Morgunblaðið - 26.11.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
595 1000
Tenerife um jólin
20. desember í 13 nætur
Flugsæti
90.000
* báðar leiðir með tösku og handfarangri
** gist á Hotel Villa Adeje Beachaaa með ALLT INNIFALIÐ
Flug & gisting
200.000
**
*
Meðallaun 598 þús. fyrir dagvinnu
25% rafiðnaðarmanna í byggingariðnaði með minna en 411 þúsund kr. dagvinnulaun á mánuði
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Meðallaun rafiðnaðarmanna fyrir dagvinnu
eru 598 þúsund á mánuði. Dreifing launanna
er þó mikil því meðaldagvinnulaun 25% fé-
lagsmanna innan Rafiðnaðarsambands Ís-
lands (RSÍ) eru undir 475 þúsund kr. Ánægja
með launakjör rafiðnaðarmanna hefur minnk-
að frá því í fyrra. Þetta eru nýjar niðurstöður
kjarakönnunar RSÍ sem kynntar voru á um
100 manna ráðstefnu trúnaðarmanna sl.
föstudag.
Í samantekt sambandsins kemur fram að
sláandi sé að sjá í könnuninni að í byggingar-
iðnaði eru laun félagsmanna enn mjög lág
þrátt fyrir að mestur uppgangur hafi verið í
þeirri grein. Laun fjórðungs félagsmanna
sem starfa í byggingariðnaðinum eru undir
411 þúsund kr. á mánuði fyrir dagvinnu.
,,Ljóst er einnig að þegar félagsmenn eru
spurðir um þörf á hækkun launa þá eru það
félagsmenn í tölvu- og byggingariðnaði sem
telja sig þurfa mestu launahækkunina,“ segir
í samantekt RSÍ.
Kynna kröfurnar á föstudag
Iðnaðarmannafélögin í ASÍ hafa með sér
náið samstarf í komandi kjaraviðræðum og
skv. upplýsingum Kristjáns Þórðar Snæ-
bjarnarsonar, formanns RSÍ, verður fyrsti
samningafundurinn með SA næsta föstudag
þar sem iðnaðarmenn kynna sameiginlega
kröfugerð.
Hlutfall fastráðinna starfsmanna hefur
aukist verulega, sem er sagt endurspegla
góða verkefnastöðu fyrirtækja en mikill
skortur er á rafiðnaðarmönnum á íslenskum
vinnumarkaði. Þó að heildarvinnustundum
hafi fækkað að jafnaði meðal rafiðnaðar-
manna vinna margir þeirra langan vinnudag.
Helmingur þeirra vinnur meira en 176 stund-
ir á mánuði, 15% vinna 201 klst. eða lengur í
aðalstarfi sínu og 3,2% félagsmanna vinna
meira en 250 klst. á mánuði, sem jafngildir
um 12 klst. vinnudegi alla virka daga. Það
eru starfsmenn í stóriðju og hjá orkufyrir-
tækjunum sem vinna að jafnaði hvað lengst.
Rafiðnaðarmönnum sem taka laun skv.
töxtum fer fækkandi og telja forsvarsmenn
RSÍ það sýna að skýrt svigrúm sé til þess að
hækka lágmarkstaxta nokkuð upp að mark-
aðslaunum án þess að það hafi í för með sér
mikil ruðningsáhrif.
Hærri laun og styttri vinnutíma
,,Félagsmenn telja mikilvægast annars
vegar að hækka laun og hins vegar að stytta
vinnutíma í komandi kjarasamningum,“ segir
í samantekt.
Þá kemur fram skýr krafa um að gerðar
verði breytingar á tekjuskattskerfinu með
hækkun persónuafsláttarins og lækkun
skattprósenta. Afnám verðtryggingar og
lækkun vaxta eru auk þess áhersluatriði raf-
iðnaðarmanna.
4.441 var í úrtaki könnunarinnar og svör-
uðu 1.538 eða 37,2%.
