Morgunblaðið - 26.11.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 26.11.2018, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2018 Hann fórfremur illaaf stað maðurinn í mælskukeppninni sem hóf ræðu sína svo: „Í þessu máli eru margar þunga- miðjur.“ Þungamiðjan er í eðli sínu einstæðingur. Við umfjöll- un um væntanlega ESB- útgöngu Breta detta margir í sambærilegan pytt. Nú má vissulega segja að sé ögurstund í því máli. En óneitanlega hefur sú tilfinning gripið menn áður. Theresa May tilkynnti í viku- lok að hún hefði rekið endahnút á samning um tilhögun útgöngu Breta úr ESB og kanslari Þjóð- verja hefði fyrir þess leyti sam- þykkt útgönguskilmálana með öllum greiddum atkvæðum hinna leiðtoganna. Það er því eðlilegt að þarna virðist hún blasa við ögurstundin í þessu mikla máli. May var alla tíð á móti úr- sögn úr ESB og vildi að þjóðin hafnaði henni. Næstvaldamesti ráðherrann, Hammond fjár- málaráðherra, var sama sinnis en gekk mun lengra en May og hamaðist í baráttunni um þjóð- aratkvæðið og er mjög upp- sigað við þá „félaga“ sem brugðust málstaðnum. Brexit- armurinn hefur hrakist úr rík- isstjórn, hver fylgismaðurinn af öðrum, eftir því á hvað svika- stigi þau tvö eru talin vera í það og það sinnið. Á það er einnig bent að May hafi alla tíð verið minna en hálfvolg í því að fylgja ákvörðun þjóðar- innar eftir. Því sé það varla sérstök frétt nú að hún endi við samningslok með því að standa í gættinni, en þó sjónarmun fyrir innan. Við bætist að Hammond fjármálaráðherra haldi enn í pilsfald hennar aftanverðan og á meðan hann hafi það tak, sem Brexit-menn kalla undanhaldið, muni hann tosa forsætisráð- herrann sífellt fjær því sem þjóðin hafði haft ástæðu til að treysta. Ekki síst þar sem Hammond hafi verið falið að hafa yfirumsjón með smáaletr- inu en það er eina letrið sem ESB tekur gilt. Theresa May hefur sam- viskusamlega tönglast á að Brexit þýði Brexit og mun vera eini Bretinn sem veit hvað sú klisja þýðir. Seinustu mánuði hefur hún þó bætt við að þar sem Brexit þýði Brexit þá snú- ist viðræður við ESB um það hvort farið verði úr sambandinu með samningi um framtíðar- tilhögun samskipta eða án slíks samnings. En þegar May kynnti þinginu samninginn í ný- liðinni viku var komin viðbót: Málið snerist nú í fyrsta lagi um það hvort farið yrði út með slík- um samningi eða í öðru lagi hvort farið yrði út án slíks samnings eða „í þriðja lagi hvort alls ekki yrði farið úr ESB!“ Brexit hefði þá með öðrum orðum aldrei þýtt Brexit. Nú virðist komið á daginn að undirmál hafi einkennt Brexit- viðræðurnar beggja vegna borðs} Enn ein ögurstund? Almenningur erfarinn að búa sig undir verð- bólgu. Þetta sést glöggt af gríðar- legri aukningu í óverðtryggðum út- lánum til heimilanna sem Morgunblaðið sagði frá á laug- ardag. Ástæðan fyrir þessu er aug- ljós. Almenningur hlustar á um- ræður um kjarasamninga og heyrir kröfur verkalýðsforyst- unnar og óttast afleiðingarnar af því ef orðið verður við þeim kröfum. Sá ótti er ekki ástæðu- laus, þvert á móti. Enginn vafi leikur á því að nái verkalýðsfor- ystan vilja sínum fram mun það kynda undir verðbólgu, auk þess að valda verulegum erfið- leikum í rekstri fjölda fyrir- tækja. Á þetta hefur ítrekað verið bent. Forystumenn úr atvinnu- lífinu hafa rætt þessa hættu og skilaboðin frá opinberum aðil- um sem um hafa fjallað hafa verið skýr. Ný forysta verka- lýðsfélaganna hefur hins vegar lítið gefið fyrir slík varnaðarorð og kallað þau hræðslu- áróður. Og hún hef- ur dregið fram ald- argömul hugtök úr úreltri pólitískri baráttu til að krydda mál sitt. Allt er það tal lítt til þess fallið að efla trú á getu eða vilja þess- ara nýju forystumanna til að ná skynsamlegum samningum. En ef til vill hreyfa skýr skilaboð frá almenningi við þessum forystumönnum, sem standa í stafni sinna stóru fé- laga með stuðning fárra félags- manna að baki. Forystumenn í verkalýðsfélögum hér á landi bera mikla ábyrgð