Morgunblaðið - 21.12.2018, Síða 35
heitir Airhaven í myndinni og er uppi
í skýjunum og það var bara byggður
lítill bær sem hékk uppi í loftinu í
einu stúdíóinu,“ segir Hera og nefnir
annað dæmi, að eftirlíking hafi verið
byggð af innanverðri St. Paul’s-
dómkirkjunni í Lundúnum. Margt
hafi svo auðvitað þurft að teikna í
tölvu, eins og gefur að skilja.
Skemmtilegt og krefjandi
– Hvernig var að leika í myndinni,
var þetta gaman?
„Þetta var mjög gaman, erfitt en
mjög gaman. Ég var úti í sex mánuði,
á Nýja-Sjálandi og það er æðislegt
að vera þar. Fólkið þar er svo yndis-
legt og það er svo gaman að geta
unnið í svona verkefni þarna, rosa-
lega margt hæfileikafólk sem hefur
unnið saman í áratugi og er eins og
maskína,“ svarar Hera. Verkefnið
hafi verið skemmtilegt og krefjandi.
Mortal Engines er framleidd af
leikstjóranum Peter Jackson, sem
þekktastur er fyrir að leikstýra þrí-
leiknum Hringadróttinssögu, og eig-
inkonu hans, Fran Walsh. Leikstjóri
kvikmyndarinnar er Christian Riv-
ers sem hefur starfað sem story-
bord-teiknari og við tæknibrellur og
tölvuteiknun í kvikmyndum Jackson,
allt frá árinu 1992. Rivers hlaut Ósk-
arsverðlaun fyrir sjónbrellur í King
Kong, kvikmynd Jackson, en Mortal
Engines er fyrsta kvikmynd hans í
fullri lengd.
Einn af mótleikurum Heru í
myndinni er Hugo Weaving sem
hlaut heimsfrægð fyrir leik sinn í
Matrix-þríleiknum, lék þar illmenni
mikið. Hefur hann upp frá því nær
eingöngu leikið illmenni en Hera
segir hann þó ljúfan sem lamb.
„Hugo er frábær, virkilega skemmti-
legur og góður,“ segir hún.
Blint mannkyn
– Hvað er næst á dagskrá hjá þér?
„Ég er að leika í seríu fyrir Apple
sem heitir See. Þetta er fyrsta svona
serían sem Apple gerir og verður í
streymisþjónustu,“ segir Hera. Höf-
undur þáttanna er Steven Knight
sem skrifaði m.a. sjónvarpsþættina
Peaky Blinders og handrit kvik-
myndarinnar Eastern Promises.
„Francis Lawrence sem leikstýrði
t.d. Hungurleikunum er að leik-
stýra,“ segir Hera, „og þetta er alveg
klikkað konsept og rosaleg undir-
búningsvinna búin að vera fyrir
þættina. Í þeim er mannkynið orðið
blint og það er bara allt annað kons-
ept að vera í veröld þar sem enginn
sér.“
Af öðrum leikurum sem leika í
þáttunum má nefna Jason Momoa og
Alfre Woodard og af umfjöllun á net-
inu má sjá að mikið er lagt í þættina
sem verða átta talsins. Tökur á þeim
hófust í ágúst og segist Hera hafa
verið að leika í þeim milli þess sem
hún hefur flakkað um heiminn að
kynna Mortal Engines. „Á endanum
skiptir meira máli að vinna en að tala
um vinnuna,“ segir Hera og hlær,
vísar í hinn mikla fjölda viðtala sem
hún hefur farið í að undanförnu, þar
með talið það sem hér er á enda
runnið.
Frumsýningargleði Mortal Engines var frumsýnd í Los Angeles 5. desember. Frá vinstri leikarinn Hugo Weaving,
leikstjórinn Christian Rivers og leikararnir Robert Sheehan, Jihae, Hera, Leila George og Stephen Lang.
AFP
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018
Siggi sítróna er fjórða og síð-asta bók Gunnars Helga-sonar um Stellu Erlings-dóttur og litríku fjölskyld-
una hennar: mömmu klikk, pabba
prófessor, Sigga sætabrauð, sem
síðar verður Siggi sítróna, Palla
bróður, ömmu Köben og ömmu
snobb. Rýnir
hefur ekki lesið
fyrstu þrjár
bækurnar í röð-
inni, en það sak-
ar ekki við lest-
ur Sigga
sítrónu.
Það er aldrei
lognmolla í
kring um Stellu,
jafnvel þó hún
eyði fjórum vikum í rúminu á meðan
hún jafnar sig eftir aðgerð á mænu.
Það er nefnilega nóg að gera hjá fjöl-
skyldunni við að undirbúa brúðkaup
og fæðingu tvíburanna sem mamma
klikk gengur með. Textinn er afar
líflegur og bókin skemmtileg. Gunn-
ar lætur ekki sitt eftir liggja í því að
draga úr fordómum með því að
skrifa um fatlaða og mismunandi
trúarbrögð á eðlilegan hátt, en aðal-
sögupersónan er unglingsstúlka í
hjólastól sem tekur skapsveiflur og
lendir í ástarsorg rétt eins og flestar
stúlkur á hennar aldri. Foreldrar
Stellu veigra sér heldur ekki við því
að láta imam gifta sig þegar ekki
fæst prestur í verkið, eftir fallegt
boð frá Fatímu, vinkonu Stellu.