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
„Ég stend heilshugar með Áslaugu,“
sagði Heiða Björg Hilmisdóttir,
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í
Reykjavík, í útvarpsþættinum Þing-
völlum á K100 í gær. Heiða sagði þar
að allan kærleika hefði vantað í
kynningu á skýrslu innri endurskoð-
unar um mál Orkuveitunnar en þar
kom m.a. fram að Áslaugu Thelmu
Einarsdóttur hefði verið sagt upp
störfum hjá Orkuveitunni vegna
frammistöðuvanda. Heiða sagði í
Þingvöllum að opinberun þess að um
frammistöðuvanda hefði verið að
ræða væri smánandi fyrir Áslaugu.
Meirihlutinn í borgarstjórn
Reykjavíkur, sem Samfylkingin leið-
ir, lagði fram jákvæða bókun um
skýrsluna og kvað niðurstöðuna
skýra. Dagur B. Eggertsson borg-
arstjóri sagði í viðtali við mbl.is fyrir
helgi að hann væri ánægður með
hvað málið hefði
verið tekið föst-
um tökum hjá
Orkuveitunni.
Hann tók þannig
undir niðurstöður
skýrslunnar.
Heiða sagði í
Þingvöllum að
mál Áslaugar
væri „klassísk
metoo-saga.“ Þá
sagði Heiða að kaflinn í skýrslunni
sem snýr að opinberri smánun hefði
verið eins og „aftan úr fornöld.“
Í skýrslunni var uppsögn Áslaug-
ar sögð réttmæt en hún hefur ítrek-
að haldið því fram að uppsögnin hafi
tengst beint kvörtunum hennar um
hegðun Bjarna Más Júlíussonar,
sem var sagt upp skömmu eftir að
henni var sagt upp. Þá sagði í skýrsl-
unni að vinnustaðamenning hjá
Orkuveitunni væri með ágætum ef
frá væru talin þessi mál sem hefðu
verið í umræðunni að undanförnu.
Heiða segir orð sín ekki ganga í ber-
högg við bókun meirihlutans eða
skýrsluna almennt. „Ég stend við
bókunina og skýrsluna almennt.
Hún er góður grunnur fyrir Orku-
veituna til að vinna út frá,“ segir
Heiða.
Skýrslan segir uppsögn Áslaugar
réttmæta en Heiða segir að þrátt
fyrir að skýrslan meti uppsögnina
réttmæta þá hafi Áslaug orðið fyrir
óviðeigandi hegðun. „Aðrir líta
kannski öðruvísi á en frá #MeToo
sjónarhorni verðum við líka að trúa
hennar orðum.“
Heiða bendir á að í skýrslunni sé
fallist á að yfirmaðurinn, Bjarni, hafi
sýnt af sér óviðeigandi hegðun. Hún
segir ennfremur að Bjarni hafi
brugðist ágætlega við með því að
segja að karlar megi ekki allt sem
þeir máttu hér áður fyrr. Loks segir
Heiða að nú sé málið í höndum Orku-
veitunnar.
Heiða stendur með Áslaugu
Heiða Björg
Hilmisdóttir
Áslaugu Thelmu sagt upp vegna „frammistöðuvanda“
Heiða segir sögu hennar þó líka klassíska #metoo-sögu
Góðviðrið sem
verið hefur víða
um land líður
undir lok í byrjun
vikunnar, að sögn
veðurfræðings á
Veðurstofu Ís-
lands.
Spáð er róleg-
heitum í veðri í
dag og á morgun.
Róleg austanátt
er á landinu. Stöku skúrir eða él
sunnan til. Það er léttskýjað fyrir
norðan.
Í dag verður frostlaust sunnan-
lands en fyrir norðan getur frost
orðið núll til fimm stig víða. Svipaðs
veðurs má vænta á þriðjudag, þó að
það kunni að verða kaldara, jafnvel
svo að ögn frysti sunnanlands.
