Morgunblaðið - 26.11.2018, Side 17

Morgunblaðið - 26.11.2018, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2018 Vetrarstemning Hún var dýrleg fegurðin sem blasti við í ljósaskiptunum í gær í Heiðmörk, þar sem ský og tré spegluðust í vatninu. Bjart var í gær yfir borginni og glaðnaði um leið yfir fólki. Eggert Árið 2018 er senn lið- ið á enda. Árið sem ís- lenska fullveldið átti hundrað ára afmæli. Allt árið hefur íslenska þjóðin haldið upp á af- mælið með ýmsum hætti. Alþingi skipaði nefnd í árslok 2016 til að skipuleggja hátíða- höldin að undanteknum fundi á Þingvöllum í júlí sem Alþingi skipulagði sjálft og dagskrá 1. desember í Hörpu sem forsætisráðuneytið stend- ur að. Starf nefndarinnar hefur frá fyrsta degi gengið afar vel og öll mál hafa verið afgreidd af fagmennsku og í góðu samkomulagi. Afmælisnefndin kom að rúmlega hundr- að atburðum með ein- um eða öðrum hætti. Nefndin kom að undir- búningi á hátíðarútgáfu Íslendingasagna ásamt fræðiritum um sjálf- stæðisbaráttuna og að- draganda sambands- lagasamningsins. Nefndin veitti styrki til um eitt hundrað verk- efna eða viðburða af ýmsum toga sem áttu sér stað hvarvetna um landið. Nefndin var auk þess í samstarfi við fyrirtæki og sam- tök. Vegna þess samstarfs gerði Landssamband Bakarameistara sér- staka fullveldisköku, Icelandair mál- aði eina vél sína í fánalitunum og merkti afmælinu og MS skreytti mjólkurfernur með ýmsum fróðleik um árið 1918 nú í aðdraganda jóla. Viðburðirnir sem nutu styrkja af hálfu nefndarinnar voru af ýmsum toga allt frá stórtónleikum og yfir- gripsmiklum sýningum til málstofa, minni sýninga og annarra atburða. Að auki voru á dagskrá nær fjögur hundruð viðburðir út um allt land sem endurspegla sögu og menningu byggðanna sprottnir af hugmyndum og áhuga heimamanna. Ekki má gleyma myndarlegri þátttöku RUV sem unnið hefur bæði mynd og hljóð- efni sem flutt hefur verið allt afmæl- isárið. Vert er að þakka hér sér- staklega öllum þeim sem komu að gerð og flutningi viðburðanna svo og þeim fjölda fólks sem hefur sótt þá. En hátíðinni er langt frá því lokið. Sýningin Lífsblómið stendur í Lista- safni Íslands til 16. desember og vil ég hvetja alla til að sjá hana. Sýningin er áhrifamikil og þar gefur að líta af- ar fágæt handrit sem frændur okkar Danir hafa léð til sýningarinnar. Einnig er rétt að benda á að núna síð- ustu dagana í nóvember til og með 1. desember og fram í desembermánuð verða rúmlega 80 atburðir á dagskrá af ýmsum toga út um allt land. Dag- skrá mun standa yfir allan daginn 1. desember víða um land. Alþingi verð- ur öllum opið milli kl. 13 og 18 á af- mælisdaginn og munu þingmenn og starfsfólk þingsins taka á móti gest- um. Hátíðardagskrá verður í Hörpu að kvöldi 1. desember og stóð lands- mönnum til boða að verða sér úti um miða á dagskrána meðan aðsókn leyfði en dagskráin verður einnig send út beint í sjónvarpi. Hægt er að að fletta upp öllum viðburðum á dag- skránni á heimasíðu nefndarinnar: fullveldi1918.is. Að lokum er rétt að geta þess að nú liggur fyrir Alþingi frumvarp Miðflokksins um að 1. des- ember verði framvegis almennur frí- dagur. Það væri viðeigandi endir á af- mælisárinu ef það yrði samþykkt svo að þessi merkisdagur fái á nýjan leik þann sess sem hann verðskuldar. Eftir Þorstein Sæmundsson » Vert er að