Morgunblaðið - 26.11.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.11.2018, Blaðsíða 32
Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands, flytur erindi í Borgarbókasafninu í Spönginni í dag kl. 17.15 um Grýlu og hennar hsyki. Hverra manna er Grýla? spyr Terry en rannsóknir sýna að Grýla á sér ekki aðeins ættingja hér á landi heldur einnig annars staðar á Norðurlöndum, í Þýskalandi, Aust- urríki og á Írlandi. Flytur erindi um Grýlu og allt hennar hyski MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 330. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Keflavík komst í efsta sæti Dom- inos-deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöld þegar liðið vann stórsigur á Snæfelli, 82:55, á heimavelli í toppslag níundu umferðar deildar- innar. Snæfell var í efsta sæti fyrir leikinn en veitti litla mótspyrnu þegar á hólminn var komið. Helena Sverrisdóttir var í sigurliði Vals í sín- um fyrsta leik gegn Haukum. »4-5 Einstefna í topp- slagnum í Keflavík ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Stjarnan vann fjórða leikinn í röð í úrvalsdeild karla, Olís-deildinni, í handknattleik í gærkvöldi þegar hún vann ÍR með sjö marka mun á heimavelli, 34:27. Þar með hafa Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar á skömmum tíma færst af botni deildarinnar og upp í sjötta sæti og eru aðeins einu stigi á eftir Aftureldingu sem tapaði fyrir Fram í gær, 30:26. Liðsmenn Akureyrar eru heldur ekki af baki dottnir. Þeir skelltu FH- ingum í Íþrótta- höllinni á Akureyri. »4-5 Fjórði sigur Stjörnu- manna í röð í deildinni BORGHESE Model 2826 L 220 cm Leður ct. 15 Verð 489.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla JEREMY Model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 430.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 585.000,- ETOILE Model 2623 L 230 cm Leður ct. 25 Verð 485.000,- ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,- MENTORE Model 3052 L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 315.000,- L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 345.000,- Snorri Másson snorrim@mbl.is Töfrabrögð og læknavísindi eru tvær aðskildar listir en í sömu andrá tvær hliðar á sama peningi. Samruna listanna tveggja gætir a.m.k. hjá eina starfandi töfralækni landsins, Stefáni Árna H. Gudjohnsen. Hann lék listir sínar fyrir gesti og gangandi á þingi Hins íslenska töframannagildis í gær í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Stefán er að læra bæklunarskurð- lækningar og þannig leiddist hann út í töfrabrögð. „Þetta byrjaði sem æf- ing í fingrafimi hjá mér,“ útskýrði Stefán fyrir blaðamanni Morgun- blaðsins. Þannig kviknaði áhugi Stef- áns á töfrum og nú hefur hann um árabil stundað töfrabrögð meðfram læknisfræðinámi. Á vettvangi var boðið upp á að láta saga sig í sundur með þar til gerðum búnaði. Hlutverk töfralæknis liggur því í augum uppi: að setja fólkið aftur saman. Það er snúin kúnst að taka fólk í sundur en þeim mun snúnara að koma því í sama horf. „Að setja fólk saman er náttúrlega það sem ég geri dagsdaglega í vinnunni,“ sagði Stef- án. „Þar kem ég því sterkastur inn.“ Þannig nýtist læknismenntunin Stef- áni í starfi og leik- og sjónhverfing- arnar verða þeim mun magnaðri. Vinsældum töfralækna meðal Ís- lendinga hefur hrakað á síðari öldum og munu alvarlegri læknavísindi hafa tekið að mestu við keflinu af töfra- læknum. Stefán mun vera sá eini sem ber þetta nafn með rentu hér á landi en hann vonast til þess að fjölgi í röð- um töfralækna á næstu misserum. „Ég veit um þónokkra sem eru áhugasamir,“ sagði Stefán og vísaði þar til samnemenda sinna í skurð- lækningum. „Þá hef ég verið að hvetja til þátttöku í félaginu.“ Til þess að starfa formlega sem töfra- læknir, að sögn Stefáns, þarf að vera læknir og helst að vera í töframanna- félagi. Töfrar ganga seint úr gildi Þing töframannagildisins fór að öðru leyti vel fram. Það var glatt and- rúmsloft og mikið um að vera. Ungir sem aldnir gengu á milli bása þar sem ýmislegt var töfrað fram. Spil urðu að galdri, treflar leystust upp og urðu að engu og jörðin gleypti leik- fangabolta. Hið íslenska töframannagildi hefur í gegnum árin haft árlegar galdra- sýningar en hefur þetta nú með þessu móti: að halda frekar þing. Þar eru töframenn með sína bása, því ekki hentar töfrum allra töframanna að standa á sviði, sumt er gagnvirkt. Hið íslenska töframannagildi telur á þriðja tug meðlima og er starfrækt í samstarfi við alþjóðleg töframanna- samtök sem heita IBM Rings. Morgunblaðið/Eggert Undir læknishendi Stefán er nemi í bæklunarskurðlækningum. Hann lætur því ekki staðar numið við að saga fólk í sundur heldur krefst hann þess að fá að setja það aftur saman þegar í stað. Hér er hann að verki. Stefán er eini töfra- læknirinn á Íslandi  Boðar fjölgun í stéttinni  Töfrar hjálpa í uppskurðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.