Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018 ✝ Hulda HeiðurSigfúsdóttir fæddist í Reykjavík 24. júlí 1929. Hún lést á heimili sínu 10. desember 2018. Foreldrar henn- ar voru Sigfús Sig- urhjartarson al- þingismaður, borg- arfulltrúi og rit- stjóri frá Urðum í Svarfaðardal, f. 6.2. 1902, d. 15.3. 1952, og Sigríður Stefánsdóttir húsmóðir frá Brettingsstöðum í Laxárdal, f. 6.8. 1900, d. 23.12. 1974. Systk- ini Huldu eru Adda Bára, f. 30.12. 1926, og Stefán Hilmar, f. 20.8. 1934, d. 24.2. 2002. ir íslensk bókasöfn (1970). Hulda giftist Flosa Hrafni Sigurðssyni veðurfræðingi, f. 10.7. 1928, d. 30.6. 2017 hinn 23.12. 1953. Foreldrar Flosa voru Sigurður Jóhannesson fulltrúi, f. 15.3. 1892, d. 20.11. 1988, og Ágústína Eiríksdóttir, húsmóðir, f. 21.8. 1893, d. 3.8. 1989. Börn Huldu og Flosa eru Ágústa Hjördís, haffræðingur og skjalaþýðandi, f. 13.7. 1958, og Sigurður Hjörtur, tónlistar- maður, f. 22.1. 1964. Sonur Ágústu og John T. Lyons, f. 25.10. 1947, er Flosi Thomas Lyons, menntaskólanemi, f. 18.3. 2002. Börn Sigurðar og Vilborgar Önnu Björnsdóttur, f. 23.8. 1963, eru Sigríður Hulda, grafískur hönnuður, f. 2.7. 1990, Anna Gréta, tónlistarmaður, f. 23.8. 1994, og Sólveig Erla, há- skólanemi, f. 1.5. 1996. Útför Huldu fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 21. desember 2018, klukkan 15. Hulda lauk stúd- entsprófi frá mála- deild Menntaskól- ans í Reykjavík 1950 og lokaprófi frá Statens Biblio- teksskole í Ósló 1953. Bókasafns- fræðingur á Borg- arbókasafni Reykjavíkur 1953-4 og á Deichmanske Bibliotek í Ósló 1956. Deildarstjóri flokkunar- og skráningardeildar Borgar- bókasafns Reykjavíkur 1956- 1999. Sat í stjórn Bókavarða- félags Íslands 1964-68 og í flokkunarnefnd 1961-70. Einn af höfundum Flokkunarkerfis fyr- Það var skrýtið að ganga inn í Drápuhlíð 39 tæpri viku eftir að amma lést. Þessi hæð sem hefur verið aðalsamkomustaður fjöl- skyldunnar í yfir fimmtíu ár er nú mannlaus. Það er nú sem maður finnur enn sterkara fyrir því að afi er líka farinn og að við erum ekki bara að kveðja ömmu, heldur líka heimili þeirra sem hefur verið fast- ur punktur í tilveru fjölskyldu minnar. Við komu mína í Drápuhlíðina fann ég fyrir afa og ömmu í öllu, heyrði afa þramma um ganginn og ömmu að hella upp á kaffi og hvetja okkur til að láta greipar sópa um ísskápinn, alveg sama hvort hungrið kallaði eða ekki. Maður gekk að þeim vísum í Drápuhlíðinni og það er skrýtið að hugsa til þess að svo sé ekki leng- ur. Ég er svo heppin að hafa fengið að búa í ættaróðalinu í Drápuhlíð 39. Á meðan á Drápuhlíðarárum mínum stóð var ég heldur upptek- in af skemmtanalífinu og hélt ég þá ófá partí í kjallaranum þar sem ég bjó. En ekki fékk ég skammir fyrir að hafa of hátt eða að djamma of mikið. Amma hafði bara gaman af skemmtanahaldi mínu, og þá sér- staklega ef partíið var úti í garði, þá gat hún nefnilega fylgst með okkur. Hún elskaði að fylgjast með öllu og fá að vita allt. Ósjaldan stóð hún úti í glugga þegar einhver var að koma eða fara og fylgdist með framgangi mála. Hún var sú manneskja í fjölskyldunni sem vissi allt um alla. Það hefur til dæmis oft verið erfitt að henda reiður á staðsetn- ingu föður míns, og oft er maður ekki viss um hvort hann sé heima, í Kaupmannahöfn eða á Akureyri, en þá var hægt að stóla á ömmu. En það var ekki bara staðsetning- ar pabba sem hún vissi allt um. Amma var nefnilega ekki bara