Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 31
leitt göngur frá Bæ í Skálholt og tekið þátt í að leiða ferðir um Jakobsveginn á Spáni á vegum Mundo. Hún hefur tekið þátt í norrænu samstarfi píla- grímapresta og sótt ráðstefnur og fundi á þeirra vegum. „Pílagrímahreyfingin er orðin út- breidd í Evrópu. Innan hennar hafa menn sett það á oddinn að sameina það að rækta líkamann um leið og menn rækta trú og tileinka sér ákveðna lífsafstöðu. Við finnum það vel hvað gönguferðir og útivist gera okkur gott og þegar við gefum henni enn dýpri merkingu með að hugleiða efni sem geta bætt líf okkar, þá er þetta sannkölluð mannrækt. Kristnar dygðir eins og hófsemi, æðruleysi, ein- faldleiki, samkennd og virðing fyrir umhverfinu eru hafðar í hávegum á pílagrímagöngu og innan pílagríma- fræðanna. Það hefur aldrei verið mikilvægara en einmitt nú að við íhug- um, hvert og eitt, stöðu okkar í sköp- unarverkinu og ábyrgð okkar sem ein- staklinga gagnvart umhverfinu. Þess vegna fer ég á hverjum miðvikudegi klukkan 18.00 í pílagrímagöngu um nágrenni Dómkirkjunnar.“ Og ganga margir með þér? „Ekki alltaf. Hópurinn sem hefur komið saman í kirkjunni hefur verið frá þremur og upp í næstum 30, en sí- fellt fleiri sýna þessum göngum áhuga og vonandi bætast fleiri í hópinn á nýju ári!“ Fjölskylda Eiginmaður Elínborgar er Jón Ásgeir Sigurvinsson, f. 21.12. 1970, settur sóknarprestur í Borgar- og Stafholtsprestakalli. Foreldrar hans: Aðalheiður Halldóra Guðbjörnsdóttir, f. 9.11. 1938, d. 20.6. 2003, verslunar- maður í Reykjavík, og Sigurvin Jóns- son, f. 13.8. 1937, d. 25.12. 2012, mat- sveinn. Börn Elínborgar og Jóns Ásgeirs eru 1) Hallgerður Kolbrún, f. 17.11. 1997, stúdent og nemi í HÍ; 2) Sturla, f. 7.1. 2003, og 3) Kolbeinn Högni, f. 30.3. 2007. Systkini Elínborgar eru Gunnar, f. 17.7. 1967, lögmaður í Reykjavík; Ást- hildur, f. 10.6. 1974, bæjarstjóri á Akureyri; Böðvar, f. 12.6. 1983, fram- kvæmdastjóri í Stykkishólmi, og Sig- ríður Erla, f. 8.7. 1992, meistaranemi í lögfræði við HÍ, búsett í Stykkishólmi og Reykjavík. Foreldrar Elínborgar eru hjónin Hallgerður Gunnarsdóttir, f. 13.12. 1948, lögfræðingur, og Sturla Böðv- arsson, f. 23.11. 1945, fv. bæjarstjóri, alþingismaður, ráðherra og forseti Alþingis. Þau búa í Stykkishólmi. Elínborg Sturludóttir Sigríður Jónsdóttir húsfr. í Eyvindartungu í Laugardal Teitur Eyjólfsson b. í Eyvindartungu, Laugardal, síðar oddviti í Hveragerði Ásthildur Teitsdóttir húsfr. á Hjarðarfelli Hallgerður Gunnarsdóttir lögfr. og fulltr. sýslumannsins á Vesturlandi Gunnar Guðbjartsson b. á Hjarðarfelli, form. Stéttarsambands bænda og framkvstj. Framleiðsluráðs Guðbranda Þorbjörg Guðbrandsdóttir húsfr. á Hjarðarfelli Guðbjartur Kristjánsson hreppstj. á Hjarðarfelli í Miklaholtshr. Þorleifur Kristófersson arkitekt í Róm Auður Böðvars- dóttir handavinnu- kennari í Ólafsvík Elín Snorradóttir bókari í Mosfellsbæ Snorri Böðvarsson fv. rafveitustj. í Ólafsvík Teitur Gunnarsson efnaverkfræð- ingur í Rvík Björn