Morgunblaðið - 21.12.2018, Page 1

Morgunblaðið - 21.12.2018, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 1. D E S E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  300. tölublað  106. árgangur  LÆRÐI AÐ KLIFRA Í KLETTUM OG NOTA HNÍFA FEÐGAR OPNA VEÐURVEF FORDÓMARNIR MESTIR HJÁ MANNI SJÁLFUM BLIKA.IS 12 MANÍURAUNIR KRISTINS 41HERA Í MORTAL ENGINES 34 Gáttaþefur kemur í kvöld 3 jolamjolk.is dagar til jóla Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Glæsilegar jólagjafir Opið til kl. 20 alla daga til Jóla. Þorláksmessu kl. 11-21 og aðfangadag kl. 10-13. Gjafakort Vetrarsólstöður eru í dag, 21. desember. Þær verða kl. 22:23 í kvöld. Strax á morgun fer hún hænufeti hærra á himni, nú þegar norðurhvelið sveigir til birtunnar. Í dag kemur sólin upp í Reykjavík kl. 11:21 og sest kl. 15:30. Á morgun, 22. des- ember, kemur sólin upp kl. 11:22 og verður svo næstu sjö daga, en fer að koma fyrr upp þaðan í frá. Síðdegis fer daginn að lengja strax á morgun, þá um örfáar sekúndur og svo hrað- ar eftir það. Norðanlands er birtutími um klukkustund skemmri en syðra og í Grímsey, á heimskautsbaug, er sólar- upprás í dag kl. 12:03. Hvað sem tímasetningum líður er boð- skapurinn samt sá að daginn fer nú að lengja og senn kemur vor. Vetrarsólstöður eru í dag og nú fer daginn að lengja Morgunblaðið/Árni Sæberg Magnús Heimir Jónasson Hallur Már Hallsson Jón Pétur Jónsson Skýrsla innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um endurgerð bragga og samliggjandi húsa við Nauthólsveg sýnir fram á að kostn- aðareftirliti hafi verið ábótavant og brjóti í bága við lög, innkauparegl- ur, starfslýsingar og verkferla. Ábyrgð og forsvar hafi ekki verið nægjanleg. Skýrslan var kynnt í borgarráði í gær en í henni kemur einnig fram að farið hafi verið fram úr samþykktum fjárheimildum og þess hafi ekki verið gætt að sækja um viðbótarfjármagn áður en stofn- að var til kostnaðar. Tekið er fram að „það er brot á sveitarstjórn- arlögum og reglum borgarinnar“. „Skýrslan er skýr og ábyrgð borgarstjóra er staðfest. Lög voru brotin bæði varðandi ólöglegar greiðslur og sönnunargögnum eytt ólöglega,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um skýrsluna. „Þetta er allavega áfellisdómur yfir utanum- haldi um þetta verkefni,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, spurður hvort skýrsla innri endur- skoðunar sé á einhvern hátt áfell- isdómur yfir störfum hans sem borgarstjóra. Vigdís Hauksdóttir, borgarfull- trúi Miðflokksins, segir enn þörf á því að óháðir aðilar rannsaki málið auk þess að kalla eftir afsögn borg- arstjóra í kjölfar skýrslunnar. „Pólitíska ábyrgðin er sú að hann á segja af sér eftir þessa skýrslu,“ segir Vigdís. Sveitarstjórnarlög brotin og eftirlit skorti  Úttekt innri endurskoðunar á bragganum er áfellisdómur MKallar eftir afsögn »2  VR, Efling og Verkalýðsfélag Akraness, VLFA, munu fara fram saman í komandi kjaraviðræðum. Félögin þrjú ætla að vísa kjaradeil- um sínum sameiginlega til ríkis- sáttasemjara í dag.Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar þess að síðar- nefndu félögin tvö ákváðu að aftur- kalla samningsumboð sitt frá Starfs- greinasambandinu, SGS. Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, segist eiga von á því að fleiri félög innan SGS gangi inn í þetta samstarf en geti ekki gefið upp á þessum tímapunkti hvaða félög gæti verið um að ræða. Hann segir kröfugerð félaganna sambærilega og að komið verði fram með nýjar áherslur í viðræðunum. Í gær var rætt við formenn eða varaformenn allflestra félaga innan SGS og sögðu þeir flestir að samn- ingsumboð þeirra stéttarfélaga yrði áfram hjá sambandinu. »4 Þriggja félaga bandalag stofnað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.