Morgunblaðið - 03.11.2018, Qupperneq 41
bekkjarsystkinin úr Leiklistarskól-
anum, G-bekkurinn, hittumst þegar
við getum enda varla til skemmti-
legri hópur. Fjölskyldan er nánast
öll viðriðin geirann og stundum eru
þau með svo mörg járn í eldinum að
ég sé fátt í leikhúsunum annað en
það sem mín allra nánustu eru að
sýsla við.
Við hjónin vorum lengi búin að
velta fyrir okkur áhugamáli sem við
gætum stundað með börnunum okk-
ar, Hirti og Siggu Láru. Við gengum
saman Laugaveginn með Ferða-
félagi Íslands þegar þau voru 9 og 13
ára og þá varð ekki aftur snúið.
Síðan höfum við ferðast vítt og breitt
um hálendið, vaðið firði og klifið fjöll.
Við Jón vorum síðan svo ótrúlega
heppin að komast í félagsskap
Trimmklúbbs Seltjarnarness – TKS
en þar starfar öflugur gönguhópur
sem fer a.m.k. eina fimm til sex daga
göngu á hverju sumri auk þess að
fara krefjandi ferðir að vorlagi.
Þetta er harður kjarni 45-55 manna
og kvenna sem víla fátt fyrir sér þeg-
ar kemur að þrekraunum til fjalla.
Þarna er líka á ferðinni þvílíkt sam-
ansafn af skemmtilegum og fróðum
einstaklingum að leit er að öðru eins.
Svo má ég ekki gleyma að minnast
á saumaklúbbinn minn sem á aldur
sinn að rekja aftur til áranna í MH.
Við eigum allar sextugsafmæli á
árinu en ég er yngst, næsta vor
stefnum við á stelpuferð til útlanda
til að fagna áfanganum saman.
Og síðast en ekki síst, Jón Egill
sonarsonur minn er núna þriggja og
hálfs, við erum bestu vinir og það
allra skemmtilegasta sem ég veit er
að eiga með honum stundir.“
Fjölskylda
Eiginmaður Ragnheiðar er Jón J.
Hjartarson f. 20.1.1942, leikari og
rithöfundur. Þau giftu sig 21. maí
1988 eftir 6 ára sambúð. Foreldrar
Jóns. Hjörtur Jónsson, f. 28.10.
1902, d. 10.8 1963, útvegsbóndi og
hreppstjóri á Hellissandi, og k.h. Jó-
hanna Vigfúsdóttir, f. 11.6. 1911, d.
29.4. 1994, organisti og húsfreyja á
Hellissandi..
Börn Ragnheiðar og Jóns eru: 1)
Hjörtur Jóhann, f. 29. 5. 1985, leikari
í Reykjavík, kona hans er Brynja
Björnsdóttir leikmyndahönnuður,
sonur þeirra er Jón Egill Hjartar-
son, f. 29.4. 2015; 2) Sigríður Lár-
etta, f. 20.10. 1988, leikari og há-
skólanemi í Reykjavík.
Stjúpdætur Ragnheiðar eru 1)
Helga Braga Jónsdóttir, f. 5.11.
1963, leikari og flugfreyja; 2) Ingv-
eldur Ýr Jónsdóttir, f. 26.7. 1966
óperusöngkona, hennar maður er
Ársæll Hafsteinsson, dóttir Ingveld-
ar er Jasmín Kristjánsdóttir, f. 11.3.
1999; 3) Jódís Jóhannsdóttir, f.
5.2.1966, bókari.
Bræður Ragnheiðar eru Grétar
Tryggvason, f. 1956, prófessor í véla-
verkfræði og deildarforseti
Mechanical Engineering við Johns
Hopkins-háskólann í Bandaríkj-
unum, kona hans er Elfa Jónsdóttir
myndlistarmaður, og Stefán
Tryggva- og Sigríðarson, f. 1957,
lífskúnstner og eigandi Hótel Natur
við Eyjafjörð, kona hans er Inga
Margrét Árnadóttir, eigandi Hótel
Natur. Hálfsystkini, samfeðra: Ásta,
f. 1923, d. 2011, Gunnar, f. 1924, d.
