Morgunblaðið - 19.12.2018, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 9. D E S E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 298. tölublað 106. árgangur
Bjúgnakrækir kemur í kvöld
5
jolamjolk.is
dagar
til jóla
TELUR SÖGUR
GETA BREYTT
HEIMINUM
EITTHVAÐ
STÆRRA EN
MAÐUR SJÁLFUR
MARKVERÐIR
SEM SKORA
MÖRKIN
LIFANDILÍFSLÆKUR 12 HANDBOLTI ÍÞRÓTTIRHALLDÓRA 30
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Við höfum engin önnur úrræði en
að halda okkur innandyra og loka
gluggum,“ segir Kjartan Mogen-
sen, formaður Samtaka lungna-
sjúklinga, um mengun frá flug-
eldum um hver áramót. Hann
segir að lungnasjúklingar kvíði
þessum árstíma, en mengunin get-
ur verið þeim mjög skaðleg og leitt
þá í andnauð. Ekkert hefur verið
aðhafst til að stemma stigu við
þeirri miklu loftmengun sem jafnan
leggst yfir þegar flugeldum er skot-
ið upp um áramót. Innflutningur og
sala flugelda er með sama hætti og
áður.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfisráðherra sagði að Um-
hverfisstofnun (UST) muni auka
mælingar á svifryki í kringum ára-
mótin. Þá á UST að miðla upplýs-
ingum um skaðsemi flugelda til al-
mennings og hagsmunaaðila. Þrjú
ráðuneyti munu skipa starfshóp til
að safna upplýsingum um mengun
af flugeldum og gera tillögur um
aðgerðir til lengri tíma. »14
Starfshópur um flugeldamengun
Lungnasjúklingar
halda sig innandyra
um áramótin
Morgunblaðið/Hari
Áramót Mengun af völdum flugelda langt yfir heilsuverndarmörkum í fyrra.
Fyrra skipið af tveimur, sem eru í smíðum fyrir
Eimskipafélagið í Kína, var sjósett nýlega. Vinna
við skipið heldur áfram og má búast við því að
það komi til Íslands eftir mitt ár 2019. Þetta eru
stærstu kaupskip sem smíðuð hafa verið fyrir
Íslendinga, 26.500 brúttótonn að stærð. »11
Stærsta kaupskip íslenska flotans sjósett í Kína
Ljósmynd/Eimskip
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir áform ríkis-
stjórnarinnar um lækkun tekju-
skatts verða endurmetin ef samið
verði um óábyrgar launahækkanir í
komandi kjarasamningum.
„Við höfum boðað skattalækkanir
í þágu þeirra sem eru í neðra þrep-
inu, lægri og millitekjuhópunum, en
það er óskynsamlegt að fylgja því
eftir ef kjarasamningar fara úr
böndunum og menn eru að taka út
meira en innistæða er fyrir. Þá þarf
að huga mjög vel að tímasetningu
slíkra aðgerða. Þær eru hugsaðar til
að greiða fyrir samningum en ekki til
að greiða fyrir óábyrgum samning-
um,“ segir Bjarni.
Gæti þýtt minni tekjur
Tilefnið er óvissa um hagvöxt
vegna óróa í ferðaþjónustunni. Með
því gætu tekjur ríkissjóðs á næsta
ári reynst minni en áætlað var. Mið-
að við núverandi afkomumarkmið
má ekki mikið út af bera til að af-
koma fari undir gólf fjármálastefn-
unnar á næstunni. Því er svigrúm til
launahækkana hjá ríkinu lítið.
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, segir augljóst
að svigrúm ríkissjóðs til launahækk-
ana verði minna á næstu misserum
en verið hefur undanfarin ár.
Horft verður til hækkana
Fjármálaráðherra segir skatta ekki lækkaða ofan á óábyrga kjarasamninga
Mögulega sótt í varasjóð
» Fjármálaráðherra segir að
mögulega gæti þurft að láta
reyna á varasjóð vegna launa-
breytinga hjá ríkinu.
» Meta þurfi betur áhrif launa-
hækkana á lífeyrisgreiðslur en
gert hafi verið til þessa.
MLítið borð fyrir báru ... »10
Reykjavíkurborg og Fjarðabyggð
eru einu sveitarfélögin á landinu
sem ekki ætla að lækka álagning-
arhlutfall fasteignaskatta til að
milda þau áhrif sem hækkun á fast-
eignamati um áramótin mun hafa.
Með því eykur borgin tekjur sínar
um 270 milljónir króna.
Tólf fjölmennustu sveitarfélög
landsins halda útsvari sínu óbreyttu
á næsta ári, helmingur þeirra er
með hámarksútsvar, 14,52%. Aldís
Hafsteinsdóttir, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, segir að það
sé alltaf ákvörðun hvers sveitarfé-
lags hversu háir fasteignaskattar og
útsvar eigi að vera. »18
Útsvar verður víða
óbreytt á næsta ári
Störfum gæti fækkað um 1.400 á
næstu sex mánuðum samkvæmt
niðurstöðum nýrrar Gallupkönn-
unar á meðal stjórnenda 400
stærstu fyrirtækja landsins. Þau
hafa samtals 24 þúsund starfsmenn.
Könnunin var gerð fyrir Samtök at-
vinnulífsins. Þetta er í fyrsta sinn
síðan 2009 að fram koma áform um
fækkun starfsfólk í könnuninni.
Um 10% fyrirtækjanna búast við
að fjölga starfsmönnum en 30% bú-
ast við að þeim fækki á næstu sex
mánuðum. Út frá stærðardreifingu
fyrirtækjanna má áætla að starfs-
mönnum þeirra fækki um 1,2% á
næstu sex mánuðum. Störfum gæti
fækkað um 2.000 hjá þeim sem
áforma fækkun en á móti koma 600
störf hjá þeim sem hyggja á fjölgun
starfsfólks. Niðurstaðan er sú að
störfum gæti fækkað um 1.400. »16
Morgunblaðið/Ómar
Vinna Um 30% fyrirtækja búast við að
fækka störfum á næstunni. Mynd úr safni.
Störfum gæti
fækkað um 1.400