Morgunblaðið - 19.12.2018, Síða 22

Morgunblaðið - 19.12.2018, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2018 Ekki hvarflaði það að mér þegar ég reit minningargrein um tengdamóður mína um jólin fyrir tveimur árum að ég sæti hér nú þegar hátíð ljóss og friðar er að renna upp að skrifa minningarorð um elsta son hennar og mág minn, Ásgeir Pál. En svona er lífið hverfult. Kallið kom skyndilega og óvænt föstudaginn 7. desember. Við hjónin erum nýkomin úr þriggja vikna ferðalagi með þeim Heiðu og Ásgeiri. Þar stóðum við fjögur á toppi hæstu byggingar heims í Dubai og leið eins og við ættum heiminn. Ekki bar á nein- um veikindum hjá Ásgeiri í ferð- inni og ekki annað að sjá en að hann skemmti sér vel. Í dag erum við afar þakklát fyrir þessa ferð og verður hún sem glitrandi perla á bandi minn- inganna. Við Ásgeir höfum verið tengdir fjölskylduböndum í 45 ár, eða allt frá því að ég kynntist systur hans 1972. Ásgeir kvæntist fyrri konu sinni, Sigrúnu Benediktsdóttur, 1977 og við Didda giftum okkur þá einnig, svo úr varð systkina- brúðkaup. Ásgeir Páll var mikill fjölskyldumaður, barngóður með afbrigðum og átti föngulegan hóp fimm dætra. Hann hafði stundum á orði að hann hefði engan at- kvæðarétt á heimilinu, því meira Ásgeir Páll Sigtryggsson ✝ Ásgeir PállSigtryggsson fæddist 15. febrúar 1946. Hann lést 7. desember 2018. Útför Ásgeirs fór fram 17. desem- ber 2018. að segja þegar hundur bættist í fjölskylduna þá var það tík. Fjölskyldur okk- ar Ásgeirs héldu ár- um saman jól og áramót sameigin- lega með tengdafor- eldrum mínum þeg- ar þeirra naut við. Þá var oft glatt á hjalla og börnum okkar fannst ómissandi að hafa jólahaldið svona. Ásgeir var fæddur á Akureyri 1946 og ólst upp á Húsavík. Þeg- ar ég kynnist Ásgeiri var hann á leið til náms í rafmagnstækni- fræði í Danmörku. Eftir það vann hann hjá Landsvirkjun og síðar Landsneti. Það var mikið gæfu- spor þegar Ásgeir kynntist Heiðu sinni en þau gengu í hjóna- band 2006 eftir margra ára sam- búð. Með henni átti hann þrjár dætur. Frá Heiðu fékk hann væntanlega hestabakteríuna sem mótaði líf þeirra að hluta til sein- ustu ár. Þar var ekkert skorið við nögl og reistu þau veglegt heilsárshús með stóru landrými austur í sveitum, þar sem fjölskyldan átti samastað. Ásgeir gekk í Oddfellowregl- una 2002 og tók þar þátt í ýmsum störfum. Ásgeir var natinn að halda við fjölskyldutengslum. Hann kom mjög oft í heimsókn til okkar að spjalla við litlu systur og við ræddum svo um landsmálin og rökræddum fleira áhugavert yfir kaffibolla. En nú er komið að leiðarlok- um. Kallið kom óvænt og er mikið högg fyrir fjölskylduna. Þú varst ávallt hennar stoð og stytta. Góð- ur drengur er fallinn frá. Þú varst alltaf góður félagi, frábær mágur og yndislegur bróðir. Hjartans þakkir fyrir trygglyndi þitt, hlýjan kærleikann og alla þína gæsku. Við Didda þökkum fyrir allt, blessuð sé minning þín. Drýpur sorg á dáins vinar rann, Drottinn, huggaðu alla er syrgja hann, börnin ung sem brennheit fella tár, besti faðir, græddu þeirra sár. Þú ert einn sem leggur líkn með þraut á lífsins örðugustu þyrnibraut. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Elsku Heiða, dætur og fjöl- skyldur, okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Megi algóður guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Pétur og Sigurveig. Það er komið að kveðjustund, elsku frændi. Án fyrirvara, horf- inn á braut. Kletturinn sem átti að geta staðið óhaggaður um ókomin ár, allt sem var fram und- an gaf fyrirheit um áframhald- andi gæfu og gleði í faðmi ynd- islegrar fjölskyldu og vina. En lífið er hverfult og allt breyttist á einum degi. Hans er nú sárt saknað en minningin lifir um ein- stakan öðling sem umvafði ást- vini sína kærleika og ástúð alla daga. Við vorum sannarlega gæfusöm sem fengum að njóta samverustundanna og stórt skarð er nú höggvið í samheldinn fjölskylduhóp. Klettur rís úr hafi, haldreipi, líf og ljós. Hve leiðin hans var mörkuð góðum vonum. Dafnar vel og blómstrar hver hin rauða rós sem ræktuð var í garðinum hjá honum. Kærleikur og ástúð, lýst fékk langa daga og lítil hönd fann styrk í hendi þinni. Hve falleg er og gæfurík, lífsins sanna saga, nú söknuður og tóm í allri tilverunni. Þó kletturinn sé fallinn, þá munu rísa rætur og rósir áfram dafna í fjölskyldunni hans. Þær yndislegu góðu, Ásgeirs okkar dætur áfram munu streyma kærleik þessa manns. (AKV) Elsku Heiða, Valgerður, Snæ- dís, Bryndís, Bjarney Sigrún, Berglind, Didda, Binni og fjöl- skyldan öll. Innilegar samúðarkveðjur. Anna Karólína Vilhjálmsdóttir. Það voru okkur miklar harma- fréttir sem okkur bárust að Ás- geir hefði orðið bráðkvaddur. Í okkar huga var Ásgeir hraustur maður sem hugsaði vel um heilsuna, léttur í lund og gam- ansamur. Náin kynni milli okkar og Heiðu og Ásgeirs urðu er við hófum að stunda hestamennsku, við höfum alla tíð verið saman í hesthúsi og farið í ótal hestaferð- ir á sumrin þar sem oft var glatt á hjalla. Fyrir nokkrum árum keyptu þau hjónin landspildu úr landi Stóru-Valla í Landsveit, var strax hafist handa við að girða og fékk Ásgeir góðar leiðbeiningar frá seljanda sínum sem var Óðinn Pálsson en hann var annálaður girðingarmaður þar í sveit. Á þessu landi reistu þau sér mynd- arhús, síðar meir keyptum við okkur spildu í nágrenni við þau, þar vissum við að við værum að velja trausta og góða nágranna með sömu áhugamál og gildi. Þau hjónin hafa alltaf verið okkur afar hjálpsöm og fengum við oft húsaskjól hjá þeim þegar við vorum að koma okkar húsi upp. Ásgeir var hörkuduglegur og hafði óbilandi áhuga á skógrækt og landgræðslu og hann hafði oft á orði „daufur er dellulaus mað- ur“. Þau hjónin hafa verið óþreyt- andi við landbætur og gróðursett tugþúsundir trjáplantna í landi sínu, þannig hafa þau örugglega lagt sinn skerf til kolefnisjöfnun- ar sem er jú efst á baugi nú til dags, voru þau hjónin oft auð- fundin í sínum regngöllum við gróðursetningar og áburðargjöf á landi sínu. Þeir sem til þekkja vita að Landsveitin er með fallegri sveit- um landsins með sérlega fallegri fjallasýn og góðum útreiðarleið- um og eru þeir ófáir reiðtúrarnir sem við höfum farið saman ásamt sveitungum okkar. Eins og áður hefur komið fram var Ásgeir afar hjálpsamur og hafði oft frumkvæði að sameig- inlegum verkefnum og var yfir- leitt í forsvari fyrir þau, þetta voru t.d. skipulagsmál, áburðar- kaup, heykaup, lagfæringar á girðingum o.fl. og lagði hann ómælda vinnu í þessi verkefni en það er oft vanmetið, verður hans sárt saknað á þeim vettvangi sem og öðrum. Fyrir okkur var Ásgeir stór hluti af sveitinni okkar og var alltaf gott og gaman að hitta þau hjón sem voru sérlega samhent í einu og öllu, oft á tíðum voru fjör- ugar umræður um hin ýmsu mál, Ásgeir var maður sem velti upp mörgum sjónarmiðum en alltaf enduðu þessar umræður vel og allir voru sáttir í lokin. Elsku Heiða okkar og dætur, tengdasynir og barnabörn, ykkar missir er mikill og sérlega vegna þess Ásgeir var mikill fjölskyldu- maður og var vakinn og sofinn yf- ir velferð ykkar. Megi góðir vættir vaka yfir ykkur. Þórdís og Unnsteinn (Dísa og Steini). Vinur minn Ásgeir Páll Sig- tryggsson (Geiri) varð bráð- kvaddur 7. þessa mánaðar. Hann var mér afar kær vinur og félagi enda vinur vina sinna. Okkar kynni eru frá því við byrjuðum nám við Tækniskóla Íslands 1968 í undirbúningsdeild og útskrifuð- umst þaðan 1971 og héldum þá báðir til Danmerkur. Við unnum um sumarið hjá Burmeister & Wain í Kaupmannahöfn og bjuggum í skipi við höfnina með Finnum, Tyrkjum og kakkalökk- um. Um haustið fórum við til Óð- insvéa þar sem við hófum fram- haldsnám við Odense Teknikum. Við vorum mikið saman á þessum árum