Sagan er virkilega skemmtilega
skrifuð og ská- og feitletranir skila
sínu í mismunandi áherslum og til-
finningum sem fylgja hverju orði og
setningu fyrir sig. Það er vissulega
synd að Siggi sítróna skuli vera síð-
asta bókin í flokknum um Stellu og
furðulegu fjölskylduna hennar, en
miðað við afrakstur Gunnars við
barnabókaskriftir undanfarin ár er
ekki að örvænta, hann er líklegur til
að skapa fleiri sögur og persónur til
þess ætlaðar að auka samfélags-
skilning barna með einstökum og
skemmtilegum hætti.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Lokasagan „ ... synd að Siggi sítróna skuli vera síðasta bókin í flokknum um
Stellu og furðulegu fjölskylduna hennar,“ segir m.a. um bók Gunnars.
Síðasta sagan um Stellu
Skáldsaga
Siggi sítróna bbbbn
Eftir Gunnar Helgason
Mál og menning, 2018. Innb., 186 bls.
ÞORGERÐUR ANNA
GUNNARSDÓTTIR
BÆKUR
Enska leikkonan Olivia Colman þyk-
ir líkleg til að hreppa fjölda verð-
launa fyrir leik sinn í kvikmyndinni
The Favorite en hún lætur þá at-
hygli ekki stíga sér til höfuðs og seg-
ir að sér bjóði hreinlega við öllu
verðlaunatali.
Colman leikur í myndinni Önnu
Stuart Englandsdrottningu sem
ríkti á árunum 1665-1714 og á móti
henni leika Rachel Weisz og Emma
Stone. Þykir líklegt að Colman verði
tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir
leik sinn en hún hefur verið tilnefnd
til Golden Globe-verðlauna.
Í viðtali í dagblaðinu Guardian er
Colman spurð að því hvort hún telji
að notkun á tilteknu dónalegu orði í
myndinni muni minnka líkur á því að
hún verði tilnefnd og svaraði Colm-
an: „Hverjum er ekki skítsama?“ og
bætti við að verðlaunatal undan-
farnar vikur, tengt myndinni, ylli
henni ógleði.
Verðlaunatal veldur Colman ógleði
AFP
Verðlaunatal Olivia Colman hefur lítinn
áhuga á kvikmyndaverðlaunaspám.
Elly (Stóra sviðið)
Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 187. s Fös 18/1 kl. 20:00 190. s
Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Lau 12/1 kl. 20:00 188. s Lau 19/1 kl. 20:00 191. s
Fös 4/1 kl. 20:00 186. s Sun 13/1 kl. 20:00 189. s Sun 20/1 kl. 20:00 192. s
Stjarna er fædd.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 20:00 Frums. Sun 6/1 kl. 20:00 3. s Fös 11/1 kl. 20:00 5. s
Fim 3/1 kl. 20:00 2. s Fim 10/1 kl. 20:00 4. s Mið 16/1 kl. 20:00 6. s
Ég, tveggja stafa heimsveldi
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Sun 30/12 kl. 20:00 25. s Fös 4/1 kl. 20:00 26. s Fös 18/1 kl. 20:00 27. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Lau 5/1 kl. 20:00 aukas. Lau 19/1 kl. 20:00 20. s
Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Sun 6/1 kl. 20:00 15. s Fös 25/1 kl. 20:00 24. s
Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Fös 11/1 kl. 20:00 16. s Lau 26/1 kl. 20:00 25. s
Sun 30/12 kl. 20:00 14. s Lau 12/1 kl. 20:00 17. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s
Fös 4/1 kl. 20:00 aukas. Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Núna 2019 (Litla sviðið)
Fös 11/1 kl. 20:00 Frums. Lau 12/1 kl. 20:00 2. s Sun 13/1 kl. 20:00 3. s
Núna er ekki á morgun, það er NÚNA
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 22/12 kl. 13:00 9. s Lau 22/12 kl. 15:00 aukas.
Aðeins sýnt á aðventunni.
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 5/1 kl. 20:00 1. s Fim 17/1 kl. 20:00 3. s
Sun 6/1 kl. 20:00 2. s Lau 19/1 kl. 20:00 4. s
Sannar en lygilegar sögur!
Ég dey (Nýja sviðið)
Fim 10/1 kl. 20:00 Frums. Mið 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 24/1 kl. 20:00 5. s
Sun 13/1 kl. 20:00 2. s Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn
Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn
Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn
Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn
Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka
Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 21/12 kl. 19:30 Fors. Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn
Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 16/3 kl. 15:00 15.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Insomnia (Kassinn)
Lau 12/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Sun 6/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00
Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS