Morgunblaðið - 26.11.2018, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2018 21
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9.
Handavinna með leiðb. kl. 12:30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13.
Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl.
11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni.
Allir velkomnir. s: 535-2700.
Boðinn Félagsvist kl. 13.00. Leikfimi kl. 10.30. Myndlist kl. 12.30.
Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10:30. Leikfimi kl. 12:50-13:30. Samprjón kl. 13:30-14:30.
Bútasaumshópur kl. 13:00-16:00. Opið kaffihús kl. 14:30-15.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl.10.10. Opin hand
verkstofa kl.13.00. Boccia kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi 9-10, Opin handverkstofa
9-12, Bókabíllinn á svæðinu 13:10-13:30, Handaband - skapandi
vinnustofa með leiðbeinendum 13-15:30, Söngstund við píanóið
13:30-14:15, Frjáls spilamennska 13-16:30. Verið velkomin á Vitatorg,
Lindargötu 59, sími 411-9450.
Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7:30 /8:15 /15:00. Kvennaleikf. Sjál. kl.
9:30. Liðstyrkur . Sjál kl. 10:15. Kvennaleikf. Ásg. Kl.11:15.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00.
Saumanámskeið í Jónshúsi kl: 14:10. Smiðja Kirkjuhvoli opin kl. 13:00
– 16:00 allir velkomnir. Zumba í Kirkjuhvoli kl: 16:15
Gerðuberg Opin Handavinnustofan kl 08:30-16:00. Útskurður
m/leiðb. kl. 09:00-16:00. Leikfimi maríu kl. 10:00-10:45. Leikfimi Helgu
Ben 11:00-11:30.. Kóræfing kl. 13:00-15:00. Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.00 Boccia, kl. 9.30
Postulínsmálun, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta.
Gullsmári Postulínshópur kl 9.00 Jóga kl 9.30 Handavinna/ Bridge kl
13.00 Jóga kl 17.00 Félagsvist kl 20.00
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9 – 14. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund
kl 13-14. Jóga kl. 14.15 – 15.15.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga í Borgum kl 9, ganga frá Grafar-
vogskirkju, Borgum og inni í Egilhöll kl. 10. Dans í Borgum kl. 11
viljum gjarnan frá fleiri í hópinn því dansgleði hressir og kætir.
Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum. Félagsvist kl. 13 í Borgum og
tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag og kóræfing Korpusystkina
kl. 16 í Borgum.
Seltjarnarnes Gler á neðri hæð félagsheimilisins við Suðurströnd kl.
9.00 og 13.00. Námskeið í leir fellur niður í dag. Billjard í Selinu kl.
10.00. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu í
salnum á Skólabraut kl. 11.00. Handavinna Skólabraut kl. 13.00. Vatns-
leikfimi i sundlauginni kl. 18.40.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Helgistund kl.
10.10. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn
daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og
meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4, Zumba Gold námskeið fyrir styttra komna/byrjen-
dur kl. 9.45..ZUMBA Gold framhald kl. 10.30. STERK OG LIÐUG
leikfimi kl. 11.30. Tanya leiðir. Bókmenntir fimmtudag 28. nóvember
Bjarni Harðarson heldur fyrirlestur um þessa sögulegu skáldsögu
sína sem gerist á 18. öld og fjallar um líf alþýðu og ýmsa áþján sem
landsetar biskupsstólsins í Skálholti þurfa að undirgangast, umsjón
Jónína Guðmundsdóttir
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
LOK
Á POTTA
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Bátar
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Þið hjónin voruð einstaklega
samheldin og oft þegar við kom-
um til ykkar á Mávahraunið
voruð þið saman að elda eða
vinna úti í fallega garðinum
ykkar.
Það var alltaf stutt í stríðnina
og taldir þú okkur Reykvíking-
unum trú um að Hafnarfjörður
væri nafli alheimsins enda mikill
gaflari þar á ferð.
Hvíldu í friði.
Elsku Maggý, Sturla, Hildur
og börn. Minningar um góðan
mann lifa í hjarta okkar allra.
Ingibjörg og Henrik
Erlendsbörn.
Hún var ekki gömul nýstúd-
ínan þegar hún hóf störf hjá
Tollstjóra árið 1988, en þar
starfaði hún þar til hún eign-
aðist dóttur síðla næsta árs.
Það var ólíkt því sem stúd-
ínan, ég, hafði áður upplifað að
starfa innan tollsins á skipa-
vaktinni umvafin reynsluboltum
á öllum aldri. Það leið ekki lang-
ur tími þar til Egill, sem var
vaktstjóri á skipavaktinni, hafði
upp á mér og bauð mig vel-
komna. Urðu þar fagnaðarfund-
ir. Við Egill vorum nefnilega
tengd, en við Maggý, konan
hans, vorum bræðrabörn.