ásamt Sigga Ásgeirs og nutum þess að vera í Danmörku. Fórum m.a. í ógleymanlega ferð til Hamborgar sem var oft minnst á. Eftir að við lukum námi og fluttum heim stofnuðum við fjöl- skyldur en héldum góðu sam- bandi. Um tíma bjuggum við í sama hverfi og fórum þá í göngu- ferðir um nágrennið og áttum þá gott spjall. Geiri passaði alltaf upp á að hafa samband. Við hitt- umst minnst einu sinni á ári og borðuðum saman og síðustu ár höfum við hist í bústað hvor ann- ars og átt helgi saman. Nú í nóvember hringdi Geiri og var alveg ákveðinn í að við hittumst í bústaðnum hjá mér 1. des. Við hjónin erum þakklát fyrir frábæra helgi með Geira, Heiðu, Sigga og Gunnu, góðan mat, spjall og góða göngu. Geiri mætti á hádegisfund með nokkrum skólafélögum frá Danmörku hinn 6. desember í Bragganum. Hann var kátur og hress að vanda. Ég á eftir að sakna símtalanna okkar. Ég votta Heiðu, dætrum og öðrum ættingjum innilega sam- úð. Sæþór Líndal Jónsson. Nú í byrjun aðventunnar vor- um við hjá Landsneti með kaffi- boð fyrir stafsfólk sem látið hefur af störfum hjá okkur vegna ald- urs. Það var góður hópur sem kom saman og var mikið spjallað um líðandi stund, gamla tíma, uppbygginu og rekstur raforku- kerfisins. Við söknuðum þess þó að Ásgeir hafði ekki séð sér fært að koma í þetta skiptið. Það vant- aði sögurnar hans og röddina sem hljómaði yfirleitt hærra en allar aðrar. Ásgeir var hrókur alls fagnað- ar hvar sem hann kom, talaði hátt og sagði sögur af mönnum og málefnum. Aldrei var komið að tómum kofanum þar sem Ásgeir var, sama hvort það var um dags- ins önn, málefni tengd raforku eða pólitík. Við stofnun Landsnets hafði Ásgeir umsjón með orkuuppgjöri fyrirtækisins og var jafnframt tengdur kerfisstjórn. Það var mikilvægt fyrir Landsnet að hafa mann eins og Ásgeir í liðinu. Hann var nákvæmur í öllum sín- um verkum sem kom sér vel í störfum hans og byggði upp traust hjá viðskiptavinum fyrir- tækisins. Hann var úrræðagóður þegar mikið reyndi á í óveðrum eða við alvarlegar bilanir raforkukerf- inu. Löng reynsla hans í stjórn- stöð Landsvirkjunar og mikil þekking á raforkukerfinu reynd- ist vel við þessar aðstæður. Ásgeir var naskur þegar kom að því að spá fyrir um orkunotk- un á Íslandi. Hann var það ná- kvæmur að skekkjumörk hjá honum í árslok voru innan við 1%. Þessi góða niðurstaða endurspeglaðist í áætlanagerð fyrirtækisins. Ásgeir var mikill fjölskyldu- maður og naut þess að vera með sínu fólki. Við hjá Landsneti sendum Heiðu og dætrunum fimm og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minning um góðan mann lifir. Fyrir hönd Landsnets, Guðmundur Ingi Ásmundsson. Það var með sorg í hjarta að ég móttók skilaboðin um að Ásgeir Sigtryggsson hefði fallið frá. Ásgeir Sigtryggsson var gegn- heill heiðursmaður sem lagði allt- af gott til málanna, sama hvað var til umræðu. Hann var einstaklega hjarta- hlýr maður sem bar mikla um- hyggju fyrir fjölskyldu sinni og þeim sem hann umgekkst. Hann lét mann aldrei gleyma því að hann var Húsvíkingur í húð og hár þó svo hann byggi á höfuð- borgarsvæðinu. Ég átti samleið með Ásgeiri í tæp 40 ár, fyrst sem samstarfs- maður og svo um 30 ára skeið sem yfirmaður hans. Kynni okk- ar hófust er hann var starfsmað- ur álagsstjórnar Landsvirkjunar með aðsetur í gufustöðinni við Elliðaár, en í þá daga var engin eiginleg stjórnstöð raforkukerf- isins til staðar. Samskipti við afl- stöðvarnar voru á þeim tíma gegnum síma. Hann tók þátt í uppbyggingu fyrstu stjórnstöðv- ar Landsvirkjunar á Geithálsi ut- an Reykjavíkur og þeirrar sem síðar var byggð við Bústaðaveg. Eftir stofnun Landsnets kom hann að stofnun stjórnstöðvar flutningskerfisins á Gylfaflöt. Þar miðlaði hann af reynslu sinni og kunnáttu sem var mikill á þessu sviði. Það tók ekki langan tíma að átta sig á því hvaða mann hann hafði að geyma. Í umfangsmikl- um