1984, Láretta, f. 1926, d. 1993, Svan-
hvít, f. 1927, d. 2016, Jón Leví, f.
1937 og Erla, f. 1945.
Foreldrar Ragnheiðar: Tryggvi
Stefánsson, f. 30.10. 1898, d. 2.10.
1982, bóndi í Skrauthólum á Kjal-
arnesi, og k.h. Sigríður Arnfinns-
dóttir, f. 20.6. 1922, d. 18.4. 2006,
bóndi og húsfreyja í Skrauthólum.
Arnfinnur Scheving Arnfinnsson
rafvirkjameistari og verkstj. á Akranesi
Úr frændgarði Ragnheiðar Tryggvadóttur
Ragnheiður
Tryggvadóttir
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Bekansstöðum, Vestra-Miðfelli og víðar
Jónas Sveinsson
bóndi á Bekansstöðum,
Vestra-Miðfelli og víðar
Ragnheiður Jónasdóttir
húsfreyja á Vestra-Miðfelli, síðar á Akranesi
Sigríður Arnfinnsdóttir
bóndi og húsfreyja í Skrauthólum
Arnfinnur Scheving Björnsson
bóndi og skipasmiður á Vestra-Miðfelli
í Hvalfjarðarsveit, síðar á Akranesi
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfreyja á Fjarðarhorni
og Eyri
Björn Arnfinnsson
bóndi á Fjarðarhorni og Eyri í Kollafirði
Soffía
tefánsdóttir
hjúkrunar-
kona á
Sauðárkróki
og Akureyri
S
Þorbjörg J.
Friðriksdóttir
hjúkrunar-
kennari og frkvstj.
ldrunarlækninga á
Landspítala
ö
Árni Þór
Sigurðsson
sendiherra
og fv.
alþingis-
maður
Jón Leví Eggertsson
frá Þernumýri, bóndi og
formaður, Egilsstöðum
Sigurður Jónsson b. og
hreppstj. í Hindisvík
Jóhannes Sigurðsson bóndi
í Hindisvík á Vatnsnesi
Séra Sigurður Norland
í Hindisvík
Margrét Jónsdóttir
frá Hindisvík, Vatnsnesi, Hún., húsfreyja á Egilsstöðum á Vatnsnesi
Ásta Margrét Jónsdóttir
húsfreyja í Stórhóli og víðar
Benedikt
orsteinsson
arandverka-
maður m.a. í
jóafirði og á
Eskifirði
Þ
f
M
Elísabet
Jónína
Benedikts-
dóttir
erkakona í
Rvík
v
Elías Mar
rithöfundur
í Rvík
Stefán Þorsteinsson
bóndi í Stórhóli í Víðidal, Hún. og víðar
Guðrún Jónasdóttir
húsfreyja á Breiðabólsstað, Hún. og víðar
Þorsteinn Pálsson
bóndi í Spákonufellskoti,
Hún. og víðar
Gunnar
Tryggva-
son
msjónar-
maður í
Rvík
u
Tryggvi
Gunnarsson
umboðs-
maður
Alþingis
Tryggvi Stefánsson
bóndi í Skrauthólum á
Kjalarnesi
ÍSLENDINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Guðrún Jóhanna Vigfúsdóttirfæddist á Grund í Þorvalds-dal, Árskógshr., Eyj., 3. nóv-
ember 1921. Foreldrar hennar voru
Vigfús Kristjánsson, útvegsbóndi á
Grund og síðar Litla-Árskógi, f.
1889, d. 1961, og Elísabet Jóhanns-
dóttir, húsfreyja, f. 1891, d. 1975.
