Morgunblaðið - 21.12.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018
FOSSBERG
Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600
SOUND LED S
Ljóskastari og Bluetooth hátalari
Vatnsheldur hátalari
með segulfestingu
Opið í dag kl. 8-17
Aðfangadag kl. 10-12
Opnum aftur
27. des. kl. 10
Verð 12.995 kr.
21. desember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.62 122.2 121.91
Sterlingspund 153.78 154.52 154.15
Kanadadalur 90.24 90.76 90.5
Dönsk króna 18.558 18.666 18.612
Norsk króna 13.96 14.042 14.001
Sænsk króna 13.417 13.495 13.456
Svissn. franki 122.46 123.14 122.8
Japanskt jen 1.0818 1.0882 1.085
SDR 168.41 169.41 168.91
Evra 138.61 139.39 139.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.3184
Hrávöruverð
Gull 1248.6 ($/únsa)
Ál 1939.0 ($/tonn) LME
Hráolía 56.51 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Ásdís Ýr Péturs-
dóttir hefur verið
ráðin upplýsinga-
fulltrúi Icelandair
Group. Ekki fékkst
uppgefið hversu
margir sóttu um
starfið, þegar eftir
því var leitað. Ásdís
hefur 15 ára reynslu
á sviði samskipta-
og kynningarmála,
bæði á Íslandi sem og á alþjóðavettvangi.
Undanfarin misseri hefur hún starfað við
ráðgjöf en hún var sviðsstjóri samskipta-
sviðs Actavis á Íslandi á árunum 2013 til
2017. Þá var hún verkefnastjóri og síðar
forstöðumaður samskiptasviðs Bakkavör
Group frá 2005-2011. Áður starfaði Ásdís
við markaðs- og kynningarmál hjá Há-
skólanum í Reykjavík og alþjóðlegu
tæknifyrirtæki í Bretlandi. Áslaug er með
BA-próf í almannatengslafræðum frá
Mount Vincent University í Kanada.
peturhreins@mbl.is
Ásdís Ýr ráðin upplýs-
ingafulltrúi Icelandair
Icelandair Ráðin
upplýsingafulltrúi.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Vísitala neysluverðs í desember
hækkaði um 0,74% frá fyrri mánuði
samkvæmt nýjum tölum Hagstof-
unnar. Tólf mánaða verðbólga
mælist nú 3,7% og hefur ekki verið
meiri í fimm ár, eða síðan í desember
árið 2013 þegar hún mældist 4,2%.
Gunnar Bjarni Viðarsson, sér-
fræðingur í greiningardeild Arion
banka, segir að hækkunin sé svipuð
og bankinn hafi spáð. Enginn liður í
mælingunni komi sérstaklega á
óvart. „Fasteignaliðurinn er ívið
sterkari en við gerðum ráð fyrir,“
segir Gunnar, en bætir við að tölurn-
ar sem byggt er á séu aðeins „eftir á“
eins og hann orðar það. „Hagstofan
notar meðaltal kaupsamninga síð-
ustu þriggja mánaða í sínum útreikn-
ingum. Eins og sést t.d. á lána-
reiknivélum bankanna hafa kjörin á
viðbótarhúsnæðislánum verið að
herðast og tímalengdin að styttast.
Þá lána sumir bankar bara viðbótar-
lánin óverðtryggð, sem þýðir að
greiðslubyrði verður meiri. Þá eru
mörg vinsælustu lánin af þessari teg-
und ekki lengur jafngreiðslulán,
heldur er byrjað að bjóða í staðinn
fastar afborganir höfuðstóls, sem
enn herðir á og eykur greiðslubyrði,“
segir Gunnar. Hann bætir við að
þetta gæti dregið úr hækkunum á
fasteignamarkaði, þó að útlánatölur
sem Seðlabankinn birtir séu ekki
farnar að staðfesta þann grun.
