Morgunblaðið - 21.12.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
FLOTTAR EIGNIR - GÓÐAR STAÐSETNINGAR
FJÖLBREYTT ÚRVAL - EITTHVAÐ FYRIR ALLA
Flamenca Village, Playa Flamenca Arenales del Sol, Los Arenales
Mare Nostrum, Guardamar
Gala, Villamartin
Muna, Los DolsesAllegra, Dona Pepa
Í frumvarpi til laga,
sem lagt var fram á Al-
þingi 12.12. 2018, segir
að starfrækja skuli sjóð
í eigu íslenska ríkisins
sem nefnist Þjóðar-
sjóður. Hlutverk sjóðs-
ins verði að varðveita og
ávaxta fjármuni sem
ríkissjóður leggur hon-
um til. Fjármunirnir
verði nýttir til að bæta
ríkissjóði verulegt fjárhagstjón sem
kann að verða við nánar tilgreindar
aðstæður. Nokkurs konar varúðar-
sjóður.
Í greinargerð kemur fram að hvat-
inn til stofnunar sjóðsins er vitneskja
um fjárhagslegan styrk Landsvirkj-
unar.
Sem sagt Landsvirkjun á að borga.
Samt voru það einkum þeir, sem á
sínum tíma vöktu athygli á þessari
hugmynd.
Tekjur Þjóðarsjóðs
Arðgreiðslur Landsvirkjunar til
ríkissjóðs á undanförnum árum hafa
verið 1,5 milljarðar kr. á ári.
Í frumvarpi til laga um Þjóðarsjóð
er rætt um að tekjur ríkissjóðs af
rekstri Landsvirkjunar gætu orðið
10-20 milljarðar kr. á
ári.
Í Gamma-skýrslu
Landsvirkjunar (2011)
sviðsmynd 2a er gert
ráð fyrir að mögulegar
arðgreiðslur og tekju-
skattsgreiðslur fyrir-
tækisins verði 50 millj-
arðar/ári á árunum
2025-2035.
Þessi mikli breytileiki
í áætlunum er athyglis-
verður.
Til að sjá hlutina í
samhengi þá þýðir þetta að með
tekjum upp á 15 milljarða á ári mundi
það jafngilda breytingu á raforku-
verði almenns markaðar um 30 USD/
MWh eða um 60% ef almennt raf-
orkuverð er 50 USD/MWh. Þarna er
gert ráð fyrir að almenni raforku-
markaðurinn sé 4000 GWh/ári og
gengið 125 ISK/USD.
Ef þessum fjármunum væri ráð-
stafað til að greiða niður verð á raf-
orku til almennra nota mundi raf-
orkuverð lækka úr 50 í 20 USD/MWh
en hins vegar mundi það hækka úr 50
í 80 USD/MWh með þessari greiðslu
til ríkissjóðs og ef krafa væri gerð um
óbreytta arðsemi. Þetta er aðeins lagt
fram til samanburðar, en hvorugt af
þessu stendur til að gera.
Þess má geta að almennt raforku-
Um Þjóðarsjóð
Eftir Skúla
Jóhannsson
Skúli Jóhannsson
„Það eina sem getur veitt okkur
vonir um bjartari og betri framtíð er
að samgöngur muni batna á allra
næstu árum,“ segir hún Eva okkar í
Árneshreppi á
Ströndum í Mogg-
anum.
Slík og þvílík neyð-
arköll frá oddvitum
byggðanna vítt og
breitt um landið eru
svo til daglegt brauð.
Og hafa verið í ára-
tugi. Einbreiðir vegir
og brýr, vantar of-
aníburð, heflun og
bundið slitlag. Enda-
lausar bænaskrár,
skýrslur, fundir og
ályktanir, uppákomur
og málarekstur fyrir
sunnan. Og ályktanir um það sem
allir vita. Og allar nefndirnar? Enda-
laus lobbíismi. Þrýstihópar og mála-
fylgjumenn. En þetta er eins og að
skvetta vatni á gæs. Smáskammta-
lækningar skulu það vera með svo-
kallaðri happa- og glappaaðferð.
Allt landið ein heild
Við félagarnir höfum tekið undir
það með mörgum góðum mönnum,
að það er löngu kominn tími til að við
lítum á land okkar sem eina heild.
Við höfum leyft okkur að leggja
fram opinberlega ýmsar tillögur í
svokölluðum byggðamálum. Ein
þeirra hljóðar svo: Hlutur ríkisins í
Íslandsbanka verði seldur nú þegar.
Raunhæft verð, varlega áætlað af
sérfræðingum, 140 milljarðar króna.