Guðrún ólst upp á Litla-Árskógi,
stundaði nám við Unglingaskóla
Svarfdæla á Dalvík, sótti námskeið í
orgelleik og vélprjóni á Akureyri og
var við nám í Húsmæðraskólanum á
Laugalandi í Eyjafirði 1940-1941.
Hún stundaði nám við nýstofnaða
vefnaðarkennaradeild Húsmæðra-
skólans á Hallormsstað 1943-1945
og útskrifaðist þaðan ásamt nöfnu
sinni Bergþórsdóttur sem fyrsti
vefnaðarkennari á Íslandi.
Haustið 1945 hóf Guðrún störf við
Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði
sem vefnaðarkennari og kenndi við
skólann í 43 ár.
Guðrún stofnaði Vefstofu Guð-
rúnar Vigfúsdóttur árið 1961 og
starfrækti hana samhliða kennsl-
unni í Húsmæðraskólanum í 26 ár.
Árið 1988 flutti Guðrún í Voga-
tungu 29 í Kópavogi þar sem hún
setti upp vefstofu við heimili sitt og
einbeitti sér að vefnaði messuhökla
og tilheyrandi muna. Samhliða því
leiðbeindi hún eldri borgurum í
Kópavogi í vefnaði og myndvefnaði
og árið 1996 fékk hún styrk bæjar-
listamanns. Árið 1998 gaf Guðrún út
bókina „Við vefstólinn: lifandi vefn-
aðarlist í máli og myndum í hálfa
öld.“ Á Ísafirði tengdist Guðrún
kirkjustarfi og var m.a. formaður
Kirkjukvenfélagsins og síðar í
sóknarnefnd Kópavogskirkju.
Árið 1976 var Guðrún sæmd ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir störf í þágu íslensks ullariðn-
aðar. Hún sýndi handofin verk á
sýningum innanlands sem utan, m.a.
hökla, veggteppi og glæsikjóla úr ís-
lenskri ull.
Guðrún giftist Gísla Sveini Krist-
jánssyni árið 1950, íþróttakennara, f.
25.11. 1906, d. 22.10. 1978. Dóttir
þeirra er Eyrún Ísfold, f. 1950, tal-
meinafræðingur.
Guðrún lést 9. febrúar 2015.
Merkir Íslendingar
Guðrún J.
Vigfúsdóttir
Laugardagur
90 ára
Jónína Salný Stefánsdóttir
Sigurrós Guðjónsdóttir
85 ára
Júlíus Gígjar Halldórsson
80 ára
Guðrún Gísladóttir
Hólmfríður Gísladóttir
Ingvar Þorvaldsson
Margrét Þórðardóttir
Sigfús Levi Jónsson
Sigríður Gísladóttir
Sigurbjörg Stefánsdóttir
Svandís Gunnarsdóttir
75 ára
Auður Jóhanna
Kjartansdóttir
Guðbjörg Theódórsdóttir
Jón Halldór Gíslason
Sigríður Mínerva Jensdóttir
70 ára
Anna Sigrún Mikaelsdóttir
Brynja Beck
Einar Páll Vigfússon
Sigurður Gunnarsson
60 ára
Adam Krecichwost
Aðalsteinn Ómar
Ásgeirsson
Auður Ingólfsdóttir
Ásgeir Sverrisson
Elín Dóra Baldvinsdóttir
Fríða Ingimarsdóttir
Hrefna Einarsdóttir
Jónína Þorbjörg
Gunnarsdóttir
Kristín G. Hjartardóttir
Margrét Sigríður
Pétursdóttir
Norbert Ægir Muller
Ragnheiður Tryggvadóttir
Sigurbjörn B.
