Morgunblaðið - 26.11.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2018
Hreinar hendur
með nýjum Voltaren Gel
nuddhaus
3. BERA Á1. RJÚFA 2. TOGA
NÝTT
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og
fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Ég fór aðra leið en flestir háskóla-
nemar. En þetta var sú sem hentaði
mér, það eru fleiri en ein leið að
markmiðinu.“ Þetta segir Jón Ingi
Hlynsson, 23 ára „ofvirkur strákur
úr Breiðholti“, eins og hann lýsir
sjálfum sér. Hann er fyrsta árs nemi
í sálfræði í Háskóla Íslands, en leiðin
í háskólann var síður en svo bein.
Hann féll í íslensku og stærðfræði
á samræmdu prófunum í lok 10.
bekkjar og síðan lá leiðin í Fjöl-
brautaskólann í Ármúla. „Ætli skól-
inn hafi ekki neyðst til að taka við
mér, ég var líklega ekki mjög eftir-
sóttur nemandi,“ segir Jón Ingi sem
segist lítinn áhuga hafa haft á námi á
þessum tíma, enda féll hann fljótt úr
skóla. Hann gerði nokkrar tilraunir
til að setjast aftur á skólabekk, þær
féllu um sjálfar sig og á endanum
neituðu skólar að taka við honum.
„Mér leið eins og ég hefði misst af
lestinni, mér fannst ég vera vitlaus
og að ég gæti ekki lært.“
Í kjölfarið leiddist Jón Ingi aðeins
út af hinni svokölluðu beinu braut,
eins og hann kemst að orði, en vendi-
punktur varð í lífi hans um tvítugt
þegar hann leitaði til geðlæknis
vegna þess að hann hafði grun um að
hann væri með ADHD, en hann hafði
alltaf átt erfitt með að einbeita sér.
Sá grunur reyndist réttur, hann fór á
ofvirknilyf í framhaldinu og í kjölfar-
ið fór hann í einkaþjálfaranám sem
hann lauk með góðum vitnisburði.
Uppgötvaði að ég gat lært
„Það var fyrst þá sem ég uppgötv-
aði að ég væri ekki heimskur. Að ég
gæti vel lært og í einkaþjálfaranám-
inu lærði ég að skipuleggja mig og
hvernig ég ætti að læra.“ Hélstu að
þú værir heimskur? „Tölurnar sem
stóðu á einkunnablöðunum mínum í
grunn- og framhaldsskóla sögðu mér
að ég væri ekki sá greindasti.. Þann-
ig að ég hélt það stundum.“
Jón Ingi hafði talsverðan áhuga á
sálfræði, hann hafði samband við
námsráðgjafa í Háskóla Íslands sem
sagði honum að þar sem hann væri
ekki með stúdentspróf þyrfti hann
annaðhvort að taka það eða fara í
frumgreinadeild einhvers af háskól-
unum. „En ég uppfyllti ekki skil-
yrðin til að komast inn í þær og mér
fannst þetta vera nánast óyfirstíg-
anlegt,“ segir hann.
Um það leyti sem hann var í þess-
um hugleiðingum sá hann auglýs-
ingu um Menntastoðir Mímis. „Ég
hafði samband, leist vel á og bað um
að fá að byrja strax, því ég var svo
tilbúinn að gera þetta. Ég fékk það
og um leið og ég fór þarna inn í
fyrsta skiptið fann ég að þarna var
fólk sem var virkilega tilbúið að
hjálpa mér til að ná markmiðum mín-
um.“
Hafði litlar væntingar
Jón Ingi segir að í ljósi erfiðrar
skólagöngu sinnar hafi hann ekki
haft miklar væntingar og því hafi það
komið honum hressilega á óvart
hversu vel honum sóttist námið. „Ég
var auðvitað kominn á þann stað í líf-
inu að ég var tilbúinn að gera þetta,
en ég vil meina að kennararnir hafi
átt stóran þátt í þessu. Það, hversu
mikla trú þeir höfðu á mér, skipti
mig öllu máli. Mér fannst skemmti-
legt að læra, ég skildi stærðfræði í
fyrsta skiptið og núna er hún mitt
uppáhaldsfag.“
Hann segir að námsumhverfið hafi
hentað sér vel. Allir, sem hafi verið
með honum í Mími, hafi verið þar
vegna þess að þeir kusu það sjálfir
en ekki fyrir einhvern annan eins og
stundum vilji verða meðal ungmenna
sem fari í framhaldsskóla fyrir for-
eldra sína.
Enginn venjulegur skóli
Þetta var fyrir tveimur árum og
eftir að hafa lokið náminu hjá Mími
lá leið Jóns Inga í frumgreinadeild
Háskólans í Reykjavík. Deildin er
svokölluð háskólabrú, ætluð þeim
sem hyggja á háskólanám en hafa
ekki stúdentspróf, en þar sem Jón
Ingi var ekki með nægilega margar
framhaldsskólaeiningar í grunnfög-
unum íslensku, stærðfræði, dönsku
og ensku, uppfyllti hann ekki skilyrði
fyrir inngöngu í deildina fyrr en eftir
námið hjá Mími. „Ég fór inn í frum-
greinadeildina með gríðarlega góðan
undirbúning frá Mími enda fékk ég
viðurkenningu á síðustu önninni þar
fyrir sérlega góðan námsárangur og
komst á forsetalistann þar sem eru
2% nemenda með hæstu einkunn í
hverri deild.“
Jón Ingi segir þann grunn sem
hann fékk, bæði í Mími og í HR, nýt-
ast sér vel í sálfræðináminu og hann
finni ekki fyrir því að vera með
styttri skólagöngu en flestir skóla-
félaga hans. Bæði í Mími og í há-
skólagrunninum hafi mikil áhersla
verið lögð á námsaga og að það hafi
nýst sér vel í náminu.