og geta vart skellt skollaeyrum við þeim al- varlegu athugasemdum sem felast í ört vaxandi töku óverð- tryggðra lána. Það kann að virðast vænlegt til árangurs að gera lítið úr ábendingum þeirra sem stýra fyrirtækjunum í landinu en ætli forystan að hundsa skýr skilaboð almenn- ings getur það aðeins endað á einn veg. Verkalýðsforystan getur ekki litið framhjá ótta fólks við verðbólgu} Skýr skilaboð almennings Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í vikunni sem leið, er ég gekk heim úr vinnu, hlustaði ég á fréttaþátt þar sem stjórnendur hafa verið við hljóðnem- ann í nær 18 ár og eru því reyndir fjöl- miðlamenn. Símatími hlustenda var í gangi þar sem rætt var um krónu á móti krónu skerðingu og hún borin saman við frítekjumark eldri borgara. Hlustandinn taldi hag eldri borg- ara mun verri, að afnám krónu á móti krónu skerðingar væri á einhvern hátt ósanngjarnt því það væri óeðlilegt að vera í fullri vinnu og á örorkulífeyri á sama tíma. Þáttastjórnendur mölduðu í móinn en voru þá beðnir um að útskýra þetta krónu á móti krónu fyrirkomulag. Fátt var um svör og um- ræðu lauk með að þetta skildi jú enginn! Mér brá nokkuð við hlustunina. Ef staðan er svona hjá reyndu fjölmiðlafólki sem fæst við fréttir og fréttatengt efni á hverjum degi, þá er kannski ekki skrítið að almenningur sé ekki mættur á Austurvöll daglega til að mótmæla þessu óréttlæti sem enginn annar hópur á landinu þarf að þola. Stór hópur öryrkja er fastur í þeirri fátæktargildru að geta ekki móttekið neina fjárhæð án þess að það bitni á þeim með skerðingu hverrar einustu krónu á móti þeirri krónu sem aflað er. Þeir öryrkjar sem hafa einhverja starfs- orku hafa engan ávinning af því að nýta hana. Þeir öryrkjar sem fá dánarbætur, mæðra- eða feðralaun, lífeyrisgreiðslur, styrki eða fjármagnstekjur þurfa að þola að hver einasta króna er skert á móti, króna fyrir krónu. Þetta er 100% skerðing og fólki þannig bæði refsað fyrir að reyna að bjarga sér sem og fyrir að fá bætur eða laun vegna bágra aðstæðna sinna. Í síðustu viku voru greidd atkvæði um fjár- lög ríkisstjórnarinnar. Þar þótti stjórnar- þingmönnum það hróplega ósanngjarnt af okkur í Samfylkingunni og öðrum stjórnar- andstöðuflokkum, að leggja til að möguleg kerfisbreyting á almannatryggingakerfinu yrði ekki látin tefja afnám krónu á móti krónu. Lögðum við til að kerfisbreytingin yrði látin gilda frá áramótum þótt framkvæmdin kæmi mögulega ekki til fyrr en síðar á árinu. Sögðu stjórnarþingmenn þurfa að fullvinna breyt- ingar, innleiða starfsgetumat og fleira en þetta er alrangt. Ef vilji ríkisstjórnarinnar er að af- nema krónu á móti krónu þarf að sýna það í verki en ekki þvæla því í öðrum kerfisbreyt- ingum enda hefur nefnd um slíkt verið að störfum árum saman án afnáms skerðingarinnar. Það hvernig fólk er metið til örorku og hvernig greiðslu lífeyris er háttað er bara ekki sami hluturinn. Þessi eini hópur sér engan ávinning á því að afla sér minnstu mögulegu tekna og það er ekki réttlátt. Enginn annar hópur á landinu þarf að þola slíka 100% „skattlagningu“ á hverja krónu. Ég bara skil ekki hvernig stjórnarþingmenn gátu réttlætt það að fresta þessari sjálfsögðu réttarbót enn einu sinni. Helga Vala Helgadóttir Pistill Hvað er króna á móti krónu? Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Snorri Másson snorrim@mbl.is Af þeim vinnuslysum semtilkynnt eru til Vinnu-eftirlitsins verða flest hjáþeim sem starfa á vegum opinberrar þjónustu og stjórnsýslu. Þetta er breyting frá því sem áður var, því vinnuslys hafa í gegnum tíð- ina verið algengust í mannvirkja- geiranum og iðnaðargreinum. Með opinberri þjónustu er m.a. átt við heilbrigðis- og velferðarkerfið en til opinberrar stjórnsýslu teljast m.a. lögreglan, tollurinn og stofnanir þeim skyldar. Í nýrri ársskýrslu Vinnueftirlitsins 2017 er varað sér- staklega við þessari þróun. Fjöldi vinnuslysa í einkageiran- um er svipaður og síðustu ár. Til- kynningar um 1.987 vinnuslys bár- ust Vinnueftirlitinu á árinu 2017 fyrir vinnslu skýrslunnar. 