Morgunblaðið - 19.12.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 19.12.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2018 Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla /solohusgogn Kæru landsmenn, við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári. við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA GÓLFLAMPI MEÐ LESLJÓSI Litir: króm, svart króm,bustað stál og antík GÓLFLAMPAR 19.995kr. Fýlssetrum hefur fækkað verulega á milli ára utan Vestfjarða og Grímseyjar þar sem varð smávegis fjölgun. Fækkunin var mest í Ás- byrgi (45%) og í Drangey (42%). Í Ásbyrgi var fjöldi fýlssetra 2018 einungis 8% af hámarkinu 1997. Viðkoma fýls var alls staðar lélegri en 2017. Þetta er á meðal niðurstaðna bjargfuglavöktunar Náttúrustofu Norðausturlands (nna.is). Hún nær til fýls, ritu, langvíu, stuttnefju og álku. Fylgst er með breytingum á milli ára á fjölda bjargfuglateg- unda og viðkoma þeirra metin, að undanskilinni álku. Rituhreiðrum fækkaði allnokkuð um allt land, nema í Papey þar sem greina mátti fjölgun. Rituhreiðrum í Skoruvíkurbjargi hefur fækkað um 86% frá 1994. Í Vestmanna- eyjum komst enginn rituungi á flug. Langvíum fækkaði lítillega nema í Hælavíkurbjargi, Grímsey og á Suðausturlandi. Litlar breytingar voru hjá stuttnefju en henni hefur fækkað undanfarna þrjá áratugi. Álku fækkaði milli ára í Skoru- víkurbjargi og Krýsuvíkurbergi en fjölgaði í Grímsey, Ingólfshöfða og Látrabjargi. gudni@mbl.is Fýl og ritu fækkar Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Lungnasjúklingar á Íslandi kvíða áramótunum þegar þykk mengunarský frá flugeldum sem skotið er upp til hátíðarbrigða leggjast yfir þéttbýlisstaði. Þetta segir Kjartan Mogensen, formaður Samtaka lungnasjúklinga, í samtali við Morgunblaðið. Mengun frá flugeldum hefur ítrekað mælst langt yfir heilsuverndarmörkum. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Umhverfisstofnun boða auknar mengungarmælingar og viðvar- anir til almennings um skaðsemi flugelda nú um áramótin. Þá hefur verið ákveðið að skipa starfshóp sem taki til umfjöllunar mögulegar aðgerðir til að draga úr neikvæðum áhrifum á lýðheilsu og loftgæði vegna flugeldamengunar. Ekkert hefur hins vegar verið gert til að draga úr notkun flugelda nú um áramótin. „Mikil raun að þessu“ „Við höfum engin úrræði önnur en að halda okkur innan dyra og loka gluggum meðan þetta gengur yfir,“ segir Kjartan Mogensen. „Okkur er mikil raun að þessu.“ Hann segir að margir lungnasjúklingar, sem að stórum hluta eru eldra fólk, finni til streitu í aðdraganda ára- móta. Streita sé eitt af því sem leiði lungnasjúklinga í andnauð sem er lífshættu- legt ástand. Nær 600 manns eru félagar í Sam- tökum lungnasjúklinga, en heildartala sjúklinga á landinu öllu er ekki kunn. Gunnar Guðmundsson, pró- fessor og lungnalæknir, sagði í samtali við blaðið á dögunum að allt að 5-10% landsmanna ættu við lungnasjúkdóma að stríða, jafnt börn sem full- orðnir. Samtök lungnasjúklinga hafa ekki skorið upp herör gegn flugeldum þrátt fyrir áhyggj- urnar og óþægindin. Kjartan segir að fé- lagsmenn hafi veigrað sér við að fara í átök enda sé því sjónarmiði gert mjög hátt undir höfði í opinberum umræðum að björgunar- sveitirnar þurfi á ágóðanum af flugeldasölunni að halda til að geta sinnt