Morgunblaðið - 21.12.2018, Side 34

Morgunblaðið - 21.12.2018, Side 34
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hera Hilmarsdóttir hlýtur að vera orðin þekktasta leikkona Íslands eft- ir að hafa leikið á móti stórleikar- anum Ben Kingsley í An Ordinary Man og nú síðast í ævintýramynd- inni Mortal Engines þar sem hún fer með aðalhlutverkið. Kvikmyndin var frumsýnd fyrir viku hér á landi og fellur í flokk með „big budget“ kvik- myndum á mælikvarða Hollywood, framleiðslukostnaður við hana talinn á bilinu 100 til 150 milljónir dollara. Annríkið er mikið hjá Heru en hún gefur sér þó tíma til að spjalla við blaðamann um Mortal Engines og önnur verkefni. Hún er fyrst spurð að því hvort brjálað hafi verið að gera hjá henni undanfarið. „Já, þetta er búið að vera svolítið brjálað síð- ustu vikur en það er bara ákveðin upplifun,“ segir Hera létt í bragði. – Endalaus viðtöl, frumsýningar og kynningar út af myndinni, þá? ,,Já og líka ferðalög milli heims- álfa. En þetta er gaman,“ svarar hún. – Finnurðu mun á havaríinu í kringum þessa mynd og myndina sem þú lékst í á móti Ben Kingsley? „Já, já, þetta er allt öðruvísi. Sú mynd var meira indímynd, sjálfstæð og minni en þetta er miklu meira batterí,“ svarar Hera. – Og það er meira undir núna? „Já, og af því það er stúdíó á bak við þig og þetta er þannig mynd þá fer maður á miklu fleiri „junket“ þar sem maður situr fyrir svörum og það koma kannski 50 blaðamenn, röð eft- ir röð,“ segir Hera. Slík hópviðtöl hafi verið haldin víða undanfarið og gaman líka að heyra hvað fólki finnst um myndina. „Maður er alltaf að segja það sama, aftur og aftur,“ segir Hera sposk um þessi viðtöl og að spurningarnar séu líka oft þær sömu. Borgir á hjólum – Þetta er rosalega skrítin saga, sú sem rakin er í Mortal Engines. Þarna eru borgir á hjólum, eða hvað? Þú ert örugglega búin að segja hundrað sinnum frá henni en ertu til í að rekja söguna í stuttu máli einu sinni enn? ,,Já. Það er spurning hversu mik- ið ég á að einfalda hana en hún ger- ist í heimi þar sem Jörðin hefur ver- ið eyðilögð í stríði og flestir búa í borgum sem hreyfast, eru á hjólum, svo þeir geti veitt aðrar borgir og haldið sér á lífi, komist yfir auðlind- ir þeirra og fólk og þess háttar. Í þessari veröld er stelpa sem ætlar að drepa mann sem myrti móður hennar þegar hún var barn,“ segir Hera en hún leikur umrædda stelpu, Hester. Á ferðum sínum kynnist Hester sjálfri sér betur og nýju fólki, segir Hera og að Hester sogist inn í mun stærra verkefni, að bjarga Jörðinni. – Þessi mynd er eins ólík An Ordi- nary Man og hugsast getur! Hera hlær að athugasemdinni og segir það rétt athugað en fyrir þá sem ekki vita segir An Ordinary Man af fyrrverandi hershöfðingja sem eftirlýstur er fyrir stríðsglæpi. Hera leikur þernu sem hann ræður til sín og mætti segja að kvikmyndin sé að miklu leyti stofudrama. „En Mortal Engines er mikill hasar og sjónrænt er hún alveg klikkuð, algjör and- stæða,“ bætir Hera við. Undirbúningur mest andlegur Hera segir Hester ekki hasarhetju af þeirri gerð sem hlotið hafi mikla þjálfun, hún sé ekki þjálfaður morð- ingi eða bardagakvendi. „Það var mjög mikilvægt fyrir mér að tilfinn- ingin fyrir henni væri sú að hún væri ótrúlega reið, venjuleg ung kona með markmið. Hún er ekki týpan sem er búin að vera að þjálfa sig upp rosa- lega lengi,“ segir Hera. Nóg sé af slíkum hetjum í kvikmyndum sem krefjist þess að leikarar fari í stranga líkams- og hreyfiþjálfun. „Minn undirbúningur var meira and- legur en líkamlegur og ég var í ágæt- isformi, þannig séð, til að hlaupa en ég þurfti aðallega að læra að klifra í klettum og nota hnífa,“ segir Hera kímin. – Hversu stór hluti myndarinnar er leikinn fyrir framan grænskjá, „green screen“? „Miklu minna en þú heldur. Mér finnst svo geggjað við þessa mynd að við vorum með yfir 120 sett og þá meina ég ekki bara einhverjar smáar leikmyndir. Til dæmis er borg sem Dystópískir heimar Heru  Hera Hilmarsdóttir er stjarna Mort- al Engines  Leikur í See, væntanlegri sjónvarpsþáttaröð streymisveitu Apple Rísandi stjarna Hera fer með aðalhlutverkið í Mortal Engines og hefur leikið á móti mörgum heimskunnum leikurum, m.a. Ben Kingsley. 