þakka hér sérstaklega öllum þeim sem komu að gerð og flutningi viðburð- anna svo og þeim sem hafa sótt þá. Þorsteinn Sæmundsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins og á sæti í nefnd um fullveldisafmælið. Íslenskt fullveldi í hundrað ár Við Íslendingar telj- um okkur búa við það sem við köllum lýðræð- islegt stjórnskipulag. Í því felst einkum að al- menningur skuli með reglubundnu millibili í almennum kosningum velja þá sem eiga að taka ákvarðanir um meðferð ríkisvalds. Það er líka þýðingar- mikið meginatriði í stjórnkerfinu að ríkisvaldinu sé skipt milli þriggja valdþátta, löggjafar- valds, framkvæmdavalds og dóms- valds. Með löggjafarvaldið fara al- þingismenn, sem reglulega þurfa að sækja umboð til þjóðarinnar. Þeir setja lögin. Með framkvæmdavaldið fara ráðherrar sem fá umboð frá Al- þingi. Það umboð er tekið til endur- skoðunar ekki sjaldnar en eftir hverj- ar kosningar. Þeir sækja því líka umboð sitt með óbeinum hætti til þjóðarinnar. Þriðji valdþátturinn er í höndum dómara. Þeir eru skipaðir til aldursmarka af handhöfum fram- kvæmdavalds. Eftir að þeir eru skip- aðir í upphafi þurfa þeir ekki að standa neinum reikningsskil gjörða sinna við meðferðina á því valdi sem þeim er fengið. Umboð þeirra varir meðan þeim endist aldur og nánast engin leið er að koma þeim úr emb- ættum sínum. Hvers vegna er málum svona hátt- að um handhafa dómsvaldsins? Það er af þeirri ástæðu að þeir fara ekki með vald til að láta persónulegar skoðanir eða stjórn- málaskoðanir ráða gjörðum sínum. Þeir eiga bara að dæma eftir lögunum, sem þeir eiga engan þátt í að setja. Persónulegar skoðanir eiga þar engin áhrif að hafa. Dómsniðurstaðan á að verða hin sama, hvort sem dómarinn er hægri eða vinstrisinn- aður í stjórnmálum. Einfalt og fagurt, eða hvað? Seilst til aukinna valda Í byrjun hafa sjálfsagt þeir sem fyrst voru skipaðir til að fara með dómsvaldið gert sér þetta ljóst. Þeir hafa líklega skilið að þeim bar fyrst og fremst sjálfum skylda til að virða valdmörk sín, þó að enginn refsivönd- ur vofði yfir þeim ef þeir vikju af þeim vegi dyggðanna. Í seinni tíð hefur þetta breyst; líklega má segja að það hafi gjörbreyst. Til sögunnar komu kenningar um að dómendur færu með vald til að setja nýjar lagareglur og breyta þeim sem fyrir voru. Í þessu fólst ráðagerð um að dómstólarnir ættu að fara með pólitískt vald, þó að enginn hefði nokkurn tíma falið þeim meðferð þess og þeir þyrftu aldrei að standa nein- um skil á henni. Á síðari árum hefur svo gætt vax- andi tilhneigingar til að fela dómurum meðferð á valdþáttum sem tilheyra framkvæmdavaldi. Til þess heyrir til dæmis vald til að hafa afskipti af vali á nýjum dómurum. Er meira að segja svo að sjá að handhöfum dómsvalds- ins þyki afar þýðingarmikið að hafa þetta vald í sínum höndum því þeir hafa sýnt sig í að vera tilbúnir að mis- fara með dómsvald sitt til að hafa bet- ur í átökum við handhafa annarra valdþátta við ákvarðanir um þetta. Tveir dómar Dæmi um hið síðastnefnda eru tveir dómar Hæstaréttar frá desem- ber 2017. Þar var tveimur lögfræð- ingum, sem sótt höfðu um embætti við hinn nýstofnaða Landsrétt, en ekki fengið, dæmdar miskabætur af því tilefni. Það breytir engu við mat á þessum dómum að þeir hafi verið kveðnir upp af fjórum tilkvöddum lögfræðingum ásamt forseta