Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018 Veður víða um heim 20.12., kl. 18.00 Reykjavík 1 léttskýjað Hólar í Dýrafirði 2 súld Akureyri -1 skýjað Egilsstaðir 1 alskýjað Vatnsskarðshólar 6 skýjað Nuuk -1 alskýjað Þórshöfn 6 alskýjað Ósló 0 snjókoma Kaupmannahöfn 3 þoka Stokkhólmur 0 skýjað Helsinki -4 þoka Lúxemborg 5 skúrir Brussel 8 skúrir Dublin 7 skúrir Glasgow 6 rigning London 8 skúrir París 9 skýjað Amsterdam 8 skýjað Hamborg 6 rigning Berlín 3 léttskýjað Vín -1 þoka Moskva -11 snjókoma Algarve 16 léttskýjað Madríd 10 skýjað Barcelona 15 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 10 léttskýjað Winnipeg -12 snjókoma Montreal -2 skýjað New York 3 heiðskírt Chicago 7 þoka Orlando 19 rigning  21. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:23 15:30 ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:53 SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:34 DJÚPIVOGUR 11:01 14:50 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á laugardag Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað, en skýjað við A-ströndina og NV-til. Á sunnudag (Þorláksmessa) Vaxandi suðvestlæg átt og slydda eða rigning á V-verðu landinu. Norðaustlæg átt 3-8 m/s og dálítil rigning eða þokusúld á A-verðu landinu, skýjað NV-til, annars víða léttskýjað. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins. Bætir í úrkomu A-lands og kólnar. THE FUTURE IS EVERYONE’S Kynntu þérOpel atvinnubíla á opel.is eða hafðu samband við sölumann í síma eða á opel@opel.is og fáðu nánari upplýsingar Sýningarsalir: Krókháls 9, Reykjavík, 590 2000 Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ, 420 3330 OPEL ATVINNUBÍLAR ÁRAMÓTA SPRENGJA! Nýttu þér skattalegt hagræði ársins sem er að líða Nokkrir sendi- oghópferðabílar á dúndur afslætti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, bæði til skemmri og lengri tíma. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra mun gera ríkisstjórninni grein fyrir stöðu mála þegar emb- ætti landlæknis hefur lokið úttekt Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vandi Landspítalans vegna álags á bráðamóttöku er af þeirri stærðar- gráðu að ekki verður lengur við un- að, segir í áliti Ölmu D. Möller land- læknis. Ástandið geti leitt til óvæntra atvika og hættu á frekara brottfalli starfsfólks. Landlæknir hefur ekki lokið athugun sinni en í minnisblaði hvetur hún ráðherra til að grípa til úrræða til að leysa út- skriftar- og mönnunarvanda Land- spítalans. Alvarlegt ástand skapaðist á bráðamóttöku Landspítalans snemma í þessum mánuði og töldu stjórnendur spítalans sig ekki geta tryggt öryggi sjúklinga við þær að- stæður. Of mikið álag á starfsfólk Sá tími sem sjúklingar þurfa að bíða á bráðamóttökunni eftir að leggjast inn á spítalann eykst stöð- ugt. Hann er nú 23,3 klukkustundir á móti 16,6 klukkustundum fyrir ári og dæmi eru um að sjúklingar hafi þurft að bíða innlagnar í 66 klst. Erlend viðmið gera ráð fyrir að sjúklingur dvelji ekki meira en sex stundir á bráðamóttöku. Landlæknir kemst að þeirri niður- stöðu að álag á starfsfólk Landspít- alans sé of mikið. Hver hjúkrunar- fræðingur sinni of mörgum sjúklingum og það auki hættuna á að eitthvað fari úrskeiðis. Skráðum slíkum tilvikum hafi fjölgað veru- lega. Þá sé augljóst að friðhelgi einkalífs sé ekki tryggð þegar sjúk- lingar eru vistaðir á gangi. Þessi vandamál skerði getu deildarinnar til að takast á við hópslys. Vandamálin eru að mati landlækn- is aðallega tilkomin vegna þess að ekki er hægt að útskrifa sjúklinga sem lokið hafa meðferð vegna þess að spítalann skortir úrræði og að loka hefur þurft legurýmum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum. Opnun heimila verði flýtt Landlæknir leggur til að öldrun- arheimilið á Seltjarnarnesi og sjúkrahótel Landspítalans verði opnuð sem fyrst. Heimahjúkrun og heimaþjónusta verði efld. Ráðist verði í nákvæma greiningu á þörf fyrir hjúkrunarrými til lengri tíma, heimahjúkrun og heimaþjónustu. Mönnun verði efld, sérstaklega sinni að fullu. Hún tekur fram í til- kynningu ráðuneytisins að leiðir til að bregðast við mönnunarvanda séu til umfjöllunar hjá ráðherranefnd og aðrar aðgerðir sem landlæknir til- greindi séu í farvegi. Verður ekki lengur við unað Alvarleg staða á bráðamóttöku 200 manns leita til bráða- móttöku Landspítalans á dag að meðaltali 20 sjúklingar að meðaltali þurfa innlögn á degi hverjum 23,3 klst. þurfa sjúklingar að bíða að meðaltali á bráðamóttökunni eftir innlögn en biðtíminn var 16,6 klst. fyrir ári 53 aldraðir einstak-lingar biðu á bráðadeildum og endur- hæfingu 10. desember eftir hjúkrunarrýmum 39 rúm á legu-deildum voru lokuð 13. desmeber vegna skorts á hjúkr- unarfræðingum Lokuð legurými Skortur á úrræðum Heimild: Minnis- blað landlæknis76 sjúklingar hafa mest verið á bráðamóttökunni samtímis en pláss er fyrir 56 sjúklinga 105% er oftast nýtingar- hlutfall legurýma og hefur farið í 117% en æskilegt