amma okkar systra, heldur líka trúnaðarvinkona sem við gátum leitað til sama hvert tilefnið var og er ég viss um að hún hafi vitað meira um ástamál okkar systra en flestar ömmur. Hún amma hafði áhyggjur af því að hún myndi skemma jólin fyrir okkur með því að vera fárveik eða deyja á óheppilegum tíma. Það hefði aldrei orðið. Auðvitað verður skrýtið að halda jólin án hennar, en þetta er einmitt tíminn þar sem fjölskyldan ver sem mestum tíma saman, og í samverunni er fólgin ákveðin huggun. Nú hljóma ég eins og einhverskonar sáluhjálp- ari, en ég er fegin að ég þurfi ekki að drífa mig til Svíþjóðar og að ég fái tíma með fjölskyldunni til að venjast lífinu án ömmu. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að eiga ömmu sem ég er alveg í molum yfir að missa. Mér líður eins og andlát hennar hafi verið ótímabært þrátt fyrir háan aldur. Ég held að við flest og hún sjálf hafi verið sannfærð um að hún myndi ná vel inn á tíræðisaldurinn. En í sorginni er gott að finna hversu mikið maður elskaði ömmu og hversu mikið hún elskaði okkur. Hún vissi ekkert betra en að vera í faðmi fjölskyldunnar og það var fátt betra en að vera í nærveru hennar. Ég veit ekki hvort ég trúi á sumarlandið og að ég muni hitta þau fyrir aftur, en á ég feiknin öll af minningum um heimili og fjöl- skyldu sem hefur verið kjölfesta í gleði og sorg. Í minningunum finn ég ró og hlýju, því það er þar sem ég hitti fyrir afa og ömmu á ný. Sigríður Hulda Sigurðardóttir. Þó að ég hafi á uppvaxtarárun- um alltaf verið búsett hjá foreldr- um mínum, hef ég orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga líka ann- að heimili í Drápuhlíðinni hjá ömmu og afa. Í Drápuhlíðinni eyddum við systur miklum tíma sem börn og mikið fannst okkur skemmtilegt að vera hjá þeim. Þar opnaði amma spilavítið og við spiluðum rommí og kasínu tímunum saman, fórum á kaffihús í bænum eða í heimsókn til afa á veðurstofuna. Þegar við systurnar gengum í Menntaskólann við Hamrahlíð vorum við alltaf velkomnar til afa og ömmu og nýttum það óspart að geta lagt okkur á sófanum hjá þeim eða fengið hádegismat í eyðu. Amma var ótrúlega skilnings- rík og góðhjörtuð kona. Hún tók mér alltaf eins og ég var og sýndi mér stuðning í öllu. Hvort sem það var með því að mæta á tónleika, klippa út blaðagreinar eða gefa mér egg og beikon þegar ég lá á sófanum hjá henni, örlítið timbruð eftir ævintýri gærkvöldsins. Hún dæmdi aldrei og var alltaf til stað- ar. Þegar ég var lítil vildi ég helst ekki sofna, en þá sat amma pollró- leg við rúmið og hélt í höndina á mér þangað til ég sofnaði. Í seinni tíð gátum við systurnar blaðrað við ömmu um allt, hvort sem það var vinnan, skólinn, fjölskyldan eða strákamál – henni fannst svo gaman að fá að vita hvað við vor- um að gera og okkur fannst gam- an að geta deilt því með henni. Fyrir nokkrum árum fór ég á fyrsta stefnumót með fyrrverandi kærastanum mínum. Ég var að spila á staðnum sem við sátum á sama kvöld og um það bil hálftíma áður en ég átti að byrja að spila labbar mér að óvörum amma inn og sest niður hjá mér og deitinu mínu, haldandi að þetta væri bara einhver vinur minn. Ég fékk hálf- gert panikk og hugsaði um að þarna sæti maður sem ætlaði á saklaust lítið stefnumót með mér en fengi svo að sitja með mér og ömmu minni í staðinn. En hann plumaði sig vel og kvöldið var skemmtilegt, svo segir hann við mig eftir á: „mikið áttu frábæra og