Hæsta- réttar. Þessir „tilkvaðningar“ voru auðvitað sérvaldir til að tryggja að dómarnir yrðu dómaraelítunni þókn- anlegir. Það er undarlegt að bera þessa dóma saman við dóminn um daginn þar sem kennara, sem rekinn var að ólögum úr starfi fyrir að hafa skoðanir utan skólans, var synjað um miskabætur. Ég tel þessa dóma frá desember í fyrra skuggaleg dæmi um misbeit- ingu dómsvaldsins. Þetta var einfald- lega hreinn viðsnúningur á laga- reglum sem framinn var í þágu viðleitninnar til að tryggja að valdið til að velja nýja dómara skyldi vera í höndum dómaraelítunnar. Öllum, sem kunna að lesa,ætti að vera ljóst að bæði ráðherrann og Alþingi, sem valdi þá sem skipaðir voru, fóru al- gerlega eftir lagafyrirmælum í bráða- birgðaákvæði laganna um dómstóla, við skipun dómara í Landsrétt. Fyrir utan aðra vitleysu sem hér var á ferð- inni var lagt upp með að excel-skjalið sem notað var til að raða umsækj- endum upp hefði inni að halda afger- andi niðurstöðu um hverja skipa skyldi í dómaraembættin 15 sem um ræddi. Fyrst átti ekki að birta skjalið. Eftir að það fékkst birt varð ljóst að það hafði inni að halda val á 15 um- sækjendum á forsendum sem voru svo vitlausar að engu tali tók. Nefnd- in hafði hreinlega ekki lagt mat á raunverulega hæfni umsækjenda eins og henni bar að gera. Fyrir utan þetta hafði þessari nefnd ekki verið falið að velja þá 15 sem skipa skyldi, eins og hún virðist hafa talið. Æðstir án umboðs og ábyrgðar Nefna má marga dóma Hæsta- réttar Íslands á síðustu árum, þar sem rétturinn annaðhvort tekur sér vald til að breyta lögum eða setja nýj- ar lagareglur. Eftir að réttinum hefur verið fengið aukið vald til að taka ákvarðanir sem ættu alfarið að heyra undir handhafa framkvæmdavalds, kemur svo enn fremur í ljós að dóm- sýsla hans hættir hreinlega að eiga eitthvað skylt við hlutlausa beitingu lagareglna og tekur einfaldlega að einkennast af átökum við aðra hand- hafa ríkisvalds. Niðurstaðan blasir við: Í Hæsta- rétti sitja embættismenn sem hafa tekið sér vald langt umfram það sem stjórnskipun okkar ráðgerir. Þeir eru í þokkabót með öllu lausir við ábyrgð á meðferð þessa valds. Þó að þeir breyti lögum, sem Alþingi hefur sett eða setji nýjar lagareglur getur eng- inn gert neitt. Heldur ekki þegar þeir misbeita dómsvaldi sínu til að vernda stjórnsýsluvald sem þeir vilja hafa en ættu ekki að hafa. Í mínum huga er þetta stærsta vandamálið sem við er að eiga á Ís- landi nútímans og varðar grundvall- aratriði um meðferð og skiptingu rík- isvalds. Ekkert minna. Stjórnmálamenn í landinu láta sig þetta engu skipta. Líklega er ástæða þess sú að þeir viti ekki sitt rjúkandi ráð. Þeir viti hreinlega ekki hvernig eigi að taka á þessum djúprista vanda. Niðurstaðan er sú að æðsta ríkis- valdið á Íslandi hvílir í höndum lög- fræðinga sem enginn hefur nokkurn tíma kosið til að fara með slíkt vald og enga ábyrgð bera á meðferð þess. Og þjóðin situr undir þessu þegjandi og barin. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Í Hæstarétti sitja embættismenn sem hafa tekið sér vald langt umfram það sem stjórn- skipun okkar ráðgerir. Þeir eru í þokkabót með öllu lausir við ábyrgð á meðferð þessa valds. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Ósnertanlegt yfirvald

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.