Það gerðist mjög oft að ég
lenti á vaktinni hjá Agli og voru
það mikil forréttindi að fá að
starfa með honum. Það færði
manni bæði visst öryggi en líka
nær föðurfjölskyldunni sem var
frá Vestmannaeyjum. Ég man
hvað Egill talaði alltaf fallega
um hana Maggý sína og hvað
hann var skotinn í henni. Var
enda líka mjög stolt af því þegar
Egill sagði mér að ég minnti
hann á Maggý og honum þætti
við talsvert líkar.
Eitthvað hlaut að vera til í
þessu því aðrir samstarfsfélagar
okkar sögðu slíkt hið sama. Eg-
ill var líka afar stoltur af einka-
syni þeirra hjóna og sagði hann
mér margar fallegar sögur af
honum.
Þetta var ekki langur tími hjá
okkur saman í tollinum, en alltaf
var bæði gaman og gott að hitta
Egil eftir að því samstarfi lauk.
Frá honum stafaði velvild og
væntumþykja og alltaf spurði
hann mig í þaula um mig og
mína og sagði mér tíðindi úr
tollinum allar götur þar til hann
fór á eftirlaun.
Mér finnst leitt að geta ekki
verið á staðnum og kvatt hann
Egil í hinsta sinn, en ég er stödd
hjá dóttur minni erlendis í dag.
Ég votta Maggý frænku
minni, Stulla og öðrum aðstand-
endum mína dýpstu samúð.
Anna Hedvig
Þorsteinsdóttir.
✝ Michael Thom-as Corgan
fæddist 7. júlí 1941.
Hann lést 20. nóv-
ember á sjúkrahúsi
Cape Cod í
Massachusetts í
Bandaríkjunum.
Foreldrar hans
voru Francis Hugh
Corgan og Cather-
ine Sands Corgan.
Corgan lætur
eftir sig eiginkonu
til 33 ára, Sallie K. Riggs, tvær
dætur, Kathleen Catalano-
Corgan, maki Francis Catalano,
sem eiga soninn Roman Hendrix
Catalano, og Jennifer Corgan,
maki Gregory Beauchamp, og
stjúpdæturnar Aja Riggs, maki
Nicola Redfern, og Susan Riggs.
Systkini Corgans eru tvö, bæði á
lífi, systirin Catherine Guinn og
hann í varnarliðinu á Íslandi.
Var hann þá pólitískur ráðgjafi
yfirmanns varnarliðsins og
tengiliður við íslensk stjórnvöld.
Fékk hann þá dálæti á Íslandi og
ræktaði tengslin við landið æ
síðan.
Að loknum ferli sínum í sjó-
hernum lauk hann doktorsnámi
frá Boston University 1991 og
fjallaði doktorsritgerð hans um
samskipti Íslands og Bandaríkj-
anna í kalda stríðinu.
Árið 2001 hlaut Corgan Ful-
bright-styrk í stjórnmálafræði
til að kenna við Háskóla Íslands.
Hann var tíður og vinsæll gestur
við stjórnmálafræðideild og Al-
þjóðamálastofnun Háskóla Ís-
lands síðustu tvo áratugi. Hann
kenndi á námskeiði um alþjóða-
mál, hélt fjölsótta fyrirlestra um
Bandaríkin og leiðbeindi nem-
endum í lokaritgerðum.
Útför Corgans fer fram frá
kirkju heilagrar Elísabetar Set-
on í North Falmouth í dag,
mánudag, 26. nóvember.
bróðirinn Robert
Corgan.
Corgan fæddist í
Pittsburgh í Penn-
sylvaníu. Hann
hafði oft á orði að
hann hefði fæðst
sama dag og
Bandaríkjaher tók
við hlutverki Breta
á Íslandi í síðari
heimsstyrjöld og
það hefði verið til
marks um hvað
koma skyldi.
Corgan lauk BS-prófi í skipa-
verkfræði frá Akademíu banda-
ríska sjóhersins í Annapolis
1963 og MPA-prófi frá Wash-
ington-háskóla 1975. Hann þjón-
aði í sjóhernum í 26 ár, frá 1963
til 1988. Tvisvar gegndi hann
herþjónustu í Víetnam og í upp-
hafi níunda áratugarins var
Sumir Íslandsvinir eru það í
raun og sann. Mike Corgan var
einn þeirra. Hann var hér tíður
gestur, mikill aðdáandi íslenskr-
ar sögu og menningar og skrifaði
merkilega hluti um íslenska ut-
anríkisstefnu og öryggismál.
Mike starfaði í bandaríska
flotanum um árabil. Hann dvaldi
á Keflavíkurflugvelli 1981-82 og
var þar pólitískur ráðgjafi aðmír-
álsins. Í því hlutverki hafði hann
mikil samskipti við íslenska ráða-
menn, embættismenn og fræði-
menn. Hann aflaði sér umfangs-
mikillar þekkingar á innviðum
íslensks samfélags – og hélt því
áfram alla tíð.
