Morgunblaðið - 21.12.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018
Andrés Magnússon, fjölmiðlarýn-ir Viðskiptablaðsins, gagn-
rýnir fúsk fréttastofu Ríkisútvarps-
ins í pistli í gær. Hann víkur að
meðferð Rúv. á veitingastaðnum
Sjanghæ á Akureyri, en sá staður
hefur farið fram á bætur og afsök-
unarbeiðni frá Rúv.
vegna rangrar og
skaðlegrar umfjöll-
unar um staðinn í
fyrra.
Um þetta segirAndrés meðal
annars: „Þrátt fyrir
að sæta miklu
ámæli fyrir fréttaflutninginn, sem
bakaði Rositu og veitingastaðnum
mikið tjón og álitshnekki, baðst
fréttastofan ekki afsökunar á frétt-
inni, hvað þá að hún væri leiðrétt,
eins og þó er áskilið í siðareglum
fréttastofunnar.“
Og hann lýkur umfjölluninni áþessum orðum: „Það kæmi því
ekki á óvart ef Ríkisútvarpið
greiddi bæturnar frekar en að eyða
tíma og fjármunum við vonlausa
vörn í réttarsölum. En gagnvart
áhorfendum er fréttin enn óleið-
rétt, sem er verra, hvað sem líður
mögulegri afsökunarbeiðni. Og fari
það þannig, rétt eins og í máli
Spartakusar í fyrrahaust, þá virð-
ast það vera orðin viðtekin vinnu-
brögð hjá RÚV að segja rangar
fréttir og borga bætur fyrir, án
þess þó að leiðrétta þær fyrir áhorf-
endum, sem í þokkabót eru þeir
sömu og þurfa á endanum að borga
fyrir þetta fúsk.“
Ríkisútvarpið sýnir ítrekað aðþað nálgast fréttaflutning af
miklum hroka. Ekki síst þegar því
verður á.
Hvernig er hægt að réttlæta aðneyða skattgreiðendur til að
borga fyrir slík vinnubrögð?
Andrés
Magnússon
Aftur bætur án
leiðréttingar?
STAKSTEINAR
Vegagerðin hefur boðið út viðbót-
ardýpkun í Landeyjahöfn í febrúar
næstkomandi. Tilgangurinn er að
reyna að fá annan verktaka til að
dýpka með Björgun hf. í vetur
þannig að hægt sé að flýta opnun
hafnarinnar.
Vegagerðin samdi við Björgun
um dýpkun í og við Landeyjahöfn
næstu þrjú árin. Ætlunin er að
dæla upp 300 þúsund rúmmetrum
á ári, aðallega á vorin. Er það
minni dýpkun en þurft hefur að
ráðast í undanfarin ár. Ástæðan er
sú að gert er ráð fyrir því að hægt
verði að halda dýpi hafnarinnar
sjálfrar nægjanlegu fyrir nýju ferj-
una, með dýpkunarbúnaði í landi.
Vegagerðin hefur nú boðið út 100
þúsund rúmmetra dýpkun til við-
bótar sem ætlunin er að verið unn-
ið að í febrúar.
Samkvæmt upplýsingum G. Pét-
urs Matthíassonar, upplýsingafull-
trúa Vegagerðarinnar, þarf að auka
afkastagetuna við upphaf vordýpk-
unar. Með því að vera með fleiri
dýpkunarskip en Björgun ræður
yfir náist nægjanlegt dýpi fyrr, það
er að segja ef aðstæður leyfa. Eftir
að dýpið er komið minnkar þörfin
verulega fyrir afkastagetu skip-
anna og auðveldara fyrir Björgun
að viðhalda nægu dýpi. Áður hefur
verið unnið að dýpkun með þessum
hætti, samkvæmt upplýsingum
Vegagerðarinnar. helgi@mbl.is
Reynt að hraða opnun Landeyjahafnar
Vegagerðin býður út viðbótardýpk-
un í vetur Vilja bæta við verktaka
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Landeyjahöfn Unnið að dýpkun.
Færeyska lögþingið hefur veitt utan-
ríkisráðherra landsins heimild til þess
að segja upp Hoyvíkursamningnum,
fríverslunarsamningi milli Íslands og
Færeyja. Í upphafi þessa árs tóku gildi
ný fiskveiðilög í Færeyjum þar sem
lagt er bann við erlendri eignaraðild í
færeyskum sjávarútvegsfyrirtækjum
en áður máttu erlendir aðilar fara með
allt að þriðjung hlutafjár. Samherji á
30% hlut í Framherja í Fuglafirði.
„Það kemur okkur á óvart að þeir
skuli segja upp þessu samkomulagi,“
segir Kristján Vilhelmsson, útgerðar-
stjóri Samherja. „Við erum vonsviknir
með þessa niðurstöðu, en það eru sex
ár til stefnu,“ segir Kristján en að
óbreyttu mun Samherji þurfa að selja
hlut sinn í Framherja fyrir 1. janúar
2025 þegar bannið verður að fullu
gengið í gildi. Þá gerir hann ráð fyrir
að selja þurfi hlut Samherja í frysti-
geymslunni Bergfrosti gangi áform
Færeyinga eftir.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra segir skýrt af hálfu íslenskra
stjórnvalda að Færeyingar eigi rétt á
að haga fiskveiðilöggjöf sinni eins og
hentar þeim best. „En við verðum líka
að líta til þess að þarna hafa íslenskir
aðilar fjárfest og starfað í góðri trú í
langan tíma. Við þurfum að gæta hags-
muna Íslendinga þarna sem og annars
staðar,“ segir Guðlaugur. „Samningur-
inn fellur að öðru óbreyttu úr gildi í
ársbyrjun 2020. Ég tel mikilvægt að
nýta þann tíma sem við höfum þangað
til til að leysa úr málum.“ ash@mbl.is
Hoyvíkursamn-
ingnum sagt upp
Lokað á íslenskt eignarhald í sjávarútvegi
PFAFF • Grensásvegi 13 • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
HeIlSa
ÍJÓLaPaKkAnN
HITAPÚÐAR, HITATEPPI OG NUDDTÆKI Í MIKLU ÚRVALI
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Kristján Andri Stefánsson, sendi-
herra og fastafulltrúi Íslands gagn-
vart UNESCO, tók í gær, fyrstur Ís-
lendinga, við sem formaður hins
svokallaða vestræna ríkjahóps hjá
UNESCO (ríkjahóps 1). Ísland tók
við formennskunni af Bretum.
Í ríkjahópnum eru ríki Vestur-
Evrópu og Norður-Ameríku. Í for-
mennskunni felst auk fundarstjórn-
ar að samhæfa afstöðu hópsins,
miðla málum og koma fram fyrir
hönd hans út á við, bæði gagnvart
öðrum ríkjahópum og UNESCO.
Formennskan er liður í virkari
þátttöku Íslands í starfsemi stofnun-
arinnar í aðdraganda framkvæmda-
stjórnarkjörs UNESCO árið 2021,
þegar Ísland verður í framboði.
Einnig er unnið að því að auka sam-
starf við stofnunina á sviði þróunar-
samvinnu.
Kristján Andri í formennsku hjá UNESCO