hinu mikilvæga starfi sínu. Hann bendir á að í grein í nýjasta hefti Læknablaðsins leggi þrír prófessorar við Há- skólann fram tillögur um hvernig draga megi úr notkun flugelda um áramót. M.a. er velt upp hugmyndum um að innflutningur flugelda verði takmarkaður og að sveitarfélög standi fyrir skipulögðum flugeldasýningum í stað þess að almenningur skjóti upp flugeldum. Starfshópur skoði aðgerðir Á fyrri hluta þessa árs var mjög fjallað um þá miklu loftmengun sem lagðist yfir allt höf- uðborgarsvæðið um síðastliðin áramót. Sýndu niðurstöður rannsókna að svifryk hefði mælst afar hátt og var stór hluti þess mjög fínn, það var málmríkt, kolefnisríkt, brennisteinsríkt og klórríkt. Slík mengun er afar varasöm fólki. Í viðtali við Morgunblaðið í apríl sagði Guð- mundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mengunina áhyggjuefni og ekki ásættanlega. „Við verðum vitanlega að bregðast við,“ sagði ráðherrann. Ekkert hefur þó verið aðhafst til að takmarka útbreiðslu flugelda. Innflutningur og sala flugelda er með hefðbundnu sniði nú fyrir áramótin. Samkvæmt heimildum úr umhverfis- og auð- lindaráðuneytinu hafa ráðuneytið og Umhverf- isstofnun gert með sér samning um mælingar á efnasamsetningu svifryks nú um áramótin. Um sérstakt átaksverkefni er að ræða til að bregð- ast við mengun vegna flugelda. Markmiðið er að greina efnasamsetningu svifryks, fá upplýs- ingar svo hægt sé að móta aðgerðir til að stemma stigu við neikvæðum áhrifum flugelda á lýðheilsu og bæta loftgæði. Þá hefur Um- hverfisstofnun verið falið að koma almennum upplýsingum og viðvörunum til almennings um skaðsemi flugelda, sem og upplýsingum tengd- um veðurfari og væntanlegum loftgæðum á þeim tíma sem heimilt er að skjóta upp flug- eldum. Loks hafa umhverfis- og auðlindaráð- herra, dómsmálaráðherra og heilbrigðisráð- herra fundað vegna flugeldamengunar og ákveðið að skipa starfshóp sem taki til umfjöll- unar mögulegar aðgerðir til að draga úr nei- kvæðum áhrifum á lýðheilsu og loftgæði vegna flugeldamengunar. Lungnasjúklingar kvíða áramótum  Halda sig innan dyra vegna loftmengunar frá flugeldum  Um 5 til 10% landsmanna lungnaveik  Mengunarmælingar verða auknar og almenningi ráðlagt  Starfshópur ráðuneyta kannar aðgerðir Morgunblaðið/Hari Loftmengun Þykkt ský svifryks af völdum flugelda yfir Hlíðunum um síðustu áramót. Kjartan Mogensen Bensínverð á Íslandi mun hækka um 3,30 krónur á lítra um áramót vegna skattahækkana. Þetta kemur fram í útreikningum Félag Ís- lenskra bifreiðareiganda (FÍB). Verð á dísilolíu mun hækka um 3,1 krónur á hvern lítra. Þá hækka vörugjöld á bensín um 2,5% og fara úr 71,45 krónum í 73,25 krónur á lítra. Kolefnis- gjaldið á bensín hækkar um 10% og fer úr 9,10 í 9,95 krónur á lítra. Olíugjaldið hækkar um 2,5% og fer úr 61,30 krónum í 62,85 krónur á lítra. Kolefnisgjaldið á dísilolíu hækkar um 10% og fer úr 9,45 í 10,40 krónur á lítra. Virðis- aukaskattur leggst ofan á þessi gjöld. Samkvæmt útreikningum FÍB má gera ráð fyrir að bensínverðið, miðað við núverandi útsöluverð og álagningu, fari úr 221,80 krónum (N1) í 225,10 krónur á lítra. Dísil- olían mun fara úr 225,30 krónum í 228,40 krónur á lítra. mhj@mbl.is Bensínverð hækkar um 3,30 krónur um áramót

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.