Eftir að ferli Mikes í flotanum
lauk 1988 gerðist hann kennari
við einn besta háskóla veraldar,
Boston University, og lauk þaðan
doktorsprófi í alþjóðastjórnmál-
um. Rannsóknir hans beindust
ekki síst að Íslandi og komu m.a.
út á bók árið 2002, „Iceland and
Its Alliances. Security for a
Small State“ heitir hún. Þar er
fjallað um íslensk utanríkis- og
öryggismál – en líka um íslensk
stjórnmál, sögu og menningu.
Sjónum er einkum beint að ní-
unda áratug 20. aldar þegar Ís-
lendingar lögðu aukna áherslu á
upplýsta utanríkisstefnu, rann-
sóknir og virka þátttöku í alþjóð-
legu samstarfi. Þar gegndi ör-
yggismálanefnd mikilvægu hlut-
verki. Í nefndinni áttu sæti
fulltrúar allra þingflokka.
Áhersla var lögð á rannsóknir og
fræðimenn ráðnir til starfa undir
forystu framkvæmdastjóranna,
Gunnars Gunnarssonar og Al-
berts Jónssonar. Nefndin gaf út
mörg fræðirit. Og loksins skap-
aðist vettvangur þar sem áhersla
var lögð á upplýsta umræðu
fræðimanna og stjórnmálamanna
af öllu pólitísku litarafti. Þetta
starf markaði tímamót – eins og
Mike rekur ítarlega í bókinni.
Mike var ástsæll kennari við
Boston University – og Háskóli
Íslands naut líka starfskrafta
hans í tæpa tvo áratugi. Hann
kom hingað flest ár til lengri eða
skemmri dvalar, kenndi nokkur
námskeið í stjórnmálafræði við
skólann og hélt fjölmarga opin-
bera fyrirlestra, m.a. um banda-
rísk stjórnmál og kosningar. Allt-
af upplýsandi – alltaf skemmti-
legur.
Mike og Sallie kona hans
bjuggu í fallegu húsi í litlum bæ á
Cape Cod. Þangað var gott að
koma og njóta gestrisni þeirra
hjóna. Síðast kom ég til þeirra
vorið 2016 þegar ég var gesta-
fræðimaður við Harvard, þá í
fylgd með Sigrúnu dóttur minni,
sem á þeim tíma kenndi við Bost-
on University. Það er minnisstæð
heimsókn. Ekki var síður gefandi
að fá þau í matarboð í Barmahlíð-
ina.
Mike Corgan var víðsýnn og
frjálslyndur bandarískur
menntamaður af bestu tegund.
Hann var hlýr og gaf mikið af
sér. Sjaldan varð honum orða
vant – og hafði ríka kímnigáfu.
Alltaf hófsamur í dómum og vildi
jafnan hafa það er sannara reyn-
ist.
Fjölmargir íslenskir vinir
sakna nú þessa góða félaga. Sal-
lie fær hlýja strauma yfir hafið.
Ólafur Þ. Harðarson.
Michael Corgan var góður vin-
ur og traustur. Leiðir okkar lágu
fyrst saman þegar ég var við nám
í Boston fyrir tæpum þremur
áratugum. Hann kenndi við Bost-
on University og var að reka
smiðshöggið á doktorsritgerðina
sína, sem fjallaði um samskipti
Íslands og Bandaríkjanna með
áherslu á níunda áratug 20. ald-
ar.
Áhugi hans á Íslandi kviknaði
þegar hann kom hingað á vegum
sjóhersins og var pólitískur ráð-
gjafi yfirmanns varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Hann gerði
sér far um að kynnast landi og
þjóð og hafði oft á orði að öðrum
yfirmönnum hefði þótt hann full
áhugasamur, jafnvel litið svo á að
hann hefði gengið innfæddum á
hönd.
Hann nefndi einnig oft að
hann hefði fæðst sama dag og
Bandaríkjaher leysti breska her-
inn af hólmi á Íslandi í síðari
heimsstyrjöld, 7. júlí 1941. Það
hlyti að hafa verið fyrirboði.
Ísland átti eftir að verða of-
arlega á baugi í rannsóknum
hans og skrifum, hann kenndi við
Háskóla Íslands og kom nánast
árlega til landsins til að halda
fyrirlestra, hitta vini og halda sér
við í fræðunum.
Mike var fróður, víðlesinn og
stálminnugur. Nánast var sama
hvert efnið var, aldrei kom mað-
ur að tómum kofanum hjá hon-
um. Hann vissi að lífið er ekki
svart og hvítt, heldur fullt af blæ-
brigðum og lagði sig fram um að
skoða hlutina frá öllum hliðum.