34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018 Norræna húsið Sæmundargötu 11 Aðgangur ókeypis Sýnd til 30. apríl 2019 Ferðalag um furðuheim barnabókmenntanna Ævintýraleiðangur fyrir allskonar krakka Barnabókaflóðið Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Gjöfult samstarf HjörleifsHjartarsonar og RánarFlygenring hófst í fyrraþegar þau sendu frá sér bókina Fugla þar sem lesendur voru fræddir með stórskemmtilegum hætti í máli og myndum um helstu sérkenni íslenskra fugla. Í ár senda þau frá sér Söguna um Skarphéðin Dungal sem setti fram nýjar kenningar um eðli alheimsins. Líkt og í Fuglum semur Hjörleifur textann, en að þessu sinni er ekki um spaugilega fræðslubók að ræða heldur sögu í bundnu máli með stuðlum, höf- uðstöfum og rími sem gerir bókina af- ar heppilega til upplestrar, enda heillar bundið mál undantekningarlítið unga lesendur. Þegar við bætist sérdeilis skemmtilegur húmor textahöfundar og heillandi myndheimur Rán- ar er ljóst að hér er á ferð- inni sannkallaður gimsteinn sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Líkt og titillinn gefur til kynna fjallar bókin um Skarphéðin Dungal, sem er hrossataðsfluga. Hann býr ásamt fleiri sínum líkum á Sléttunni miklu í svonefndri Háborg, sem höf- undur upplýsir snemma bókar að sé hrossaskítshrúga úr hryssunni Skellu. Allar flugur Háborgarinnar eru sáttar við að „láta alla hugsun um heimspeki í friði“ – allar nema Skarphéðinn sem skoðar málin með gagnrýnum huga, forðast kreddur og leyfir sér að efast. Ólíkt hinum flugunum er hann ekki sannfærður um að Sléttan sé miðja al- heimsins og telur að eitthvað meira leynist bak við sjóndeildarhringinn. Flugur Háborgarinnar hafa jafnlitla þolinmæði fyrir veraldarkenningum Skarphéðins og menn höfðu gagnvart sólmiðjukenningartali Galíleós Galíleí á sínum tíma. Til að fá vinnufrið til að grafa eftir vatni í Háborginni sem er að skrælna upp í sólinni henda flug- urnar Skarphéðni fram af háum tindi svo hann berist burt með vindinum. Þetta veit- ir Skarphéðni kærkomið tæki- færi til að kanna heiminn áður en hann snýr reynslunni ríkari aftur til Háborgarinnar. Þar talar hann enn fyrir daufum eyrum og reitir flugurnar, sem enn vilja stinga höfðinu í „sandinn“ til reiði þegar hann upplýsir um raunverulegt eðli Háborg- arinnar. En óvænt innkoma Skellu verður Skarphéðni til happs. Dellutal bókarinnar vekur eðlilega mikla kátínu ungra lesenda, en í skítn- um leynist óvæntur fjársjóður því höf- undur virkjar bæði hugmyndaflug og heimspekilega hugsun í anda sögu- hetjunnar fleygu. Á sama tíma eflir hann orðaforða lesenda með notkun sjaldséðra orða sem þjóna iðulega rím- inu. Sjónræn útfærsla bókarinnar er bæði djörf og spennandi. Myndefni Ránar samanstendur af fallega teikn- uðum flugum og áhrifaríkum klippi- myndum. Aðeins eru notaðir litirnir svartur, grár og appelsínugulur og textinn ýmist svartur eða grár eftir því hver meginbakgrunnslitur hverrar síðu er. Litanotkunin er augljóslega útpæld. Sem dæmi er Háborgin app- elsínugul fram að útlegð Skarphéðsins, sem kallast aftur á við hrossataðið undir lok bókar sem kemur úr svartri skepnunni. Klippimyndirnar fanga vel þær ógn- vænlegu skepnur sem Skarphéðinn kynnist á ferð sinni um heiminn og nýtast einnig vel til að gefa aukna dýpt í landslagið. Lítið er um letur- breytingar, en hástafir og minna letur innan sviga er hugvitsamlega nýtt til ýmist áhersluauka eða að læða inn upplýsingum í framhjáhlaupi. Þeim mun áhrifaríkara verður þegar textinn fer í hringi þegar vindurinn feykir Skarphéðni burt frá Háborginni. Skýr hreyfing í myndefninu hvetur lesendur til að elta Skarphéðin milli blaðsíðna. Sagan um Skarphéðin Dungal er bók fyrir alla fjölskylduna sem gaman er að lesa upphátt en einnig má njóta í einrúmi. Hér er hvatt til gagnrýninnar hugsunar um heiminn sem veitir ekki af nú um stundir. Með gagnrýnum huga Fjölskyldubók Sagan um Skarphéðin Dungal sem setti fram nýjar kenningar um eðli alheimsins bbbbb Eftir Hjörleif Hjartarson og Rán Flygenring. Angústúra, 2018. Innbundin, 72 bls. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR BÆKUR Samspil Samstarf Hjörleifs Hjartarsonar og Ránar Flygenring hefur reynst sérdeilis gjöfult. Samspil texta og myndefnis gengur fullkomlega upp. Morgunblaðið/Hari Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.