Teitsson MSc-nemi í Weimar í Þýskalandi Áslaug Helgadóttir gæðastjóri HÍ Guðbjörg Guðbjartsdóttir húsfr. í RvíkÞorbjörg Daphne Hall lektor við LHÍ Alexander Guðbjartsson búfr. á Stakkhamriuður Alexandersdóttir skrifstofum. á Rifi AHildigunnur Smáradóttir textílhönnuður í Rvík Guðrún Alexandersdóttir húsfr. í Ólafsvík Magnús Stefánsson fv. alþm. og ráðherra, nú bæjarstj. Guðbrandur Guð- bjartsson hrepp- stjóri í Ólafsvík Sigþór Guðbrandsson rafvirki í Ólafsvík Stefán Máni Sigþórsson rithöfundur Hulda Hjálmsdóttir húsfr. í Rvík Sindri Freysson rithöfundur Ragnheiður Guðbjartsdóttir kirkjuvörður á Akranesi Óli Jónsson b. á Stakkhamri í Miklaholtshreppi órunn Sigurðardóttir leikstjóri ÞUnnur Ösp Stefánsdóttir leikkona í Rvík Jón Sigurðsson fv. alþm., ráðherra og bankastj. Seðlabankans Sigurður E. Ólason hrl. í Rvík Þuríður Þorsteinsdóttir húsfr. í Mávahlíð Ágúst Ólason b. og póstur í Mávahlíð í Fróðárhreppi Elínborg Ágústsdóttir starfsm. á leikskóla í Ólafsvík Ólöf Bjarnadóttir húsfr. á Selalæk Böðvar Bjarnason byggingam. í Ólafsvík Bjarnveig Vigfúsdóttir húsfr. í Böðvarsholti Þórir Kr. Þórðarson guðfræðiprófessor við HÍ Þórður Nikulásson vélstj. í Rvík Fjóla Bláfeld Víglundsdóttir úsfr. og verkak. í Ólafsfirði h Guðmundur Ólafsson leikari og rithöfundur Víglundur Nikulásson farkennari og verkam. í Ólafsfirði Bjarni Nikulásson b. í Böðvarsholti í Staðarsveit, systursonur Vigdísar, móður Edgar Holger Cahill listfrömuðar í New York Úr frændgarði Elínborgar Sturludóttur Sturla Böðvarsson fv. bæjarstjóri í Stykkishólmi, alþm. og ráðherra ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018 Hringur Jóhannesson fæddistí Haga í Aðaldal 21.12. 1932,sonur Jóhannesar Frið- laugssonar, kennara og rithöfundar, og Jónu Jakobsdóttur húsfreyju. Jóhannes var bróðir Kristínar Sigurlaugar, móður Indriða Indr- iðasonar, ættfræðings frá Fjalli. Jó- hannes var sonur Friðlaugs, bónda á Hafralæk, bróður Friðjóns, föður skáldanna Guðmundar á Sandi og Sigurjóns á Litlulaugum. Friðlaugur var sonur Jóns, bónda á Hafralæk, bróður Péturs á Stóruvöllum, föður Baldvins, skálds í Nesi. Móðir Jóhannesar var Sigurlaug Jósefs- dóttir, bónda á Jarlsstöðum í Bárð- ardal, og Helgu, systur Ásmundar, bónda í Hvarfi, föður Valdimars rit- stjóra, föður Héðins forstjóra og Laufeyjar. Jóna var systir Jónasar veður- fræðings. Hún var dóttir Jakobs, bónda í Haga Þorgrímssonar, og Sesselju Jónasdóttur. Hringur var í hópi þekktari mynd- listarmanna þjóðarinnar á seinni helmingi síðustu aldar og var oft tal- inn helsti fulltrúi ljóðræns nýraun- sæis í íslenskri myndlist á 7. og 8. áratugnum. Hann vakti gjarnan at- hygli með nýjum og frumlegum sjónarhornum. Hringur útskrifaðist úr Handíða- og myndlistaskóla Íslands árið 1952 og hélt sína fyrstu einkasýningu tíu árum síðar. Hann hélt fjölda einka- sýninga um dagana og tók þátt í um 70 samsýningum, hér á landi og er- lendis. Þá var hann kennari við Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1959-62 og við Myndlistaskólann í Reykjavík frá 1962. Hringur myndskreytti einnig mikinn fjölda blaða og tímarita og hannaði minnismerki, bókamerki og auglýsingar auk þess sem verk hans prýða margar byggingar Verk eftir Hring má finna á öllum helstu lista- söfnum landsins, í opinberum stofn- unum og á einkasöfnum. Hann hlaut starfslaun listmanns 1982 og listamannalaun í 25 ár. Hringur lést 17.7. 