truflunum í raforkukerfinu, þar sem víðtæk straumleysi löm- uðu samfélagið, var mikilvægt að sýna fumlaus viðbrögð við að koma rafmagni á að nýju. Í slík- um aðstæðum hélt hann allaf ró sinni sama hver staðan var og hafði þannig jákvæð áhrif á það ferli að koma rafmagni aftur á til viðskiptavina. Nær alla starfsævina bar hann ábyrgð á að gera upp alla orku- sölu Landsvirkjunar og frá stofn- un Landsnets bar hann ábyrgð á uppgjöri orkuflutnings um raf- orkukerfið. Eftir því var tekið hve nákvæmur hann var og treystu allir hagsmunaaðilar þeim uppgjörum sem frá honum komu. Hann kom að ýmsum málum er vörðuðu starfmannafélag og samningamál starfsmanna og þar eins og í öðru hafði hann alltaf eitthvað gott fram að færa, já- kvæður og yfirvegaður. Hér er genginn á vit feðranna mikill heiðursmaður sem lagði eitthvað gott til allra málefna sem hann tók þátt í. Megi hann hvíla í friði og hafi hann þökk fyr- ir allt það góða sem hann lagði til í sínu lífi. Konu hans, börnum og öðrum ættingjum færi ég og kona mín samúðarkveðjur. Þórður G. Guðmundsson. Fallin er frá föð- ursystir mín, Ebba Magnúsdóttir. Ég vil minnast hennar með nokkrum orðum. Ebba var mér svo miklu meira en föður- systir. Hún var mér sem móðir, sem vinkona og átti stóran þátt í mínu uppeldi einkum á unglings- árum mínum. Ég var svo lánsöm að þau systkinin, pabbi og Ebba, bjuggu í sama húsi, æskuheimili okkar. Það var alltaf gott og nota- legt að fara upp til Ebbu frænku. Til Ebbu gat ég leitað með allt og man ég eftir ófáum skylduverk- efnum í handavinnu sem ég skil- aði með stolti í skólann (rétt eins og ég hefði gert þetta sjálf) og fékk að launum tortryggilegt augnaráð frá handavinnukennur- um í Grunnskóla Akraness. Þeim var vel kunnugt um hver var hinn sanni hannyrðameistari. Við áttum alltaf í góðu og sterku sambandi þrátt fyrir að við byggjum ekki lengur í sama húsi. Jafnvel þótt haf og hálfar heimsálfur skildu okkur að vor- Ebba Ingibjörg Magnúsdóttir ✝ Ebba IngibjörgMagnúsdóttir fæddist 8. mars 1938. Hún lést 8. desember 2018. Útför Ebbu Ingi- bjargar fór fram 17. desember 2018. um við alltaf í góðu sambandi. Gott var að leita til Ebbu, hún studdi mig með ráðum og dáð. Hjálpsemin og góð- mennskan var óend- anleg. Við veikindi pabba reyndist eng- in betri en Ebba. Umhyggja og kær- leikur hennar var takmarkalaus. Ég minnist sunnudagskaffi- boða, með ýmist vöfflum eða pönnukökum. Stórglæsilegra jólaboða sem engin gerði betur. Veislur af gamla skólanum þar sem borðin svignuðu undan kræsingum. Öll stórfjölskyldan samankomin, börn og barnabörn, og síðar barnabarnabörn. Ekki má heldur gleyma skötuveislun- um á Þorláksmessu sem við í fjöl- skyldunni eigum eftir að sakna. Ebba reyndist börunum mín- um afar góð og var alltaf kölluð Ebba amma af öllum börnum í stórfjölskyldunni. Hún fylgdist vel með þeim, hvatti þau í námi og starfi. Minningar um heimsóknir á Skagann og í sumarbústaðinn í Borgarfirði ylja okkur nú í skammdeginu. Hvunndagshetjan mín hefur nú kvatt þessa tilveru, hennar verður lengi minnst með hlýju og söknuði. Magnea. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ERLINGUR PÁLSSON, lést á heimili sínu Sundabúð. Hann verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju fimmtudaginn 20. desember klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunarheimilið Sundabúð. Anna S. Geirsdóttir Sigríður Erlingsdóttir Skarphéðinn K. Erlingsson Hildur Agnarsdóttir Rannveig Erlingsdóttir Þórir Guðlaugsson Ástkær móðir okkar, amma og tengdamóðir, ERNA ELÍSDÓTTIR, varð bráðkvödd á heimili sínu mánudaginn 10. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Lísa Björk Óskarsdóttir Ingþór Karl Eiríksson Heiða Óskarsdóttir Jón Svavarsson Hjördís Ósk Óskarsdóttir Óskar, Harpa, Berglind Björk og Sigmar Karl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.