Þá skemmdi gott skopskyn ekki
fyrir. Fyrir vikið var hann líka
vinsæll kennari og vel látinn,
bæði við Boston University þar
sem hann mun hafa kennt 12
þúsund nemendum þegar allt er
talið og við Háskóla Íslands.
Sá eiginleiki hans að skoða
mál frá öllum hliðum kom skýrt
fram í sambandi við Ísland. Gott
dæmi um það er grein, sem hann
skrifaði í Morgunblaðið sumarið
2003 vegna þess að honum hugn-
aðist ekki fyrirætlanir Banda-
ríkjamanna um að kalla varnar-
liðið einhliða heim án þess að láta
sig afstöðu íslenskra stjórnvalda
varða.
„Hér liggur meira við en það
þunga högg, sem orðstír og trú-
verðugleika okkar mörgu vina á
Íslandi yrði greitt. Þetta snýst
ekki aðeins um það að verið er að
virða að vettugi þarfir dyggs en
ef til vill of lítils bandamanns.
Hvaða skilaboð erum við að gefa
um hvað það felur í sér að vera
bandamaður Bandaríkjamanna?“
skrifaði hann og fór afstaða hans
ekki á milli mála.
Mike var mikill fjölskyldumað-
ur og hann og Sallie, kona hans
til 33 ára, voru eins og eitt. Þar
kom Ísland aftur við sögu. Hann
bað hennar á tindi Valahnúks í
Þórsmörk. Þau tóku á móti okkur
fjölskyldunni með kostum og
kynjum á myndarlegu heimili
sínu í North Falmouth á Cape
Cod og kappkostuðu ekki síst að
láta börnunum okkar Stefaníu
líða vel. Þau hafa þekkt hann frá
því áður en þau muna eftir sér og
munu sakna kærs vinar.
Væntumþykjan leyndi sér
heldur ekki þegar hann talaði um
dætur sínar og dætur Salliear,
hvað þá þegar dóttursoninn bar á
góma og fyrstu skref hans í
hafnabolta.
Mikes mun verða sárt saknað
og Sallie og fjölskyldu hans send-
um við kærar samúðarkveðjur.
Karl Blöndal.
Michael T. Corgan
Hirðingjarnir tóku til starfa á
Höfn fór Eybjörg Ásta þangað
reglulega og það brást ekki að
hún fann alltaf einhverja fallega
hluti til að setja í hillu eða
hengja á vegg.
Við Eybjörg Ásta fórum í
nokkrar ferðir milli landshluta
og var ómetanlegt að kynnast
henni í þeim ferðum, hún hlust-
aði á diska og söng hástöfum
með, brosti hringinn og naut sín
í botn því hún elskaði að sitja í
bíl.
Eybjörg Ásta átti góða vini á
Höfn, Helga heitinn, Ingibjörgu,
Stefaníu og fjölskyldu, sem létu
sér annt um hana og buðu henni
til dæmis að vera hjá sér um jól
og áramót og færi ég þeim kær-
ar þakkir fyrir.
Ég sendi samúðarkveðjur til
Eyju, Sæmundar og annarra að-
standenda Eybjargar Ástu og
vil þakka starfsfólki heimaþjón-
ustudeildar fyrir óeigingjarnt
starf í hennar þágu.
Ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast Eybjörgu
Ástu, þessari litríku og elsku-
legu persónu sem átti í manni
hvert bein, og bið góðan Guð að
geyma hana.
Maren Ósk.
Mig langar að minnast hennar
Dódóar með örfáum orðum þó að
það sé langt um liðið frá því að ég
hitti hana síðast. Dódó var ná-
granni minn þegar ég var barn.
Hún var góður nágranni, sér-
staklega þegar manni leiddist því
Guðríður
Jónsdóttir
✝ Guðríður Jóns-dóttir, alltaf
kölluð Dódó, fædd-
ist 21. október
1921. Hún lést 10.
október 2018.
Dódó á tvo eftir-
lifandi bræður, þá
Svein Jónsson og
Gunnar Jónsson.
Útför Dódóar fór
fram 17. október
2018.
alltaf nennti hún að
fá mann í heimsókn
og spjalla um dag-
inn og veginn. Ótal
sinnum dinglaði ég
hjá henni bjöllunni
og vildi kíkja í heim-
sókn, fá að teikna
inni á skrifstofu hjá
henni, fylgjast með
henni í eldhúsinu og
spyrja hana út í hitt
og þetta. Eflaust
hefur spurningaflóðið reynt á
þolinmæði hennar en alltaf tók
hún aftur vel á móti manni. Síðan
ég hitti Dódó síðast þá hef ég
hugsað til hennar reglulega og
heimsóknanna skemmtilegu.
Blessuð sé minning hennar.
Guðný Hrönn Antonsdóttir.