Morgunblaðið - 26.11.2018, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2018
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
ICQC 2018-20
» Hin árvissa Bóka-messa í bókmennta-
borg fór fram um
helgina í Hörpu en sú
fyrsta var haldin árið
2011. Frítt var inn á alla
viðburði messunnar sem
fór fram á jarðhæð
Hörpu, í Flóa og sölun-
um Ríma A og B þar
sem bókmenntadagskrá
var báða dagana. Meðal
viðburða voru sögu-
stundir fyrir börn á öll-
um aldri og barna- og
ungmennabókahlaðborð
með sýnishornum af
nýjum bókum. Höfund-
ar veittu áritanir og út-
gefendur veittu góð ráð
þeim sem voru að leita
sér að góðum bókum til
að lesa eða gefa.
Líf og fjör í Hörpu um helgina á Bókamessu í bókmenntaborg
Morgunblaðið/Eggert
Gaman með sveinka Börnin skemmtu sér vel með jólasveininum sem sýndi þeim áhugaverðar bækur.
Ungir og upprennandi pennar Birkir Blær Ingólfsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og
Stjörnu-Sævar Helgi Bragason senda öll frá sér bækur um þessar mundir.
Kraftmikil Hana Ronju
ræningjadóttur skortir
ekki orku og hér bregður
hún á leik með börnunum á
Bókamessunni. Salka Sól
fer með hlutverk Ronju í
uppsetningu Þjóðleikhúss-
ins nú í desember.
Glatt á hjalla Þessi þrjú eru öll með bækur á þessu ári, Einar Kárason, Stefán Máni og
Júlía Margrét Einarsdóttir Kárasonar. Rithöfundaþrenna mætti kalla þetta tríó.
Félag rétthafa í sjónvarps- og kvik-
myndaiðnaði, FRÍSK, sendi frá sér
tilkynningu í liðinni viku þar sem
ítrekaðar eru óskir félagsmanna um
að hið opinbera leggi íslenskunni lið í
textun og talsetningu á erlendu efni.
Félagið fagnar einni af breytingar-
tillögum Samfylkingarinnar við fjár-
lagafrumvarpið um aukið fjármagn
upp á 300 milljónir króna í svokall-
aðan sjónvarpssjóð sem tekur til
leikins sjónvarpsefnis undir Kvik-
myndasjóði. Segir í tilkynningunni
að hið aukna framlag sé eitt af bar-
áttumálum FRÍSK á undanförnum
árum enda sýni rannsóknir að hver
króna frá ríkinu í framleiðslu sjón-
varps- og kvikmyndaefnis skili sér
tvöfalt til baka.
„Í vikunni greiða þingmenn at-
kvæði um fjárlagafrumvarpið og vill
FRÍSK minna þá á að eitt af bar-
áttumálum félagsins er að ríkið
hlaupi undir bagga með íslenskum
sjónvarpsstöðvum og kvikmynda-
húsum í þeim tilgangi að leggja ís-
lenskunni lið. Íslensk kvikmyndahús
og sjónvarpsstöðvar eyða tæplega
500 milljónum króna á ári í talsetn-
ingu og textun á erlendu efni á ís-
lensku, auk þess að framleiða og
sýna íslenskt efni. Kostnaðurinn við
talsetningu og textun leggst alfarið á
félagsmenn FRÍSK án stuðnings frá
ríkinu. FRÍSK vill því ítreka þá ósk
sína við alþingismenn að þessi
kostnaður verði greiddur af ríkinu
sem styrkur til þeirra aðila sem tal-
setja og texta efni. Nýlegar rann-
sóknir sýna að 83% landsmanna
telja mikilvægt að erlent sjónvarps-
og kvikmyndaefni sé talsett eða
textað,“ segir í tilkynningunni og
undir hana ritar formaður FRÍSK,
Hallgrímur Kristinsson, en í félag-
inu eru allar helstu sjónvarpsstöðvar
landsins, rétthafar efnis og kvik-
myndahúsin.
Formaður Hallgrímur Kristins-
son, formaður FRÍSK.
Hið opinbera styrki
textun og talsetningu