skemmtilega ömmu“. Síðar, þegar ég sagði ömmu frá því hvað hefði verið í gangi þarna lágum við báðar í hláturskasti yfir þessum sprenghlægilegu aðstæð- um. Þó svo að það hafi ekki verið ætlunin að blanda ömmu minni inn í stefnumótið þótti mér ótrú- lega vænt um að hún hefði verið þarna með mér því ég vissi líka að ef hann hefði ekki heillast upp úr skónum – alla vega yfir ömmu minni, þá væri ekkert varið í hann! Ég er þakklát fyrir að amma þurfti ekki að berjast við þessi veikindi lengi og að við höfðum öll tækifæri á því að kveðja hana. Síðasta skiptið sem ég hitti ömmu sat ég við rúmið hennar og hélt í höndina á henni og ég held við höfum báðar vitað að þetta væri í síðasta skiptið sem við hitt- umst. Hún talaði um hversu ótrú- lega vænt henni þótti um mömmu mína, en hún hafði oft orð á því hversu heppin hún var með tengdadóttur. Það er ómetanlegt að hafa átt svona góða konu að og mikið ótrú- lega á ég eftir að sakna elsku ömmu Huldu og að heimsækja hana í Drápuhlíðina. Ég finn huggun í því að hugsa að kærleik- urinn hennar ömmu lifi áfram hjá mér og öllum sem þekktu hana – núna er amma alltaf hjá okkur. Anna Gréta Sigurðardóttir. Það er ekki hver sem er sem á ömmu sína fyrir bestu vinkonu. Vonandi áttar sú hin sama sig á hversu ótrúlega heppin hún er. Þannig var allavega tilfellið með mig og ömmu mína, Huldu Heiði Sigfúsdóttur. Síðustu árin í lífi hennar mynduðust sérstök tengsl og einstök vinátta milli okkar tveggja. Amma var ekki bara amma, heldur mín trúnaðarvin- kona með einstaka sýn og alltaf með ráð við hverskyns vanda- málum. Frá því að gefa öndunum brauð í barnæsku, spila Rommí sem krakki, egg og beikon í þynnkunni, kaffi þegar ég byrjaði að drekka kaffi, sherrítár, leggja mig á sófanum hennar, hvítvín, tala um stefnumótalíf mitt, loks búa í kjallaranum hennar; þá var amma alltaf til staðar og dæmdi aldrei. Yndislegasta manneskja sem fyrirfannst í lífi mínu er nú komin á betri stað og skilur eftir sig stórt skarð sem verður erfitt að fylla. Takk, elsku amma mín, fyrir góðu stundirnar, ljúflingslundina og ógleymanlegar minningar. Þú heldur heim á leið. Dagur fyrir bí, kvöldar á ný og þegar sólin sest þú til hvílu leggst. Það gerðist allt svo fljótt mitt um bjartan dag kom sólarlag og sólin rís á ný þú færð loksins frí. (...) Og við kveðjumst nú. Þinn tími runninn er á enda hér. Nú ferð þú á nýjan stað finnur friðinn þar Og þótt það reynist sárt að skilja við þig hér. Ég þakka vil þér ljúflingslundina, gleðistundirnar. (Valdimar) Sólveig Erla Sigurðardóttir. Hulda Heiður Sigfúsdóttir ✝ Kristinn Kjart-ansson fæddist á Hjálmsstöðum í Eyjafjarðarsveit 24. mars 1922. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Lög- mannshlíð á Akur- eyri 12. desember 2018. Foreldrar hans voru Kjartan Ólafs- son, f. 1892, d. 1974, og Sigríður Jónsdóttir, f. 1887, d. 1969. Systkini Kristins voru: Jón Andrés, f. 1913, d. 1977, Ólafur, f. 1920, d. 1988, Guðrún Helga, f. 1925, d. 2018, Tryggvi Ingi- mar, f. 1927, d. 2005, og Magni, f. 1930, d. 2005. Kristinn kvæntist Kristbjörgu Magnúsdóttur, f. 16. nóvember fyrra hjónabandi. Bryngeir á tvær dætur frá fyrra hjónabandi og barnabörnin eru sex. 5) Ingvar, f. 1953, maki Vil- borg Elva Gunnlaugsdóttir, f. 1959. Börn þeirra eru tvö og barnabörnin einnig. 