1996. Merkir Íslendingar Hringur Jóhannesson 90 ára Jónas Sigurður Steinþórsson Ragnheiður Jónsdóttir 85 ára Gunnar Gunnarsson Ingvar Einar Valdimarsson Ragnhildur G. Guðmundsdóttir Sigrún S. Waage Þórunn Jónsdóttir 80 ára Brynjar S. Antonsson Guðmundur Karl Ásbjörnsson Valgerður Fríður Guðmundsdóttir 75 ára Eiríkur Kristinn Kristófersson Erla Sverrisdóttir Kateryna Lifanova Valdimar Karlsson 70 ára Ásmundur Jónasson Guðmundur Birkir Þorkelsson Guðrún Anna Antonsdóttir Helga H. Magnúsdóttir Hulda B. Þorkelsdóttir Jökull Veigar Kjartansson Ragnheiður Ágústsdóttir Þórður Þórðarson 60 ára Ingi Rúnar Eðvarðsson Ona Rimsiene Pétur Grétarsson Sigrún Hafdís Ólafsdóttir 50 ára Anna María Clausen Anna Sofia Wahlström Brynjar Skúlason Elínborg Sturludóttir Gunnhildur Eyborg Reynisdóttir Gunnlaugur K. Guðmundsson Hildur Halldórsdóttir Hilmar Örn Jónasson Jón Hjalti Ásmundsson Kristján Sigurður Guðnason Ólafur Jóhannsson 40 ára Arngrímur Ketilsson Árni Sigurjónsson Benoný Benónýsson Björg Vigfúsdóttir Ebba Schram Edda Ólafsdóttir Elsa Björg Magnúsdóttir Erla Björk Eiríksdóttir Karen Ósk Úlfarsdóttir Sigríður Guðný Matthíasdóttir 30 ára Andrés Már Jóhannesson Embla Ýr Teitsdóttir Ewa Swiderek Hólmsteinn Haraldsson Hrefna Harðardóttir Jóhann Valur Sævarsson Kamile Burcikauskiene Karitas Róbertsdóttir Kristín Gunnarsdóttir Kristján Jóel Kristjánsson Magnús Magnússon Roberto Cracolici Sebastian Szymaniak Stefán Karl Björnsson Þorri Jarl Jónasson Til hamingju með daginn 30 ára Kristín ólst upp á Seltjarnarnesi, býr í Reykjavík, lauk meistara- prófi í grafískri hönnun og starfar hjá Eflu – verk- fræðistofu. Maki: Kristján Finnsson, f. 1990, kerfisfræðingur hjá Eflu. Dóttir: Helga, f. 2015. Foreldrar: Gunnar Þórð- arson, f. 1952, efnaverk- fræðingur og Sunneva Hafsteinsdóttir, f. 1956, framkvæmdastjóri. Kristín Gunnarsdóttir 30 ára Andrés ólst upp í Reykjavík, býr þar, stund- ar nám í viðskiptafræði við HR og leikur knatt- spyrnu með meistara- flokki Fylkis. Maki: Björk Björnsdóttir, f. 1989, leikskólakennari., Foreldrar: Jóhannes Sig- urðsson, f. 1960, dómari í Landsrétti, búsettur í Garðabæ, og Valgerður Andrésdóttir, f. 1962, lyfjatæknir, búsett í Kópavogi. Andrés Már Jóhannesson 40 ára Elsa lauk MA-prófi í heimspeki frá King’s College í London og er formaður Félags áhuga- manna um heimspeki. Maki: Auðun Freyr Ingv- arsson, f. 1972, verkfræð- ingur: Börn: Kolbrún Anna, f. 2014, og Kjartan Ólafur, f. 2016. Foreldrar: Kolbrún Björg- ólfsdóttir, f. 1952, og Magnús Kjartansson, f. 1949, d. 2006. Elsa Björg Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.