Á miðvikudag má vænta vaxandi
norðaustanáttar með slyddu eða
snjókomu fyrir norðan og austan.
Svo sem vandi slíkrar vindáttar er
þá verður þurrt á Suður- og Suð-
vesturlandi á meðan hún gengur yf-
ir.
Í dag og á morgun er vindurinn
hægur nema syðst á landinu. Þar
má búast við 8-13 metrum á sek-
úndu.
Rólegt
veður en
á að kólna
Kólnar Góðviðris-
kafla er lokið í bili.
Víðast frostlaust í
dag Stöku skúrir
Rjúpnaveiðitímabilinu 2018 lauk í gær og síðasta
helgin gekk vonum framar að sögn Áka Ármanns
Jónssonar, formanns Skotveiðifélags Íslands
(Skotvís). Rjúpnaveiði var heimil í fimmtán daga
á þessu ári, sem skiptust á helgar í október og
nóvember og ráðlögð heildarveiði var 67.000
rjúpur. Tímabilið var lengt um eina helgi, þ.e. ný-
liðna helgi, og veður var sérlega gott.
„Þetta er fyrsta helgin þar sem er glæsilegt
rjúpnaveiðiveður um allt land. Bestu skilyrðin
eru þegar mikið frost er og stilla, bjartviðri og
komin snjólína í fjöll,“ segir Áki. „Það hefur verið
lægðagangur á þessum helgum, leiðindatíð. Mað-
ur hefði farið þessa helgi ef maður hefði vitað
þetta fyrir fram. Ég fór um síðustu helgi og var
annan daginn í þoku og hinn daginn í tuttugu
metrum á sekúndu og fimmtán stiga hita. Það
eru ekki alveg aðstæðurnar sem maður leitar í,“
segir hann.
Ekki liggja fyrir veiðitölur fyrir 2018, en þær
munu liggja fyrir eftir áramót. „Síðustu ár hafa
svona fimm þúsund manns gengið til rjúpna og
meðalveiðin hefur verið um 9-10 rjúpur á mann,
um 10% af stofninum. Hér áður fyrr voru þetta
milli 20 og 30% á ári og stofninn þoldi það í góð-
um árum. Þegar niðursveifla varð í stofninum
varð veiðin ósjálfbær og í kjölfarið var sölubann
sett á. Þá fór meðalveiðin niður,“ segir hann.
Spurður um vinsælustu veiðisvæðin segir hann
að Holtavörðuheiði sé eftirlætisstaður margra,
en einnig sé mikið um að veiðimenn sæki á æsku-
slóðir sínar. „Nú eru um 90% veiðimanna að fara
bara eina helgi og fólk fer ekki aftur ef það veiðir
illa,“ segir Áki og nefnir að rjúpnaveiðin hafi tek-
ið breytingum undanfarin ár, einkum hvað magn-
veiði varðar.
„Nú eru menn að njóta þess mikið að vera úti í
náttúrunni og veiða hóflega. Sem betur fer er
þessi magnveiði búin, menn eru hættir að kepp-
ast við að veiða sem mest. Nú er þetta frekar upp-
lifun fyrir veiðimanninn að veiða úti í náttúrunni
og þessi helgi var glæsileg til þess. Síðan snýst
þetta líka um félagsskapinn, að fara með ein-
hverjum að veiða. Samt getur einveran verið góð
stundum, að vera einn í náttúrunni,“ segir hann.
Hættir að keppast við að veiða sem mest
Morgunblaðið/Ingó
Rjúpnaveiðitímabilinu árið 2018 lauk í prýðilegu veðri um helgina
Á rjúpnaveiðum Henrý Örn Magnússon mundar byssuna. „Nú er þetta frekar upplifun fyrir veiði-
manninn að veiða úti í náttúrunni,“ segir Áki Ármann Jónsson, formaður Skotveiðifélags Íslands.