6) Lena Sæ- dís, f. 1962, maki Halldór Jón Einarsson, f. 1960. Þau eiga tvö börn. Áður á Lena eina dóttur og barnabörnin eru fimm. Kristinn flutti ungur í Mikla- garð í Saurbæjarhreppi í Eyja- firði með foreldrum sínum og ólst þar upp og hlaut hefð- bundna skólagöngu þess tíma. Hann hóf síðar búskap í Mikla- garði ásamt konu sinni Krist- björgu Magnúsdóttur og bjuggu þau þar til ársins 1978. Kristinn sinnti ýmsum trún- aðarstörfum fyrir hreppinn. Úr sveitinni fluttu hjónin til Akur- eyrar þar sem Kristinn hóf störf hjá Kaupfélagi Eyfirðinga og lauk hann starfsferli sínum þar. Útför Kristins fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 21. des- ember 2018, klukkan 13.30. 1922, d. 3. mars 2017, hinn 24. mars 1945. Börn þeirra eru: 1) Magnús, f. 1945, maki Inga Guðmundsdóttir, f. 1947. Eiga þau tvær dætur, þrjú barnabörn og eitt barnabarnabarn. 2) Bjarki, f. 1947, maki Unnur Snorradóttir, f. 1955. Börn þeirra eru þrjú en einnig á Bjarki son frá fyrra hjónabandi. Barnabörnin eru ellefu. 3) Ævar, f. 1948, maki Heiðbjört Hallgrímsdóttir, f. 1950. Þau eiga tvö börn, fimm barnabörn og fimm barnabarna- börn. 4) Bryngeir, f. 1951, maki Ásdís Annika Gunnlaugsdóttir, f. 1955, en hún á tvö börn frá Elsku afi minn Mikið er erfitt að kveðja, en nú ertu kominn til ömmu. Þar er þinn staður og það er gott að vita af ykkur saman. Við tvö vorum sérstakir vinir og höfum verið alla mína ævi. Höfum brallað ýmislegt og alltaf mátti ég skottast með þér. Þú hafðir endalausa þolinmæði og svaraðir öllum mínum spurning- um af þinni einstöku hógværð. Ferðirnar í hesthúsið voru margar og fannst mér mesta sportið að fara á gamla jeppan- um þínum. Eitt skiptið losnaði rúðuþurrkan og þeyttist út í móa. Þá leituðum við hlæjandi að henni og héldum svo áfram upp í hesthús. Hestarnir voru þér svo kærir. Ferðirnar í berjamó voru nú nokkrar, ég var ekki alltaf að nenna að tína eins mikið af berj- um og amma. Þá fundum við okkur laut og lögðum okkur meðan amma tíndi bláber og krækiber í heilu föturnar. Minningarnar úr Hrísalundi eru margar, sem og af öllum ferðalögunum sem ég fór í með ykkur ömmu. Okkur fannst nú ekkert leiðinlegt að sitja saman í stofunni í Hrísó með snakk- hringi í skál og horfa á þættina um Nonna og Manna. Við vorum búin að flakka mikið með hjólhýsið, og þegar þurfti að festa það aftan í bílinn eða skrúfa niður lappirnar þá fékk ég að hjálpa þér. Að koma til þín í Lögmanns- hlíðina hefur verið fastur liður þegar ég kem norður og verður skrítið að koma norður næst. En í hjarta mér veit ég að elsku amma hefur tekið vel á móti þér. Hvíldu í friði, ég man þig allt- af. Þín afastelpa, Freydís. Í bænum okkar, besti afi biðjum fyrir þér að Guð sem yfir öllu ræður, allt sem veit og sér leiði þig að ljóssins vegi lát’ þig finna að, engin sorg og enginn kvilli á þar samastað. Við biðjum þess í bænum okkar bakvið lítil tár, að Guð sem lífið gaf og slökkti græði sorgarsár. Við þökkum Guði gjafir allar gleði og vinarfund og hve mörg var ávallt með þér ánægjunnar stund. (Sigurður Hansen) Elsku afi og langafi Takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Ísak Atli fær að heyra sögur af þér eftir því sem hann verður eldri og getur þá skoðað myndir af ykkur saman. Við erum viss um að amma beið spennt eftir þér og nú hald- ið þið jólin saman á ný. Hvíl í friði, elsku afi. Heiðdís Dröfn, Bjarki Hólm og Ísak Atli. Elsku afi minn, ég var búin að þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Við vorum búin að skoða myndir uppá síð- kastið og