2016 voru þau 2.096. 1.296 slys í skýrslunni urðu á körlum en 691 á konum. Þetta eru svipuð hlutföll og síðustu ár. 58 börn slösuðust við vinnu og þrír létust í vinnuslysum, allt karl- ar. Vinnueftirlitinu berast ekki til- kynningar um öll slys, heldur fyrst og fremst þau sem hafa áhrif á vinnu, með því til dæmis að valda fjarveru viðkomandi starfsmanns. Vinnueftirlitið þarf að ganga á eftir fyrirtækjum svo að þau til- kynni vinnuslys og atvinnusjúk- dóma. Í þeim tilgangi hefur eftirlitið borið saman tilkynningar frá Sjúkratryggingum og gögn frá at- vinnurekendum til að kanna mis- ræmi þar á milli. 15 tilfelli af at- vinnusjúkdómum voru tilkynnt árið 2017 en í skýrslunni segir að ljóst sé að þau voru miklu fleiri. Mjög alvarlegt mál Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins, segist í samtali við Morgunblaðið hafa áhyggjur af þró- uninni sem gætir hjá hinu opinbera. Hann segir tölurnar sem birtast í skýrslu sem þessari lýsandi fyrir innviðina í kerfinu. Mikill fjöldi vinnuslysa hjá hinu opinbera skýrist þannig einfaldlega af því að í þess- um kerfum leynist margar hættur og slysahættan sé óvenjumikil. Kristinn kallar eftir að opinber fyrirtæki lyfti grettistaki í þessum efnum. „Okkur hjá eftirlitinu finnst mjög erfitt að horfa upp á slys verða hjá svona stórum vinnu- veitendum,“ seg- ir hann. Ríkið verði að ganga á undan með góðu fordæmi í vinnu- staðaöryggi. „Löggjafinn gerir kröfu um að áhætta sé greind til að lágmarka slysahættu. Maður myndi ætla að ríkið sem stærsti vinnuveitandinn hefði möguleika á að fylgja þessum tilmælum sínum eftir sjálft. Þetta er mjög alvarlegt,“ bætir Kristinn við. Stóru einkareknu fyrirtækin hafa bætt aðbúnað á síðustu áratug- um en ríkið hefur setið eftir í þeirri þróun. „Ein af stóru áskorunum okkar er að fá stjórnvöld til að taka til í eigin ranni og vera til fyrir- myndar. Það er erfiðara fyrir minni fyrirtæki að gera það,“ segir Krist- inn. Hann bætir við að þrátt fyrir að það erfitt sé fyrir lítil fyrirtæki að mæta öllum öryggiskröfum gæti víða lofsverðrar viðleitni í þeim efn- um. „Við kunnum að mörgu leyti vel að sinna eftirliti með mann- virkjagerð og iðnaði en við verðum að læra að takast á við þessa aukn- ingu í opinberum störfum. Okkur vantar þróaðri aðferðafræði á þeim sviðum,“ segir Kristinn. Víða er- lendis sé verið að þróa aðferðir til þess að mæta þessari aukningu og að mati Kristins þarf Ísland að fylgja þeirri þróun. Vinnuslys hvað tíðust hjá hinu opinbera Fjöldi tilkynntra vinnuslysa 2017 250 200 150 100 50 0 Karlar Konur 0-18 19-24 25-29 30-34 35-39 40-44 45-49 50-54 55-59 60-64 65-69 70+ ára Heimild: Vinnueftirlitið 19 39 89 185 75 177 62 150 62 136 66 121 56 105 71 120 89 102 72 106 28 52 3 2 Tilkynnt beinbrot Fjöldi eftir aldurshópum Heildarfjöldi slysa Alls 343 Alls 1.987 1.296214 129 691 Kristinn Tómasson Í skýrslunni er talað um „slá- andi“ hlutfall útlendinga sem lenda í vinnuslysum: 23% karla sem slasast við vinnu eru með erlent ríkisfang. Til saman- burðar eru innflytjendur 10,6% íbúa hérlendis skv. tölum Hag- stofunnar. Vinnuöryggi erlends starfskrafts er því umtalsvert lakara en íslensks. Flestir líkamsáverkar sem hlutust af vinnuslysum voru tognanir eða liðhlaup, 683 tals- ins. Næst á eftir var útvortis blæðing og svo beinbrot. Árið 2017 misstu 23 karl- menn líkamshluta í vinnuslys- um en engin kona. Þá voru 542 slys skilgreind sem „högg“, 443 „fall á jafnsléttu“, 254 „fall af hærri stað“ og 234 slys orsök- uðust loks af „beittum hlut“. Í nærri öllum tilvikum urðu karlar fyrir fleiri vinnuslysum en konur. Meðal undantekninga var flokkurinn opinber þjónusta. Í þeim flokki eru heilbrigðis- stofnanir. Þar urðu 231 slys á konum en 58 á körlum. Sláandi hlutfall útlendinga ÝMISLEGT SEM VELDUR SLYSUM Á VINNUSTAÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.