Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gróska er í byggingariðnaði á Hellu og í öllu sveitarfélaginu Rangárþingi ytra. Þannig eru 49 íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu, þar af um 30 á Hellu. Ágúst Sig- urðsson sveitarstjóri segir að veðr- áttan í vetur hafi hjálpað til og enn sé unnið á fullu í gatnagerð og við húsbyggingar. Rangárþing ytra seldi gamalt fjölbýlishús með 8 félagslegum íbúðum sem innréttaðar höfðu ver- ið í húsi Kaupfélagsins Þórs og er í staðinn að kaupa nýjar íbúðir í rað- húsum. Þar eru minni íbúðir en al- gengast hefur verið á Hellu. Keypt er ein íbúð í sex raðhúsum. Hluti íbúðanna verður leigður út sem fé- lagslegar íbúðir. „Hér var orðin uppsöfnuð þörf fyrir nýjar íbúðir, hrein húsnæðis- ekla síðasta árið. Okkur hefur fjölgað um 100 manns á rúmu ári,“ segir Ágúst. Hann segir að aukin umsvif í ferðaþjónustunni og upp- bygging í kringum hana hafi mikil áhrif en einnig sé mikil atvinna hjá fyrirtækjum í matvælavinnslu. „Það var kominn tími á fram- kvæmdir, sérstaklega vantaði minni íbúðir. Við höfum flest búið í einbýlishúsum en lítið verið um fjöl- býlishús. Núna eru að bætast við raðhús með minni einingum,“ segir Ágúst. Hann segir gott að sveitarfélagið hafi getað stuðlað að því með þess- um hætti að koma framkvæmdum af stað. Auk þess eru einstaklingar að byggja einbýlishús. Flest húsanna eru í nýju íbúða- hverfi, Ölduhverfi, sem er austast á Hellu, rétt við flugvöllinn. Þar átti sveitarfélagið lóðir með tilbúnum götum en hefur einnig þurft að undirbúa nýjar götur með tilheyr- andi lögnum og gatnagerð. Ágúst segir að veðráttan í vetur hafi hjálpað mikið til og séu fram- kvæmdir á undan áætlun af þeim sökum. Ljósmynd/Ágúst Sigurðsson Hella Unnið að gatnagerð og húsbyggingum. Veðrið hjálpar mjög til. Kaupa eina íbúð í sex raðhúsum  30 íbúðir eru í byggingu á Hellu Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty Dekraðu við línurnar BH 10.90 Buxur 3.9 Opið lau. 22. des. kl. 10-20 og sun. 23. des kl. 13-18 Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Mikið úrval af íslenskri hönnun á frábæru verði! Ponsjo Verð 8.990 Kjóll - íslensk hönnun Verð 9.990 Gleðilegjól Tryggvagötu 18 - 552 0160 Gjöfin sem vermir Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn fyrir jólin Guð blessi ykkur öll Samningaviðræðum EFTA-ríkjanna innan EES; Íslands, Noregs og Liech- tenstein, við Bretland vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu er lokið og voru drög að samningnum birt í gær. Í samningnum er leyst úr útgöngumál- um sem við eiga með sambærilegum hætti og á milli Bretlands og Evrópu- sambandsins. Þar sem samningurinn byggist á útgöngusamningi Bretlands úr ESB verður hann eingöngu undir- ritaður ef útgöngusamningurinn nær endanlega fram að ganga. „Eins og allir vita hefur þetta mál verið í forgangi hjá okkur frá því að niðurstaðan lá fyrir,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson ut- anríkisráðherra. „Gangi útgöngu- samningurinn eftir munu borgarar og fyrirtæki okkar ekki hafa lakari stöðu en þeir sem koma frá ESB- ríkjum varðandi þá útgönguskil- mála sem tengjast okkur og skipta máli,“ segir Guðlaug- ur. Hann nefnir meðal annars að Ís- lendingar sem búa í Bretlandi eða flytja þangað fyrir lok bráðabirgða- tímabilsins geti verið þar áfram og réttindi þeirra verði í öllum grundvall- aratriðum óbreytt. Utanríkisráðherra segir að Íslend- ingar búi sig þó áfram undir fleiri sviðsmyndir, t.a.m. ef Bretland gangi úr Evrópusambandinu án samnings. „Við leggjum okkur fram við að tryggja réttindi borgara, vöruviðskipti, flug og ýmsa aðra þætti sem tengjast íslenskum hagsmunum,“ segir Guð- laugur en hann segir pólitískt sam- komulag ríkja milli Íslands og Bret- lands um réttindi borgara til áframhaldandi búsetu eftir útgöngu, þótt Brexit verði án samnings. ash@mbl.is Drög að samningi við Breta kynnt Guðlaugur Þór Þórðarson Starfshópur endur- skoðar kosningalög Forseti Alþingis hefur skipað starfshóp um endurskoðun kosn- ingalaga. Á hópurinn m.a. að skoða breytingar með tilliti til hag- kvæmni og skilvirkni og skoða kosti þess að setja heildarlöggjöf um framkvæmd allra almennra kosninga. Þá á hópurinn einnig að skoða kosti rafrænnar kjörskrár. Bryndís Hlöðversdóttir ríkis- sáttasemjari er formaður hópsins, sem á að skila af sér 1. des. 2019.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.