Morgunblaðið - 03.11.2018, Side 45

Morgunblaðið - 03.11.2018, Side 45
Neðanjarðar Hin nýstofnaða BSÍ á eitt lag á Drullumalli 2. listin alls konar, hrá, tilraunakennd og óhamin. Það er svo mikilvægt að ný sköpun og frjó eigi sér útgöngu- leið og þessi plata er einfaldlega frá- bært dæmi um slíkt, einhvers konar „rás“ sem hægt er að komast inn í. Stirnir opnar plötuna, dreymið og stutt svefnherbergisgítarpikk og inn- an við tveggja mínútna langt. Hrátt og vart klárað og fer þangað sem það vill. Lýsandi nokk fyrir innihaldið á plötunni allri. Ég fíla þetta. Johnny Blaze & Hakki Brakes negla þvínæst inn rappkenndri poppsýru, beint frá Berlín. GRÓA, sem hafa verið að vekja verðskuldaða athygli, eiga lag- ið „María“, hressilegt femínistapönk og mikill kraftur og ástríða yfir. Funi Kun læðir inn stuttri stemmu, „FOKKESSU UPP“, vel sýrt og skemmtilegt (og geðveikislegt) en K.óla stillir okkur svo af. „Ein“ er eitt af þessum lögum hennar þar sem allt er sett upp á borð, mjög skondinn texti um hvar maður endar eftir djammið. Flott lag, og með mjög eft- irminnilegu viðlagi. Framlag sidep- roject er nánast helber sýra, áleitin óhljóðalist en BSÍ, sem hefur á að skipa Sigurlaugu Thorlacius (sillus) og Juliusi Rothlaender, hendir í ansi grípandi útgáfu af „Wannabe“ Spice Girls. Ábreiða sem gengur glæsilega upp. Axis Dancehall býður upp á nokkurs síð-tripphopp á meðan Dymbrá (hét Umbra í Músíktil- raunum) færir okkur „Koparbláa mána“, sem er í þessum síð-klassíska gír sem þær voru í á Músíktilraunum. Frábært efni og spennandi verður að fylgjast með þessari efnilegu, hug- djörfu sveit. Framlag Sólu er hringl- andi melódísk óhljóðalist, í ætt við það allra framúrstefnulegasta sem maður heyrir hérlendis (Íbbagoggur, Fersteinn t.d.). Dead Herring, óg- urlegasta rokksveit landsins í dag, eiga brjálað innslag og í kjölfarið kemur Einar Hugi með grallaralegt tölvupopp, „Æluvu“, tekið upp á ódýr tæki í bílskúrnum hans pabba – eitt- hvað svoleiðis. Tucker Carlson’s Jonestown Massacre lokar þessu safni svo með laginu „discipleof- christ@jw.org“. Hæfandi endir, gítarsláttur sem virðist hafa farið fram við endimörk hins óbyggilega heims (getur einhver hjálpað mér?). Grasrótin er góð, og það er pass- að upp á græðlingana. Það er gott að vita til þess að fólk hefur vilja, mátt og áhuga fyrir því að standa í þessu, á því græðum við hin. »Dymbrá (hétUmbra í Músíktil- raunum) færir okkur „Koparbláa mána“, sem er í þessum síðklassíska gír sem þær voru í á Músíktilraunum. MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018 Myndlistarmaðurinn Steingrímur Gauti Ingólfsson opnaði sýningu í gær í galleríinu Tveimur hröfnum. Sýningin ber titilinn Ekki gera neitt og í texta sem Starkaður Sigurðar- son ritar um sýninguna segir m.a: „Steingrímur Gauti heldur áfram að mála. Hérna eru ný málverk. Unnin núna af hendi sem er orðin vön. Mál- arinn meira og meira að tala ekki bara við annað fólk, heldur við sjálf- an sig. Viðureignin ekki bara við það að setja upp sýningu heldur við það að mála, málverkið, málverkið sitt. Hvað hef ég málað áður? Er þetta fyrir mig eða ykkur? Hvað vantar? Samtalið er víðara, sjálfhverfara, það er viðkvæmt af því það endar aldrei, en ákvörðunin er tekin: þetta eru málverk, ég er að mála. Þessi málverk eigast við sjálf. Togast á um hvað þau vilja sýna okkur, og hvað þau vilja ekki sýna okkur. Er það eitthvað stórt, eða eitthvað lítið? Kyrrt eða á hreyf- ingu? Eitthvað sem við sjáum eða eitthvað sem er falið? Það er eitt- hvað hérna sem er undir og eitthvað sem er yfir; eitthvað sem er yfir- borðið, og eitthvað sem er um hvern- ig málverk sýnir okkur eitthvað. Það er óvissa, og leit, en líka eitthvað sem hefur fundist. Og þá finnur maður líka fyrir því hversu við- kvæmt þetta sem fundist hefur er, hversu lítið það getur verið, og ein- falt. En það er flókið að búa til þenn- an eina lit sem gerir málverkið list, þessa einu línu, eða slettu, eða staf, þetta gat sem sýnir það sem er undir þessum svarta lit, eða ákvörðunina að mála yfir allt það sem er ekki listaverkið.