Sigurbjörnsson
Þór Kolbeinsson
50 ára
Andrzej Gapinski
Anna Dorota Oszwa
Anna María Elíasdóttir
Ásta Helga Viðar
Dorota Joanna Kapanke
Írena Auður Pétursdóttir
Jose L. Dias Da Silva
Teixeira
Kristján Snær Karlsson
Ólöf Guðný Geirsdóttir
Piotr Szmit
Vilhjálmur Sveinn
Björnsson
40 ára
Benjamin David Hennig
Elsa Margrét Einarsdóttir
Fjóla Orradóttir
Grzegorz Ryszard Zajac
Guðmundur Emilsson
Heiða Björk Elísdóttir
Helgi Hafsteinsson
Hjalti Bergmar Axelsson
Kateryna Kaplychna
Marina Gurievna Petrova
Patrick Saad Machkour
Páll Eggert Ólafsson
Pia Riedelmeier
Rebekka Björnsdóttir
Robert Wendland
Sandra Björk Ragnarsdóttir
Steinar Nóni Hjaltason
Zbigniew Dobczynski
30 ára
Arnar Freyr Þorgeirsson
Ásta Karen Kristjánsdóttir
Carlos Alberto Caro
Aguilera
Evelina Wennerbaeck
Guðfinnur Vilhelm Karlsson
Hyo-Sam Nandkisore
Inga Jóna Jóhannsdóttir
Magnús Jónsson
Matthias Mario Vogt
Pawel Krzysztof Sztandera
Pétur Daníel Ámundason
Tómas Auðunn Þórðarson
Viktor Ragnar Þorvaldsson
Víðir Smári Petersen
Þorvaldur Ríkharðsson
Sunnudagur
90 ára
Sigurgeir Jónasson
85 ára
Ísleifur Bergsteinsson
Sigríður Karlsdóttir
80 ára
Kristinn Viðar Pálsson
Steinunn E. Jónsdóttir
Víðir Hafberg Kristinsson
75 ára
Ingvi Tómasson
Jakob Páll Sigurbjörnsson
Þórir G. Björnsson
70 ára
Bjarnfríður Hlöðversdóttir
Erlendsína Guðlaug
Helgadóttir
Eyjólfur Vilbergsson
Hálfdán Guðröðarson
Helga Björnsdóttir
Lucyna Janiszewska
María Halldórsdóttir
Sigurgeir Sigurjónsson
Úlfhildur Gunnarsdóttir
60 ára
Bjarni Óskarsson
Elínborg Gunnarsdóttir
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Guðjóna Ásgrímsdóttir
Inga Hrönn Guðlaugsdóttir
Kristján Steingrímsson
Marinó Flóvent Birgisson
Páll Halldórsson
Steinar Þór Þórisson
Viktors Vasilika
50 ára
Gunnar Örn Kristjánsson
Luís António Teixeira Pinto
Sighvatur Sigfússon
Sólveig Franklínsdóttir
40 ára
Asen Ivanov Angelov
Crystal Alswaidani
Guðjón Sigursveinsson
Hallur Hróarsson
Jóhanna Elín Líndal
Christensen
Krystyna Piaskowska
Páll Ágúst Ólafsson
Sigurður Viðar
30 ára
Alma Guðnadóttir
Andri Egilsson
Arnas Tilvikas
Axel Paul Gunnarsson
Dagbjartur Elís Ingvarsson
Daniela-Vasilica Cernica
Erna Valborg
Björgvinsdóttir
Eyrún Erla
Sigurgeirsdóttir
Guðmundur Jóhannsson
Hrafnhildur Ágústsdóttir
Ingólfur Friðrik Arnarson
Ioana-Adelina Danciu
Johanna Nowotnick
Jón Steinar Valtýsson
Jón Sverrisson
Magnea Lillý Friðgeirsdóttir
Magnús Kári Ingvarsson
Ma. Jennilyn Soriano
Malana
Sara Sigurðardóttir
Teitur Ólafur Albertsson
Thelma Lind
Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
TONON Concept
borðstofustóll
Viðarfætur verð 74.900,- stk.