Í nýrri hvítbók er tæpt á þessu máli.
Og auðvitað slegið úr og í að vanda.
Okkar tillaga er: Seljum bankann
eins og skot. Og setjum þessa pen-
inga í samgöngumál. Punktur og
basta!
Hver og einn
bær er hlekkur
í keðjunni
Í landsfjórðung-
unum verði svo
starfandi verktakar
allan ársins hring
sem sjái um að koma
samgöngum mark-
visst í almennilegt
horf á allra næstu
árum. Ekkert væl,
eða jaml, japl og fuð-
ur, heldur sam-
ræmdar aðgerðir
þar sem grundvöllurinn verði að
landið allt er ein heild. Hver og einn
bær er hlekkur í þeirri keðju. Og
vegatolla, með heppilegri gjaldskrá,
teljum við sjálfsagða þar sem við á.
Og formúla stjórnmálamanna Lof-
orð fyrir kosningar = Svik eftir
kosningar verður aðhlátursefni
komandi kynslóða. Allir málaflokkar
munu njóta góðs af. Og landið gjör-
breytast. Endurtökum: Nánast allt
breytist til batnaðar!
Seljum Íslandsbanka
og setjum 140 millj-
arða í samgöngumál
Eftir Hallgrím Sveinsson,
Guðmund Ingvarsson og
Bjarna G. Einarsson
Hallgrímur
Sveinsson
» Loforð fyrir
kosningar =
Svik eftir kosn-
ingar verður að-
hlátursefni kom-
andi kynslóða.
Allir málaflokkar
munu njóta góðs
af. Og landið gjör-
breytast.
Hallgrímur er bókaútgefandi, Guð-
mundur fv. stöðvarstjóri Pósts og
síma á Þingeyri og Bjarni fv. útgerð-
arstjóri KD á Þingeyri.
Guðmundur
Ingvarsson
Bjarni Georg
Einarsson
Um daginn, þegar
yfir stóð umræða um
fjárlögin á Alþingi,
leiddist sex þing-
mönnum svo mikið,
að þeir fóru yfir á
Klausturbarinn og
fengu sér einn gráan
til þess að hressa upp
á andann og gera til-
veruna svolítið
skemmtilegri. Í fram-
haldinu gerðust þeir nokkuð há-
værir og létu sitthvað ómaklegt
falla um samstarfsmennina og því
fleira, sem sjússunum fjölgaði. Það
þótti ekki tiltökumál þótt þetta
væri í vinnutímanum, sem á öðrum
bæjum þykir ekki gott og líðst
jafnvel ekki. Svo var allt tekið upp
með leynd og efnið flutt í fjöl-
miðlum. Brá þá mörgum við, því að
þetta var alls ekki það sem þeir
ætluðu að segja.
Síðan þetta gerðist hefur þjóð-
þingið verið með andlega andar-
teppu og illa starfhæft. Ásakanir
og afsakanir hafa gengið á báða
bóga. Þingmenn eru reknir úr
þingflokkum eða hafa tekið sér
ótímabundið orlof frá þingstörfum.
Gúrkutíð var hjá fréttamönnum,
sem létu óspart í ljósi persónu-
legar skoðanir sínar uppfullir af
vandlætingu og át hver upp eftir
öðrum. Þingforsetinn, sem á sím-
um tíma kallaði samþingmann
druslu og gungu og slæmdi jafnvel
hendi til forsætisráðherrans, tók
undir þetta. Rifjuð voru upp orð
annars fyrrverandi þingmanns um
skítlegt eðli þáverandi forsætisráð-
herra. Svo bættist einn þingmaður
í hópinn úr hinum vammlausa
flokki Samfylkingunni, sem hafði
orðið uppvís að einhverjum dóna-
skap þannig að hann tók sér frí frá
þingstörfum líka.
Það væri fróðlegt að taka saman
það, sem þingmenn Pírata hafa lát-
ið sér um munn fara í ræðustóli Al-
þingis. En ég held að ég sleppi því,
það væri of mikið jafnvel fyrir mig.
Á fyrri tíð, er aflahrota gafst á
vertíðum, var hver sótraftur á sjó
dreginn til að bjarga verðmætum.
Það á hins vegar ekki við þegar
valdir eru fulltrúar þjóðarinnar á
Alþingi. Þar ætti að
vera saman kominn
blómi mannlífsins.