Flugfargjöld ganga til baka
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að stærstu
liðirnir í vísitölumælingunni, sem oft
hafi mestu skammtímaáhrifin, hafi
þróast í sama takti og Íslandsbanki
vænti. „Það er vissulega veruleg
hækkun á flugfargjöldum, en hún er
árviss, og mestar líkur á að stærstur
hluti hennar komi til baka í janúar og
febrúar.“
Jón býst ekki við neinum stórkost-
legum breytingum á vísitölu neyslu-
verðs á næstu mánuðum eins og hann
orðar það, eða svo lengi sem krónan
veikist ekki aftur, en hún hafi verið
að styrkjast síðustu daga. „Horfurn-
ar næstu mánuði eru þokkalegar. Við
erum með lækkandi eldsneytisverð,
sem er farið að skila sér á dælurnar
hér innanlands, og hækkun íbúðar-
verðs er bara 0,2%, sem er mun hæg-
ari hækkun en að jafnaði síðustu þrjá
mánuði á undan,“
Hann bætir við að þegar fari að
hægja á vextinum í hagkerfinu muni
það segja til sín í minni verðbólgu-
þrýstingi. „Helsta hækkunaróvissan
næstu misserin snýr að því hvernig
kjarasamningar lenda.“
Jón segir að ekki sé hægt að úti-
loka vaxtahækkun hjá Seðlabankan-
um í febrúar næstkomandi. „Það
verður hægt að segja meira til um
það þegar við sjáum fundargerð
vaxtaákvörðunarnefndar í næstu
viku. Þá sést á hvaða grundvelli um-
ræðan var á vaxtaákvörðunarfundin-
um.“
Tólf mánaða verðbólga
mælist sú mesta í fimm ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verslun Matur og drykkjarvörur hækkuðu um 1% í nóvember og höfðu 0,11% áhrif á vísitölu neysluverðs.
Verðbólga
» Vísitala neysluverðs án hús-
næðis hækkar um 0,94% milli
mánaða.
» Flugfargjöld til útlanda
hækkuðu um 25,1%
» Verð á bensíni og olíum
lækkaði um 3,2%
» Síðastliðna tólf mánuði hef-
ur vísitala neysluverðs hækkað
um 3,7% en vísitalan án hús-
næðis hefur hækkað um 2,7%
Arion gerði ráð fyrir sterkari fasteignalið Þokkalegar horfur næstu mánuði
Í dag verða fyrstu grænu sjálfbæru
skuldabréfin svokölluðu tekin til
skráningar í Kauphöll Íslands, en það
er Reykjavíkurborg sem það gerir.
Í tilkynningu frá Kauphöllinni seg-
ir að skuldabréfið sé verðtryggt til 30
ára. Það hafi verið gefið út hinn 17.
desember sl. eftir að 4,1 milljarður að
nafnvirði var seldur í lokuðu útboði
með þátttöku 15 fagfjárfesta.
Í tilkynningu Kauphallarinnar seg-
ir að tilgangur með útgáfu skulda-
bréfsins sé að fjármagna græn fjár-
festingarverkefni Reykjavíkurborgar
í samræmi við Grænan ramma borg-
arinnar (e. Green Bond Framework).
„Einungis má fjármagna með græn-
um skuldabréfum borgarinnar þau
verkefni sem uppfylla strangar kröf-
ur Græna rammans,“ segir í tilkynn-
ingunni. Sem dæmi um fjárfestingar
sem gætu fallið undir Græna ramm-
ann eru gerð göngu- og hjólastíga,
innleiðing á led-ljósum fyrir götulýs-
ingu og hleðslustöðvar fyrir raf-
magnsbíla.
„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir
Reykjavík,“ segir Dagur B. Eggerts-
son, borgarstjóri Reykjavíkur, í til-
kynningunni. „Markmið okkar er að
styrkja sífellt stöðu okkar sem græn
borg sem verður kolefnishlutlaus fyr-
ir árið 2040. Við samþykktum Græna
rammann sem fær hæstu einkunn
samkvæmt mati CICERO (Center
for International Climate Research),
eða dökkgrænn (Dark Green), ásamt
öllum verkefnum innan hans. Einnig
er litið sérstaklega til stjórnsýslulegs
fyrirkomulags sem fær einnig hæstu
einkunn eða framúrskarandi (excel-
lent). Að auki er ég ánægður með
þann mikla áhuga sem við höfum
fengið frá fjárfestum. Þetta er mjög
góð byrjun á verkefninu og þeirri við-
leitni okkar að verða sjálfbær borg,“
segir Dagur. tobj@mbl.is
Kauphöll Grænu skuldabréfin
fengu mikinn áhuga frá fjárfestum.
Fyrstu grænu
bréfin skráð í dag
Stígar og led-
ljós mögulegar
fjárfestingar