Hann segist heilshugar geta mælt
með Menntastoðum Mímis við annað
ungt fólk sem hefur fallið út úr skóla-
kerfinu. „Já, ekki spurning. Þetta er
enginn venjulegur skóli.“
„Fleiri en ein leið að markmiðinu“
Féll í grunnskóla, byrjaði ítrekað í
framhaldsskóla og komst svo á forseta-
lista eftir nám í Menntastoðum Mímis
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Velgengni Leið Jóns Inga Hlynasonar í menntakerfinu hefur verið frábrugðin þeirri leið sem flestir aðrir fara.
Anney Þórunn Þorvaldsdóttir, að-
stoðarmaður framkvæmdastjóra og
verkefnastjóri hjá Mími, segir að
saga Jóns Inga sé eitt dæmi af ótal
mörgum um fólk sem hafi gefist upp
í almenna skólakerfinu og ekki talið
sig eiga erindi í nám.
„Undanfarin átta ár hafa á milli
600 og 700 manns farið í gegnum
Menntastoðir hjá okkur,“ segir Ann-
ey. „Þetta er fjölbreyttur hópur,
konur og karlar, ungir og eldri sem
eiga sér ýmsar sögur. En það sem
allir eiga sameiginlegt er að hafa átt
brokkgenga skólagöngu af mismun-
andi ástæðum. Stundum vegna
námserfiðleika eða annars konar
erfiðleika og margir hafa upplifað
vonleysistilfinningu í gegnum sína
skólagöngu. Margir kláruðu ekki
grunnskóla, voru búnir að reyna oft
að byrja í framhaldsskóla og voru
orðnir nokkuð góðir í að hætta. Þeir
eru að ná árangri í skóla í fyrsta
skiptið hjá okkur.“
Í Menntastoðum er ýmist kennt í
stað- eða fjarnámi og getur námið
tekið eina til tvær annir. Áhersla er
lögð á að nýta tölvur sem mest við
kennsluna og námsgreinarnar eru
svokallaðar kjarnagreinar; íslenska,
stærðfræði, enska, danska og tölvu-
og upplýsinga-
tækni, námið er
ígildi fyrsta árs
náms í þessum
greinum í fram-
haldsskóla og er
metið til eininga.
Að auki er nem-
endum kennd
námstækni. Þeir
sem útskrifast úr
Menntastoðum
geta sótt um iðnnám eða nám í und-
irbúningsdeildum háskólanna og að
því búnu sótt um háskólanám. Nám-
ið var hannað í samstarfi við undir-
búningsdeildir Keilis og háskólanna
á Bifröst og í Reykjavík og er einnig
kennt í símenntunarstöðvum.
Óar við að fara í skóla
Anney segir að hugmyndin að
Menntastoðum hafi orðið til eftir að
aðsókn nemenda sem ekki voru með
fullnægjandi undirbúning, jókst í
undirbúningsdeildum háskólanna.
Að sögn Anneyjar er lágmarks-
aldurinn inn í námsleiðina 18 ár, en
áður var miðað við 23 ára og eldri.
„Marga í þessum hópi óar við að
fara í framhaldsskóla og setjast á
skólabekk með miklu yngra fólki.
En það sem hjálpar okkar nem-
endum svo mikið er að hér finna
þeir samkennd hver með öðrum og
fá stuðning hver frá öðrum.“
Margir af nemendum eru með
fjölskyldur og hún segir mikilvægt
að bjóða upp á sveigjanleika. „Engu
að síður er mikið aðhald, við erum
með náms- og starfsráðgjafa sem
halda utan um alla sem þess óska en
slík persónuleg nálgun skiptir miklu
máli fyrir fólk sem hefur neikvæða
upplifun af skólakerfinu.“
Margir í háskóla eða iðnnám
Spurð um hversu hátt hlutfall
þeirra sem útskrifast hafa úr Mennt-
astoðum hafi farið í háskólanám
segir Anney að það hafi ekki verið
skoðað markvisst, en vitað sé að það
sé talsverður fjöldi. Þá fari margir í
iðnnám og sumir kjósi að halda ekki
áfram námi. „En það sem margir
tala um, hvort sem þeir fara í meira
nám eða ekki, er að þeir fari frá
okkur með aukið sjálfstraust til að
sinna öðrum verkefnum,“ segir
Anney. „Margir sem koma til okkar
voru búnir að ákveða að skóli væri
ekkert fyrir þá, en flestir skipta
heldur betur um skoðun að námi
loknu.“
Voru orðnir góðir í að hætta
Hátt í 700 manns hafa farið í gegnum Menntastoðir Mímis
Anney Þórunn
Þorvaldsdóttir