Hæstvirtir kjósendur
þurfa greinilega að
vera vandlátari í vali
sínu og hleypa aðeins
þeim þarna inn sem
þangað eiga raunveru-
legt erindi og eru
reiðubúnir að þjóna
landi og þjóð af ábyrgð
í stað þess að ganga í
lið með andstæðing-
unum. Kjaftaskarnir og meðaljón-
arnir geta fengið sér starf við hæfi.
Þingstörf eru ekki fyrir þá.
En það þarf meira til. Á Alþingi
eru átta flokkar eða kannski níu
eftir að einn sprakk í kjölfar
Klaustursmálsins. Einhverjir bíða
á hliðarlínunni eftir að koma manni
á þing. Þessum flokkum þyrfti að
fækka að minnsta kosti um helm-
ing ef ekki meir til þess að skapa
stjórnmálalega festu. Einsmáls-
flokkar eru einfaldlega til bölv-
unar. Hæstvirtir kjósendur eiga
betra skilið en glundroða og laus-
ung. Þeir bera engu að síður
ábyrgð á þessari óhóflegu fjöl-
breytni og óþarfa flokkavali.
Ágreining þarf að leysa innan
flokka í stað þess að rjúka til og
stofna nýjan flokk.
Stjórnarsamstarf virðist vera
nokkuð farsælt. Festa virðist ríkja
í stjórn landsmála þar sem Sjálf-
stæðisflokkur er kjölfestan sem
stærsti flokkurinn. Fjármál þjóð-
arbúsins eru í góðu jafnvægi undir
hans forystu. Framsóknarflokkur
er mikið hættur að vera sérhags-
munagæsluflokkur og jafnvel far-
inn að beita sér fyrir þjóðþrifa-
málum. VG hefur sýnt lofsverða
ábyrgð með að ganga til stjórn-
arsamstarfs, gera stjórn landsins
mögulega og leggja til fram-
bærilegan forsætisráðherra. Um
borð eru samt einhverjir villuráf-
andi villikettir, sem eru þó ekki til
vandræða sem betur fer.
Stjórnarandstaðan virðist ótrú-
lega sundruð og stefnulaus. Sam-
fylking hefur glatað tengingu við
verkalýð landsins og reiðir sig
mikið á kreddusama háskólaelítu,
sem glataði trúverðugleika sínum
með vondri ráðgjöf í kjölfar hruns-
ins. Einelti og persónulegar árásir
eru flokksins ær og kýr, sem hann
nærist á. Flokkurinn virðist illa
hæfur til að hafa forystu um stjórn
opinberra fjármála og eru fjármál
höfuðborgarinnar eitt dæmi af
fleirum til marks um það. Píratar
eru óstjórntækur lýðskrums-
flokkur, sem ekki verður tekinn al-
varlega og enginn virðist geta unn-
ið með. Viðreisn stýrir
undanvillingur úr hruninu og Sjálf-
stæðisflokknum með afleita fortíð
og hefur flokkurinn jafnvel enn
verri málefnastöðu. Minnast má
orða formannsins í garð dansks
hagfræðings, er sagði hrunið fyrir,
um að sá þyrfti að fara í endur-
menntun. Í þann danska vantaði
nefnilega vitið að dómi formanns-
ins og var talið að hér hefði verið
sett nýtt met í glámskyggni. Mið-
flokkur er í rúst vegna nýliðinna
atvika og rúinn trausti. Sama má
segja um Flokk fólksins, sem er
dæmigerður einsmálsflokkur, laus
við heildræna yfirsýn og laskaður
eftir nýgengna atburðarás.
Oft hefur sundrungin á vinstri
væng stjórnmálanna verið mikil en
líklega aldrei meiri en nú. Málefna-
fátækt er nánast alger og einkenn-
ist stjórnarandstaðan af ómerki-
legu karpi, orðhengilshætti og
þvargi um tittlingaskít til að
hindra að góð mál fái framgang.
Síðasta stjórnarmyndunartilraun
vinstri flokkanna fór enda út um
þúfur.
Íslenzkir kjósendur eiga betra
skilið en að sitja uppi með þjóð-
þing, sem rúið er trausti sam-
kvæmt flestum mælingum. Þeir
bera þó mikla ábyrgð og þurfa því
alvarlega að hugsa sinn gang, er
þeir velja fulltrúa sína til setu á
Alþingi.
Sem betur fer er þó alltaf von.
Eftir Sverri
Ólafsson
Sverrir Ólafsson
» Íslenzkir kjósendur
eiga betra skilið en
að sitja uppi með þjóð-
þing, sem rúið er trausti
samkvæmt flestum
mælingum.
Höfundur er viðskiptafræðingur
sverrirolafs@simnet.is
Um virðingu Alþingis