rifja upp gamla tíma úr hesthúsinu. Þið amma Krist- björg gáfuð mér svo yndislegar stundir bara með því að leyfa mér að vera hjá ykkur. Fyrsta minningin mín er þegar afi sat með mig og Freydísi Dögg frænku í Kringlumýrinni og kallaði okkur litlu dúfurnar sín- ar. Í kringum hestana og kind- urnar áttum við ógleymanlegar stundir saman. Þú komst í hvaða veðrum sem var á gamla Willys og sóttir mig því húsunum þurftum við auðvitað að sinna. Eitt sinn fór amma til Reykja- víkur og þá fannst mér ég auð- vitað þurfa að passa þig, svo ég fór og leigði Dalalíf á videoleigu og keypti kjúkling og franskar handa okkur að borða. Þú borð- aðir nú matinn en lést mig svo vita eftir á að þú værir eiginlega ekkert hrifinn af þesslags mat. Afi minn, nú ertu kominn til elsku ömmu Kristbjargar og ég ætla að geyma allar minning- arnar á góðum stað í hjarta mínu. Takk fyrir allar samveru- stundirnar, afi minn, ég ætla að vera amma eins og þú og amma Kristbjörg. Bryndís Lind Bryngeirsdóttir. Elsku afi. Núna ertu búinn að fá hvíld- ina þína, ég vil þakka þér fyrir öll árin og megir þú og amma eiga gleðileg jól saman á ný. Megir þú hvíla í friði, elsku afi. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Sigrún Björk Bjarkadóttir og fjölskylda. Elsku afi minn. Nú kveð ég þig í hinsta sinn. Ég er þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum og allar minningarnar sem ylja mér um hjartarætur. Þið amma áttuð yndislegt heim- ili í Hrísalundi þar sem alltaf voru hlýjar og góðar móttökur og þaðan á maður margar minn- ingar. Ég minnist þeirra ófáu skipta sem þú fórst með okkur systkinin í hesthúsið að kíkja á hestana þína, okkur fannst það svo skemmtilegt. Þú leyfðir okk- ur að hjálpa til við þau verk sem þar þurfti að vinna og skoða allt dótið sem þarna var geymt. Stundum fórum við á Willys en það þótti okkur mikið sport. Þegar við fórum suður eftir frí hjá ykkur laumaðir þú oft að okkur einum fjólubláum, til að kaupa okkur eitthvað á leiðinni. Síðustu árin dvaldir þú á Lög- mannshlíð og eins og þú sagðir sjálfur fór afar vel um þig þar. Tómasi mínum þótti alltaf svo gaman að heimsækja langafa og var farinn að þekkja hvar kon- fektmolarnir voru geymdir. Hann talar oft um hvað afi hafi alltaf átt gott súkkulaði. Síðast þegar við hittumst spiluðuð þið saman bingó, og fenguð vinning! Þessi stund mun seint gleymast. Ég kveð þig með söknuði, elsku afi, en er viss um að amma hafi tekið vel á móti þér á nýjum stað. Á litlum skóm ég læðist inn og leita að þér, afi minn. Ég vildi að þú værir hér og vært þú kúrðir hjá mér. Ég veit að þú hjá englum ert og ekkert getur að því gert. Í anda ert mér alltaf hjá og ekki ferð mér frá. Ég veit þú lýsir mína leið svo leiðin verði björt og greið. Á sorgarstund í sérhvert sinn ég strauminn frá þér finn. Ég Guð nú bið að gæta þín og græða djúpu sárin mín. Í bæn ég bið þig sofa rótt og býð þér góða nótt. (SPÞ) Hvíldu í friði. Linda Björg. Elsku langafi. Það var alltaf svo gaman að koma til þín í heimsókn og við eigum eftir að sakna þín mikið. Þú áttir alltaf konfekt í skúff- unni þinni og sendir okkur svo heim með pening. Því þú sagðir að við þyrftum að eiga aur fyrir nesti á leiðinni heim. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson.) Takk fyrir allt og hvíldu í friði Katrín Sara, Mikael Kristinn og Tinna Karen. Kristinn Kjartansson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.