viðmið fyrir bráðsjúkra- hús er 85% BRÁÐAMÓTTAKA Alma D. Möller Svandís Svavarsdóttir  Biðtími allt að 66 tímar  Landlæknir telur að mikið álag á starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans geti leitt til óvæntra atvika og frekara brottfalls starfsfólks  Ráðherra segir ýmsar aðgerðir í farvegi Magnús Heimir Jónasson Hjörtur J. Guðmundsson Freyr Bjarnason Samþykkt var á stjórnarfundi VR í gærkvöldi að félagið myndi fara fram með Eflingu og Verkalýðsfélagi Akraness í kom- andi kjaraviðræð- um. Þessi ákvörð- un var tekin í kjölfar þess að síðarnefndu félög- in tvö ákváðu að afturkalla samn- ingsumboð sitt frá Starfsgreinasam- bandinu. Félögin munu vísa kjara- deilum sínum sameiginlega til ríkis- sáttasemjara í dag. Vilhjálmur Birg- isson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, VLFA, segir að þetta sam- starf félaganna þriggja hafi þegar farið í gegnum formlegt ferli innan félagsins og segist eiga von á því að fleiri félög gangi inn í þetta samstarf. „Já, ég á von á að það muni gerast, en það tekur bara tíma. Þetta er að gerast núna og stjórnir félaganna eiga eftir að koma saman,“ sagði Vil- hjálmur í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi Hann sagðist ekki geta gefið upp á þessum tímapunkti um hvaða félög væri að ræða. Spurður hvaða áherslur þetta nýja bandalag myndi setja á oddinn sagði Vilhjálmur að kröfugerð VLFA og VR væri í öllum meginatriðum með sambærilegum hætti. „Aðalmálið hjá okkur er fyrst og fremst að koma með nýjar áherslur sem eru fólgnar í því að fylgja kröfunum eftir. Það hef- ur ekki gerst áður að kjaradeilum hefur verið vísað fyrir áramót eins og gerist núna. Yfirleitt hefur það dreg- ist í alllangan tíma að tala saman áður en menn hafa tekið ákvörðun um slíkt, en það er rétt að minna á að ef kjaraviðræður dragast í einn mánuð getur það haft þær afleiðingar að launafólk verður af allt að fjórum milljörðum.“ Í gær var rætt við formenn eða varaformenn allra félaga innan Starfsgreinasambandsins. Aðal- steinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, sagði að í skoðun væri hvort félagið myndi aft- urkalla samningsumboð sitt frá SGS. Arnar G. Hjaltalín, formaður Dríf- anda í Vestmannaeyjum, sagði að eitthvað mikið þyrfti að gerast til þess að félagið afturkallaði samnings- umboð sitt og Hjördís Þ. Sigurþórs- dóttir, formaður AFL starfsgreina- félags, sagði að félagið hefði ekki annað í hyggju en að taka áfram þátt í kjaraviðræðum í samfloti við SGS. Sumir hafa ekki tekið afstöðu Kolbeinn Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnar- firði, sagði að félagið hefði ekki áform um að afturkalla samningsumboð sitt og í sama streng tóku Guðmundur Finnbogason, formaður Samstöðu í Húnavatnssýslu, og Signý Jóhannes- dóttir, formaður Stéttarfélags Vest- urlands. Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, sagði að eftir væri að fara yfir málið. Þór- arinn Sverrisson, formaður Öldunnar í Skagafirði, sagði sitt félag ekki hugsa sér til hreyfings. Örn Bragi Tryggvason, varaformaður Bárunn- ar, sagði að forysta félagsins ætlaði að funda um stöðu mála í dag. Eining- Iðja hefur ekki í hyggju að afturkalla samningsumboð sitt en formaður fé- lagsins, Björn Snæbjörnsson, er for- maður Starfsgreinasambandsins. Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur og nágrennis, segir að félagið hafi fyrst verið á þeirri skoðun að vísa deilunni strax til ríkissáttasemjara. Formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Sandgerðis, Magnús S. Magnússon, segir að ekki hafi verið tekin afstaða til málsins. Formenn Verkalýðsfélaga Snæfellinga, Suður- lands og Vestfirðinga eru sammála um að draga umboðið ekki til baka frá SGS. Hvorki náðist í formenn Verkalýðs- og sjómannafélags Bol- ungarvíkur né Verkalýðsfélags Þórs- hafnar. VR, Efling og VLFA fara fram saman  Félögin þrjú hyggjast vísa kjaradeilum sínum sameiginlega til ríkissáttasemjara í dag  Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, segir líklegt að fleiri aðildarfélög Starfsgreinasambandsins bætist í hópinn Vilhjálmur Birgisson „Það staðfestir það sem við höfum verið að segja lengi; of mikið álag er á spítalanum og brýnt að bregðast við,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. Hann telur að ábendingar Landlæknis séu réttar. Mikil- vægt sé að finna hjúkrunar- rými sem fyrst og styðja önnur skref sem gætu fjölgað sjúkra- rúmum og bætt heimaþjón- ustu. Þá sé nauðsynlegt að fjölga hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum. „Við getum tekið undir mikilvægi þessara atriða og höfum verið í góðu samtali við heilbrigðisráðuneytið um þau,“ segir Páll og segist skynja vilja ráðuneytis til að bregðast við. Hann segir það síðan lang- tímaverkefni að bregðast við auknu álagi vegna fjölgunar þjóðarinnar og þess að fleiri þurfi að nýta þjónustu spít- alans. Brýnt að bregðast við FORSTJÓRI LANDSPÍTALA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.