“ Steingrímur Gauti fæddist árið 1986 og útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2015. Hann nam einnig við Universität der Künste í Berlín og Myndlistaskólann í Reykjavík og hefur verið virkur í sýningarhaldi frá útskrift. Sýning Steingríms í Tveimur hröfnum er sjötta einka- sýning hans. Talar við sjálfan sig  Steingrímur Gauti sýnir í Tveimur hröfnum Málverk Verk á sýningu Steingríms í Tveimur hröfnum. Safnasafnið, Al- þýðulistasafn Ís- lands, stendur fyrir málþingi í Þjóðminjasafn- inu í dag klukkan 13-16. Yfirskrift þess er Frá jaðri til miðju og verð- ur á því fjallað um þróun ís- lenskrar alþýðulistar og stöðu hennar í dag. Níels Hafstein, myndlistarmaður og safnstjóri Safnasafnsins, flytur erindi um íslenska alþýðulist, þróun hennar og stöðu á heimsísu, Harpa Björnsdóttir myndlistarmaður seg- ir frá Safnasafninu og Margrét M. Norðdahl myndlistarmaður fjallar um hugtök og aðgengi í listheim- inum og segir frá verkum banda- rísku listakonunnar Judith Scott og frá verkum GÍU, Gígju Thoroddsen og Guðrúnar Bergsdóttur. Fleiri flytja erindi og Unnar Örn J. Auðarson myndlistarmaður verður fundarstjóri og haldnar verða pall- borðsumræður. Fjallað um alþýðu- list á málþingi Níels Hafstein Brot úr línu/fragment of a line nefn- ist samsýning sem opnuð verður í dag kl. 14 í Verksmiðjunni á Hjalt- eyri. Sýningarstjórar eru Sigurður Guðjónsson og Gústav Geir Bolla- son. Á sýningunni má sjá vídeóverk eftir fjóra unga listamenn; Þorgerði Þórhallsdóttir, Bjarna Þór Péturs- son, Hlyn Pálmason og Þorbjörgu Jónsdóttur. Þau eiga það sammerkt að taka sér stöðu á mörkum kvik- myndarinnar og vídeómiðilsins í verkum sínum og sækja áhrif og úr- lausnir í báðar þessar greinar þann- ig að úr verður nýr og spennandi frásagnarmáti sem einkennist af sterkri fagurfræði, leik með tækni- legar eigindir miðilsins og með sýn- ingarrýmið í framsetningu verk- anna, eins og fram kemur í tilkynn- ingu. „Í Brot úr línu er hráefnið ljós. Ljósið er ekki aðeins miðill fyrir myndina sem það ber á flötinn, held- ur hráefni í sjálfu sér. Það er hráefni í sama skilningi og vísanir, minni, hugmyndir og harður diskur. Hrátt rými verksmiðjunnar er ílát fyrir þetta efni, það geymir það vel, sér- staklega svona innrammað í nóvem- bermyrkrið. Rými verkanna verður líkamlegt og birtan áþreifanleg. Hér renna saman vísanir í söguna, villur eyðimerkurinnar og leikur barns- ins,“ segir þar. Fjórir ungir lista- menn á Hjalteyri  Samsýningin Brot úr línu opnuð Stýrir Sigurður Guðjónsson er annar tveggja sýningarstjóra. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Slá í gegn (Stóra sviðið) Lau 3/11 kl. 16:00 Aukas. Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Fly Me To The Moon (Kassinn) Sun 4/11 kl. 19:30 14. s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Fös 23/11 kl. 19:30 20.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Insomnia (Kassinn) Mið 14/11 kl. 19:30 Frums Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 2.sýn Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 3/11 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 11:00 Lau 3/11 kl. 13:00 Lau 10/11 kl. 13:00 Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 9/11 kl. 22:00 Daður og dónó Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Fjallkonan fríð (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 3/11 kl. 20:00 Frum Lau 10/11 kl. 20:00 3.sýn Sun 4/11 kl. 20:00 2.sýn Sun 11/11 kl. 17:00 4.sýn Fjallkonan skoðuð á fullveldisafmæli leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Elly (Stóra sviðið) Lau 3/11 kl. 20:00 163. s Lau 17/11 kl. 20:00 165. s Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas. Sun 18/11 kl. 20:00 171. s Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Fim 8/11 kl. 20:00 aukas. Fim 22/11 kl. 20:00 172. s Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Fös 9/11 kl. 20:00 164. s Fös 23/11 kl. 20:00 173. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Sun 11/11 kl. 20:00 aukas. Sun 25/11 kl. 20:00 174. s Fim 15/11 kl. 20:00 aukas. Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 10/11 kl. 20:00 19. s Fös 23/11 kl. 20:00 21. s Lau 17/11 kl. 20:00 20. s Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Litrík jólasýning fyrir þau yngstu. Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 10/11 kl. 20:00 66. s Lau 24/11 kl. 20:00 68. s Fös 16/11 kl. 20:00 67. s Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Sýningum lýkur í nóvember. BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.