kr.
Raðnúmer 258552
SUZUKI VITARA GLX 4WD nýskr.
05/2018, ekinn 36 Þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 4.190.000 kr. Raðnúmer 258679
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum
SPRENGI
TILBOÐ
TökumALLA*
notaða bíla uppí á
550.000 kr
KÍKTUVIÐ FYRIR
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Ath. örfá eintök í boði!
*Allir notaðir bílar ganga sem550.000
kr upp í. Bílarnir þurfa að vera á nú-
merumog hægt að aka þeim. Aldur,
akstur og litur skiptir ekkimáli.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is